Morgunblaðið - 06.12.1991, Síða 33
33
MÓRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESÉMBÉR 1991
Þjóðminjasafnið;
„Sönglíf
í heima-
húsum”
JÓLASÝNING Þjóðminjasafns-
ins verður opnuð í dag, föstudag-
inn 6. desember, kl. 16.15, en
sýningin að þessu sinni nefnist
„Sönglíf í heimahúsum”. Sýning-
in verður opnuð að viðstöddum
menntamálaráðherra, sem
tendrar ljós á jólatré safnsins.
Barnakór Kársness syngur undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur,
og Garðar Jakobsson leikur á
fiðlu, en hann er síðasti fulltrúi
hinnar alþýðlegu fiðlumenningar
í Þingeyjarsýslum, sem hófst um
miðja 19. öld.
Af þessu tilefni hafa verið tekin
fram hljóðfæri, sem flest hafa verið
í geymslum, og þar á meðal er ís-
lensk fiðla frá því um 1800, lang-
spil Katrínu Þorvaldsdóttur Síverts-
en úr Hrappsey, tvær hljóðpípur
Sveinbjarnar Egilssonar rektors,
íslensk stofuorgel.
Sýningin „Sönglíf í heimahúsum”
er liður í jóladagskrá Þjóðminja-
safnsins, sem nú er komin hefð á.
Að þessu sinni er búist við heim-
sóknum íslensku jólasveinanna, og
kemur Stekkjarstaur fyrstur 12.
desember ki. 11, en síðan koma
þeir koll af kolli og rekur Kertasník-
ir lestina á aðfangadag jóla.
Mjöll Snæsdóttir fornleifafræð-
ingur og Elsa E. Guðjónsson
textílfræðingur við þrjá sítara,
sem varðveittir eru í Þjóðminja-
safninu og verða á jólasýningu
safnsins.
David Gower og Þórunn Nash eftir að þau opinberuðu trúlofun
sína.
Bretland:
Islensk kona og fyrir-
liði krikketlandsliðsins
Trúlofun David Gower, fyrrum fyrirliða breska krikket-
landsliðsins, og hinnar hálfíslensku Þórunnar Nash var slegið
upp í breskum dagblöðum um helgina. David er víðfrægur í
Bretlandi og átti um árabil fast sæti í landsliðinu.
Þórunn er dóttir Ernu Nash
Sigurðardóttur og Leslie Nash
sem látinn er fyrir 6 árum en
var atvinnuhermaður. Erna
sagði í samtali við Morgunblaðið
að þau Leslie hefðu kynnst á
Ítalíu en sest að í Bretlandi fyr-
ir um það bil 38 árum. Þar eru
börnin þeirra þijú fædd og upp-
alin. Hún sagði að Þórunn hefði
lært að tala íslensku þegar hún
hefði dvalist hér í 6 mánuði á
fjórða ári en eftir að hún kom
aftur til Bretlands hefði hún týnt
íslenskunni niður. Mæðgurnar
voru hér meðan eiginmaður Ernu
sinnti skyldustörfum sínum í
Afríku. Foreldrar Ernu eru nú
látnir en systir hennar, Þórunn
Sigurðardóttir, ekkja Einars
Ágústssonar, ráðherra, býr á
íslandi.
Erna sagði að Þórunn hefði
ekki haft sérstakan áhuga á
krikkett áður en hún kynntist
David Gower fyrir 2 árum. Hún
hefði hins vegar alltaf verið góð
í íþróttum, leikið tennis og tekið
þátt í maraþonhlaupi. Þórunn
var aðstoðarmaður tannlæknis
en hefur látið af störfum. Parið
auglýsti trúlofunina með smá-
auglýsingu í Daily Telegraph.
Reiknað er með að brúðkaup
þein-a verði í sumarbyijun.
Bréf til ritstjóra Morgunblaðs-
ins frá Sigurði Helgasyni
5. desember 1991
Ritstjórar Morgunblaðsins,
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson,
Aðalstræti 6,
101 Reykjavík.
Góðu vinir.
Ég leyfi mér hér með að óska
eftir því að eftirfarandi bréf verði
birt í Morgunblaðinu:
„Ég taldi mig vita talsvert um
hin víðtæku völd og áhrif Eim-
skipafélags íslands en gerði mér
ekki grein fyrir að þau næðu inn
á síður Morgunblaðsins fyrr en
ég las ritdóm um bók mína í blað-
inu 5. des. eftir Björn Bjarnason.
Vitað er að Björn er nátengdur
hagsmunum Eimskipafélags ís-
lands vegna aðildar þess félags
að Almenna bókafélaginu. Þá er
og vitað um björgunaraðgerðir
þær sem fram fóru í tíð Björns
Bjarnasonar sem stjórnarfor-
manns Almenna bókafélagsins,
en aðalbjargvætturinn þar var
Eimskipafélag íslands. Því er
fleygt að Birni hafi þar verið
bjargað frá persónulegum ábyrgð-
um sem hann hafði tekist á hend-
ur fyrir Almenna.
Þar sem einn kafli bókar
minnar fjallaði um hin víðtæku
og vaxandi völd Eimskipafélags-
ins í þjóðfélaginu hentaði því vel
að fá ritdómara sem hliðhollur
væri félaginu til að fjalla um bók-
ina. Markmiðið var að ritdómurinn
skyldi vera á þá leið að útbreiðsla
bókarinnar yrði sem minnst. At-
hyglisvert er að Björn hefur ekki
fjallað um aðrar bækur á síðum
Morgunblaðsins nýverið. Kaup-
endur og lesendur eiga hér síð-
asta orðið.”
Með fyrirfram þakklæti fyrir
birtinguna.
Ykkar einlægur,
Sigurður Helgason.
Svar ritstj.
Ritstjórar Morgunblaðins hafa
ekki afskipti af gagnrýnendum
blaðsins né því efni sem þeir láta
frá sér fara, nema um sé að ræða
aðdróttanir sem gætu talist meið-
yrði. Þeir velja gagnrýnendur og
treysta þeim fyrir viðkvæmu en
mikilvægu starfi, en stjórna ekki
skrifum þeirra. Eins og áður hefur
verið skýrt frá hér í blaðinu hefur
Jóhann Hjálmarsson skáld yfir-
umsjón með bókadómum og hann
skiptir bókum á milli gagnrýnenda
og þá oftast í samráði við þá.
Ilafi gagnrýnandi einhverra hags-
muna að gæta eða hafi átt í úti-
stöðum við þá sem um er fjallað
eða ráðist að þeim áður, er þeirri
stefnu jafnan fylgt að aðrir gagn-
rýni viðkomandi verk. Hefur þessa
verið gætt eins og unnt hefur
verið.
Björn Bjarnason gagnrýndi
margar bækur meðan hann var
aðstoðarritstjóri hér við blaðið og
hefur haldið þeim starfa áfram
eftir að hann hvarf frá blaðinu
og tók sæti á Alþingi. Ilann hefur
því skrifað dóma um fjölda bóka
hér í blaðið og mun gera.
Loks má geta þess að skoðanir
gagnrýnenda eða afstaða þeirra í
ýmsum málum þarf engan veginn
að koma heim og saman við stefnu
Morgunblaðsins. Hún birtist í rit-
stjórnargreinum blaðsins.
Góður loðnuafli
norður af Sléttu
Síldarbátar með ágæt köst á Mýrarbugt
ÁGÆT loðnuveiði var í fyrrinótt á miðunum norður af Melrakka-
sléttu og í gærdag voru nokkrir loðnubátar á leið í land með full-
fermi. Síldveiðin er einnig að glæðast og hafa síldarbátar fengið
ágæt, köst á Mýrarbugt og út af Stokksnesi undanfarna tvo sólar-
hringa. „Þetta er eitthvað að glæðast hjá okkur og hljóðið orðið
áberandi bjartara í mönnum hér á miðunum,” segir Bárður Þorsteins-
son um borð í síldarbátnum Geirfuglinum er þeir héldu aftur á miðin
í gær eftir að hafa landað 130 tonnum af síld í Vestmannaeyjum.
Alls voru 14 bátar á loðnumiðunum
í fyrrinótt og nokkrir þeirra náðu
að fylla sig. Albert Sævarsson skip-
veiji um borð í Albert GK segir að
mokafli hefði verið á skömmum
tíma og loðnán falleg. Er Morgun-
blaðið ræddi við Albert var báturinn
á leið til Seyðisfjarðar með tæplega
700 tonn af loðnu.
Hermann Ragnarsson skipstjóri
á Helgu II segir að aflabrögðin hjá
þeim hafi verið með ágætum og
náðu þeir 1.000 tonna afla, eða
fullfermi, þessa nótt. „Menn eru hér
almennt bjartsýnir á að veiðin sé
loksins komin í gang,” segir Her-
mann. „Og loðnan sem við fengum
var bæði feit og falleg.”
Alls eru um 16 síldarbátar á veið-
um. Einar Guðmundsson skipstjóri
um borð í síldarbátnum Keflvíkingi
sem staddur var suður af Stokks-
nesi í gærdag segir að ágæt síld-
veiði hafi verið á þeim slóðum und-
anfarna tvo sólarhringa. „Við vor-
um búnir að ná tæplega 50 tonnum
af síld í nótt þegar við rifum illilega
úr nótinni,” segir hann. „Þetta er
ágæt síld, stór og falleg og bátar
hér í kring hafa margir mokveitt.
En þetta er búið að vera mjög
dræmt lengi. Ég get nefnt sem
dæmi að 23. nóvember í fyrra vor-
um við búnir að veiða upp í kvóta
okkar en nú eigum við eftir að ná
600 tonnum í viðbót.”
Dagskrá í
Listasafni
UM HELGINA verður flutt í List-
asafni íslands dagskrá með ljóða-
þýðingum Árna Ibsen og Sverris
Hólmarssonar á verkum Ezra
Pound, William Carlos Williams
og T.S. Elliot.
Dagskráin ber heitið Á rauðum
hjólbörum um eyðilandið og er unn-
in í samvinnu Listasafns íslands,
Menningarstofnunar Bandaríkj-
anna og Rokkskóga. Hún verður
flutt á sunnudag klukkan 15.30.
Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir við nokkur verkanna sem verða á
sýningunni í Stöðlakoti.
Stöðlakot:
Hrafnhildur Gunnlaiigs-
dóttir sýnir silkiverk
HRAFNHILDUR Gunnlaugs- fædd 1. febrúar 1952. Hún stund-
dóttir opnar sýningu á silkiverk- aði nám við Myndlista- og handíða-
um í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg skóla íslands 1975-77 og 1979-81,
á morgun, laugardaginn 7. des- og er þetta fyrsta einkasýning
ember, kl. 15. Á sýningunni hennar. Sýningin stendur til 21.
verða 12 silkiinyndir og 16 desember næstkomandi, og verður
stærri silkimyndverk. hún opin frá kl. 14-18 daglega
Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir er nema laugardaga frá kl. 12-22.
Steingrímur Magnús-
son fisksali látinn
Steingrímur Magnússon, fyrr-
verandi forstjóri Fiskhallarinn-
ar í Reykjavík, lést á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli 4. desember.
Hann var á 97. aldursári.
Steingrímur fæddist 2. apríl
1895 í Gullberastaðaseli í Lundar-
reykjadal. Foreldrar hans voru
Magnús Magnússon, bóndi á
Krossi í sömu sveit, síðar verka-
maður í Reykjavík, og kona hans
Guðlaug Steingrímsdóttir. Stein-
grímur stundaði verslun með fisk
fá árinu 1914 til ársins 1970.
Hann var forstjóri Fiskhallarinnar
í Reykjavík 1938-70, og rak fjölda
fiskverslana í borginni.
F'yrri eiginkona Steingríms var
Kristjana Einarsdóttir, sem lést
árið 1938. Seinni eiginkona hans
var Sigríður V. Einarsdóttir, og
lifir hún mann sinn. Með fyrri eig-
inkonu sinni eignaðist Steingrímur
átta börn, en eitt með þeirri seinni,
og eru þau öll á lífi.