Morgunblaðið - 06.12.1991, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991
29
Hverjum á að segja upp?
eftir Ögmund
Jónasson
I helgarblaði Morgunblaðsins er
viðtal við fjármálaráðherra, Friðrik
Sophusson, þar sem hann segir að
nú þurfi hugsanlega að segja upp
starfsmönnum ríkisins. Ekki kemur
fram í ummælum fjármálaráðherra
að ríkisstarfsmönnum hefur verið
sagt upp að undanförnu og má í því
sambandi nefna Verðlagseftirlit rík-
isins, sem vægast sagt er undarleg
ráðstöfun í ljósi þeirrar áherslu sem
allt þjóðfélagið hefur á undanförnum
misserum lagt á það að efla aðhald
neytenda gagnvart verðlagi. Grund-
vallarforsenda þess er öflug upplýs-
ingamiðlun um verðlag.
Af ummælum fjármálaráðherra
má hins vegar ráða að stærri áform
séu uppi varðandi uppsagnir. Orðrétt
segir hann: „Auðveldast væri að
fækka með því að ráða ekki í þær
stöður sem losna heldur færa til inn-
an kerfisins. Ef það dugar ekki til,
verðum við eins og aðrir að segja
upp fólki.”
Hvað á fjármálaráðherrann við? Á
að segja upp þeim sem sinna sjúku
fólki á sjúkrahúsum en þar skortir
nú tilfmnanlega fólk; eða að á að
segja upp kennurum og fjölga í
bekkjardeildum? Á að segja upp lög-
reglumönnum sem þegar búa við
langan vinnudag? Á að segja fólki
upp sem sinnir fötluðum? Á að fækka
á Skattstofunni líkt og þegar hefur
verið gert hjá Verðlagseftirlitinu?
Hvar á að bera niður?
Staðreyndin er sú að víðast hvar
eru opinberar stofnanir ekki ofmann-
aðar. Og þegar hlutur opinbera geir-
ans er skoðaður í samanburði við það
sem gerist í sambærilegum samfé-
lögum er hann hlutfallslega miklu
minni hér á landi en annars staðar,
bæði hvað varðar útgjöld og fjölda
starfsmanna. Opinber útgjöld á ís-
landi eru um þriðjungur af vergri
Ögmundur Jónasson
„Opinber útgjöld á ís-
landi eru um þriðjung-
ur af vergri þjóðar-
framleiðslu og er það
svipað hlutfall og hjá
Bandaríkjamönnum,
Japönum og Svisslend-
ingum.”
þjóðarframleiðslu og er það svipað
hlutfall og hjá Bandaríkjamönnum,
Japönum og Svisslendingum. í Finn-
landi er þetta hlutfall 40%, 50% í
Noregi, hátt í 60% í Danmörku og
65% í Svíþjóð. Og hvað varðar íjölda
opinberra starfsmanna þá er hlutfall-
ið lágt hér á landi. Með tilliti til árs-
verka er ísland með miklu minna
hlutfall af vinnuafli í opinbera geir-
anum en raun er á annars staðar á
Norðurlöndum eða með 17% á móti
rúmum 30% í Danmörku og Svíþjóð
og rúmurn 20% í Noregi og Finn-
landi. Það er umhugsunarvert í þessu
samhengi að starfsfólk í velferðar-
þjónustunni, til dæmis í umönnunar-
störfum, er hlutfallslega færra hér á
landi en annars staðar á Norðurlönd-
um, enda þótt þörfin fyrir velferðar-
þjónustu sé ekki síðri en þar. Þannig
er minna framboð hér á dagvistun
og leikskólaplássum þótt atvinnu-
þátttaka foreldra utan heimilis sé
svipuð. Hér þurfa menn að leita
kostnaðarsamra einkalausna í þess-
um efnum og það þótt kaupmáttur
launa sé mun minni í ofanálag.
Þá er á það að líta að á undanförn-
um misserum og árum hefur farið
fram mikil og stöðug hagræðing og
endurskipulagning í opinberum
stofnunum, ekki síðri og sums staðar
miklu meiri en í einkageiranum.
Fjöldauppsagnir á starfsfólki í opin-
berum stofnunum jafngilda því
niðurskurði á þjónustu.
Fjármálaráðhera verður að vera
skýrari í tali þegar hann talar um
uppsagnir. Hvað ætlar hann að skera
niður í velferðarkerfinu eða almennri
þjónustu opinberra stofnana við
borgarana? Eða er þetta aðeins fram-
hald á áður boðaðri stefnu að selja
þau ríkisfyrirtæki sem skila arði í
ríkissjóð. Það fer ekki framhjá nein-
um af hve miklum hita og sannfær-
ingu þessi stefna er boðuð nú um
stundir. Enda veitir ekki af trúar-
legri sannfæringu ef á að takast að
sannfæra okkur um að það séu bú-
hyggindi að selja mjólkurkýrnar.
Samtök opinberra starfsmanna
hafa oftsinnis hvatt til ráðdeildar-
semi í opinberum rekstri og reynt
að stuðla að henni af fremsta megni.
Engu að síður er réttmætt að spyija
hvort sömu lögmál eigi að gilda um
vídeóleigu og dagheimili þegar rekst-
ur gengur erfiðlega, eins og skilja
má á fjármálaráðherra þegar hann
segir að opinberir aðilar verði að
segja upp fólki „eins og aðrir”.
Höfundur er formaður BSRB.
í Langholtskirkju
laugardaginn, 7. desember, kl. 17.00
Einsöngvarar: Sólrún Bragadóttir
Elsa Waage
Guðbjörn Guðbjörnsson
Viðar Gunnarsson
ásamt
Kór Langholtskirkju
Kórstjóri: Jón Stefánsson
Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari
Flutt veröa
Sinfóníanr. 41 (Júplter) og
SÁLUMESSA
eftir Wolfgang Amadeus Mozart
í tilefni af 200 ára ártíö tónskáldsins
Sinfóníuhljómsveit íslands
Háskólabíói v/Hagatorg. Sími 622255
LIF OG SflGfi- LIFHNDIBEHUR
Laddi
Þráinn Bertelsson og Þórhallur Sigur&sson hafa
nú sameinab krafta sína og árangurinn er þessi
litríka bók, sem á eftir að koma mörgum til aö
hlæja. En þetta er líka bók sem á eftir ab koma
mörgum á óvart. Eba eins og Saxi læknir
kemst ab orbi í bókinni, þegar hann er spurbur
um álit sitt á Þórhalli ungum. "Hann var sko
ekki eblilegur. Ég sá þab eins og skot..." Þráinn
skrifar um Ladda meb þúsund andlitin á
einlægan og opinskán hátt.
Verb kr. 2.890.-
TRILLUKARLAR
eftir Hjört Císlason
" Ræ meban hlandib í mér er volgt" segir
Nínon úr Vestmannaeyjum.Trillukarlar eru
merkilegir menn. í þessari bók er leitast vib
ab kynna lesendum trilluútgerb og trillukarla
eins og þeir koma til dyranna, en frá örófi
alda hafa menn róib til fiskjar á smáum
bátum. I þessari bók segja 9 trillukarlar frá lífi
sínu og starfi.Fróbleg bók og skemmtileg
af skemmtilegum atvikum og litríkum
mönnum.
Verb kr. 2.790.-
Aö Lifa er List
eftir Pétur Guðjónsson
Hér er ab finna afgerandi gagnrýni á ríkjandi
hentistefnu - hugmyndafræbinnar, "hafðu -ða
- gott" draumnum, og alla þá "sérfræðinga"
sem til þessa hafa sagt okkur hvernig lifa beri
lífinu: Sálfræðingana, trúarbrögbin, nýaldar-
úrlausnirnar.Bókin kemur nú út í kjarnmikilli
þýbingu Eyvinds Erlendssonar. Hún verður
gefin út nær samtímis á 12 tungumálum.
Verb kr. 2.690.-
tf1"
LIF OG SAGA
Suburlandsbraut 20 sími: 91 -689938