Morgunblaðið - 05.10.1991, Page 27
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991
27
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
' Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið.
Betur má ef
duga skal
að eru mikil hyggindi í heil-
ræðinu: „með lögum skal
land byggja“! Það er jafn þarfur
vegvísir landsmönnum og lands-
feðrum sem fyrrum. Ekki hvað
sízt þegar fjárlögin, viðamesta
verkefni hvers löggjafarþings,
eiga í hlut. Því miður er það
þó ekki einsdæmi að fjárlög
ríkisins fari verulega úr böndun-
um í höndum framkvæmda-
valdsins, ríkisstjórna og ráðu-
neyta.
Þar um vitna frumvörp til
fjáraukalaga, sem lögð eru fram
ár hvert, til að leita síðbúins
samþykkis á margs konar
eyðslu, langt umfram heimildir
og tekjur. Þar um vitnar saman-
safnaður ríkissjóðshallinn, sem
hlaðizt hefur upp í opinberum
skuldum, hérlendis og erlendis.
Frumvarp til fjáraukalaga 1991
stendur til þess, að halli ríkis-
sjóðs verði tæpir níu milljarðar
króna og hrein lánsfjárþörf
rúmir tólf milljarðar. Þetta er
langt umfram fjárlagaáætlanir.
Yfirskoðunarmenn ríkis-
reiknings fyrir árið 1989 hafa
sett fram margs konar athuga-
semdir um ríkisfjármálin. Meðal
þess, sem fundið er að, eru
ákvæði í 6. grein fjárlaganna,
sem fela í sér heimildir til að
eyða opinberu fé, án þess að
binda þær við ákveðnar fjár-
hæðir. Þeir telja að þrengja-
þurfi verulega heimildir ríkis-
stjórna að þessu leyti. Þeir
gagnrýna og ýmsar rikisstofn-
anir fyrir það að hafa ekki sinnt
tilmælum um að gera skilmerki-
legar eignaskrár og hafa ekki
á fullnægjandi hátt eftirlit með
viðveru starfsmanna. Þá er inn-
heimtu gjalda til ríkisins talið
verulega ábótavant hjá sumum
embættum.
Það kemur fram í athuga-
semdum yfirskoðunarmanna að
heildarskuldir A-hluta ríkissjóðs
hafi aukizt með ólíkindum á
undanförnum árum. „Miðað við
verðlag í árslok 1985 hefur
raunaukning á skuldum ríkis-
sjóðs á árunum 1985—1989
verið 264%.“
„Astæða er til að vara við
því að ótilbærir aðilar séu látnir
taka lán sem vitað er að ríkis-
sjóði ber að greiða um síðir,“
segja yfirskoðunarmenn. „Þá
ber einnig að vara við því að
Ríkisábyrgðasjóður sé notaður
til að veita dulbúnar fjárveiting-
ar til aðila, sem ekki hafa hlot-
ið beinar fjárveitingar á fjárlög-
um.“
Ríkisendurskoðun gagnrýnir
sem yfirskoðunarmenn inn-
heimtu ýmissa opinberra gjalda.
Þannig átti ríkissjóður í árslok
1989 útistandandi rúmlega 21
milljarð króna í opinberum
gjöldum, þar af gjaldfallnar
skuldir til innheimtu um 12
milljarða. „Ekki verður lengur
undan því vikizt," segja yfir-
skoðunarmenn, „að taka inn-
heimtumál ríkisins til gagngerr-
ar endurskoðunar."
Yfirskoðunarmenn ríkis-
reiknings endurtaka fyrri at-
hugasemdir, þess efnis, að
„hætta beri að selja áfengi og
tóbak úr ÁTVR á svonefndu
kostnaðarverði til æðstu stofn-
ana þjóðfélagsins“, þar eð „tvö-
föld verðlagning á vörum býður
ævinlega heim möguleika á mis-
notkun“. Þeir ítreka og fyrri
tilmæli um nauðsyn þess að
endurskoða gildandi reglur
vegna ferðakostnaðar ríkisins.
. Ríkisendurskoðun segir að
svo virðist sem algengt sé að
ríkisstofnanir gæti ekki aðhalds
sem skyldi og farið sé á svig
við fjárlög og annan lagabók-
staf. Settar eru fram athuga-
semdir við kostnað vegna heim-
sókna á vegum opinberra aðila.
Sem og að farið hafi verið langt
fram úr fjárlagaheimildum í
fjárfestingum. Það er og talið
„óeðlilegt að færa kostnað
vegna sérfræðiaðstoðar við
þingmenn á rekstur aðalskrif-
stofu forsætisráðuneytis", eins
og gert var þegar aðstoðarmað-
ur „þingflokks" Stefáns Val-
geirssonar átti í hlut. Þá telur
Ríkisendurskoðun að lögbrot
hafi verið framið með rúmlega
hálfs milljarðar lántöku Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins árið
1989 hjá þremur viðskiptabönk-
um til að fjármagna uppgjör við
bændur vegna gjaldfallinna út-
flutningsbóta.
Þrátt fyrir tiltæka tækni og
þekkingu hefur fjárlagagerð
síðustu ára, einkum útgjalda-
áætlanir, ekki reynzt eins
traustar og vera ber. Fram-
kvæmd fjárlaga hefur og farið
umtalsvert úr böndum í höndum
framvæmdavaldsins. Athuga-
semdir yfirskoðunarmanna
ríkisreiknings og Ríkisendur-
skoðunar benda og til þess að
víða sé pottur brotinn hjá stofn-
unum ríkisins. Það er því eðlileg
krafa skattgreiðenda, sem
borga brúsann, að betur verði
á málum haldið í framtíðinni.
Óveðrið á Vestfjörðum:
Vegir eru sums staðar
orðnir ófærir vegna snjóa
VEGIR á Vestfjörðum voru sums staðar orðnir ófærir vegna snjóa
síðdegis í gær, samkvæmt upplýsingum Vegagerðar ríkisins. Hrafns-
eyrarheiði er ófær og verður ekki mokuð fyrr en eftir helgi, og
Dynjandisheiði er þungfær. Hún verður opnuð um leið og Hrafnseyrar-
heiðin. Nokkuð tjón varð í óveðrinu sem gengið hefur yfir Vestfirði
síðustu sólarhrinffa.
Mikill snjór er á Breiðadals- og
Botnsheiði, en Vegagerðin lét moka
heiðarnar í gær. Fært er til Þingeyr-
ar frá ísafirði. Vegagerðin átti eftir
að kanna færð á Kletthálsi og leið-
ina til Reykhóla. Veðurstofan spáir
áfram snjókomu á Vestfjörðum,
einkum norðan til. Spáð er norðan
hvassviðri eða stormi um allt land
í dag, jafnvel roki á stöku stað.
Vegagerðin ráðleggur fólki að vera
ekki á ferð yfír fjallvegi að óþörfu.
Mikil hálka er þar á vegum og flest-
ir bílar á sumardekkjunum ennþá.
Tvær bílveltur í Reykhólasveit
Tvær bílveltur urðu í Reykhóla-
sveit í gær þegar stóiviðri gekk þar
yfír, en það olli allmiklu tjóni í sveit-
inni. Skólabíllinn fauk út af vegin-
um hjá Gróustöðum í Gilsfirði, en
skólabílstjórinn, Þórður Jónsson
Árbæ, var einn í bílnum og slapp
hann ómeiddur. Þá fauk Range-
Rover bíll út af veginum milli
Klukkufells og Gillastaða og fór
hálfa aðra veltu, en ökumaður og
tveir farþegar sluppu án meiðsla.
Skólabíllinn fór eina veltu og er
hann mjög mikið skemmdur, ef
ekki ónæytur. Tveir bílar aka öllum
börnum til og frá skóla, og sá þriðji
ekur börnum úr Gufudalssveit i veg
fyrir skólabílana. Hér er því komið
upp vandamál, þar sem ekki er
gripinn upp nýr skólabíll í snarhasti.
Eigandi og ökumaður Range-
Rover bílsins, sr. Bragi Benedikts-
son sóknarprestur á Reykhólum,
segir bílinn vera ónýtan. Með hon-
um í bílnum voru Bjarni P. Magnús-
son sveitarstjóri Reykhólum og
dóttir hans, Guðrún Ásta. í óveðrinu
fauk út í veður og vind heimilisgróð-
urhús hjá Bjarna, og einnig lítið
flugskýli á flugvellinum á Reykhól-
um.
Gamalt sláturhús
fauk á Barðaströnd
Gamla sláturhúsið á Skjaldvarar-
fossi fauk í miklu roki sem gerði á
á Barðaströndinni á fimmtudags-
kvöldið. Eitthvað af tækjum var í
húsinu, sem undanfarið hefur meðal
annars verið notað sem geymsla.
Hnútur virðist hafa komið á hús-
ið, sem var um 300 fermetrar að
stærð, og sprengt út efri hlið þess
ásamt þaki. Brak úr húsinu barst
upp í fjallshlíðina fyrir ofan það,
og lenti það meðal annars á pallbíl,
sem fokið hafði nokkra tugi metra
og farið eina veltu á veginum við
Skjaldvararfoss aðfaranótt fimmtu-
dagsins. Ekki er kunnugt um aðrar
skemmdir af völdum óveðursins,
sem er með því versta sem gerst
hefur á Barðaströndinni.
Raf magnstruflanir
í Árneshreppi
íbúar í Árneshreppi hafa ekki
farið varhluta af óveðrinu sem geys-
að hefur á landinu síðustu sólar-
hringana. Veðrið skall á á miðviku-
dagskvöld og hefur geysað óslitið
síðan. Samfara hvassviðrinu var
Norska kvikmyndin „Til hins óþekkta“
opnunarmynd Kvikmyndahátíðar:
Innblásin af minni
persónulegu reynslu
- segir norska kvikmyndagerðarkonan Unni Straume
OPNUNARMYND kvikmynda-
hátíðar Listahátíðar, sem hefst
í dag, er „Til hins óþekkta" eft-
ir norsku kvikmyndagerðar-
konuna Unni Straume. Straume
segir í samtali við Morgunblaðið
að menn skuli ekki búast við
neinni spennumynd, hún sé
fremur ljóðræn frásögn.
„Myndin er um ferðalag, bæði
í ytri og innri skilningi. Ung stúlka
ferðast frá Osló heim til æsku-
stöðvanna í Vestur-Noregi. Á ferð-
inni endurupplifir hún margar af
bernskuminningum sínum,“ sagði
Straume. Sjálf kemur hún frá
Vestur-Noregi og segir að myndin
sé á margan hátt mjög persónulegt
verk. „Þetta er kannski ekkfævi-
söguleg mynd, en hún er tvímæla-
laust innblásin af minni persónu-
legu reynslu."
Myndin er fyrsta leikna mynd
Straume, en hún hefur áður gert
nokkrar stuttmyndir. Hún segir að
fieiri myndir séu á leiðinni: „Eg
er að skrifa handrit, sem að ein-
hveiju leyti er byggt á Draumleik
Strindbergs, og nú er bara að sjá
hvort ég fæ peninga til að gera
mynd eftir því.“
Straume segir að sér sé mikill
heiður að því að mynd sin skuli
hafa verið valin sem opnunarmynd
á Kvikmyndahátíð. Myndin mun
fara víða. Straume er nýkomin af
hátíð í 'San Sebastian á Spáni, T
Morgunblaðið/Þorkell
Norska kvikmyndagerðarkonan
Unni Straume.
næstu viku verður myndin sýnd á
evrópskri kvikmyndahátíð í Frakk-
landi og síðan fer hún til Varsjár
og á hátíð „hinna myndanna“ í
Belgíu, auk þess sem hún verður
sýnd í kvikmyndahúsum í Kaup-
mannahöfn og París á næstunni.
úrhellisrigning til að byrja með sem
breyttist síðan í éljagang og nú er
orðið alhvítt yfir að líta.
Mikla rafmagnstruflanir hafa
orðið í Árneshreppi hátt í sólarhring
og má segja að ragmangslaust hafi
verið að miklu leyti síðan aðfarar-
nótt föstudagsins. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Orkubúi Vestíjarða á
Hólmavík er ekki vitað hvað veld-
ur, en búist við að um ísingu og
jafnvel sjávarseltu geti verið að
ræða. Starfsmenn Orkubúsins
höfðu í gærkvöldi árangurslaust
reynt að koma rafmagni á aftur,
en því sló ætíð jafnóðum út á ný.
í fyrrákvöld datt sjónvarpið út og
sást ekkert af kvölddagskránni
a.m.k. á sumum bæjum.
Ekki er vitað um neinar skemmd-
ir á mannvirkjum af völdum óveð-
ursins, og ekki er heldur vitað hvort
vegaskemmdir hafa orðið.
Morgunblaðið/GJA
Lækirnir fossuðu upp ímót
Það hvessti duglega á Grundarfírði á fimmtudaginn, eins og víða ann-
ars staðar á Iandinu. Þegar þessi mynd var tekin, um kl. 18, varhelst
að sjá sem læknirnir streymdu beint til himins, þegar vindurinn reif í
þá á ijallabrúnunum.
Milljónatjón þegar Röst SK fékk á sig brotsjó:
Mestu máli skiptir að
allir sluppu óskaddaðir
- sagði Sigurður Jónsson skipsljóri þegar skipið kom til hafnar
Skagaströnd.
RÖST SK 17 kom til hafnar á Skagaströnd kl. 14.30 í gær, eftir
að skipið hafði fengið á sig brotsjó úti í Húnaflóadýpi í fyrrinótt.
Við það brotnaði gluggi í brúnni og sjór flæddi inn með þeim
afleiðingum að flestöll tæki í brúnni eyðilögðust, en einnig rifnaði
kompás af festingum sínum á brúarþakinu. Eina siglingartækið
sem virkaði eftir óhappið er staðsetningartæki, sem tekur við
merkjum frá gervihnöttum og reiknar út staðsetningu skipsins
eftir þeim. Röst er í eigu Dögunar á Sauðárkróki og er með sex
manna áhöfn, en skipið er á rækjuveiðum.
Að sögn Finns Sigurbjörnsson-
ar stýrimanns, sem var einn á
vakt í brúnni þegar óhappið varð,
var veður kolbrjálað og óhemju
sjór. Þeir á Röstinni voru þá ný-
komnir út, og ekki búnir að taka
nema tvö höl. Var skipinu siglt á
hægri ferð upp í veðrið um 40
mílur frá landi, og var ætlunin
að taka veðurspána áður en
ákveðið yrði hvort halda skyldi í
var eða bíða af sér veðrið á miðun-
um. „Allt í einu reis hnúturinn
upp framan við skipið, og ég hafði
ekíri tíma til neins nema að slá
af. Hnúturinn var jafnhár og
frammastrið og skall svo ofan á
brúna. Hann var svo krappur að
framdekkið var þurt, því hann
kom bara á brúna og þar fyrir
aftan,“ sagði hann.
Einn glugginn bakborðsmegin
í brúnni splundraðist, og plexigler
dreifðist um allt. „Plexiglerið er
10 mm þykkt og eitt brotið eins
og 30 sm hnífur í laginu lenti
feti fyrir áftan mig þar sem ég
stóð við stólinn stjórnborðsmeg-
inn. Krafturinn var svo mikill að
karmurinn í glugganum brotnaði
í tvennt, og þar með fór auðvitað
glerið. Sjórinn flseddi inn yfir öll
tækin, og niður yfír töfluskápana
fyrir tækin í brúnni,“ sagði Finn-
ur.
Sigurður Jónsson skipstjóri
sagði að eftir að búið var að loka
glugganum með krossviði hafi
þegar verið haldið af stað til lands.
Um klukkan tfu í gærmorgun var
Röstin svo komin í var við Kálfs-
hamarsvík á Skaga, en þaðan var
svo dólað inn moð skaganum til!|
hafnar á Skagaströnd þar sem
skipið var bundið kl. 14.30. Ekki
var búið að kanna skemmdirnar
á tækjunum í brúnni þegar Morg-
unblaðið átti tal við þá félaga, en
þeir sögðu ljóst að tjónið næmi
milljónum eða jafnvel tugum millj-
óna króna. „Það skiptir nú mestu
máli að allir sluppu frá þessu
óskaddaðir, því tækin eru jú bara
spurning um peninga," sagði Sig-
urður Jónsson skipstjóri að lokum.
Ó.B.
Rækjubáturinn Röst SK 17
fékk á sig brotsjó djúpt út
af Húnaflóa í fyrrinótt
N --------
Kolku-
grunn
Röst komst fyrir
eigin vélarafli til
Skagastrandar
skömmu eftir
hádegi í gær og
bíður nú lags til að
sigla fyrir Skaga
til Sauðárkróks
Bygging ráðhúss:
Ekki er rétt að miða við
kostnaðaráætlun frá 1987
••
segir Markús Orn Antonsson borgarsljóri
Kostnaðaráætlanir vegna bygg-
ingar ráðhúss við Tjörnina voru
ræddar á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur í fyrradag. Markús
Orn Antonsson borgarstjóri svar-
aði á fundinum fyrirspurnum frá
borgarfulltrúum Nýs vettvangs.
Hann lagði áherslu á að þær áætl-
anir sem lagðar hefðu verið fram
haustið 1987 um byggingu ráð-
hússins hefðu verið lauslegt mat
og því ekki rétt að miða við þær
þegar verið væri að fjalla hve
mikið ráðhúsbyggingin hefði farið
fram úr kostnaðaráætlun. Hin eig-
inlega áætlun um byggingarkostn-
að ráðhússins hefði verið lögð
fram í febrúar 1989. Davíð Odds-
son, fyrrverandi borgarstjóri,
benti á það á fundinum að í fram-
kvæmdaáætlun borgarinnar frá
1988 kæmi fram að upphafleg
áætlun við byggingu ráðhússins
upp á 750 milljónir hefði verið
lauslegt mat.
I fyrirspurnum borgarfulltrúa Nýs
vettvangs, sem borgarstjóri svaraði
á fundinum sagði m.a. að fyrrver-
andi borgarstjóri héldi því nú fram,
að kostnaðaráætlun við ráðhúsið sem
lögð var fram í borgarstjórn 1. októ-
ber 1987 og hljóðaði upp á 750 millj-
ónir, hefði verið „skot“ og við fram-
lagningu hennar hefði mönnum verið
gert Ijóst, að ekki ætti.að taka mark
á henni. Fulltrúar Nýs vettvangs
spurðu hvar þetta hefði komið fram
í ræðu borgarstjóra 1. október 1987,
er hann mælti fyrir tillögu í borgar-
stjórn um að reist skyldi ráðhús.
Markús Örn Antonsson, borgar-
stjóri, svaraði fyrirspurnum borgar-
fulltrúanna og sagði m.a.: „Borgar-
stjórn samþykkti á fundi sínum hinn
1. október 1987 að byggja ráðhús
fyrir Reykjavíkurborg á grundvelli
teikningar, sem hlotið hafði 1. verð-
laun í samkeppni um bygginguna.
Þessi samþykkt var nauðsynleg for-
senda fyrir hönnunai’vinnu og gerð
áætlana um byggingarkostnað. Fyrr-
verandi borgarstjóri lagði málið fyrir
borgarstjórn með þeim hætti að ekki
fór á milli mála að einvörðungu voru
nefndar lauslegar ágiskanir um
kostnað þegar reynt var að leggja
mat á útfærslu verðlaunatillögunnar.
I ræðum fyrrverandi borgarstjóra
hefur síðan ítrekað komið fram, að
eina eiginlega áætlunin um bygging-
arkostnað ráðhússins var lögð fram
í febrúar 1989.“
Guðrún Ágústsdóttir, varaborgar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins, gagn-
íýndi meirihluta sjálfstæðismanna í
borgarstjórn og sagði fyrrverandi
borgarstjóra hafa blekkt Reyk-
víkinga og sjálfan sig með kostnaðar-
tölum um fáðhúsið. Hún sagði Davíð
Oddsson ekki hafa gert neina fyrir-
vara við það að bygging ráðhússins
myndi kosta 750 milljónir, þegar
hann talaði fyrir málinu í borgar-
stjórn í október 1987, og ekki hefði
verið minnst á það fyrr en löngu síðar
að um „skottölur út í loftið" hefði
verið að ræða.
„Fólk í borginni er orðið mjög
þreytt á því hvernig farið er með fé
þess,“ sagði Guðrún og bætti því við
að goðsagan um hina traustu fjár-
málastjórn sjálfstæðismanna væri
hrunin.
Kristín Ólafsdóttir lagði á fundin-
um fram bókun frá borgarfulltrúum
Nýs vettvangs, þar sem sagði m.a.
að í svari sem aðstoðarborgarverk-
fræðingur lagði fyrir boi'garráð 24.
september sl. hefði rangt verið farið
með staðreyndir. í svari hans hefði
komið fram að kostnaður í septemb-
er 1987 hefði verið metinn út frá
samkeppnistillögu sem var um 20%
minni en síðar hefði orðið raunin.
Hið rétta væri að ráðhúsbyggingin
hefði minnkað um 22% frá því að
kostnaðarmat var sagt 750 milljónir
króna.
í bókuninni sagði: „Ráðhúsævin-
týri sjálfstæðismanna er enn ejtt
dæmið um ábyrgðarlausa stjórnsýsiú
meirihlutans í borgarstjóm
Reykjavíkur. Perlan og ráðhúsið,
framkvæmdir sem kosta a.m.k.
helmingi meira af almannafé en
áætlað var þegar ákveðið var að ráð-
ast í þær, tala skýru máli um óviðun-
andi fjármálastjórn sjálfstæðis-
manna.“
Davíð Oddsson, fyrrverandi borg-
arstjóri og núverandi forsætisráð-
herra, mætti á fundinn og benti á að
í framkvæmdaáætlun borgarinnar
frá 1988 kæmi fram að upphafleg
áætlun við byggingu ráðhússins upp
á 750 milljónir hefði verið lauslegt
mat sem þáverandi fuiltrúum minni-
hlutans í borgarstjórn hefði verið.
ljóst.
í ræðu sinni sagði Davíð að fram-
kvæmdir vinstri meirihlutans 1982
hefðu farið allrækilega fram úr áætl-
un. Bláfjallaskálinn um 100% og úti-
taflið við Lækjargötu hefði á nokkr-
um mánuðum farið um 750% fram
úr áætlun.
Guðrún Ögmundsdóttir, varafull-
trúi Kvennalista, lagði fram bókun á
fundinum þar sem sagði m.a. að
mikilvægt væri að endurskoða verk-
áætlanir og verklok hvað lokafrá-
gang viðviki til þess að fyrirbyggja
og koma í veg fyrir enn meiri auka-
kostnað en orðinn væri. „Kvenna-
listakonur hafa lagt til að ef endur-
skoðun bendir til þess að kostnaðar-
lega hagkvæmara reynist að fresta
áætluðum vígsludegi 14. apríl 1992,
kl. 15.00 verði það gert.“
Oddi:
Fulbright-stofnunin kynnir
bandaríska háskóla í dag
Fulbright-stofnunin stendur
fyrir kynningu á bandarískum
háskólum í Odda í dag og stendur
hún frá kl. 13-16. Sérstaklega
verða kynntir um 20 háskólar sem
íslenskir námsmenn hafa sótt
mikið síðustu ár og verða kynn-
ingarfulltrúar eða fyrrum nem-
endur frá flestum skólanna til að
svara spurningum, auk þess sem
kennsluskrár og aðrar upplýs-
ingar munu liggja frammi. Full-
trúi frá Lánasjóði íslenskra náms-
manna verður á staðnum og svar-
ar spurningum um úthlutunar-
reglur sjóðsins.
Á skrifstofu Fulbright-stofnun-
arinnar er hægt að fá upplýsingar
um flesta háskóla í Bandaríkjun-
um, en þeir eru rúmlega 3.000
talsins.
Grunnupplýsingar um bandaríska skóla, sem mikið hafa verið sóttir af íslendingum é
Skóli lleildarfjöldi
Staðsetning Skólagjöld í fyrri liluta náms nemenda skóla-
(undergratuate) Umsóknarf restur árið ’89—’90
Háskólinn í Alabama (University of Alabama) Alabama 4.486$ á hvetju námsári 15. júní v/næsta skólaárs 18.347
Ríkisháskólinn í Arizona (Arizona State University) Arizona 6.546$ á hveiju námsári 15. júní v/næsta skólaárs 43.546
Sjúkranuddskólinn í Boulder (Boulder School of Massage Therapy)' Colorado Enginn augl. umsóknarfr. —
Háskólinn í Colorado (University of Colorado — Boulder) Colorado 8.609$ á hveiju námsári 1. mars v/næsta skólaárs 24.364
Tækniháskólinn í Flórída (Florida Institute of Technology) Florida 8.865$ á hveiju námsári 1. júní v/næsta skólaárs 6.754
Tækniháskólinn í Georgíu (Georgia Institute of Technology) Georgia 6.064$ á hveiju námsári 1. febr. v/næsta skólaárs 12.090
Purdue háskólinn (Purdue University) Indiana 6.764$ á hveiju námsári 1. maí v/næsta skólaárs 35.817
Háskólinn í Iowa (University of Iowa) Iowa 6.220$ á hveiju námsári 15. apríl v/næsta skólaárs 28.884
Brooks ljósmyndaskólinn (Brooks Institute of Photography) Kalifornía 5.450$ á hveiju námsári Enginn augl. umsóknarfr. 621
Kvikmyndaskólinn í Kólumbíu (Columbia College — Hollywood) Kalifornía 4.500$ á hveiju námsári Enginn augl. umsóknarfr. 220
Háskólinn í Kaliforníu (Santa Barbara) University of California Kalifornía 7.567$ á hveiju námsári 30. nóv. v/næsta skólaárs 19.081
Háskólinn í S-Kaliforníu (University of Southern California) Kalifornía 13.446$ á hverju námsári 1. apríl v/næsta skólaárs 26.440
Boston háskólinn (Boston University) Massachusetts 15.215$ áhverju námsári 1. maí v/næsta skólaárs 24.762
Tækniháskólinn í Massachusetts (Massachusetts Institute of Technology) Massachusets 15.600$ á hveiju námsári 1. janúar v/næsta skólaárs 9.536
Háskólinn í Minnesota (Twin Cities) (University of Minnesota) Minnesota 5.703$ á hveiju námsári 1. apríl v/næsta skólaárs 58.569
Princeton háskólinn (Princeton University) New Jersey 15.440$ á hveiju námsári 2. janúar v/næsta skólaárs 6.294
Spartan flugtækniskóli (Spartan School of Aeronautics)' Oklahoma Enginn aug. umsóknarfr. —
Háskólinn í Oregon (University of Oregon) Oregon ■ 5.697$ á hvet'ju námsári 15. apríl v/næsta skólaárs 17.818
Háskólinn í Virginíu (Virginia Commonwealth University) Virginia 6.699$ á hveiju námsári 1. apríl v/næsta skólaárs 21.391
Háskólinn í Wisconsin (Madison) (University of Wisconsin) I öllum skólunum er tekið inntökupróf í ensku, svokailað Toefl-próf. ' í þessum sérskólum eru skólagjöld byggð á heildarnámstímanum, en ekki eftir námsárum. Wisconsin 6.490$ á hveiju námsári 1. febr. v/næsta skólaárs 41.100