Morgunblaðið - 05.10.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.10.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTOBER 1991 19 Stríðshanska kastað eftir Pál Pétursson Undanfarna áratugi hefur stjórnarmeirihluti jafnan kappkost- að að hafa sem besta samvinnu við stjórnarandstöðu um störf Alþing- is. Hefur þá einu gilt hverjir hafa skipað meirihluta eða minnihluta.- Stjórnarliðum hefur einkum verið augljós hagur að góðri samvinnu. Ríkisstjórn hefur á hvetjum tíma verið mjög mikilvægt að tryggja sem greiðastan framgang mála sinna á þingi og borið meginábyrgð á þinghaldinu. Stjórnarandstaða hefur líka nokkurn hag af góðri samvinnu. Andrúmsloft í þingsöl- um hefur verið betra og öll sam- skipti manna á meðal gengið betur fyrir sig vegna góðrar samvinnu. Auk þess hefur stjórnarandstaða ævinlega fengið einhveijum málum framgengt. Þetta hefur byggst á gagnkvæmu trausti, sanngirni og tillitssemi manna á meðal. eiga fulltrúa í forsætisnefnd ef stjórnarliðið hefði ákveðið að beita ofbeldi og yfírgangi. Við teljum að með afstöðu sinni séu sjálfstæðismenn að kasta stríðshanskanum. Þetta sé yfirlýs- ing um það að í engu verði sinnt óskum stjórnandstöðu og stjórnarl- iðið hafi ákveðið að néyta aflsmun- ar og láta kné fylgja kviði í hví- vetna. Okkur er enginn hagur af því að tilnefna tvo valdalausa vara- forseta þegar fyrir liggur að ekkert verði á þá hlustað og ákvörðun hafi verið tekin um að vaða yfir þá. Þá væri rökréttara að stjórnar- liðið bæri eitt ábyrgð á stjórn þings- ins og fyrst þeir vildu stríð við stjórnarandstöðu, þá yrði að taka því. Hinir vitrari og þingreyndari sjálfstæðismenn vildu reyna að leysa málið í félagi við stjórnarand- stöðuna en fengu engu áorkað við hina ólmu og óreyndu forystumenn sem tekið hafa völdin í Sjálfstæðis- flokknum. „Okkur er enginn hag- ur af því að tilnefna tvo valdalausa varaforseta þegar fyrir liggur að ekkert verði á þá hlust- að.“ Árangurslausar sáttatilraunir Salome Þorkelsdóttir forseti ger- ir sér auðvitað grein fyrir því að þessi viðbrögð sjálfstæðismanna gera henni mjög örðugt fyrir um stjórn þingsins. Hún bauð upp á að beita sér fyrir þvi að Kvennalist- inn hefði áheyrnarfulltrúa í forsæt- isnefndinni. Það var ófullnægjandi lausn og því buðum við stjórnar- andstæðingar upp á að sjálfstæðis- maður sæti sem áheyrnarfulltrúi ef Sjálfstæðisflokknum væri ekki nóg að eiga forsetann með því al- ræðisvaldi sem honum hefur verið fengið. Þessu neituðu sjálfstæðis- menn. Þá buðum við stjórnarandstæð- ingar samkomulag um að breyta þingsköpum og fjölga um einn í forsætisnefnd og hefði það leyst málið með fullum sóma allra aðila. Allir flokkar hefðu fengið fulltrúa og Sjálfstæðisflokkurinn viðbótar- mann með Salome. Alþýðuflokkur- inn féllst á þessa lausn en þá neit- uðu sjálfstæðismenn þótt ótrúlegt megi virðast. Á síðasta vori fjölg- uðu þó stjórnarliðar í fjárlaganefnd til þess að geta bætt þar inn viðbót- arkrata og leyst ágreining í eigin herbúðum. Þannig að fordæmi var vissulega fengið. Við stjórnarandstæðingar erum reynslunni ríkari. Stjórnarliðið vill ekki samstarf við okkur. Við getum ekki treyst að samkomulag við stjórnarliðið haldi og verðum að búast við hinu versta: Þingfiokkur sjálfstæðismanna hefur á að skipa mörgum hæfum stjórnmálamönn- Páll Pétursson um og er illt til þess að vita að þeir skuli láta sér lynda að hafa í fyrirsvari menn sem haga sér eins og nashyrningar. Iíöfundur er formaður þingflokks framsóknarmanna. Farangur Davíðs Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur nú kosið að hverfa fá þeirri braut og hefur tekið upp starfs- hætti sjálfstæðismeirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur, þ.e. að neyta alltaf ýtrasta aflsmunar og taka aldrei ótilneyddur tillit til minnihlutans. Það er mikil afturför að innleiða þau vinnubrögð á Al- þingi og óviturlegt í meira lagi og kemur að sjálfsögðu til með að skaða stjórnarmeirihlutann sjálfan fýrst og fremst. Á síðastliðnu vori náðist þverpól- itísk samstaða um breytt þingsköp. Ákveðið var að viðhafa hlutfalls- kosningu á varaforsetum þingsins og skapa þannig svigrúm til þess að allir þeir flokkar sem nú eiga fulltrúa á Alþingi ættu nokkra að- ild að stjórn þingsins. Og þannig var forsætisnefndin skipuð á vor- þinginu. Sjálfstæðisflokkurinn hafði fyrirvara um þessa skipan þar sem hann væri stærstur og gæti samkvæmt hlutfallsreglu átt einn af varaforsetunum auk forset- ans. Alræðisvald forseta Hafa ber það í huga að sam- kvæmt þingsköpum er forseti með alræðisvald. 9. gr. þingskapa segir: „Forseti ber ábyrgð á rekstri Al- þingis og hefur æðsta vald í stjórn- sýslu þess.“ í 10. gr. er það tekið fram að „verði ágreiningur í nefnd- inni sker forseti úr“. Þetta tryggir það að vilji forseta nær alltaf fram að ganga í forsætisnefndinni ef í odda skerst. Nefndin er hugsuð sem samráðsvettvangur og þýðing- arlaust að láta ganga þar atkvæði þar sem forseti ræður alltaf niður- stöðu. Þar af leiðir að það er mjög villandi að tala um meirihluta og minnihluta, vilji forsetans nær allt- af fram að ganga. Af þessum sök- um þurfti stjórnarliðið ekki að ótt- ast um sinn hag, þar sem það hafði á valdi sínu að ráða hver yrði for- seti Alþingis. Við þingsetningu nú kom í ljós að þingflokkur sjálfstæðismanna ætlaði að ijúfa þá samstöðu sem náðist í vor. Þeir ákváðu að taka einn af varaforsetunum og útiloka þar með einn stjórnarandstöðu- flokkinn frá forsætisnefndinni. Þessu vildum við stjórnarandstæð- ingar ekki una. Við óskuðum mjög eindregið eftir því að sjálfstæðis- menn endurskoðuðu afstöðu sína, ella teldum við þýðingarlaust að l-------"7--‘— iZutcuicv Heilsuvörur nútímafóíks ERT ÞU ViÐBUINN AÐ FAST VIÐ SNJÓINN OG HÁLKUNA í VETUR? W I 4mm- gpfl V r ' J Það verður leikur einn ef þú ekur LANCER MEÐ SÍTENGT ALDRIF 4x4 Meiri veghæð: Felgur 14" - Hjólbarðar 175/70 Meiri orka: 1800 cm3 hreyfill með fjölinnsprautun Þriggja ára ábyrgð - Verð kr. 1.286.400 IEl HEKLA LAUGAVEGl 174 SÍMI695500 HVARFAKÚTUR MINNI MENGUN X MITSUBISHI MOTORS 11 l.l 11K

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.