Morgunblaðið - 05.10.1991, Side 52
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Árás í Bankastræti:
17 ára piltur dæmd-
ur fyrir manndráp
15 ára stúlka samsek í tveimur ránum
SAUTJÁN ára piltur hefur í sakadómi Hafnarfjarðar verið dæmdur til
6 ára og 5 mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa orðið manni að bana
í húsasundi við Bankastræti aðfaranótt 3. mars síðastliðinn. Þá var 15
ára stúlka dæmd samsek honum um að hafa rænt hinn látna og annan
mann þá sömu nótt. Hún var sýknuð af ákæru um hlutdeild í manndráp-
inu.
Þann 16. mars höfðu ungmennin
játað aðild að málinu við yfirheyrslur
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Pilturinn játaði að hafa ráðist að
manninum í því skyni að ræna hann
og veitt honum þá áverka, sem leiddu
hann til dauða. Stúlkan játaði að
> hafa verið í vitorði með piltinum og
aðstoðað hann við að lokka manninn
inn í bakgarðinn, þar sem pilturinn
beið og veittist að honuni með heima-
tilbúnu hnúajárni. Tilgangur ung-
mennanna var að komast yfir pen-
inga. Skömmu eftir þessa árás rændu
þau annan mann í bakgarði við
Hverfísgötu. Fengur þeirra úr ránun-
um tveimur nam um tvö þúsund
krónum.
Réttarhöld yfir piltinum og stúlk-
unni fóru fram fyrir luktum dyrum,
vegna lágs aldurs þeirra. Af sömu
ástæðu neitaði dómari að gefa upp
nöfn þeirra. Dómurinn yfir piltinum
áfrýjast sjálfkrafa til Hæstaréttar,
þar sem refsing er þyngri en 5 ára
fangelsi. Refsing stúlkunnar var
ákveðin 3 mánaða óskilorðsbundið
varðhald og 21 mánaðar skilorðs-
bundið fangelsi. Frá refsingu piltsins
dregst gæsluvarðhald hans frá 15.
mars til uppkvaðningar dómsins, 1.
október. Guðmundur Jóhannesson,
héraðsdómari í Hafnarfirði, kvað upp
dóminn.
Málnefnd gerir athuga-
semdir við textavarpið
STJÓRN íslenzkrar málnefndar
hefur sent útvarpsráði og útvarps-
stjóra athugasemd vegna þess að
texti textavarps Ríkisútvarpsins
kemur fram brenglaður á skjám
flestra sjónvarpsviðtækja. „Stjórn
málnefndar vill beina þvi til
stjórnenda Rikisútvarpsins að leit-
að verði lausnar á þessu vanda-
máli hið bráðasta," segir í bréfi
nefndarinnar til RÚV.
Sr. Heimir Steinsson útvarpsstjóri
segir í svarbréfi til málnefndar að
athugasemdin sé fyllilega réttmæt
og stjórnendum RÚV ekki síður íhug-
^ unarefni en málnefnd. Útvarpsstjóri
segir að um bytjunarörðugleika sé
að ræða. „Orðugt virðist vera að
leysa vandann „hið Sráðasta“. En sú
kemur tíð, er sjónvarpstæki lands-
manna upp til hópa verða þess albú-
in að nema textavarp með við-
hlítandi hætti að því er til stafsetn-
ingar tekur,“ segir útvarpsstjóri.
„Kostirnir munu raunar því aðeins
koma í ljós, að Ríkisútvarpið kynni
textavarpið og hvetji landsmenn
þannig til að seilast eftir þeim fróð-
leik, sem bættur viðtækjabúnaður
smám saman mun veita þeim,“ segir
í bréfi útvarpsstjóra. „Þar af leiðir,
að Ríkisútvarpið sér ekki annað ráð
vænna en halda fram stefnunni, þrátt
fyrir tímabundna annmarka. Allt
orkar tvímælis, þá gert er, og svo
er um þessa ákvörðun. En undan
henni verður ekki vikizt.“
Sjá bréfaskipti málnefndar og
útvarpsstjóra í heild á bls. 23.
Brotsjór eyðilagði siglingartækin
Morgunblaðið Ó.B.
Röst SK 17 fékk á sig brotsjó í vonskuveðri út af
Húnaflóa í fyrrinótt, og skemmdust flestöll siglinga-
tæki í brúnni. Skipið kom til hafnar á Skagaströnd
eftir hádegið í gær, og á myndinni sést Finnur Sigur-
björnsson stýrimaður halda á gluggakarmi sem
brotnaði í tvennt þegar brotsjórinn reið yfir brúna.
„Allt í einu reis hnúturinn upp framan við skipið,
og ég hafði ekki tíma til neins nema að slá af.
Hnúturinn var jafnhár frammastrinu og skall svo
ofan á brúna. Hann var svo krappur að framdekkið
var þui-rt, því hann kom bara á brúna og þar fyrir
aftan,“ sagði Finnur. Flutningaskipið Laxfoss fékk
einnig á sig brotsjó í gærmorgun þegar skipið var
statt við Færeyjar. Nokkrar skemmdir urðu á gám-
um um borð í skipinu og fóru tveir þeirra í hafið,
en engin slys urðu.
Sjá nánar á miðopnu
Ráöuneyti hafnar beiðni SAS
um breytingu á fargjöldum
Samgönguráðuneytið hafn-
aði í gær beiðni SAS um 6 nátta
fargjald til Norðurlanda á sama
verði og Flugleiðir bjóða fyrir
3ja nátta helgarferðir. Birgir
Þorgilsson ferðamálasljóri og
Gott verð fyrir lýsi og
mjöl á mörkuðum ytra
Tonnið af mjöli á 325-330 pund og tonnið af lýsi á 320-325 dollara
MARKAÐSHORFUR fyrir loðnuafurðir eru nú mun betri en þær
voru á síðasta ári og betra verð í boði fyrir bæði mjöl og lýsi. Jón
Reynir Magnússon, framkvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins, seg-
ir að verð á mörkuðum ytra sé nú 325-330 pund fyrir tonnið af
mjöli, eða 33.670 krónur, og 320-325 dollarar fyrir tonnið af lýsi
—,'ída 18.880 krónur. Þetta verð er um 10% hærra en það var í fyrra.
Jón Reynir segir að þetta verð
verði að taka með fyrirvara, því
nokkur óvissa ríkir á mörkuðum
okkar fyrir þessar afurðir nú. Óviss-
an ræðst af því að ekki hafa verið
teknar neinar ákvarðanir enn um
loðnuveiðar né það magn sem veiða
má á komandi veitíð. Þá er einnig
óvíst hversu mikið verði brætt af
síld á komandi vertíð. „Sökum þess-
arar óvissu hafa engir fyrirfram-
samningar um sölu verið gerðir í
ár og í fyrra voru slíkir samningar
í lágmarki," segir Jón Reynir.
„Þetta er ólíkt því sem gerðist fyrir
nokkrum árum þegar töluvert magn
af loðnuafurðunum var ávallt selt
fyrirfram."
Norðmenn hófu loðnuveiðar í
Barentshafí í miðjum síðasta mán-
uði en óvissa er með veiðar íslend-
inga. Víðtæk loðnuleit átti að vera
hafin fyrir nokkru pn veður hefur
hamlað henni hingað til.
í máli Jóns Reynis Magnússonar
kom fram að engar birgðir eru til
af loðnuafurðum í landinu nú, þann-
ig að búast megi við að sala á mjöli
og lýsi verði greið þegar loðnuveið-
ar hefjast. „Okkar verksmiðjur eru
tilbúnar og búið að standsetja þær.
Við höfum að vísu ekki ráðið til
okkar viðbótarmannskap vegna
óvissunnar um loðnuveiðarnar en
bíðum nú spenntir eftir niðurstöðu
úr loðnuleitarleiðangrinum," segir
Jón Reynir.
formaður flugeftirlitsnefndar,
segir að fordæmi séu fyrir 4ra
nátta helgarferðum og hefði
nefndin verið tilbúin til að heim-
ila þær. „Ferð yfir sex nætur
er nýtt fyrirbrigði og myndi ná
til stórs hluta af utanlandsferð-
um landsmanna á þessum flug-
leiðum,“ sagði Birgir. „Það má
ekki gleyma því að hér er ein-
ungis eitt íslenskt flugfélag sem
heldur uppi ferðum alla daga
árið um kring og okkur ber að
taka tillit til þess.“
„Hver segir að Flugleiðir eigi
að stjórna ferðinni," sagði Jóhann-
es Georgsson framkvæmdastjóri
SAS. „Af hveiju á að bera saman
okkar beiðni um fargjöld við það
sem Flugleiðir hafa beðið um? Af
hveiju má ekki fjalla um okkar
fargjöld ein og sér? Flugleiðir
gætu þá gert það sem þær vilja
og boðið önnur fargjöld.“
Um helgarfargjöld gildir sú
regla að flug til baka má ekki
fara fyrr en eftir miðnætti aðfara-
nótt sunnudags. „SAS óskaði eftir
heimild til að selja ferðir, þar sem
dvalið er í sex nætur erlendis en
algenga reglan til þessa er hámark
þijár nætur,“ sagði Birgir. „For-
dæmieru fyrir fjögurra nátta helg-
arferðum og lagði flugeftirlits-
nefnd til að SAS fengi heimild til
slíkra ferða á sama verði og Flug-
leiðir bjóða sínar 3ja nátta ferðir.
Þannig gæti SAS nýtt sér tvær
af þremur ferðum héðan til Kaup-
mannahafnar.“
í beiðni SAS um sex nátta helg-
arfargjald fólst jafnframt fram-
haldsflug til níu annarra borga.
Sagði Birgir að flugeftirlitsnefnd
hefði sett það skilyrði að Flugleið-
ir sem eingöngu fljúga til Ósló,
Stokkhólms og Kaupmannahafn-
ar, stæðu jafnfætis SAS með
flutning farþega til borganna níu.
„Og jafnframt að félögin næðu
um það samkomulagi hvernig þau
skiptu með sér tekjunum af slíkum
ferðum," sagði Birgir. „Við erum
að reyna að koma til móts við
neytendur um hagstæð og ódýr
fargjöld og sömuleiðis að hugsa
um hag þess íslenska flugfélags
sem flýgur á þessum flugleiðum.
Það er reynt að koma til móts við
bæði félögin sem hafa átt milljarða
viðskipti á undanförnum árum og
mjög nána samvinnu. Það er því
háif dapurlegt að menn skuli ekki
geta náð samkomulagi um far-
gjöld á vetrarpakkanum.“