Morgunblaðið - 05.10.1991, Side 16
16
Guðríður St. Sigurðardóttir,
pianóleikari.
Píanótónleik-
ar í Hvera-
gerðiskirkju
GUÐRÍÐUR St. Sigairðardóttir
heldur píanótónleika í Hvera-
gerðiskirkju sunnudaginn 6.
október nk.
Guðríður starfar sem píanó-
kennari við Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar og Tónlistarskól-
ann í Reykjavík. Hún lauk einleik-
araprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík vorið 1978, meistara-
prófi í píanóleik frá The University
of Michigan 1980 og hefur auk
þess sótt einkatíma í píanóleik og
mörg námskeið erlendis. Hún hef-
ur víða komið fram hér heima og
erlendis.
Á tónleikunum leikur hún verk
eftir C.P.E. Bach, J. Haydn, Svein-
björn Sveinbjömsson, Pál ísólfs-
son, A. Skijabin og C. Debussy.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30
og eru allir velkomnir. Aðgangs-
eyrir er kr. 500 en frítt fyrir
grunnskólanema.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991
Michael K. Hooker rektor háskólans í Maryland:
Samvinna háskóla og iðnfyrir-
tækja nauðsynleg í framtíðinni
íslendingar eiga mikla möguleika á öld þekkingar
og upplýsinga sökum öflugs menntakerfis
MICHAEL K. Hooker, rektor háskólans í Maryland, Baltimore,
telur að samvinna háskóla og iðnfyrirtækja, einkum á sviði líftækni,
sé nauðsynleg í framtíðinni. Heimurinn muni á næstunni sigla inn
í öld þekkingar og upplýsinga og efnahagskerfi heimsins muni
mótast mjög af þessu. Þau lönd sem eigi mikinn auð af gáfum og
menntun muni verða í fararbroddi þessarar nýu aldar. Hann segir
íslendinga eiga þar mikla möguleika sökum öflugs menntakerfis
sem geri það m.a. kleift að hérlendis séu nær allir læsir. I þeim
efnum komist Bandarikjamenn ekki með tærnar þar sem íslending-
ar hafa hælana svo dæmi sé tekið.
Michael K. Hooker er rektor
Maryland-háskólans og kom hing-
að til lands vegna málþings um
háskóla og háskólamenntun í
Bandaríkjunum og flutti þar fyrir-
lestur á fimmtudaginn. Hann er
frumkvöðull að samstarfí háskóla
og iðnfyrirtækja í Bandaríkjunum
og það hefur skilað svo góðum
árangri að hann reiknar með að
eftir 10-15 árþurfi Maryland-skól-
inn ekki að krelja nemendur sína
um skólagjöld sökum þess hve
skólinn hafí hagnast á samvinnu
þessari.
„Það sem við stöndum núna
frammi fyrir er að efnahagskerfi
heimsins er að breytast mjög mik-
ið,“ segir Michael K. Hooker. „í
fortíðinni hefur þetta kerfi að
mestu byggt á orkunotkun, það
er orka í ýmsum myndum hefur
verið drifkraftur þess. í framtíð-
inni mun þetta snúast við þannig
að drifkrafturinn verður þekking
og upplýsingar, uppgötvanir á
nýrri þekkingu og endurúrvinnsla
á gamalli þekkingu."
I máli hans kemur fram að hvað
fískvinnslu og veiðar á íslandi
varða verða miklar breytingar á
næstu áratugum. „í stað veiðanna,
sem eru orkufrekár, kemur fískeldi
í ríkari mæli og hvað fiskvinnsluna
varðar koma vélmenni í stað fólks-
ins,“ segir Hooker. „Fiskiðnaður-
inn í heild mun taka miklum breyt-
ingum í þá átt að fískeldi verður
stundað í mun meira mæli en áð-
ur. Þar verður stuðst við líftækni
með gerð vaxtarhormóna sem fá
fiskinn til að vaxa hraðar og skila
betri afurð. Ég var nýlega í Tæ-
landi þar sem rækjueldisstöðvar
eru byijaðar að nota þessa horm-
óna með góðum árangri. En lengra
inni í framtíðinni má sjá fyrir sér
að aðeins sé ræktað fiskhold í þar
til gerðum kerum þegar líftækn-
inni fleygir ennþá lengra frarn."
Hvað fískvinnsluna varðar segir
Hooker að í framtíðinni muni vél-
menni og leisi-stýrð tölvutækni
leysa fólk af hólmi og þessar breyt-
ingar séu þegar hafnar. Því kemur
upp mikilvægi þess að háskóli og
iðnfyrirtæki eigi með sér nána
samvinnu um uppgötvanir og þró-
un þeirra fyrir markaðinn.
Fyrsta verkefnið við John
Hopkins-háskólann
Sem fyrr segir er Hooker frum-
kvöðull þess í Bandaríkjunum að
koma á samvinnu háskóla og iðn-
fyrirtækja í Bandaríkjunum en
fyrsta verkefni hans á því sviði var
er hann starfaði við John Hopkins-
Morgunblaðið/ Sverrir Vilhelmsson
“Þeir sem vinna næsta efnahag-
skapphlaup eru þeir sem finna
stystu leiðina frá uppgötvun til
þess að not verði fyrir hana á
markaðinum," segir Michael K.
Hooker.
háskólann. Var þar um að ræða
sameiginlegt rannsóknarverkefni í
líftækni milli skólans og iðnfyrir-
tækis. Nú er Hooker framkvæmda-
stjóri tveggja hátæknifyrirtækja
samhliða rektorsstörfum sínum í
Maryland.
„Markmiðið með samvinnu há-
skóla og iðnfyrirtækja er einkum
að nýta sem best þá þekkingu sem
til er í skólanum og þróa uppgötv-
anir sem fljótast fyrir marka.ðinn,“
segir Michael K. Hooker. „Ég hef
unnið að þessu starfí undanfarin
12 ár og það er reynsla okkar sem
höfum unnið að þessu að besta
leiðin til samvinnu er sú að viðkom-
andi háskóli og iðnfyrirtæki stofni
með sér nýtt fyrirtæki sem stað-
sett er sem næst rannsóknarstofn-
un háskólans. Þrír aðilar mynda
eigendahóp hins nýja fyrirtækis,
það er skólinn með 5-10% eignar-
hlut, fjárfestar með 90-95% eign-
arhlut og menn frá skólanum og
iðnfyrirtækinu sem mynda stjóm
hins nýja fyrirtækis. Hagur skól-
ans liggur í arði af þeim einkaleyf-
um sem hið nýja fyrirtæki aflar
sér með uppgötvanir þeim sem
gerðar eru á rannsóknarstofum
skólans og ég get sagt að hvað
Maryland varðar verður sá skóli
innan fárra ára mjög auðugur af
þátttöku sinni í samvinnuverkefn-
um af þessu tagi.“
í máli Hookers kemur einnig
fram að verkefni af þessu tagi séu
nú hafín víða um heim en einkum
í Evrópulöndum og Japan auk
Bandaríkjanna. „Efnahagskapp-
hlaupið á 21. öldinni mun snúast
um þekkingu og upplýsingar og
það má segja að nú eigi allir jafna
möguleika á að ná langt í því kapp-
hlaupi. Þetta kapphlaup mun vinn-
ast af þeim sem finna leiðir til að
stytta tímann sem líður milli þess
að uppgötvun er gerð og að not
verði fyrir hana á markaðinum,"
segir Hooker. „Uppgötvanir eiga
sér stað á rannsóknarstofum en
síðan er það fyrirtækja að breyta
þeim í markaðsvöru. Besta leiðin
til.að gera slíkt er náin samvinna
þessara aðila. Það sem við erum
að gera nú er að leita leiða til að
fullkomna kerfið."
»
>
\
i
>
i
Jffltóáur
r
a
ntorgun
t v SpN ±■
Guðspjall dagsins:
Matt. 9.:
Jesús læknar hinn lama.
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra:
HADEGISVERÐARFUNDUR presta
verður í safnaðarheimili Bústaða-
kirkju mánudaginn 7. október kl.
12. Dr. Björn Björnsson ræðir um
texta næsta sunnudags.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Munið kirkjubílinn. Árni
Bergur Sigurbjörnsson. Fimmtu-
dag: Biblíulestur í safnaðarheimil-
inu kl. 20.30.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Arna, Gunnar og Pálmi. Guðs-
þjónusta kl. 14. Einsöngur Magnea
Tómasdóttir. Fermdir verða Stefán
Pétur Viðarsson, Háaleitisbraut 44,
og Tómas Hall, Hótel Loftleiöum.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Jakob Ág.
Hjálmarsson. Messa kl. 14. Skírn,
ferming, altarisganga. Fermdur
verður Tómas Davíð Þorsteinsson,
Seljalandsvegi 73, Isafirði, p.t.
Sörlaskjóli 9, Reykjavík. Kirkjukaffi
í safnaðarheimilinu eftir messu. Sr.
Hjalti Guðmundsson. Samkoma
Hjálpræðishersins kl. 16.30. Mikill
söngur. Vitnisburður. Hjálpræðis-
herinn. Miðvikudag kl. 12.05. Há-
degisbænir. Léttur málsverður á
kirkjuloftinu á eftir.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 11. Barnakór Grensáskirkju
syngur. Stjórnandi Margrét Pálma-
dóttir. Undirleikari Árni Arinbjarnar-
son. Organisti Jakob Hallgrímsson.
Messunni verður útvarpað. Messa
kl. 14. Sr. Halldór S. Gröndal. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson. Þriðju-
dag: Kyrrðarstund alla þriðjudaga
kl. 12.00. Orgelleikur í 10 mínútur.
Þá helgistund með fyrirbænum og
altarisgöngu. Að henni lokinni er
súpa, brauð og kaffi á boöstólum.
Öllu þessu getur verið lokið fyrir
kl. 13.00. Þriðjudag: Biblíulestur kl.
14.00 fyrir eldri borgara og vini
þeirra. Opið hús og kaffiveitingar á
eftir. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og
barnasamkoma kl. 11. Altaris-
ganga. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa
j<l. 10. Sr. Tómas Sveinsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer
frá Suðurhlíðum um Hlíðarnar fyrir
barnaguðsþjónustuna. Hámessa kl.
14. Sr. Arngrímur Jónsson. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkjunni
á miðvikudögum kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Jón Stefánsson.
Prestur sr. Flóki Kristinsson. Kór
Langholtskirkju flytur stólvers.
Molasopi að guðsþjónustu lokinni.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Börn úr 10-12 ára starfi
aðstoða. Inga Backman syngurein-
söng. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson.
Barnastarf á sama tíma. Heitt á
könnunni eftir guðsþjónustuna.
Fimmtudag: Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, altarisganga, fyrirbæn-
ir. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu að stundinni lokinni.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Frank M.
Halldórsson. Athugið breyttan
tíma. Miðvikudag: Bænamessa kl.
18.20. Sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Organisti Þóra Guðmunds-
dóttir. Prestursr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Barnastarf á sama
tíma. Börnin ganga niður á neðri
hæð þegar prédikun hefst og fá þar
fræðslu og söng við sitt hæfi. Um-
sjón hafa Bára Friðriksdóttir og
Eirný Ásgeirsdóttir. Kynningarátak
á Eiðistorgi og í Seltjarnarneskirkju
dagana 7.-13. október. Kynningar á
Eiðistorgi kl. 16-18, mánudaga,
þriðjudaga og miðvikudaga og sam-
komur í kirkjunni á kvöldin kl. 20.30.
Messa á Eiðistorgi kl. 17, föstudag-
inn 11. október. Tónlist leikin frá
kl. 16. Sóknarprestur.
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11 árdegis. Barna-
guðsþjónusta á sama tíma í kirkj-
unni. Miðvikudagur: Fyrirbæna-
guðsþjónusta í Arbæjarkirkju kl.
16.30. Sr. Guðmundur Þorsteins-
son.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Altar-
isganga. Bænaguðsþjónusta með
altarisgöngu þriðjudag kl. 18.30.
Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 14. Vænst er
þátttöku fermingarbarna og for-
eldra þeirra. Sr. Þorbergur Kristj-
ánsson.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Messa kl.
10. Sr. Bragi Skúlason.
FELLA- og Hólakirkja: Guðsþjón-
usta kl. 11. Altarisganga. Prestur
sr. Hreinn Hjartarson. Organisti
Guðný M. Magnúsdóttir. Barna-
samkoma kl. 11 í umsjón sr. Guð-
mundar Karls Ágústssonar. Fyrir-
bænir í Fella- og Hólakirkju mánu-
dag kl. 18. Helgistund í Gerðubergi
fimmtudag kl. 10. Prestarnir.
GRAFARVOGSSÓKN: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn. Skólabíllinn leggur af stað
frá Hamrahverfi kl. 10.30 og fer
venjulega skólaleið. Nýr sunnu-
dagspóstur. Umsjón: Valgerður,
Katrín og Hans Þormar. Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Þór Hauksson préd-
ikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór-
inn syngur undir stjórn Sigríðar
Jónsdóttur organista. Starfshópur
um safnaðaruppbyggingu hittist í
guðsþjónustu kl. 14 og í Árbæjar-
kirkju kl. 16. Vigfús Þór Árnason.
HJALLASÓKN: Messusalur Hjalla-
sóknar Digranesskóla. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Helgistund með
þátttöku fermingarbarna kl. 13.30.
Allir velkomnir. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf sunnudag kl. 11 í safnaðar-
heimilinu Borgum. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11. Ægir Fr. Sig-
urgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organ-
isti Kjartan Sigurjónsson. Upphaf
Músikdaga í Seljakirkju kl. 17. Sókn-
arprestur.
ÓHÁÐI söfnuðurinn: Fjölskyldu-
messa kl. 14. Barnastarfið hefst.
Safnaðarprestur.
KFUM/KFUK: Stórsamkoma í Ás-
kirkju kl. 16.30 fyrir alla fjölskyld-
una. Ræðumaður Sigurður Páls-
son. Barnasamvera á sama tíma í
kirkjunni. ,
HJALPRÆÐISHERINN: Hjálpræð- 1
issamkoma í Dómkirkjunni kl.
16.30. Ræðumaður brigadier Ingi-
björg Jónsdóttir. Sunnudagaskóli í I
Herkjallaranum á sama tíma.
NÝJÁ postuiakirkjan: Guðsþjón-
usta kl. 11. I
MOSFELLSPRESTAKALL: Messa
í Lágafellskirkju kl. 14. Organisti
Guðm. Ómar Óskarsson. Barna-
starfið hefst í safnaðarheimilinu kl.
11. Sr. Jón Þorsteinsson.
GARÐASÓKN: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 13 í Kirkjuhvoli. Sr. Bragi
Friðriksson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11 í umsjá Málfríðar og
Ragnars Snæs. Munið skólabílinn.
Messa kl. 14. Sr. Bjarni Þór Bjarna-
son héraðsprestur messar. Organ-
isti Einar Örn Einarsson.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnaguðs-
þjónusta í kirkjunni kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 11 á Hrafnistu. Sr.
Bragi Friðriksson messar. Sr. Sig-
urður Helgi Guðmundsson.
ÖRKIN, fær. sjómannaheimilið:
Samkoma kl. 17. ræðumaður Jacob
Mortensen. Organisti EiríkurSkála.
ÞORLÁKSKIRKJA: Messa og
sunnudagaskóli kl. 10.30. Organisti
Hákon Leifsson. Sr. Svavar Stef-
ánsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðs-