Morgunblaðið - 05.10.1991, Síða 42

Morgunblaðið - 05.10.1991, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991 Lögmannastofan Laugavegi 178, tilkynnir: Frá og með 1. október 1991 hefur Brynjar Níelssoahdl. gerst meðeigandi að stofunni. Lögmannastofan Laugavegi 178, Ásgeir Björnsson hdl., Brynjar Níelsson hdl., sími 624999, fax 624599. TIL SÖLU sem nýr Ford Econoline 4x4 í eigu Hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði Til sölu Ford Econoline Club Wagon 4x4, árgerð 1989. Ekinn 21.000 km. 7.3 lítra díselvél, 4 gíra sjálfskipting, upphækkaður á 36“ dekkjum, sæti fyrir 11 farþega, vönduð innrétting. Upplýsingar gefa eftir kl. 19: Bjarni Arnarson í síma 651956, Guðjón Sigurðsson í síma 651502. Vörubílar oo Brovt til sölu Til sölu í Færeyjum SCANIA vörubílar T-112, R-142, L-141, úrg. '80-'85. Einnig BR0YT grafa með telescope. Taekin seljast ó góðu verði ef samið er-strax. Nðnari upplýsingar í síma 46991 eftir kl. 20. NÝJA BÍLAHÖLLIN Volvo 740 GL, ’86, ek. 64.000 km., grár, sjálfsk. með overdrive, mjög gott eintak. V. 1.090 þ. Skipti. FUNAHÖFÐA 1-112- Rvík.- FAX 673983 Volvo 440 GLT Injection, ’89-’90, ek. frá 29.000 km. V. frá 1.150 þ. Skipti. Nissan Pathfinder V-6, ’87, ek. 48.000 milur, blár, 32" dekk, fallegur bill. V. 1.790 þ. Skipti. Chevrolet Blaser K-5 Cheyenne, ’78, rauður/svartur, 8 cyl. vél, ný upptekin, gott lakk, 38“ dekk, læstur framan og aftan, lækkuð hlutföll, jeppaskoðaður. V. 1.190 þ. Skipti. Chevrolet Camaro Berlinetta, ’84, ek. 50.000 km., svartur, sjálfsk., t-toppur, breið dekk og krómfelgur geta fylgt. V. 890 þ. Skipti. í næstu viku kemur út ný söluskrá sem dreifist um land allt og einnig sjáum við um að auglýsa bílinn fyrir þig i Morgunblaðinu. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Páll Gíslason, formaður stjórnar veitustofnana, ávarpar stúdentana í í mótttöku borgarstjóra í húsakynn- um Vatnsveitu Reykjavíkur. STÚDENTAR 100 þatttakendur í Islandskynningu Tæplega 100 stúdentar frá 27 þjöðlöndum tóku þátt í ís- landskynningu á vegum Háskóla Islands og Reykjavíkurborgar á laugardaginn. Kynningin hófst með því að skoðaðar voru merkar byggingar og sögulega mikilvægir staðir innan þorgarmarkanna. Þá var haldið í Árbæjarsafn þar sem tekið var á móti hópnum af hálfu Reykjavíkurborgar og safnið skoð- að í fylgd borgarminjavarðar. Loks var haldið upp í Heiðmörk þar sem borgarstjórinn í Reykjavík bauð til ELDGOS Fleiri fórn- arlömb Vesuvius fundin mótttöku milli kl. 17 og 18.30 í húsakynnum Vatnsveitu Reykja- víkur. Síðari hluti íslandskynning- arinnar verður menningarráð- stefna í Borgartúni 6, 9. október. Erlendu gestirnir komu úr Há- skóla íslands, Kennaraháskóla ís- lands og Myndlista og handíða- skóla íslands. Þeir kunnu að sögn starfsmanna Alþjóðaskrifstofu Háskólans afar vel að meta kynn- inguna en ekki skaðaði að veðrið var hið fegursta. HÚSAVÍK Morgunblaðið/Silli Fundist hafa líkamsleifar átta manns sem létust er ítalska eldfjallið Vesuvius spjó eldi og eimyrju árið 79 fyrir Kristsburð. Fyrir eru til sýnis á söfnum í landinu steinrunnir búkar sjö annarra fórnarlamba gossins sem gróf bæina Pompei og Herc- ulaneum undir ösku og gjalli. Talið er að þúsundir manna hafi látist í eldsumbrotunum, því af verksummerkjum að ráða hafði fólk lítið sem ekk- ert svigrúm til að forða sér áður en ósköpin dundu yfir. Hinir átta sem fundust á dögun- um höfðu þó leitast við að komast út í sjóinn þar sem kælingar var von. Eldhafið gleypti þá hins vegar aðeins nokkrum metrum frá fjöruborinu. Eldfjallafræðingar hafa þingað nýverið í Napólí og þeir bentu á í ræðum sínum og rit- um, að í dag búa þús- undir manna við rætur Vesuvius. Flestir séu þeir sannfærðir um að fjallið hafi ekki sagt sitt síðasta orð, hvenær sem er gæti það sprengt af sér kollinn og valdið dauða og eyðileggingu á nýjan leik. Fimm ættliðir í beinan kvenlegg Híísavík. Fimm ættliðir í beinan kvenlegg mun ekki algengt, en hér sjáið þig 91 árs gamla vestfirsk ættaða formóður, Jófríði Stefánsdóttir, sem búið hefur allan sinn búskap fram til heiða á Stafni í Reykjadal, S,- Þingeyjarsýslu. Jófríður varð fyrir því óláni að brákast á fæti síðastliðin vetur og varð því að dvelja á sjúkrahúsi um tíma en er nú aftur komin heim, mjög ern þó hún sé eðlilega ekki frá á fæti. Með henni á myndinni eru Ingibjörg Helgadóttir, Reykja- vík, Ester Guðlaugsdóttir, Árný Huida Sæmundsdóttir og óskírð dóttir hennar en þær eru búsettar á Þórshöfn. - Fréttaritari. L J-J'.VJ'dL ■. . 1 .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.