Morgunblaðið - 05.10.1991, Page 48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991
.48
, Bg d botcL 5/60 kr. oluito- •
Br þdb óa*U*9ja.m.t ?"
Fólkið á
myndinni
I Velvakanda Morgunblaðsins
28. þ.m. er spurt um tvær mynd-
ir. Maðurinn á myndinni er Jón
Andrésson Hjaltalín, skólameistari
á Möðruvöllum (Akureyri). Margir
mætir íslendingar sóttu þann
skóla um og eftir aldamótin. Hjal-
talín var talinn merkiskarl!
I fyrsta bindi Arnardalsættar
er Hjaltalín sagður fæddur 21.
mars 1840, dáinn 15. október
1908. Kona Jóns hét Margrét
Guðrún Jónsdóttir (dóttir Jóns
Thorsteinssonar, landlæknis) og
gæti konumyndin verið af henni.
Hjaltalín og kona hans voru barn-
laus.
Með virðingu,
' Hulda Valdimarsdóttir
Ást er...
. . . stundum oí heit til að
handfjatla.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
° 1991 Los Angeles Times Syndicate
Láttu manninn hafa veskið
mitt. Þú lieyrðir livað hann
sagði.
Með
morgunkaffínu
Færir þú oftar í bað væri
þetta ekkert púl.
i
HÖGNI HREKKVtSI
FORFEÐUR FORFEÐRANNA
Sagt er að nokkuð öruggt sé að
rekja ætt sína til landnáms. Hins
vegar fer tvennum sögum um áreið-
anleika frekari ættrakningar, eink-
um vegna hins grunsamlega háa
hlutfalls af konungaættum sem þá
taka við. Þó er það almenn skoðun
meðal erlendra sagnfræðinga að
rjóminn af aðalsættum Norðmanna
hafi flúið land undan Haraldi
hárfagra og margir þeirra sest hér
að. Víst er fróðlegt að spá í upp-
runa okkar; hvaðan komum við og
hver var tilgangur landnáms? Kann
þar dýpri tilgangur að liggja á bak-
við?
í Heimskringlu Snorra segir: „En
fyrir því að Óðinn var forspár og
fjölkunnugr, þá vissi hann, at hans
afkvæmi myndi um norðurhálfu
heimsins byggva.“ Nú hefur komið
í ljós að þetta er staðreynd. Sá
hann fyrir ísland? Sá hann fyrir
söguþjóðina, sú er geymir arf hins
eldri tíma? Erfitt er um það að spá,
en víst er að það er spennandi að
vita hvað hann sá. Mörg okkar rekja
ætt sína til hans í gegnum Yngl-
ingatal, sem sett er fram í upphafi
Heimskringlu. Það er meginkon-
ungaætt Norðurlanda. Óðinn er því
faðir Norðurlandabúa.
Víkverji
Sú var tíðin að allir öfunduðust
við Eystein Ásgrímsson höf-
und Lilju. „Allir vildu Lilju kveðið
hafa.“ Nú rífast menn um það hver
hafi fundið Ameríku og hvort Leif
ur Eiríksson hafi verið Islendingur
eða Norðmaður. Þá hefur komið
fram í fréttum að Kínveijar hafi
siglt yfir Kyrrahaf til Ameríku um
300 árum áður en norrænir menn
fundu Vínland og hafí þeir komið
á flatbytnum sínum til Kaliforníu.
Víkverja segir svo hugur að seint
verði fundin lausn á þessu deilu-
máli, sem enn rís nú er 500 ár eru
liðin frá afreki Kólumbusar.
Sennilega hefur Leifur Eiríksson,
þótt hann hafi verið fæddui- á ís-
landi, talið sig norrænan mann og
líklegast hefur hann talið sig tala
danska tungu. Það tungumál var
jiá talað um öll Norðurlönd, nema
kannski á þeim svæðum, sem nú
tilheyra Finnlandi og það er mikiu
síðar, sem j)jóðernið íslendingur
kemur fram. Líklegast hefur þjóð-
ernið norskur heldur ekki verið til
á þessum tíma, jiví að íslendingar
kölluðu Norðmenn fyrst framan af
Austmenn. Þannig liafa öll þessi
þjóðerni breytzt í aldanna rás, en
miðað við skilning okkar í dag á
þjóðernum var Leifur auðvitað ís-
lendingur og ekkeit annað.
En nú koma Kínverjar fram á
sjónarsviðið og halda því fram að
þeir hafi fundið Ameríku og það
nokkrum öldum á undan Leifi.
í Snorra Eddu er Þór síðan for-
faðir Óðins. Þar segir: „Nær miðri
veröldinni var gert það hús og her-
bergi, er ágætast hefir verið, er
kallat er Trója, þar sem vér köllum
Tyrkland." Ennfremur: „Einn kon-
ungur í Tróju er nefndur Múnón
eða Mennón. Hann átti dóttur höf-
uðkonungsins Príami. Sú hét Tróan.
Þau áttu . son. Hann hét Trór, er
vér köllum Þór.“ Sonur Þórs var
Loriði, hans sonur Einriði, síðan
Vingeþórr, þá Vingener, hans sonur
Móda, og síðan lið fyrir lið til Óð-
ins. Óðinn er 20. ættliður frá Þór
sem marka um 700 ára tímabil.
Óðinn telst fæddur um Krists burð.
Þá ætti Þór að hafa verið uppi um
7 öldum fyrir Krist.
Þór mætti því allt eins teljast
faðir Norðurlandabúa. Kannski er
engin tilvjljun að hann hafi verið
tilþeðinn af íslendingum frekar en
Óðinn. E.t.v. var full vitneskja um
þetta um landnám. Þarna er þetta
rakið enn lengra, faðir Þórs heitir
Múnón og móðurafi Príami. Athuga
mætti hvort hægt er að rekja þetta
lengra og fá einhveija staðfestingu
hjá færum sagnfræðingum um kon-
ungaættir Tyrkja. Það endar e.t.v.
með því að við rekjum okkur til
skrifar
heppna. Þeir munu hafa siglt víða
um Kyrrahaf í fornöld og m.a. siglt
til Ástralíu og Nýja Sjálands, þann-
ig að ljóst er að þeir hafi komizt
býsna langt á þessum bátum sínum.
En kannski gleymist í allari þessari
umræðu, að í Ameríku voru fyrir
menn, frumbyggjarnir. Hvaðan
komu þeir og voru það ekki þeir,
sem fyrstir fundu þessa nýju álfu?
XXX
*
Anægjulegt er að fylgjast með
fréttum frá Yokohama í Jap-
an, þar sem nú situr landsliðssveit
íslendinga í brids og gerir garðinn
frægan. Islendingarnir urðu eins
og alþjóð veit langefstir í sínum
riðli. Nú er bara að krossa fingurna
og vona að gæfuhjólið haldi áfram
að snúast þessum fræknu bridsspil-
urum í vil og þeir nái verðlauna-
sæti í Japan. Víkveiji óskai' þeim
alls hins bezta í þeirri baráttu sem
framundan ér.
xxx
Víkveija hefur borizt bréf frá
Einari S. Einarssyni, fram-
kvæmdastjóra VISA, vegna um-
ræðna hér á þessum vettvangi um
greiðsluskiptingu korthafa. Bréfið
er svohljóðandi:
„Góðkunningi Víkveija og aðrir
skilvísir korthafar VISÁ sem ekki
mega vamm sitt vita geta frá og
með næstu mánaðarútskrift tekið
gleði. sína. á ný. , ,
Adams og Evu. Eða þeirra fyrstu
jarðarbúa sem einhvern tímann
hafa verið til. Ef við vissum upp-
runa okkar það vel ... og bærum
virðingu fyrir honum, þá væri það
geysilega mikils virði til að styrkja
tilfinningu fyrir fortíðinni og því
blóði sem rennur í æðum okkar.
Ekki einungis okkar Íslendinga,
heldur allra jarðarbúa. Einn upp-
runi og eitt mannkyn á einni jörð.
Rafn Geirdal
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa. Með-
al efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og orðaskiptingar,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þáttar-
ins, þó að höfundur óski nafn-
Ieyndar. Ekki verða birt nafnlaus
bréf sem eru gagnrýni, ádeilur
eða árásir á nafngreint fólk.
Til að gera uppgjör kortavið-
skipta enn þjálla og létta góðu fólki
róðurinn vegna árstíðabundinna
útgjalda munu allir VISA-bankarnir
og sparisjóðirnir síðar í þessum
mánuði bjóða upp á og kynna nýtt
greiðslufyrirkomulag, FJÓL-
GREIÐSLUR, en í því felst að skil-
vísum korthöfum býðst að þrískipta
uppgjöri sínu - tvisvar á ári.
Skipulag greiðslukortaþjónustu
VISA er með talsvert ólíkum hætti
en keppinautanna. Eins og glögg-
lega má sjá af útliti kortanna bera
VISA-kortin nafn þess banka og
sparisjóðs, sem þau veitir og númer
þess afgreiðslustaðar sem korthaf-
inn er í viðskiptum hjá. VISA við-
skiptin eru vaxandi og ríkur þáttur
í einkaþjónustu hvers banka við sína
beztu viðskiptamenn.
Fyrr á þessu ári var beinlínu-
kerfi-VISA bætt þannig að starfs-
fólk bankanna/sparisjóðanna getur
með því að þrýsta á hnapp sett inn
aukaheimildir og aðrar sérmerking-
ar varðandi kortaviðskipti hvers og
eins. Góðkunningi Víkvetja hefði
því ekki átt að þurfa að lenda í
þeim hremmingum sem hann varð
fyrir, ef rétt hefði verið að staðið
í banka hans. Það ber að harma.
En nú eru betri tímar framundan
fyrir hann og alia hina 89.999 kort-
hafa VISA, eins og áður hefur kom-
ið fram og á eftir að koma enn
betur í ljós fljótlega."