Morgunblaðið - 06.12.1991, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 06.12.1991, Blaðsíða 60
1 m Minning-: Gunnar Bjamason, Hafnarfirði Fæddur 10. október 1913 Dáinn 30. nóvember 1991 " Fallinn er frá Gunnar Bjarnason, starfsmaður Hafnarfjarðarkaup- staðar um langan aldur. Gunnar var 78 ára gamall þegar kallið kom. Með honum hefur kvatt góður og gegn Hafnfirðingur, sem setti mark sitt á samtíð sína, þannig að eftir var tekið og þakka skal fyrir. Gunnar Bjarnason starfaði ára- tugum saman hjá Hafnarfjarðar- kaupstað við ýmis skrifstofustörf, einkanlega tengd innheimtu- og fjármálum. Eftir að hann lét af störfum fyrir aldurs sakir sam- kvæmt venjum og hefðum þar um sinnti hann áfram sérstökum verk- efnum fyrir Hafnarfjarðarbæ, sér- staklega á sviði innheimtumála. Var kraftur hans og dugnaður í þeim efnum með fádæmum. Þessum verkefnum sinnti hann með mestu prýði allt fram til þess að veikindi þau steðjuðu að, sem leiddu hann til dauða. Með Gunnari er genginn traustur og dugmikill starfsmaður Hafnar- fjarðarbæjar. Fyrir hans mikilvægu störf í bæjarins þágu ber að þakka af hlýhug og skal það hér gert. Gunnar var félagslyndur vel og fylgdi fast eftir stefnu jafnaðar- manna. Var og góður liðsmaður Aiþýðuflokksins í Hafnarfirði í þeirri baráttu. Þar á bæ sakna menn vinar í stað. Glaðværð og kímni var áberandi þáttur í fari hans. Hann gat jafn- framt verið fastur fyrir og lét ekki hlut sinn í orðræðum átakalaust. Hressilegur gustur og kraftur fylgdi hvar sem hann fór. Eftirlifandi eiginkonu hans, El- ísabetu Jónsdóttur, sem og öðrum vandamönnum, sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Gunnars Bjarnasonar. Guðmundur Arni Stefánsson Hann elsku afí okkar, Gunnar S.G. Bjarnason, er dáinn og í nokkr- um orðum viljum við þakka honum fyrir samveruna. F’yrir raunsæi hans sem kom sér svo vel fyrir ungar dreymnar sálir. Fyrir fjörið og kraftinn sem fyllti okkur bjart- sýni og hugrekki. Fyrir hreinskiln- ina sem auðveldaði okkur að vera við sjálf í stað þess að þykjast. Fyrir leiftrandi gáfur og þekkingu sem hann var fús að miðla. Fyrir að leyfa sér að vera stundum prakk- aralegur, því þá var svo dillandi gaman. Fyrir hjálpsemi hans og hlýju sem aldrei brást. t Astkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BRAGI HÚNFJÖRÐ ZOPHANÍASSON skipasmíðameistari, Skúlagötu 11, Stykkishólmi, andaðist í Landakotsspítala að kvöldi 30. nóvember. Útför hans fer fram frá Stykkis- hólmskirkju laugardaginn 7. des- ember kl. 14.00. Helga K. Kristvaldsdóttir, Tómas M. Bragason, Magðalena K. Bragadóttir, Anna Ragna Bragadóttir, Margrét St. Bragadóttir, Valdimar Ólafsson, Hólmfriður J. Bragadóttir, Geir S. Sigurjónsson, Björg Ó. Bragadóttir, Ragnar Óskarsson, Bogi Th. Bragason, Sigriður L. Bragadóttir og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGURBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR, Drápuhlið 43, andaðist í Landspítalanum 4. desember. Haraldur Teitsson, börn, tengdabörn og barnabörn. Yndisleg dóttir okkar, MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, Skólavörðustig 18, lést í Landspítalanum 4. desember. Kristín I. Pálsdóttir, Guðmundur Karl Arnarson. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRI'ÐUR gunnlaugsdóttir frá Kolugili, til heimiiis á vistheimili aldraðra, Seljahlíð, lést í Borgarspítalanum aðfaranótt 5. desember. Sigrún Jóhannsdóttir, Erling Jóhannsson, Þórunn Rut Þorsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, STEINGRÍMUR MAGNÚSSON fyrrverandi fiskkaupmaður í Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli þann 4. desember sl. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður V. Einarsdóttir. Guð blessi afa og hana ömmu sem elskaði hann svo mikið. Gunnar Dóra, Helga Björg, Kristján, Gunnar Axel. Elskulegur tengdafaðir minn, Gunnar Bjarnason, lést í Hafnar- firði laugardaginn 30. nóvember sl., 78 ára að aldri, eftir rúmlega tveggja mánaða stranga sjúkdóms- legu. Veikindi Gunnars voru óvænt og þeim sem til hans þekktu og störfuðu með honum var brugðið. Allt fram að því að hann veiktist hafði Gunnar unnið fullan starfsdag að sjálfstæðum rekstri sínum geisl- andi af starfsorku og honum varð sjaldan misdægurt. Með Gunnari er genginn mikil- hæfur og góður maður. I raun réttri má kalla Gunnar mann 20. aldar- innar. Hann fæddist á ísafírði 10. október 1913 og þegar á bernsku- árum í sjávarplássinu drekkur hann í sig vonir, hugsjónir og þrár ís- lenskrar alþýðu sem áttu annars vegar rætur sínar að rekja til óvæg- innar lífsbaráttu fólks og hins vegar sjáifstæðissóknar íslendinga á öld- inni sem leið. Úr sama jarðvegi til- einkaði Gunnar sér fomar dyggðir fyrri aldar sem meðal annars ein- kenndu þennan mannkostamann. Einn helsti áhrifavaldur hins hrif- næma unga manns var móðir hans, Helga Magnúsdóttir og var Gunn- ari tíðrætt um hana þegar minnst var á liðna tíð á ísafirði, bænum sem auðheyrilega átti mikið rúm í hjarta hans. Stjómmál og verkalýðsbarátta heilluðu Gunnar snemma og í fjöld- amörg ár og var hann dyggur bar- áttumaður fyrir bættum kjörum hins óbreytta alþýðumanns og gegndi hann margvíslegum trúnað- arstörfum innan Alþýðusambands íslands. En þrátt fyrir djúpar rætur í hinu forna bændasamfélagi fyrri tíma var Gunnar fulltrúi þeirra framsæknu manna sem skapað hafa nútíma þjóðfélag á íslandi. Gunnar fylgdist alla tíð vel með þjóðmálum og var ákaflega fróður um menn og málefni og í hinum mörgu skemmtilegu og hressu um- ræðum eða rökræðum hans við mig og fleiri um þjóðmál kom vel fram að hann vildi sækja fram á við og þoldi illa lognmollu eða kyrrstöðu. I honum sameinuðust á aðdáunar- verðan hátt öll þau háleitu gildi sem + MAGNÚS EINARSSON frá Búðum, Staðarsveit, er látinn. Útförin verður gerð frá Búðakirkju laugardaginn 7. desember nk. kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Búðakirkju. Fyrir hönd aðstandenda. Guðrún Magnúsdóttir, Stekkjarhoiti 6, Ólafsvík. Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓNATAN AÐALSTEINSSON, Brimhólabraut 37, Vestmannaeyjum, lést i Sjúkrahúsi Vestmannaeyja miðvikudaginn 4. desember. Anna Sigurlásdóttir, Sigþóra Jónatansdóttir, Gi'sli Eiríksson, Aðalsteinn Jónatansson, Þóra Björg Thoroddsen, Þór Vilhelm Jónatansson og barnabörn. + Elskuleg kona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, SIGURLAUG MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR, Kársnesbraut 97, Kópavogi, lést þriðjudaginn 3. desembersl. á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Jón Bachman Guðmundsson, Svala Konráðsdóttir, Jóhann Jakobsson, Erna Konráðsdóttir, Sveinbjörn Jónsson, Mjöll Konráðsdóttir, Höybye Christensen, Drifa Konráðsdóttir, ' Ingi Gunnar Benediktsson, María Björnsdóttir, Einar Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faöir okkar og tengdafaðir, GUÐNI Þ. GUÐMUNDSSON, Skaftahlíð 38, andaðist i Landakotsspítala miðvikudaginn 4. desember. Guðrún Áslaug Edvardsdóttir, Jóhanna M. Guðnadóttir, Þorgeir P. Runólfsson, Edvard G. Guðnason, Kristín G. Guðmundsdóttir, • Sigurlaug Þ. Guðnadóttir, Óskar Hrafnkelsson. fylgdu tíðaranda fyrri aldar og byrj- un þessarar og það ferskasta sem einkennir nútímann. Kornungur kynntist Gunnar ást- kærri tengdamóður minni, Elísa- betu Jónsdóttur frá Hafnarnesi við Fáskrúðsíjörð, sem lifir mann sinn. Þessi kynni voru upphaf að farsælu og ástríku hjónabandi og hygg ég að leitun hafí verið að jafn samrýnd- um hjónum. Þau hjónin hófu búskap á ísafirði 1933 en fluttu til Reykjavíkur 1950 og síðan til Hafnarfjarðar 1952 þar sem þau bjuggu alla tíð síðan. Þeim varð sex bama auðið. Líf þeirra hjóna var ekki alltaf dans á rósum. Þau mættu ýmsu mótlæti á umbrotatíma en allt slíkt féll í skuggann fyrir þeirri miklu raun þeirra að missa tvo mannvæn- lega drengi, Halldór og Gunnar, í sviplegum slysum með stuttu milli- bili 1964 og 1965. Áfallið var mik- ið en með samheldni og heilbrigðu lífsmati tókst þeim Gunnari og El- ísabetu að vinna þannig með sorg- inni að reynsla þeirra hefur kennt okkur hinum að meta lífíð og þau raunverulegu verðmæti sem það hefur að bjóða. Ég tel það gæfu lífs míns að hafa kynnst sæmdarhjónunum Gunnari og Elísabetu. Ég kom fyrst á heimili þeirra og eiginkonu minnar Ingibjargar, 16 ára ungling- ur og frá upphafi mætti ég þeirri ólýsanlegu elsku og hlýju sem ein- att stafaði frá þeim hjónum. Um- hyggja þeirra, fórnfýsi og mann- kærleikur var einstakur og heimili þeirra sannkallaður griðastaður fyrir óharðnaðan ungling í ölduróti tilfinninga. Fljótlega varð mér ljóst að ég hafði ekki einungis eignast ástkæran lífsförunaut, tilvonandi eiginkonu, heldur einnig tengdafor- eldra sem komu eins nálægt því að ganga mér í móður- og föðurstað og unnt er. Verð ég ævinlega þakk- látur þeim Gunnari og Elísabetu fyrir ást þeirra, umhyggju og hlýju. Syni okkar Ingibjargar, Gunnari Bjarna, hafa Gunnar og Elísabet reynst einstaklega vel. Gunnar Bjarni hændist snemma að afa sín- um og þeir urðu miklir mátar. Dvaldi Gunnar Bjarni sem barn langdvölum hjá ömmu sinni og afa og bjó á heimili þeirra um margra ára bil sem unglingur. Ég er mjög þakklátur Gunnari fyrir að hafa tekið nafna sinn Gunnar Bjarna að sér og rækt þær föðurskyldur sem mér sem ungum föður voru á þeim tíma ofviða af ýmsum orsökum. Það var reisn yfir Gunnari Bjarn- asyni og persóna hans var heil- steypt. Gunnar var glöggur maður, skarpskyggn og skeleggur. Hann var fylginn sér, en þó ávallt tilbúinn til að miðla málum, einkum ef minni máttar áttu í hlut. Gunnar var hörkuduglegur, hagur og með ein- dæmum starfsamur og hress. Af þeim sökum töldu margir manninn yngri en hann var í raun. Nú er komið að sárri kveðju- stund. Hin stóra fjölskylda Gunnars Bjarnasonar kveður höfuð fjölskyld- unnar. Vakin og sofin hafa þau Gunnar og Elísabet fylgst með hverju fótmáli hinna fjölmörgu niðja sinna. Þau hafa tekið þátt í gleði og sorgum barna sinna, barnabarna og barnabarnabarna og ef eitthvað hefur bjátað á hafa þau verið nærri með útrétta og líknandi hjálparhönd og kærleiksríku uppöivunarorðin sín. Elísabet, tengdamóðir mín, hefur staðið dyggilega við sjúkrabeð eig- inmanns síns í tvo mánuði, marga klukkutíma á dag. Til hennar beini ég orðum mínum: „Elsku Elísabet. Við fengum að hafa Gunnar hjá okkur á meðan hann lifði. Við feng- um að kynnast ykkar einstaka og kærleiksríka sambandi. Nú hafíð þið verið aðskilin um stund, en minningin um Gunnar mun ávallt lifa í hugum okkar. Saman munum við hlúa að minningu hans með því að fylgja þeim manngildum sem hann tileinkaði sér í lífínu.” Ég bið Guð að blessa elskulegan tengdaföður minn og minningu hans. Megi hann styrkja Elísabetu og börn þeirra Gunnars í sorg sinni. Þeim og öllum öðrum í hinni stóru fjölskyldu Gunnars votta ég dýpstu samúð mína. Ragnar Gíslason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.