Morgunblaðið - 06.12.1991, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991
51
I
I
I
Fellamannabók
er komin út
^ Fellabæ.
ÚT ER komin Fellamannabók
sem fjallar um ýmsa þætti úr
sög-u Fellahrepps á Fljótsdals-
héraði ásamt ábúendatali
hreppsins frá því um 1700 og
fram til 1990. Um 300 myndir
eru í bókinni þar af 14 litmynd-
ir. Alls birtast myndir af um 400
Fellamönnum allt frá síðustu
aldamótum og fram á okkar
daga. Bókin, sem er 356 síður,
er prentuð í Prentverki Austur-
lands en Fellhreppur gaf út.
Ritstjóri bókarinnar er Helgi
Hallgrímsson náttúrufræðing-
ur. Formála ritaði Þráinn Jóns-
son oddviti.
Viðamesti hluti Fellamannabók-
ar er ábúendatal Fellahrepps frá
1700 til 1990 sem Gísli Helgason
í Skógargerði hóf að rita fyrir
nokkrum áratugum en sonur hans
Helgi á Helgafelli lauk við.
Einnig er í bókinni ítarleg saga
gangna og rétta í sveitinni eftir
Brynjólf Bergsteinsson á Hafra-
felli. Sigfús Oddsson á Staffelli
skrifar um grenjaleitir í Fellum
og Skógum. Guðmundur Þor-
steinsson skólastjóri á Fáskrúðs-
firði ritar sögu skólahalds í
hreppnum og Sigurður Ó. Pálsson
skjalavörður á Egilsstöðum sögu
málfundarfélagsins. í bókinni er
Síðustu sýn-
ingar í Borg-
arleikhús-
inu fyrir jól
SÍÐUSTU sýningar á Þéttingu,
sem sýnt er í Borgarleikhúsinu,
verða nú um helgina föstu-
dags-, Iaugardags- og sunnu-
dagskvöld. Einnig eru síðustu
sýningar fyrir jól á leikriti
Björns Th. Björnssonar, Ljón í
síðbuxum, í kvöld, föstudags-
kvöld, og á morgun, laugar-
dagskvöld.
Nú um helgina er síðasta sýning
fyrir jól á Ævintýri, en frá því að
það var frumsýnt 10. nóvember
síðastliðinn, hafa um 5000 börn
séð sýningar á þessu barnaleikriti.
Um þessar mundir standa yfir
æfingar á gleðileiknum Rugl í rím-
inu eftir Johann Nestroy. Það er
Guðmundur Ólafsson, sem leik-
stýrir. í fréttatilkynnigu frá Leik-
félagi Reykjavíkur segir að fyrir-
hugað sé að frumsýna verkið í
byijun janúar. Með helstu hlutverk
fara Þorsteinn Gunnarsson, Krist-
ján Franklín Magnús, Ellert Ing-
imundarson, Eggert Þorleifsson,
Sigrún Edda Bjömsdóttir, Edda
Björgvinsdóttir, Kjartan
Bjargmundsson og Margrét Helga
Jóhannsdóttir. Steindór Sigurðs-
son gerir leikmynd en búningar
eru í höndum Sigrúnar Úlfarsdótt-
ur.
Helgi Gíslason á Helgafelli.
birt ritgerð Jóns Jónssonar um
fornminjar í Freysnesi og aldamót-
aræða Runólfs á Hafrafelli. Auk
þess eru í bókinni 10 stuttir endur-
minningarþættir gamalla Fella-
manna.
Fellamannabók er tileinkuð
Helga Gíslasyni á Helgafelli sem
er aðalhöfundur hennar og frum-
kvöðull en hann varð áttræður 22.
ágúst 1990. Má segja að bókin sé
síðbúin afmælisgjöf Fellahrepps til
hans fyrir mikla og dygga þjón-
ustu sem kennari og oddviti í ára-
tugi.
Eins og sjá má er Fellamanna-
bók að langmestu leyti heimaunn-
in og samin af heimamönnum.
Bókin er 356 síður prentuð á vand-
aðan myndapappír hjá Prentverki
Austurlands í Fellabæ. Kápuum-
slag prýðir mynd af feijustaðnum
á Ekkjufelli teiknuð um 1836 af
M. A. Mayer frönskum listamanni
fyrir ferðabók Paul Gaimards.
Mun þetta vera elsta mynd sem
til er úr Fellum.
Fyrirhugað er að gefa út annað
bindi Fellamannabókar eftir fáein
ár og er undirbúningur þegar haf-
inn. Þar verður ýmislegt efni um
mannlíf og náttúru sveitarinnar
og nafnaskrá fyrir bæði bindin.
- Björn.
GleOileg jól
i— iiw i mmi ip iTim i i
9'
Gleöileg jól
■Komdu viuum og vanda--
monnum skemxntilega
á óvart með jólakorti sem
skartar þinni eigin ljósmynd
og sparaðu dágóða
upphæð í leiðinni.
Öll okkar jólakort eru
til styrktar
líknarstarfsemi.
15% afsláttur
til 30. nóvember.
Verð aðeins kr. 79.
(kr. 67 með afslætti).
9o
HfiNS PETERSEN HF
Bankastræti 4 • Glæsibæ • Austurveri • Lynghálsi • Kringlunni
Laugavegi 178 • Hólagarði
KRINGLUSPORT
- stórkostleg íþróttaverslun á 1200 ni
KRINGLU
Borgarkringlan, sími 67 99 55
Glerlist-
sýning í
Kringlunni
MARGO J. Renner mun í dag
og á morgun sýna glerlistmuni
í Hagkaupi í Kringlunni og er
sýningin opin í dag á milli
klukkan 14 og 19 og á morgun,
laugardag frá klukkan 14 til 18.
A sýningunni gefst viðvskipta-
vinum Hagkaups kostur á að sjá
Margo J. Renner móta glermuni,
sem jafnframt verða til sölu.
Kuldafatnaður í úrvali í Kringlusporti
Dúnúipur frá kr. 6.900,-