Morgunblaðið - 06.12.1991, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991
Bielg
Jóns
NÓttí
borginri
„Virkilega spennandi
og óvenjuleg
unglingasaga eftir
einn efnilegasta
rithöfund okkar.“
Arnaldur Indrióason,
kvikmyndagagnrýnandi
Morgunblaósins
Miðstöð fræðslu og rann-
sókna í sjávarútvegi
TILLAGA til þingsályktunar um eflingu Akureyrar og Eyjafjarð-
arsvæðisins sem miðstöðvar fræðslu og rannsókna á sviði sjávarút-
vegs hefur verið lögð fram á Alþingi. Tillagan felur í sér að á svæð-
inu verði í framtíðinni höfuðstöðvar fræðslu og rannsókna á sviði
sjávarútvegs og framtíðaruppbygging á vegum ríkisins fari fram í
Eyjafirði. Mikilvægt sé að slík miðstöð sjávarútvegsins verði byggð
upp þar sem þekking og reynsla og allar ytri aðstæður eru fyrir
hendi og er því lagt til að ríkisstjórnin geri sem fyrst áætlun um
uppbyggingu slíkrar miðstöðvar og að hún verði lögð fyrir Alþingi
fyrir lok þessa kjörtímabils.
I tillögunni kemur fram að mið-
sjávarútvegs skuli byggja upp á
Akureyri og Eyjaijarðarsvæðinu og
að Alþingi feli ríkisstjórninni að
gera tímasetta áætlun sem miði að
uppbyggingu sjávarútvegsdeildar
Háskólans á Akureyri og sjávarút-
vegsbrautarinnar á Dalvík og efl-
ingu hvers kyns rannsókna- og þró-
unarstarfsemi á svæðinu. í kjölfar
mikillar umræðu um sjávarútvegs-
og byggðamál liggi beint við að
Alþingi taki til umíjöHunar og af-
greiðslu hugmyndir í þessa veru.
„Að baki liggur sú hugmynd að
þannig megi slá a.m.k. tvær flugur
í einu höggi, þ.e. að sækja fram á
sviði sjávarútvegs til aukinnar
þekkingar og þróunar í þessari höf-
uðatvinnugrein landsmanna og efla
byggð og styrkja uppbyggingu há-
skólanáms og rannsókna í miðstöð
slíkrar starfsemi á landsbyggðinni,”
segir í tillögunni.
Morgunblaðið/Sigurður Björnsson
Jóhann Helgason formaður Leifturs heiðrar gamla forustumenn og frumkvöðla í félagsstarfinu,
frá vinstri: Sigmúndur Jónsson, Garðar Guðmundsson, Júlíus Magnússon, Stefán B. Ólafsson, Magn-
ús Stefánsson og Ásgrímur Hartmannsson.
Ólafsfjörður:
íþróttafélagið Leiftur 60 ára
Verðlaunagripir sem Ólafsfirðingar hafa unnið á liðnum árum
vegna Islandsmeistaratitla.
Ólafsfirði.
UM ÞESSAR mundir er íþrótt-
afélagið Leiftur á Ólafsfirði 60
ára. Sl. laugardag var veglegt
afmælishóf haldið í tilefni tíma-
mótanna í félagsheimilinu
Tjarnarborg, sem Leiftur átti
m.a. drjúgan hlut i að byggt
var á sínum tíma. Fjölmargir
boðsgestir sátu veisluna, m.a.
Jóhann Ólafsson, sem flutti
kveðju UMFÍ og færði félaginu
farandgrip að gjöf, sem ætlað-
ur er þeim sem vinna vel í fé-
lagsstarfinu, og Hermann Sig-
tryggsson, fulltrúi ÍSI, en hann
sæmdi íþróttagarpinn og fé-
lagsmálafrömuðinn Björn Þór
Ólafsson gullmerki ISI fyrir
störf hann í þágu íþróttahreyf-
ingarinnar. Sagði Hermann
viðurkenninguna táknræna
fyrir ótrúlega glæsilegan ár-
angur íþróttamanna frá Ólafs-
firði á liðnum árum. Fjöldi
kveðja og gjafa bárust. M.a.
færði Ólafsfjarðarbær félaginu
fimm hundruð þúsund króna
peningagjöf.
Jóhann Helgason formaður
Leifturs bauð gesti velkomna og
flutti síðan ræðu þar sem hann
rakti sögu félagsins. Þegar félag-
ið var stofnað árið 1931 var fyrir
í byggðarlaginu ungmennafélag
en nýja félaginu var í upphafi
einkum ætlað að vera fótboltafé-
lag og eingöngu karlmenn fengu
inngöngu í bytjun. Fljótlega færði
félagið út kvíarnar og konur
fengu inngöngu eftir nokkrar deil-
ur árið 1936 og hafa síðan verið
miklir máttarstólpar í félaginu.
Merkilegar fjáröflunarleiðir
voru farnar á fyrstu árunum.
Þannig tóku félagsmenn að sér
að handmoka snjó af götum
þorpsins á veturna en í staðinn
felldi hreppsnefndin niður skatta
af skemmtunum félagsins. Einnig
voru dæmi um að félagið hand-
mokaði snjó af veginum yfir Lág-
heiði. Þeir víluðu ekki fyrir sér
stórverkefnin í þá daga og Iþrótt-
afélagið Leiftur eignaðist upp úr
1940 réttindi til öflunar á heitu
vatni í grennd við þorpið og síðan
hafði félagið forgöngu um að elsta
hitaveita iandsins var lögð í Ólafs-
firði og ekki nóg með það; glæsi-
leg sundlaug var byggð í leiðinni
og var hún vígð 1945.
Leiftur og gamla ungmennafé-
lagið sameinuðust og um tíma hét
félagið Sameining, en fljótlega
var nafnið Leiftur tekið upp á ný.
Merki félagsins er nú 40 árai en
það hannaði Ólafsfirðingurinn
Eysteinn Þórðarson, margfaldur
íslandsmeistari á skíðum.
Tvær deildir eru nú innan fé-
lagsins; skíðadeild sem Björn Þór
Ólafsson veitir forstöðu og knatt-
spyrnudeild sem Þorsteinn Þor-
valdsson er formaður fyrir.
Árangur íþróttamanna Leifturs
hefur verið glæsilegur gegnum
tíðina. Fyrsta íslandsmeistarann
á skíðum eignaðist félagið árið
1940 og er sigurgangan óslitin
síðan. íslandsmeistaratitlar Ólafs-
firðinga skipta orðið hundruðum
í skíðaíþróttinni frá upphafi. Um
tíma áttu Ólafsfirðingar fjölda
sundmanna í fremstu röð og
knattspyrnumennirnir hafa náð
góðum árangri og lið Leifturs
m.a. spilað í 1. deild.
Enn hyggja Leiftursmenn á
landvinninga. Verið er að ljúka
við gerð upphitaðs grasvallar.
Samningur hefur verið gerður við
Ólafsfjarðarbæ um byggingu á
fullkornnu íþróttahúsi og í vetur
halda Ólafsfirðingar landsmót á
skíðum í samvinnu við Dalvíkinga.
SB