Morgunblaðið - 05.10.1991, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991
23
Bréfaskipti málnefndar og út-
varpssljóra vegna textavarps
HÉR á eftir fara bréfaskipti íslenzkrar málnefndar og útvarps-
stjóra vegna textavarps. Komið hefur í Ijós að fæst sjónvarpsvið-
tæki landsmanna eru búin til þess að taka við íslenzku texta-
varpi, þannig að séríslenzkir stafir birtast brenglaðir á mörgum
sjónvarpsskjám.
II
Bréf Islénskrar málnefndar frá
25. september er svohljóðandi:
„Til útvarpsstjóra og útvarps-
ráðs.
Stjórn íslenskrar málnefndar
hefur á fundi sínum í dag gert
svohljóðandi athugasemd við fyrir-
hugað textavarp Ríkisútvarpsins:
Þó að Ríkisútvarpið sjálft hafi
fullkominn búnað til sendingar
kemst textinn ekki til skila svo
að viðhlítandi sé því að þorri þeirra
tækja, sem nú eru í notkun, er
ekki til þess búinn að taka á móti
sendingum textavarpsins með
óbrenglaðri stafsetningu. Stjórn
málnefndar vill beina því til stjórn-
enda Ríkisútvarpsins að leitað
verði lausnar á þessu vandamáli
hið bráðasta."
Svarbréf Ríkisútvarpsins, dag-
sett í gær, 4. október, hljóðar svo:-
I
„Athugasemd yðar vegna
meinbuga á textavarpi er fyllilega
réttmætt og stjórnendum Ríkisút-
varpsins sama íhugunarefni og
yður. Það er deginum ljósara, að
þorri þeirra sjónvarpsviðtækja,
sem nú eru í notkun, „er ekki til
þess búinn að taka á móti sending-
um textavarps með óbrenglaðri
stafsetningu“. Hér skulu því árétt-
uð þau orð yðar, hve brýnt er, „að
leitað verði lausnar á þessu vanda-
máli hið bráðasta“.
Ríkisútvarpið hefur jafnan
kappkostað að standa vörð um
íslenska tungu. Málfarsráðunaut-
ur Ríkisútvarpsins er afbragð ann-
arra manna í sinni grein og situr
enda í íslenskri málnefnd.
Sérfróðir menn og smekkvísir
hafa þann starfa með höndum
daglega að færa orðalag til betri
vegar, áður en útvarpsfréttir eru
fluttar hlustendum og íslenskir
textar felldir að erlendum kvik-
myndum í Sjónvarpinu. Fjölmargt
annað væri auðvelt að rifja upp
til staðfestingar einörðum vilja
Ríkisútvarpsins í þessu efni. Allt
er það kunnugt og mun vonandi
vaxa fremur en lýrna, er fram líða
stundir, enda kynni meira að vera
í húfi nú en fyrr.
Þetta er ritað í því skyni að
ítreka þá eindregnu og eðlislægu
samstöðu, sem Ríkisútvarpið og
íslensk málnefnd eiga sín á milli.
Að sjálfu leiðir, að enginn
ágreiningur er um alvöru þeirra
byijunarörðugleika, sem einkenna
textavarp Ríkisútvarpsins. Þeir
eru hveijum og einum óskapfelldir
og gætu jafnvel talist háskalegir.
III
Hitt munu góðgjarnir menn þó
virða til betri vegar, að hér er ein-
mitt um að ræða byijunarörðug-
leika. Textavaipið er tilrauna-
starfsemi. Málsaðilar vita, að ný-
lunda þessi er víðs Ijarri því að
vera fullburða. Örðugt virðist vera
að leysa vandann „hið bráðasta“.
En sú kemur tíð, er sjónvarpstæki
landsmanna upp til hópa verða
þess albúin að nema textavarp
með viðhlítandi hætti að því er til
stafsetningar tekur. Þá eru byij-
unarörðugleikar að baki og endan-
legu markmiði náð. Þá má og
ætla, að rótgróin alúð Ríkisút-
varpsins við íslenska tungu komið
til skila í vönduðu ritmáli.
Auðvelt væri að nefna ýmis
dæmi frá liðnum árum og áratug-
um um tæknilegar fæðingarhríðir,
sem talist gætu hliðstæðar þeim
meinlegu hnökrum, er einkenna
textavarp á frumstigi. Þau dæmi
verða þó eigi rakin hér, né heldur
tíundaðir augljósir kostir alvaxta
textavarps.
Kóstirnir munu raunar því að-
eins koma í ljós, að Ríkisútvarpið
kynni textavarpið og hvetji lands-
menn þannig til að seilast eftir
þeim fróðleik, sem bættur við-
tækjabúnaður smám saman mun
veita þeim. Þar af leiðir, ' að.
Ríkisútvarpið sér ekki annað ráð
vænna en halda fram stefnunni.
Þrátt fyrir tímabundna annmarka.
Allt orkar tvímælis, þá gert er,
og svo er um þessa ákvörðun. En
undan henni verður ekki vikist.
IV
Þyngsta áhyggjuefni íslensku-
manna vegna textavarps í reifum
varðar hugsanleg áhrif bjagaðrar
stafsetningar á börn og ung-
menni. Líklegt er þó, að annarleg
tákn textavarpsins séu velflest svo
ijarri öðru ritmáli, að stafsetning-.
arkunnátta þoli engan hnekk af
þeirra völdum. Þessi er skoðun
málfarsráðunauta Ríkisútvarpsins
meðal annarra.
V
íslenskt textavarp fetar fyrstu
skrefin þessa dagana. Það er eink-
ar reikult í spori, eins og þér bend-
ið á og hér hefur verið hent á
lofti. Göngulagið rekur rætur til
tæknilegra misbresta. Fram-
kvæmdastjori Sjónvarpsins gerði
grein fyrir aðstæðum í bréfi, sem
birtist í ijölmiðlum 21. september.
Umsjónarmaður textavarps skýrði
málið sama dag. Framkvæmda-
stjóri tæknideildar Ríkisútvarpsins
mun leggja enn ýtarlegra orð í
belg á næstunni og segja frá nær-
tækustu úrræðum.
VI
Að lyktum skal sú von í ljós
látin, að hver og einn gefi sér tóm
til að ræða torfærur textavarpsins
af þeirri sanngirni og hófstillingu,
sem einkennir -bréf stjórnar Is-
lenskrar málnefndar. Enginn gerir
lítið úr vandandum. En ótryggur
árnaðarauki væri að mikla fyrir
sér stundarþraut umfam það, sem
efni standa til.
Heimir Steinsson,
útvarpsstjóri
Kristín Geirsdóttir
Litir og form
í málverkum
Kristínar
KRISTÍN Geirsdóttir opnar í dag,
laugardag 5. október, kl. 14. sína
fyrstu einkasýningu á málverkum
í Asmundarsal, Freyjugötu 41. A
sýningunni eru 16 verk eftir
Kristínu.
Verkin segir Kristín vera hennar
innri heim og tilfinningu sem hún
vill miðla til annarra. „Þó að það sé
gott að hafa tæknina á valdi sínu,
skiptir hún ekki máli sem slík, en
ég nota hana til að túlka það sem
innra er. Ég fæ hugmyndir frá fólki
og náttúrunni. Ég geng misjafnlega
lengi með hugmyndimar í huganum
og kem þeim svo frá mér. Vinnslu-
tími hverrar myndar getur verið mis-
langur. Mynd getur orðið til á á and-
artaki og önnur á mun lengri tíma,
jafnvel mánuði. Málverk eru t.d. til-
finning, form, litur, hugmynd og
dýpt og það er mjög mikilvægt að
ná samræmi á milli þessara hluta.
Málverk eru hugarástand sem heldur
áfram í næstu mynd og það er aldr-
ei nein niðurstaða.“
ÉiM [JSiTTItBOÐ!
Nú um helgina er opið hús hjá verslunum
RAFHA í Reykjavík og Hafnarfirði
og hjá versluninni H-GÆÐI, Suðurlandsbraut 16.
Þar kynnum við mikið úrval heimilistækja
og innréttinga á sérstöku hausttilboðsverði.
Opið í dag, laugardag, frá k\. 10-16
og á morgun, sunnudag, frá kl. 13-17.
Tilboðið stendur aðeins til 12. október.
ZANUSSI (Kuppersbusch)
LÆKJARGÖTU 22, HAFNARFIRÐI, SIMI : 50022
BORGARTÚNI 26, REYKJAVÍK, SÍMI : 620100
C U I S I N E S
SCHMIDT
ELDHUS • BÖÐ • FATASKAPAR
Um helgina seljum við jafnframt
nokkrar innréttingar úr sýningarsal
okkar á Suðurlandsbraut 16
með 30% afslætti.
Lítið inn, sjón er sögu ríkari.
H - GÆÐL.
SUÐURLANDSBRAUT 16, REYKJAVÍK.
SÍMI : 678787