Morgunblaðið - 06.12.1991, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 06.12.1991, Blaðsíða 68
68 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991 „ Fnréíu c*i>saftx.. /)LUr hicifa annan -fótinn* StXyr'i 6*y Ajsvr- " Ast er. 11-6 ... að hafa einhvern til að líta upp til. TMReg. U.S. PatOff. — all rights reserved ® 1991 Los Angeles Times Syndicate Með morgimkaffmu Ég hef verið að hugsa um að gefa þér minkapels og sport- bíl, og svo vilt þú ekki einu sinni lána mér þúsundkall. HOGNI HREKKVISI Þessir bringdu . . , íþróttataska Dökkblá íþróttataska, með íþróttagalla, strigaskóm og ýmsu öðru dóti tapaðist í biðskýli við Fellaskóla snemma morguns föstudaginn 22. nóv. Finnandi hringi í síma 71044. Þakkar fyrir grein Kona hringdi og vildi þakka fyrir grein í Velvakanda um spil- afíkn. Hún sagðist þekkja þetta vandamál af eigin raun og var afar ánægð með greinina. Billy Holiday Soffía hringdi og vildi þakka fyrir umfjöllun Kristins J. Níels- sonar um söngkonuna Billy Holiday sl. föstudag. Hún sagði þetta hafa verið afar fallega umijöllun og hún vildi þakka honum fyrir. Frumvarp um áfengis- og vímuefnavarnir Ásgeir Jónsson hringdi og var ekki sáttur við nýtt frumvarp til laga um áfengis- og aðrar vímu- efnavarnir. Hann sagði að sér hefði brugðið við að lesa frétt um þetta frumvarp í Morg- unblaðinu um helgina. Einkum var hann ósáttur við það ákvæði sem gerði ráð fyrir að ökumenn sem dæmdir hafa verið til að missa ökuleyfi verði gert að fara í viðeigandi meðferð áður en þeir endurheimti ökuleyfi sitt. Ásgeir sagði þetta fyrir neðan allar hellur því það væri grund- vallarregla að menn væru ekki vistaðir án samþykkis á sjúkra- stofnanir. Það væri líka hæpið að áfengismeðferð bæri árangur ef viðkomandi væri neyddur í hana. Einnig taldi hann að nauð- ug meðferð gæti leitt til þess að menn yrðu aridþjóðfélagslega sinnaðir. Svona forræðishyggja væri úrelt sjónarmið sem hefði verið ráðandi í Skandinavíu fyrir 10 árum. Hann vildi því skora á alla ftjálslynda menn á alþingi að hafna svona frumvaipi sem bryti gegn grundvallar mann- réttindalögum. Um starf kaþólsku kirkjunnar Margrét hringdi og vildi koma með athugasemdir vegna bréfs frá þjóðkirkjukonu sem spurði hvað við ættum kaþólsku kirkj- unni að þakka. Margrét vildi byija á því áð spyija þessa konu hvort hún væri búin að gleyma sögunni sem hún hefði lært? Árið 1000 urðu íslendingar ka- þólskir 'og voru það til ársins 1550. Flest ef ekki öll okkar handrit voru skrifuð og varðveitt í íslenskum og kaþólskum klaustrum. Ekki mætti svo gleyma framlagi kaþólskra nunna til heilbrigðismála á ís- landi og það yrði aldrei fullþakk- að. Þjóðkirkjukona hlyti að vita að það voru kaþólskar nunnur sem byggðu Landakotsspítala, St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og St. Fransiscusspítala í Stykk- ishólmi. Vinnuframlag systranna hafi verið gífurlegt og sem dæmi mætti nefna að þegar systurnar gátu ekki lengur rekið Landa- kotsspítala vegna aldurs hafi þurft að ráða 6 manns í stað forstöðukonunnar. Sagði Margr- ét að nunnumar ættu þakklæti og aðdáun allra íslendinga skilda. Hvað viðkæmi því að af- þakka páfaboðið ætlaði hún að- eins að segja þetta: Sumir kunna sig betur en aðrir. Giftingarhringur Giftingarhringur tapaðist fyrir um tveimur vikum og er hann merktur að innan með nafni. Ef einhver veit um hringinn er hann vinsamlegast beðinn að hringja í síma 50153. Silfurhálsmen Silfurhálsmen, mjög sérkenni- legur ættargripur, tapaðist föstudagsköldið 29. nóv. Annað- hvort í Breiðholtinu, Vesturbæn- um eða í leigubíl þar á milli. Ef einhver hefur fundið menið er hann vinsamlegast beðinn að hringja í síma 14547 eða 26676. Skartgripakassi Lítill skartgripakassi með grá- leitu mynstri tapaðist fyrir um tíu dögum. í honum eru hringar og handlaga hálsmen. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 614505. Óánægð með grein María Jónsdóttir hringdi og var afar óánægð með greinina „Barna- og örorkubætur” eftir eldri borgara. Hún sagðist vera 75% öryrki og sagði greinina vera árás á lífeyrisþega, yfirtrygging- alækni sem og heilbrigðisráð- herra. Hún sagði það afar smekk- laust að væna þessa menn um að gera ekki neitt. Hún sagðist gjarnan vilja hafa jafn góða heilsu og sá sem skrifaði og vera laus við örorkubæturnar og það gæti ekki verið að hann gerði sér grein fyrir því hvað væri að vera ör- yrki. Það væri óforskammað hjá honum að segja að fólk drykki fyrir örorkubætur sínar þegar flestum væri þessi peningur nauð- synlegur til þess að lifa af. María taldi líka ósmekklegt að skrifa svona bréf án nafns. Páfagaukurinn floginn Blár, lítill páfagaukur flaug út um glugga í Birkihlíð 30. 30. nóv. sl. Hann sást fljúga yfir á Bústaðaveg. Þeir sem hafa séð til hans vinsamlegast hringi í síma 689844. Rúskinnshanski Brúnn rúskinnshanski tapað- ist í Hafnarstræti 30. nóv. Finnandi vinsamlega láti vita í síma 41712. Týndi hring Karlmannsgullhringur með tópassteini (gulbrúnn) tapaðist síðdegis föstudaginn 29. nóv. Finnandi vinsamlegast hafi sam- band í síma 75168 eftir kl 18. Karlmannsúr Svart karlmannsúr fannst í Breiðholti. Nánari upplýsingar fást í síma 74076. Eyrnalokkur Eyrnalokkur tapaðist í Súlna- sal 30. nóv. Hann er gylltur og á honum hanga 10 mismunandi perlur. Finnandi hafi samband við Berglindi í síma 671513. Röng kápa á aðventukvöldi Kona hringdi og vildi lýsa eft- ir konunni sem var á aðventu- kvöldi í Bústaðakirkju á sunnu- daginn og tók með sér mosa- grænu ullarsparikápuna hennar en skildi sína eftir. Þessi kona sem tók kápuna í misgripum er vinsamlegast beðin að hafa sam- band við kirkjuvörð Bústaða- kirkju í síma 37801. Víkverji skrifar Ekki hugnast Víkveija þær áð- gerðir sem Dagsbrún hefur boðað nú í jólamánuðinum til að „knýja á um svör við kröfum í sér- kjaraviðræðum” eins og það er orð- að. Þessar aðgerðir koma illa við almenning rétt fyrir jólin, sérstak- lega verkfallið hjá flugfélögunum og Mjólkurstöðinni í Reykjavík. Allir hljóta að viðurkenna að út- litið hefur sjaldan verið svartara í efnahagsmálunum og nú. Höfuð- verkefni verkalýðshreyfingarinnar hlýtur að vera að vernda kaupmátt lægstu launa. Verkfallsaðgerðir eins og þær sem nú hafa verið boð- aðar gera aðeins illt verra. xxx Eflaust hefur fleirum en Vík- veija þótt það undarleg ráð- stöfun hjá Stöð 2 að vera með lang- an þátt um 15 ára afmæli hljóm- plötuútgáfu að kvöldi sjálfs fullveld- isdagsins. Hingað til hafa 15 ára afmæli ekki þótt svo merkileg að ástæða væri til að gera um þau sérstaka sjónvarpsþætti. Og ekki finnst Víkveija líklegt að Stöð 2 muni framvegis gera 15 ára afmæl- um fyrirtækja svona góð skil. Nærtækasta skýringin er auðvit- að sú að einn aðaleigandi Stöðvar 2 er forstjóri umræddrar hljóm- plötuútgáfu, Skífunnar. Aðal sölu- tíminn er framundan og því kemur það sér vel að gera langan þátt um afmælið. Safnað var saman prúð- búnu fólki sem hlustaði á jólalögin frá hljómplötuútgáfunni af plötum og fylgdust með tónlistarmönnum hreyfa varirnar í takt við lögin. Sá eini sem braust út úr þessu formi var Bubbi Mortens, sem söng við eigin gítarleik. Þar með upplýsti Bubbi að aðrir væru bara að syngja í plati. Að mati Víkveija er það rangt af stórri sjónvarpsstöð að gera upp á milli plötuútgefenda með þessum hætti. Sjálfsagt er að kynna þá tónlist sem kemur út fyrir jólin en þá verða allir að sitja við sama borð. x x x Ekki hefur mikið farið fyrir bók- akynningum á Stöð 2 fyrir jólin. Er það einkennilegt þegar haft er í huga hve bókin er rótgróin í menningu okkar. Hins vegar eru nokkrar bækur kynntar í nýútkomnum Sjónvarps- vísi, sem Fróði hf. gefur út fyrir Stöð 2. Og þar er sama sagan og með plöturnar, bækurnar sem kynntar eiu koma allar frá Fróða! Það skal tekið fram að þessar bæk- ur eiga allar skilið að verða kynntar en þar er hins vegar rangt að gera svona upp á milli bókaforlaga. xxx Islendingar eru fljótir að taka upp siði eriendra þjóða. Nú þykir ómissandi að fara á veitingahús og borða krásir af jólahlaðborði. Þessir siður hefur breiðst út hér á landi á örfáum árum en veitingamaður einn tjáði Víkveija að líklega myndu 20 þúsund íslendingar fara í jólahlað- borð fyrir þessi jól! Víkveija fékk tækifæri til þess í vikunni að smakka rétti af jólahlaðborði Naustsins og eftir þá þeimsókn skilur hann vel vinsældir jólahlað- borðanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.