Morgunblaðið - 06.12.1991, Blaðsíða 72
VÁTRYGGING
SEM BRÚAR v'
BILIÐ
SJOVAOPALIVIENNAR
MORGVNBLADID, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
Sim 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: llAFNARSTRÆTl 85
FOSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Talsmaður bandaríska viðskiptaráðuneytisins:
Vonum að Island verði
áfram í hvalveiðiráðinu
Bandarísk stjórnvöld gera sér grein fyrir því að visindaleg rök benda
til þess að vissir hvalastofnar séu að ná sér á strik, að sögn talsmanns
sjávarútvegsdeildarbandarískaviðskiptaráðuneytisins.Oghannsegirþað
stefnu bandarískra stjórnvalda að stuðla að því að Alþjóðahvalveiðiráðið
geti á virkan hátt stjórnað viðhaldi og nýtingu hvalastofna á grundvelli
vísindalegra upplýsinga, eins og stofnskrá þess segi til um, og Bandaríkja-
stjórn vonist til þess, að ísland verði áfram í ráðinu.
„Við gerum okkur grein fyrir því
að bandarísk stjórnvöld hafa verið
gagnrýnd fyrir að taka ekki tillit til
vísindalegra upplýsinga í hvalveiði-
ráðinu. En stefna okkar er að stuðla
að því að Alþjóðahvalveiðiráðið geti
á virkan hátt stjórnað viðhaldi og
nýtingu hvalastofna á grundvelli vís-
indalegra upplýsinga,” sagði Roddy
Moscoso talsmaður sjávar- og veður-
fræðistofnunar bandaríska viðskipta-
ráðuneytisins en undir hana falla
sjávarútvegsmál, þar á meðal hval-
veiðimál.
Þegar Moscoso var spurður hvort
hann væri með þessu að gefa í skyn
að Bandaríkjastjórn væri að breyta
um stefnu gagnvart hvalveiðibann-
inu, svaraði hann því neitandi. Hún
teldi sig hafa fylgt ofangreindri
stefnu. En nú virtust vísindarann-
sóknir benda til þess að einhveijir
. þvalastofnar hefðu náð sér.
Þegar hann var spurður hvort
ekki yrði að heimila einhvetjar hval-
veiðar, svo hvalveiðiþjóðir yrðu
áfram í hvalveiðiráðinu, og það liðað-
ist ekki í sundur, svaraði hann að
þetta væri sanngjöm röksemd, sem
hvalveiðiráðið hlyti að taka tillit til.
„Og það er ljóst að næsti ársfundur
Alþjóðahvalveiðiráðsins verður mjög
áhugaverður,” sagði Moscoso. Að-
spurður hvort hann væri með þessu
að segja, að íslendignar ættu a.m.k.
að bíða með ákvörðun um úrsögn
fram yfir þann fund, sagði hann að
engar meiriháttar ákvarðanir hefðu
enn verið teknar. „En við vonum
heilshugar að Island verði áfram í
Alþjóðahvalveiðiráðinu,” sagði
Roddy Moscoso.
Jólatréð sett upp á Austurvelli
Morgunblaðið/Júlíus
Borgarstarfsmenn byijuðu að setja upp jólatréð á Austurvelli síðdegis í gær. Jólatréð er gjöf frá Oslóarbú-
um til Reykvíkinga og verður kveikt á því við hátíðlega athöfn næstkomandi sunnudag.
Ríkisendurskoðun um tapaðar ríkisábyrgðir og endurlán ríkissjóðs:
Lagt til að 4 milljarða kr.
kröfur verði afskrifaðar
Heildartap vegna sjóða, lána og ábyrgða ríkissjóðs 8-10 milljarðar
RIKISENDURSKOÐUN leggur til
íið afskrifaðar verði kröfur vegna
ríkisábyrgða og veittra lána ríkis-
sjóðs sem nema tæplega fjórum
milljörðum króna miðað við síð-
ustu áramót. Auk þess bendir
stofnunin á að til viðbótar gætu
tapast allt að 2,7 milljarðar króna
vegna Flugstöðvar í Keflavík og
vegna ferja og flóabáta. Nýlega
hefur komið fram að talið er að
1,2 inilljarðar muni falla á ríkis-
sjóð vegna taps Framkvæmda-
sjóðs, 1,4 milljarðar vegna At-
vinnutryggingarsjóðs, 1,2 millj-
örðum hefur verið létt af Byggða-
stofnun og talið er að Hlutafjár-
deild Byggðastofnunar kunni að
tapa 200 milljónuin. Alls gætu því
tap víkissjóðs vegna eigin lánveit-
inga, ábyrgða og viðskipta fjár-
festingarlánasjóða numið átta til
tíu milljörðum króna.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar fjall-
ar um afskriftir á kröfum Ríkis-
ábyrgðasjóðs og á endurlánum ríkis-
sjóðs, sem gerð var að beiðni fjár-
málaráðherra í ágúst. Þær kröfur
Samdráttur í sovésku utanríkisþjónustunni:
Niðurskurðurinn mun
ekki síst taka til Islands
- segir deildarslj óri í sovéska utanríkisráðuneytinu
SEGLIN verða dregin saman í sovéska sendiráðinu í Reykjavík,
segir Sergej Nikolajevitsj Shiskhin, yfirmaður íslandsdeildar so-
véska utanríkisráðuneytisins. Of snemmt sé hins vegar að segja t.il
um hve mikill niðurskurðurinn verður.
Fyrir skemmstu voru ákveðnar
talsverðar breytingar á sovésku
utanríkisþjónustunni, m.a. var
nafni ráðuneytisins breytt í ráðu-
neyti erlendra tengsla. Enn starfar
þar þó deild fjögurra til fimm
manna sem aðallega sinnir málefn-
um Islands. Yfirmaður hennar,
Shiskhin, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að tekin hefði verið
ákvörðun um að loka u.þ.b. tuttugu
sendiráðúm og ræðismannsskrif-
stofum erlendis. Þessi samdráttur
tæki þó ekki til Evrópu. Þar yrði
fyrst og fremst um fækkun starfs-
liðs að ræða. „Samdrátturinn mun
taka til allra sendiráða, ekki síst
sendiráðsins á íslandi,” sagði
Shiskhin. Segir hann ákvörðunar
um niðurskurð starfsfólks í sendi-
ráðinu á íslandi að vænta innan
eins til tveggja mánaða. Sam-
kvæmt upplýsingum frá utanríkis-
ráðuneyti Islands voru 15 diplómat-
ar, 23 aðrir starfsmenn, 34 makar
og tíu börn hérlendis á vegum so-
véska sendiráðsins þegar tölur voru
síðast teknar saman um það efni
fyrir ári.
Shiskhin nefndi ennfremur að
breytingarnar á utanríkisþjón-
ustunni hefðu það í för með sér
að fulltrúar lýðveldanna gætu tekið
til starfa innan sovésku sendiráð-
anna. Það þyrfti þó að semja um
tilhögun slíks við stjórnvöld á hverj-
um stað.
Shiskhin sagði að enn væri
óleyst vandamál hvernig fjármögn-
un utanríkisþjónustunnar yrði hátt-
að. Hann sagðist sjá tvo mögu-
leika, annars vegar myndu lýðveld-
in í sameiningu standa straum af
kostnaðinum, hins vegar myndu
Rússar hreinlega yfirtaka utanrík-
isþjónustuna.
Shiskhin var spurður álits á
þeirri yfirlýsingu Borís Pankíns
fyrrverandi utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna að um helmingur starfs-
manna í sovéskum sendiráðum
hefði verið njósnarar. „Það er erf-
itt fyrir mig að tjá mig um þetta
því Pankín hefur auðvitað mun
meiri yfirsýn yfir málið en ég.” En
kemur þessi yfirlýsing þér á óvart?
„Nei,” svaraði Shiskhin.
sem Ríkisendurskoðun leggur til að
verði afskrifaðar eru 900 milljónir
vegna ríkisfyrirtækja, 200 millj.
vegna hitaveitna og viðskipta við
sveitarfélög en 2,8 milljarðar vegna
atvinnufyrirtækja.
Afskriftir vegna orkufyrirtækja
nema 200 milljónum en á frétta-
mannafundi sem fjármálaráðherra
boðaði til í gær kom fram að ef litið
sé til liðinna tíu ára láti nærri að
um 18 milljörðum króna hafi verið
létt af orkugeiranum og auk þess sé
áætlað að árlegar greiðslur ríkissjóðs
vegna vaxta og afborgana af lánum
til orkufyrirtækja nemi um 2,5 millj-
örðum.
Meðal einstakra lána eða ábyrgða
sem ríkisendurskoðun leggur til að
verði afskrifaðar eru viðskipti með
fasteignir og vélar Sigló hf., en stofn-
unin telur að tap af gjaldþroti og
fasteignaviðskiptum vegna Sigló hf.
nemi um 175 millj. Tap vegna gjald-
þrots Arnarflugs er um 295 milljón-
ir. Krafa á hendur ísl. gagnagrunnin-
um uppá 35 millj. er talin töpuð en
þar er um að ræða eftirgjöf á skatt-
skuld útgáfufyrirtækisins Svarts á
hvítu gegn veði í sérstökum hugbún-
aði fyrirtækisins.
Ríkisendurskoðun gerir ekki til-
lögur um beinar afskriftir á skuld-
bindingum vegna flugstöðvar í Kefla-
vík og vegna fetja og flóabáta en
telur að verulegar fjárhæðir muni
falla á ríkissjóða vegna þeirra. Fram
kemur í skýrslunni að fjórir aðilar
sem reka feijur hafi fengið lán eða
ábyrgðir hjá ríkissjóði uppá samtals
um 700 millj. í lok síðasta árs. Við-
bótarlán vegna smíði Vestmanna-
eyjafeiju nemi 750 millj. og er heild-
arkostnaður talinn verða 1,4 miljj-
arðar. Miðað við afkomu fyrirtækj-
anna fæst að mati Ríkisendurskoð-
unar lítið eða ekkert upp í endur-
greiðslur vegna þessara lána.
Fjármálaráðherra sagði ljóst að
kerfi ríkisábyrgða og endurlána hefði
stundum verið misnotað með veitingu
heimilda, þar sem beinar fjárveiting-
ar hefðu verið rökréttar. Gera verði
strangari kröfur um veð og greiðslu-
getu fyrirtækja. Því hafi verið ákveð-
ið að móta nýjar reglur í þessum
málum fyrir marslok á næsta ári.
Sjá einnig miðopnu.
Islenskum
skurðlækni og
fleirum stefnt
vegna dauða
Andy Warhols
BJÖRN Þorbjarnarson, íslenskur
yfirlæknir við New York Hospit-
al, er í hópi lækna og lyúkrunar-
fólks, sem ættingjar listamannsins
heimsfræga Andy Warhols, sem
lést fyrir tæpum 5 árum, hafa nú
stefnt fyrir rétt og saka um að
bera ábyrgð á ótímabærum dauða
Warhols með mistökum sem gerð
hafi verið fyrir og eftir skurðað-
gerð, sem listamaðurinn gekkst
undir á sjúkrahúsinu daginn áður
en hann lést. Mál þetta er nú mik-
ið til umfjöllunar vestra og um
það er meðal annars fjallað í
fréttaskeytum Reuters og í dag-
blaðinu The New York Times.
Björn Þorbjarnarson, skurð-
læknir, sem lengi hefur starfað í
Bandaríkjunum, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi, að
hann ræddi þetta mál ekki við
blaðamenn. Jonathan Weil, tals-
maður sjúkrahússins, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að öllum kröf-
um ættingjanna væri hafnað og
sjúkrahúsið teldi engin mistök hafa
orðið við meðferð Warhols.
Sjá ennfremur miðopnu.