Morgunblaðið - 06.12.1991, Síða 34

Morgunblaðið - 06.12.1991, Síða 34
S8, 34 teei ítaaMagaa .ð atpAauTaöa GiaAjaviushom MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991 Tillögur um fiskveiðikvóta EB: Framkvæmdastj óm- in boðar frekari nið- urskurð á næsta ári Kvóti í helstu fisktegundum hefur ver- ið minnkaður um 75% á fimm árum Bru'ssel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins birti í gær tillögur sínar um hámarksafla á helstu fisktegundum innan EB á næsta ári. Ljóst er að enn verður að draga úr sókn í fiskistofna banda- lagsins en veiðiheimildir á helstu nytjategundum hafa dregist saman um allt að 75% á síðustu fimm árum. Inn í tillögur framkvæmda- stjórnarinnar vantar aflamörk á svæðum sem falla undir sam- skiptasamning JNoregs og banda- lagsins en innan þeirra eru margir af mikilvægustu aflakvótum EB- flotans. Erfitt er að leggja mat á niðurstöður tillagnanna fyrr en samningar EB við Norðmenn eru í höfn en þeir hafa gengið mjög erfíðlega. Tillögurnar gera ráð fyrir 31 þúsund tonna aflamarki á þorski við Grænland sem er þijú þúsund tónnum minna en veiðiheimildir EB flotans á yfirstandandi ári. um til bandalagsins. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins leggur framkvæmdastjórnin til að heimil- aður verði innflutningur á rúmlega 50 þúsund tonnum af saltfíski á 7% tolli og tvö þúsund tonnum af söltuðum flokum á 10-11% tolli. I frétt frá .Reufers-fréttastof- unni segir að framkvæmdastjórnin vilji einnig að á fundi sjávarút- vegsráðherranna verði ákveðið 200 daga veiðibann á þorski og ýsu í Norðursjó til að minnka ásókn í þá stofna en þeir eru sagð- ir vera í mjög slæmu ástandi. Terry Anderson ásamt Sulome, dóttur sinni, sem hann var að sjá í fyrsta sinn, og systur sinni, Peggy Say. Norður-Irland: 17 særast í sprengjutil- ræði í Belfast Belfast. Reuter. SAUTJÁN manns særðust þeg- ar sprengja sprakk í Belfast á miðvikudagskvöld og er talið að írski lýðveldisherinn (IRA) hafi staðið fyrir tilræðinu. Sprengjan var falin í bifreið fyrir utan Europa-hótelið og sprakk um 25 mínútum eftir að hringt hafði verið í útvarpsstöðvar til að vara við tilræðinu. Verið var að koma fólki í burtu af svæðinu þegar sprengjan sprakk. Átta lög- reglumenn, tveir hermenn og sjö óbreyttir borgarar særðust. Hola kom á götuna og gat á hótelið þegar sprengjan sprakk en í henni voru hundruð kílóa af sprengiefni. Talsverðar skemmdir urðu á öðrum byggingum á stóru svæði. IRA hefur að undanförnu hert baráttuna gegn yfirráðum Breta yfir Norður-írlandi og komið fyrir sprengjum í verslunum í miðborg Lundúna. Hámarksafli EB á karfa á Bandaríski blaðamaðurinn Terry Anderson: Grænlandsmiðum er óbreyttur frá þessu ári eða 53.320 tonn. Afla- mark EB á grálúðu við Grænland verður 5.600 tonn, heimilt verður að veiða 200 tonn af lúðu og 30 þúsund tonn af loðnu verði tillög- urnar samþykktar. Sjávarútvegsráðherrar EB munu ræða tillögurnar á fundi 17. og 18. desember í Brussel. Annars vegar fjalla ráðherrarnir um heild- araflamagn einstakra tegunda og hins vegar úthlutun kvóta til aðild- arríkjanna. Á sama fundi verða afgreiddar tillögur um innflutn- ingsheimildir á m.a. saltfíski og söltuðum flökum á lækkuðum toll- „Stórkostlegt að vera frjáls þetta var svo langiu- tíini” Var lengst af hlekkjaður í gíslingunni en stytti sér stundir við að leika á flöskur og leggja kapal Wiesbaden, Frankfurt, Sameinudu þjóðunum. Reuter. „ÉG á ekki orð til að lýsa tilfinningum mínum. Það er stórkostlegt að vera frjáls, þetta var svo langur tími,” sagði bandaríski blaðamað- urinn Terry Anderson þegar hann kom til Wiesbaden í Þýskalandi í gær, laus úr meira en sex ára gíslingu hjá mannræningjum í Líban- on. Voru nokkur hundruð manns saman komin til að fagna honum og þá vantaði ekki systur hans, Peggy Say, en í allan þennan tíma unni hún sér aldrei hvíldar við að fá bróður sinn lausan. ERLENT Peggy hljóp á móti bróður sínum þegar hann kom út úr flugvélinni og þau systkinin föðmuðust lengi og innilega. Var Peggy grátandi þegar þau slitu loks faðmlaginu. Á bandaríska herflugvellinum í Wi- esbaden var einnig Sulome, sex ára gömul dóttir Andersons, og móðir hennar, Madelaine, en Sulome fæddist þremur mánuðum eftir að Anderson var rænt. Skömmu eftir komuna birtist Anderson aftur á svölum hersjúkra- hússins og þá ásamt tveimur lönd- um sínum og fynverandi gíslum, þeim Joseph Cicippio og Alann Ste- en. Skiptist Anderson á nokkrum orðum við fréttamennina fyrir neð- an og sagði, að það væri stórkost- legt að eiga svona systur eins og Maxwell dró sér 54 millj- arða í eigu lífeyrissjóða Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph. BRESKI fjöhniðlajöfurinn Robert Maxwell dró sér 526 milljónir punda (54 milljarða ISK) af eignum lífeyrissjóða starfsmanna sinna og af reikningum fyrirtækja undir hans stjórn síðustu vikurnar sem hann lifði, að sögn Daily Mirror, eins af dagblöðunum sem voru í eigu hans. Blaðið sagði að ritsjóri þess hefði tjáð starfsmönnunum að nú væri því sem næst öruggt að nýir eigendur tækju við rekstri blaðsins. Maxwell fannst látinn 5. nóv- ember undan strönd Kanaríeyja, þar sem hann hafði verið á lysti- snekkju sinni. Eftir dauða hans kom í ljós að fyrirtæki hans, þar á meðal Mirror-dagbiaðahópurinn og Maxwell Communication Gorporation, skulda 2,5 milljarða punda (260 milljarða ÍSK). Daily Mirror sagði að aðeins væru 100 milljónir punda (10,4 milljarðar ISK) eftir af lífeyris- sjóðum þessara fyrirtækja og markaðsrannsóknafyrirtækisins AGB. Áætlað er að sjóðirnir hafi átt 530 milljónir punda í maí. Talið er að Maxwell hafi einnig dregið sér fé fyrirtækja, sem selja hlutabréf á almennum markaði, til að greiða eigin skuldir. Talið er fuilvíst að fjölskylda Maxwells tapi öllum fyrirtækjum hans. Bankastjórar 30 banka koma saman í dag til að ræða framtíð einkafyrirtækja hans en nokkrir þeirra hafa þegar beitt sér fyrir því að þau verði tekin til skiptameðferðar. Dagblöð í Bretlandi fóru hörð- um orðum um fjárdráttinn í gær. Sun hafði meðal annars eftir starfsmönnum Daily Mirror að Maxwell væri „glæpamaður ald- arinnar”. Daily Mail birti frétt um hann á forsíðu undir fyrirsögn- inni: „Skipstjórinn sem stal frá áhöfn sinni.” Einn af blaðamönnum Daily Mirror sagði að lífeyrissjóða- hneykslið hefði gert að engu goð- sögnina um að Maxwell hefði bjargað dagblaðinu frá gjaldþroti er hann keypti það árið 1984. „Ég tel réttara að segja að hann hafi rænt blaðið fremur en að bjarga því,” sagði hann í viðtali við breska útvarpið BBC. Breska dagblaðið The Daily Telegraph segir að Maxwell hafí verið mikiil svikahrappur, sem hafi notfært sér bresku meiðyrða- löggjöfína til hins ítrasta til að koma í veg fyrir að upp kæmist um svikin. Þeir sem hafi árætt að bjóða honum birginn hafí séð eftir því en þeir hafi verið fleiri sem hafi ekki viljað standa í ill- deilum við hann vegna þess að þeim hafi vaxið fjölmennt lög- fræðingalið hans í augum. Blaðið segir að Maxwell hafi ekki gert nokkurn greinarmun á því sem hann átti sjálfur og því sem tilheyrði öðrum. Hann hafí því svindlað á hluthöfum í þeim fyrirtækjum, sem seldu hlutabréf á almennum markaði, lánar- drottnum og starfsmönnum sín- um í rúman aldarfjórðung. Peggy Say. „Hún gafst aldrei upp og þegar öll sund virtust lokuð kom hún mér til bjargar,” sagði hann. Fyrsta máltíðin, sem Anderson bað um við komuna, var risaham- borgari og mjólkurhristingur með jarðarbeijabragði en í Damaskus í Sýrlandi var hann spurður hvað hefði hj^lpað honum að þola fanga- vistina og oft og tíðum illa meðferð mannræningjanna. „Félagar mínir, trúin og líklega þrjóska,” sagði hann. „Ég reyndi að taka þvi, sem að höndum bar.” I fangavistinni var Anderson oft- ast hlekkjaður en hann reyndi að hafa ofan af fyrir sér með því að leika á flöskur, sem voru misfullar af vatni, notaði þær eins og bjöllur, og hann fékk að hafa hjá sér spil. Þeir eru því ófáir kaplarnir, sem hann hefur lagt á þessum 2.454 dögum, sem hann var í haldi. Síð- ast en ekki síst fékk hann að vera með útvarp og með því að hlusta á BBC, breska ríkisútvarpið, vissi hann hveiju fram vatt í gíslamálun- um. „Á þriðjudag komu fangaverðirn- ir með ný föt og nýja skó, þá fyrstu í naestum sjö ár, og ég vissi, að ég yrði látinn laus daginn eftir. Ég svaf ekki meir, þessi sólarhringur var sá Iengsti í lífí mínu,” sagði Terry Anderson. Mannræningjar í Líbanon hafa enn í haldi tvo Þjóðveija, Heinrich Strúbig og Thomas Kemptner, og er alls óvíst hvort þeir fá frelsi á næstunni. Krefjast mannrænin- gjarnir þess, að tveimur bræðrum, Hamadi-bræðrunum svonefndu, verði sleppt úr fangelsi í Þýskalandi en þeir voru dæmdir fyrir flugrán, mannrán og morð. Að þeirri kröfu vilja þýsk stjórnvöld ekki ganga. Leiðrétting Ranghermt var í blaðinu í gær að Benjamin Netanyahu væri varn- armálaráðherra ísraels. Hið rétta er að hann er aðstoðarutanríkisráð- herra landsins. Er beðist velvirðing- ar á þessum mistökum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.