Morgunblaðið - 06.12.1991, Side 4
'4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991
Morgunblaðið/Júlíus
Átak gegn ölvunarakstri
TIL AÐ vekja athygli ökumanna á þeirri hættu sem fylgir því að aka
ölvaður munu lögreglan, Umferðarráð, Átak gegn áfengi og Bindindisráð
vinna saman að sérstöku átaki í desember. Jólaglóðardrykkja lands-
manna er meginástæðan fyrir átakinu en samkvæmi þar sem jólaglóð
(jólaglögg) er höfð um hönd eru oft haldin að loknum vinnudegi og sú
hætta fyrir hendi að fólk ætli akandi heim að þeim loknum. Lögreglan
eykur eftirlit með ölvunarakstri í desember og fær fólk til að blása í
öndunarmæla sem nýlega hafa verið teknir í notkun. Reynist ökumenn
undir mörkunum þ.e. undir 0,5 prómill, munu nokkrir verða verðlaunað-
ir sérstaklega. Olís, Esso og Shell gefa 60 ökumönnum bensín að verð-
mæti 2.000 til 2.500 kr., þar af verða 15 ökumenn valdir úr hópi vegfar-
enda í desember. Aðrar viðurkenningar verða afhentar 20. desember.
Ökumaðurinn á myndinni reyndist undir mörkum og fékk viðurkenn-
ingu, bensín á bílinn að verðmæti 2.500 kr.
Halldór Árnason, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra:
Tollalækkun á saltfiski
hugsanleg á næsta ári
VÆNTANLEGUR samningur um
evrópska efnahagssvæðið mun
hugsanlega koma íslenskum sjáv-
arútvegsfyrirtækjum til jgóða
strax á næsta ári. Halldór Arna-
son, aðstoðarmaður sjávarútvegs-
ráðherra, sagði í gær á ráðstefnu
um nýsköpun i atvinnulífinu að
líklega muni EB á næsta ári byrja
að aðlaga innflutning sjávaraf-
urða að því aukna fijálsræði sem
í vændum er með því að stækka
innflutningskvóta sem eru með
lægri tollum.
Halldór sagði að hér væri meðal
annars um innflutning á saltfiski að
ræða. Tilkynning um þetta væri
væntanleg í lok desember. „Hvemig
svo sem þeir auka við þessa kvóta
þá þýðir það tollalækkun fyrir okk-
ur. Hátt í 50% af okkar tollgreiðslum
hafa komið til vegna saltfisksins
VEÐUR
IDAGkl. 12.00
Hsifnild: VeOurstola Islands
(Byggt á veOurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 6. DESEMBER
YFIRLIT: Um 700 km suðvestur af Hvarfi er 946 mb lægð sem
mjakast norðaustur, en 1.042 mb hæð yfir Færeyjum.
SPÁ: Hvöss sunnanátt, víða rigning um landið vestanvert. Heldur
hægari vindur austan til framan af degi, en þó hvessir sums stað-
ar einnig síðdegis. Dálítil rigning eða súld á Suðausturlandi, en á
norðaustanverðu landinu verður léttskýjað fram eftir degi, en síð-
degis þykknar heldur upp. Hlýtt verður áfram.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðvestan- og vestanátt, slydduél á
Suður- og Vesturlandi en þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 0-6
stig, hlýjast austantil. Víða frystir aðfaranótt sunnudags.
HORFUR Á SÚNNUDAG: Sunnanátt, líklega nokkuð lívöss víða urn
land. Rigning eða slydda um landið sunnan- og vestanvert, en
sennilega þurrt norðaustanlands. Hlýnandí veður á ný.
Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma, hlti voður Akureyri 3 léttskýjað Reykjavik 7 þokumóða
Bergen , 3 léttskýjað
Helsinki +5 léttskýjað
Kaupmannahöfn 3 hálfskýjað
Narssarssuaq 0 snjókoma
Nuuk vantar
Ósló 3 hálfskýjað
Stokkhólmur 0 hálfskýjað
Þórshöfn 4 alskýjað
Algarve 16 rigning
Amsterdam 6 léttskýjað
Barcelona 14 mistur
Berlín 4 léttskýjað
Chlcago +11 alskýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 5 skýjað
Glasgow 7 alskýjað
Hamborg 3 alskýjað
London 8 alskýjað
Los Angeles 11 alskýjað
Lúxemborg 5 skýjað
Madríd «- 11 skýjað
Malaga 16 skýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Montreal +16 léttskýjað
NewYork +3 léttskýjað
Orlando 5 heiðskírt
París 5 alskýjað
Madeira 18 skúr
Róm 11 þokumóða
Vfn 4 skýjað
Washington +4 heiðskfrt
Winnipeg +22 snjókoma
þannig að þetta hefði þá þýðingu að
bjartara yrði framundan hjá saltfisk-
verkuninni á næsta ári,” sagði Hall-
dór.
Halldór sagði að í raun hefði
kostnaður vegna tolla Evrópubanda-
lagsins verið mun meiri fyrir íslend-
inga en upphæð þeirra segði til um,
því í mörgum tilfellum hefðu þeir
komið í veg fyrir innflutning til EB.
Þá hefðu tollamir stuðlað að útflutn-
ingi á hráefni í stað verkaðra sjávar-
afurða.
Þá er á döfinai samstarf milli sjáv-
arútvegsráðuneytisins og sölusam-
taka sjávarútvegsins um könnun á
erlendum mörkuðum fyrir vannýttar
fisktegundir, eins og gullax, lang-
hala, geirnyt, spærling, tindabykkju,
langlúru, litla karfa, lýsu, búrfisk,
kolmunna, og skrápflúm. Einnig er
rætt um kúfisk, sæsnigla, sæbjúgu,
ígulker, krabba o.fl. „Þarna er ákveð-
ið tækifæri sem ég held að við verð-
um að nýta og fyrsta skrefið er að
kanna hvort markaður sé fyrir þess-
ar tegundir. Ég hef fengið mjög góð-
ar undirtektir hjá Sölumiðstöð hrað-
'frystihúsanna og verður söluskrif-
stofu þeirra falið að kanna þetta inn-
an tíðar þannig að niðurstöður liggi
fyrir í upphafi næsta árs,” sagði
Halldór. Hann sagði að haft yrði
samband við SÍF og íslenskar sjávar-
afurðir og átti hann von á því að
undirtektir yrðu svipaðar þar. Ekki
væri mikið vitað um stofnstærð þess-
ara tegunda en þó nokkuð hefði
veiðst af búrfiski. Þá er stofnstærð
kolmunna talin vera 100-150 þúsund
tonn.
í erindi sínu sagði Halldór að svo-
kölluð aflanýtingamefnd starfaði
innan sjávarútvegsráðuneytisins.
Henni væri m.a. ætlað að stuðla að
aukinni nýtingu á aukaafla. Á henn-
ar vegum væri rekinn aflakaupa-
banki sem hefði.keypt aukaafla af
fiystitogumm og selt áfram á kostn-
aðarverði til vinnslu eða til erlendra
kaupenda. Á næsta ári væri einni
fyrirhugað að kaupa af ísfisktogur-
um og bátum. í máli hans kom einn-
ig fram að unnið væri ötullega að
því að breyta ýmsum aukaafurðum
sem féllu til við fiskvinnslu í verð-
mæti, éins og t.d. marningi, þorsk-
hausum og hrognum.
Svavar Egilsson:
Nýir hluthafar koma
til liðs við Veröld
SVAVAR Egilsson eigandi Ferðamiðstöðvarinnar Veraldar segir að
nýir hluthafar séu að koma til liðs við hann um rekstur .fyrirtækis-
ins. Hann segir að þetta séu traustir aðilar en vill ekki að svo stöddu
upplýsa hverjir það eru.
Andri Már Ingólfsson fram-
kvæmdastjóri Veraldar sagði í
Morgunblaðinu i gær að hann hefði
ekki unnið í fyrirtækinu síðan hann
gekk út á mánudag og að hann
mæti ekki aftur þangað nema Sva-
var taki tilboð hóps manna sem
hann er í forsvari fyrir um yfirtöku
á rekstrinum. Svavar sagði að þetta
kæmi sér á óvart. Andri Már hefði
ekki sagt upp störfum hjá fyrirtæk-
inu og honum hefði ekki verið sagt
upp og væri hann því enn á launa-
skrá.
Bók eftir Bene-
dikt Gröndal
VAKA-Helgafell hefur gefið út
bók eftir Benedikt Gröndal fyrr-
um formann Alþýðuflokksins og
forsætisráðherra.
í formála bókarinnar segir
Benedikt Gröndal m.a.: „Megintil-
gangur þessarar bókar er að gefa
sem gleggsta mynd af þeim við-
burðum og straumum innan lands
sem utan sem mest áhrif hafa
haft í þá átt að móta frjálst nútíma-
ríki á íslandi og tryggja öryggi
þess. Þetta er löng saga og marg-
brotin allt frá því að ísland naut
einangrunar úthafsins þar til það
barst inn í hrunadans heimsveld-
anna. Síðasta hálfa öldin hefur
verið lang viðburðaríkust að því
er varðar íslensk öryggismál enda
ítarlegast fjallað um það tímabil
íslandssögunnar í bókinni. Frá-
sögnin er byggð á mörgum heim-
ildum, minningum höfundar sem
ritstjóra, alþingismanns og ráð-
herra, upplýsingum samtímis at-
burðum og víðar, og loks persónu-
legum kynnum af flestum íslend-
ingum sem koma við söguna eftir
1940. ”
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „Benedikt fjallar ítarlega um
forsögu mála og aðdraganda at-
burða. Stór hluti bókarinnar er
aftur á móti um breska hernámið,
varnarsamninginn við Bandaríkin
1941, sjálfstæðismálið og stofnun
lýðveldis. Þá segir frá því þegar
íslendingar neituðu að segja
Þýskalandi og Japan stríð á hend-
ur, neituðu að veita Bandaríkja-
Benedikt Gröndal
mönnum herstöðvar til 99 ára, um
Keflavíkursamninginn, Kóreu-
stríðið og komu varnarliðsins.
Benedikt Gröndal hafði frá ungl-
ingsárum stundað blaðamennsku,
fyrst við Alþýðublaðið en síðar sem
ritstjóri Samvinnunnar. Hann var
kosinn alþingismaður 1956. Þá
átti að segja varnarsamningnum
upp, en hrikalegir heimsviðburðir
leiddu til áframhaldandi hersetu.
Voru þau mál, til dæmis Keflavík-
ursjónvarpið, í sviðsljósi íslenskra
stjórnmála við hlið landhelgismáls-
ins á þessum árum.”
Bókin er 284 blaðsíður, prentuð
og bundin í Prentsmiðjunni Odda hf.
i
i