Morgunblaðið - 06.12.1991, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991
JHtttgtiuMfiMí
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
*
Islandssag’a og ná-
ungakærleikur
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um afskriftir á lánum og ríkisábyrgðum:
Talið að allt að 10% ábyrgða
og lána ríkissjóðs sé tapað fé
Morgunblaðið/Þorkell
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra, Magnús Pétursson ráðuneytis-
stjóri og Sigurgeir Jónsson, forstjóri Lánasýslu ríkisins, kynna skýrslu
Ríkisendurskoðunar á fréttamannafundi í gær.
I
innihluti þjóða og mann-
kyns býr við þær aðstæð-
| ur, sem fela í sér bæði stjórn-
arfarslegt og efnalegt sjálf-
\ stæði. Mörg hundruð milljónir
einstaklinga búa við kjör langt
undir fátæktarmörkum á vest-
rænan mælikvarða. Mörg
\ hundruð milljónir í þriðja heim-
inum svokallaða búa við eða
horfa fram á hungursneyð að
| öllu óbreyttu. Flóttamanna-
| vandamálið í veröldinni hefur
aldrei verið stærra en á okkar
[ tímum, á síðasta áratug tuttug-
‘ ustu aldarinnar; aldar hagsæld-
ar, menntunar og þekkingar
að flestra dómi. Þjóðir Sovét-
ríkjanna, sem eru að leysa af
' sér hina rauðu fjötra alræðis-
‘ ins, horfa fram í óráðna og
( óvissa framtíð þar sem marg-
víslegar hættur leynast.
Hungursneyð og hörmungar
víða um veröld eiga sér margs
konar rætur: illt stjórnarfar,
t styrjaldir, fáfræði, náttúru-
hamfarir og uppskerubresti.
• En hveijar sem orsakir eru
verða afleiðingar einar og sam-
: ar: mannleg neyð í sínum ömur-
I legustu myndum og ótímabær
| dauði milljóna einstaklinga.
Það hefur að vísu harðnað á
dalnum í íslenzkum þjóðarbú-
skap, bæði hjá almenningi og
atvinnuvegum. Það er að vísu
staðreynd, sem ekki má horfa
fram hjá, að mitt í íslenzkri
velmegun eru ófáir einstakling-
ar er sárlega þarfnast aðstoð-”
ar, bæði fjárhagslegrar og fé-
lagslegrar. Flestir viðurkenna
þó í orði og fjölmargir á borði,
að mikill meirihluti landsmanna
getur að ósekju látið eitthvað
af hendi rakna til meðbræðra
og -systra í þeim heimshlutum
sem búa við nánast „landlæga”
hungursneyð.
Þungamiðja hjálparstarfs við
hungursvæði heimsins á að
vera hjálp til sjálfshjálpar. Sú
hjálp felst meðal annars í miðl-
, un á menntun, þekkingu og
| tækni, en einnig í breytingu á
þjóðfélagsgerðinni, sem oft er
[ forsenda hagsældar. En eftir
sem áður hrópar viðblasandi
þörf í íjölmörgum heimshorn-
um á neyðarhjálp - skyndihjálp
- til að bjarga lífum og lina
þjáningar. Farvegir fyrir hjálp-
til sjálfshjálpar sem og neyðar-
hjálp eru ýmsir. Einn þeirra er
Hjálparstofnun kirkjunnar,
sem enn á ný leitar til íslenzks
almennings, fyrirtækja og
stofnana um fjárhagslegan
stuðning undir kjörorðunum
„Brauð handa hungruðum
heimi”.
Fólk spyr eðlilega, hvort
fjármunir, sem það lætur af
hendi rakna, komist til þeirra
verkefna, sem brýnust eru;
hvort þeir lendi ekki í höndum
spilltra valdhafa í vanþróuðum
ríkjum? Og það spyr ekki að
ástæðulausu. Það er mikilvægt
að hafa hjálparfaryeg sem
hægt er að bera traust til. Sem
dæmi um störf Hjálparstofnun-
ar kirkjunnar má nefna að hún
varði hátt í 20 m.kr. á þessu
ári í ýmis neyðarhjálparverk-
efni. Helztu verkefnin voru
aðstoð við flóttamenn frá írak,
meðal annars Kúrda, sem
hröktust frá landinu vegna
Persaflóastríðsins. Neyðarhjálp
var og veitt til hungursvæða í
Afríku og til Bangladesh. í
Indlandi sér Hjálparstofnunin
um uppeldi og skólagöngu 350
barna í suðurhluta landsins.
Hún hefur jafnframt fjármagn-
að 40 manna sjúkrahús í Keth-
anakonda í Suður-Indlandi, séð
um uppbyggingu heilsugæzlu-
stöðvar í Voitó-dal í Eþíópíu
og kostað fræðslu hóps kvenna
í Nairobi í Kenýa, sem hafa
orðið illa úti vegna áfengis- og
eiturlyfjaneyzlu. Þessi upptaln-
ing er engan veginn tæmandi
um verkefni stofnunarinnar.
Sú var tíðin að íslendingar
áttu ekki úr háum söðli að detta
í lífskjörum; að hungurvofan
knúði á flestra dyr. Fyrir rúm-
um tvö hundruð árum gengu
mikil harðindi yfir þjóðina og
eftir Skaftárelda, á árunum
1783-1785, féllu um 9.000
manns, eða tæplega fimmti
hver íbúi landsins. Fyrir rúmun
hundrað árum, á síðustu ára-
tugum 19. aldarinnar, þegar
íbúatala landsins var innan við
80 þúsund manns, voru almenn
lífskjör með þeim hætti að á
milli 10 og 15 þúsund íslend-
ingar fluttu til Ameríku í leit
að daglegu brauði sínu.
Islendingar hafa vissulega
rétt myndarlega úr kútnum á
tuttugustu öldinni, þótt á skorti
að þeir hafi treyst sem vert
væri hornsteina afkomu sinnar
og velferðar. Þeir eiga samt
sem áður þann sögulega veru-
leika að bakgrunni, sern m.a.
tíundar mikið mannfall í hung-
ursneyð eftir Skaftárelda og
umtalsverðan landflótta til
Ameríku í iok síðustu aldar.
Þeir væru ekki sú söguþjóð sem
þeir vilja vera láta ef þeir sinntu
ekki kalli Hjálparstofnunar
kirkjunnar í ljósi íslandssög-
unnar, náungakærleikans og
hungurs í heiminum á líðandi
stundu.
í SKÝRSLU Ríkisendurskoðunar
um fjárhagsstöðu Ríkisábyrgða-
sjóðs og endurlán ríkissjóðs er lagt
mat á innheimtuvirði útistandandi
krafna og gerð tillaga um afskrift-
ir þeirra. I árslok 1990 námu
ábyrgðir ríkissjóðs og veitt lán alls
um 74,1 milljarði kr. Þar af voru
veittar ábyrgðir um 39 milljarðar
og lán, sem ríkissjóður hefur veitt
ríkisfyrirtækjum, sveitarfélögum
eða atvinnufyrirtækjum, um 35,1
milljörðum. Heildarupphæðin
skiptist þannig að til opinberra lán-
asjóða fóru 52,5 millj., 6,5 millj. til
ríkisfyrirtækja, sveitarfélaga og
hitaveitna 8,3 millj. og 6,8 millj. til
atvinnufyrirtækja. Stofnunin legg-
ur til að afskrifaðar verði um
fjögurra milljarða kr. kröfur auk
þess sem ætla megi að 2,7 milljarð-
ar tapist vegna Leifsstöðvar og
vegna ferja og flóabáta.
Ríkisendurskoðun telur að 512
milljónir kr. vegna ríkisábyrgðar og
yfirtöku lána sem veitt voru vegna
raðsmíðaskipa séu tapað fé.
í fjárlögum fyrir árið 1990 var fjár-
málaráðherra heimilað að ganga frá
uppgjöri á vanskilum Skipaútgerðar
ríkisins við ríkissjóð og Ríkisábyrgða-
sjóð. Ríkisendurskoðun telur að af-
skrifa verði beint 113 milljónir auk
vaxta að fjárhæð 398 millj. eða sam-
tals 511 millj. vegna Skipaútgerðar-
innar.
Vegna uppgjörs á þrotabúi Þör-
ungavinnslunnar á Reykhólum sem
var úrskurðað gjaldþrota 1986 falla
33 milljónir kr. á ríkissjóð sem Rík-
isendurskoðun telur að þurfi að af-
skrifa.
Innleystar hafa verið , ábyrgðir
vegna tveggja lána sem ríkið ábyrgð-
ist að upphæð 179 millj. vegna Arnar-
flugs sem var úrskurðað gjaldþrota á
síðasta ári. Sjóðurinn hefur einnig
greitt 37 millj. vegna kostnaðar við
þotu félagsins sem sjóðurinn eignaðist
og seldi aftur ári síðar. Þá leysti Ríkis-
ábyrgðasjóður til sín fasteign Am-
arflugs í Lágmúla og á auk þess veð
í annarri flugvél Arnarflugs. Gert er
ráð fyrir að veðin skili sjóðnum 20
milljónum en það sem eftir stendur
þegar búið er að taka tillit til sölu-
verðs þotu og fasteignar er lagt til
að afskrifaðar verði samtals 196 millj.
kr.
Ríkisendurskoðun telur að afskrifa
þurfi 50 millj. kr. kröfu á hendur
Útveri hf. í Ólafsvík og stofnunin tel-
ur eðlilegt að afskrifa 95 millj. kr.
kröfu vegna ríkisábyrgðar á lánum
sem Gullskipið hf. tók vegna leitar
að flaki skipsins Het Wapen van
Amsterdam á Skeiðarársandi. Stofn-
unin bendir á að félagið sé eignalaust
og árangurslaust fjárnám hafí farið
fram. Þá eru taldar yfírgnæfandi líkur
á að afskrifa þurfi 32 millj. kr. vegna
gjaldþrots Stálvíkur hf.
Ábyrgðir og kröfur ríkissjóðs vegna
Ábyrgðadeildar fiskeldislána nema á
fjórða hundrað millj. Telur Ríkis-
endurskoðun að afskrifa verði samtals
293 millj. vegna gjaldþrota tíu físk-
eldisfyrirtækja en hæstu upphæðirnar
eru vegna Isþórs hf. (55,6 millj.),
Laxalóns hf. (43,4 millj.), Smára hf.
(44,8 millj.) og Isl. fískeldisfélagsins
hf. (44,3 millj.).
í árslok 1990 voru kröfur vegna
endurlána ríkissjóðs án áfallinna
vaxta 26,3 milljarðar. Eftir að hafa
metið innheimtuvirði veittra lána hjá
ríkissjóði leggur Ríkisendurskoðun til
að kröfur að fjárhæð 1.140 millj. verði
afskrifaðar beint. Þar á rneðal er 110
millj. kr. krafa á hendur sveitarfélaga
vegna Hitaveitu Rangæinga, sem
stofnunin telur að verði að afskrifa.
Vanskil Skipaútgerðar ríkisins við
endurlán-ríkissjóðs námu um 90 millj.
um síðustu áramót, sem Ríkisendur-
skoðun leggur einnig til að verði nú
afskrifuð.
Ríkisendurskoðun bendir á að fjár-
hagsstaða hagræðingar- og fram-
kvæmdadeildar Fiskveiðasjóðs hafí
verið slæm og hún lent í vanskilum
við endurlán ríkissjóðs. Telur stofnun-
in að a.m.k. 359 millj. geti tapast en
að Fiskveiðasjóður sjálfur telji að tap-
ið geti orðið meira. Lagt er til að sú
upphæð verði afskrifuð. Þá er lagt er
til að 148 millj. kr. verði afskrifaðar
af endurlánum vegna Sjóefnavinnsl-
unnar hf.
1,4 milljarðar vegna ferjuskipa
Lán vegna feija og flóabáta fá sér-
staka umfjöllun hjá Ríkisendurskoð-
un. Samtals námu lán vegna flóabáts-
ins Baldurs, Skallagríms, Hríseyjar-
feija og Heijólfs hf. 682 millj. kr. í
árslok 1990. Vanskil námu 346 millj.
á sama tíma. Ríkisendurskoðun telur
að rekstur feijanna muni ekki standa
undir afborgunum af þessum lánum
en ríkissjóður á veð í feijunum vegna
þeirra. Skuld vegna Baldurs nemur
401 millj. án dráttarvaxta, skuld
vegna Hríseyjarfeija er komin í 83
millj., skuld Skallagríms hf. nemur
165 millj. og talið er að ný Vest-
mannaeyjafeija muni kosta 1,4 millj-
arða kr. „Miðað við afkomu um-
ræddra fyrirtækja fæst að mati stofn-
unarinnar líklega ekkert endurgreitt
vegna þessara lána,” segir í skýrslu
Ríkisendurskoðunar.
I skýrsiunni er einnig gerð úttekt
á annarri lánafyrirgreiðslu ríkissjóðs,
þ.á m. vegna skuldabréfa sem gefin
eru út til ríkissjóðs vegna eignasölu
og til greiðslu á skattskuldum. Veitt
löng lán af þessu tagi námu samtals
8,8 milljörðum kr. í árslok 1990. í
nokkrum tilvikum er um veitt lán án
heimildar að ræða. Leggur Ríkis-
endurskoðun til að 966 miiljónir verði
afskrifaðar beint og 123 millj. færðar
á afskriftareikning.
Meðal þessara töpuðu útlána eru
98 millj. vegna Amarflugs hf. og 185
milljónir vegna Álafoss hf. Rík-
isendurskoðun bendir m.a. á að engar
heimildir hafí verið fyrir víkjandi lán-
um sem veitt voru til Álafoss hf. og
Hildu hf. á grundvelli samkomulags
á milli Iðnlánasjóðs og ríkissjóðs en
bæði fyrirtækin hafa verið lýst gjald-
þrota.
Tap vegna Þormóðs
ramma 169 millj.
Gjaldþrot Sigló hf. og fasteignavið-
skipti ríkissjóðs með eignir þrotabús-
ins leiða til að áætlað er að ríkissjóð-
ur tapi 175 millj. kr. Ríkisendur-
skoðun telur rétt að afskrifa 240 millj.
kr. kröfu vegna skuldar Sjóefnavinnsl-
unnar á Reykjanesi og 169 millj. kr.
kröfu vegna lána sem ráðstafað var
upp í áskrift ríkissjóðs á hlutafé í
Þormóði ramma hf.
Meðal fyrirtækja sem fengið hafa
skuldbreytingar á opinberum gjöldum,
en þær kröfur eru nú taldar tapað fé,
eru: 15,2 millj. vegna Tré smiðj. Víðis
en fjármálaráðuneytið samþykkti á
sínum tíma að kaupa skuldabréf af
fyrirtækinu vegna skattskulda sem
var tryggt með 47. veðrétti í fasteign
trésmiðjunnar. 13,1 millj. krafa á
hendur þrotabúi Haga hf. á Akureyri
vegna nauðasamninga og 14,4 millj.
vegna skuldabréfs sem fjármála-
ráðuneytið samþykkti að taka af
Garðskaga hf. til greiðslu á opinberum
gjöldum, tryggt með 32. veðrétti í
fiskverkunarstöð í landi Kothúss I,
Garði. Þá er talið að krafa uppá 12,8
millj. vegna gjaldþrots Samkomuhúss
Vestmannaeyja hf. sé töpuð og beri
að afskrifa í ríkisbókhaldinu.
Yfirlit vfir afskriftir endurlána íslenski gagnagr. 34.740.973 34.740.973
Miðað við stöðu Dr. 31.12.90 Stálvík hf. 22.004.428 22.004.428
Nafn: Krafa án drv.: Afskriftir: Trésmiðjan Víðir hf. 15.215.529 15.215.529
Hitaveita Rangæinga 118.606.101 110.421.788 Hagi hf. trésm. 14.571.797 13.114.617
Grænf. verksmiðjur 47.436.420 47.436.420 Garðskagi hf. 14.437.719 14.437.719
Hafnamálastofnun ríkisins 98.000 98.000 Samkomuhús Vestm. 12.770.540 12.770.540
Ríkissjóðurv/187501 32.000 32.000 Versl. Sigurðar Pál. Ásgeir hf. 11.442.699 11.128.355
Skipaútgerð ríkisins 260.899.796 89.709.563 10.202.208 10.202.208
Landshöfn Þorlákshöfn 1.704.105 1.704.105 Húseiningar hf. 10.514.390 10.514.390
Fiskveiðasjóður íslands 533.555.890 358.555.890 Vík hf. 7.216.735 4.900.000
Siglufjarðarkaupstaður 234.134.356 98.708.662 Veitingamaðurinn hf. 6.060.190 6.060.190
Grindavíkurkaupstaður 13.918.755 13.918.755 Vísir hf. 3.993.605 3.993.605
Hitaveita Hjaltadals 8.901.504 8.901.504 Blikkver hf. 4.018.355 4.018.355
Rafveita Snæfjalla 2.308.522 2.308.522 Húsvíék matvæli hf. 3.298.995 3.298.995
Sjóefnavinnslan hf. 148.413.625 148.413.625 Skemmtigarðurinn hf. 3.250.626 3.250.626
Norðurstjarnan hf., Hafnarfírði 322.617 322.617 Tækjabúðin hf. 10.900.911 2.000.000
Þorgeir og Ellert hf. 84.291 84.291 Vogur hf. 2.687.712 2.687.712
Söltunarstöðin Nóatún 56.155 56.155 Jón Eðvaldsson hf. 2.885.046 2.885.046
Vörðurhf. 56.828 46.828 Rörverk hf. 2.433.326 2.433.326
Dagstjarnan hf. 40.000 40.000 Vélsmiðjan Þór hf. 2.281.849 2.281.849
Fiskiðjusamlag Þórshafnar 1.131 1.131 Nesco 2.532.666 . 2.532.666
Fiskimjöl Evrbvgsia hf. 240 240 Pólstækni hf. 1.940.341 1.940.341
Annað: Vallhólmurhf. 47.232.476 47.232.476 Ræktunarsamband Austurl. 1.788.941 1.109.001.052 1.788.941 965.998.042
Þörungavinnslan 15.016.756 15.016.756
V/Þormóðs ramma 114.443.262 114.443.262 Kikisabyrgdir
V/Ríkisútvarpsins 83.559.038 83.559.038 Kröfur Beinar afskriftir
Samtals 1.630.811.868 1.140.011.628 Raðsmíðaskip 512.258.254 512.258.254
Rafmagnsveitur rík. 72.122.212 72.122.212
Veitt löng- lán ríkissióðs Skipaútgerð rík. Þörungavinnslan 544.132.551 33.416.008 510.788.548 33.416.008
Lántaki Krafa án dr.vaxta: Bein afskrift: Arnarflug hf. 321.241.723 196.089.130
Sjóefnavinnslan hf. 353.232.482 240.521.455 Útver hf. 113.243.229 50.000.000
Þormóður rammi hf. 174.712.712 169.184.042 Gullskipið hf. 95.373.619 95.373.619
Álafoss hf. 96.115.801 96.115.801 Stálvík hf. 32.078.145 32.078.145
Hilda and Álafoss 97.618.203 89.028.070 Ábyrgðard. fískeldisl. 367.730.876 292.555.741
Arnarflug hf. 98.297.448 98.297.448 Landnám ríkisins 5.740.801 5.740.801
Sigló hf. 87.834.815 84.650.815 2.098.346.418 1.800.431.458
. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 6; .DESEMBER1Ö91
8'
Tvístefna í Thorvaldsensstræti
Ákveðið hefur verið að breyta og fækka bílastæðum í Thoi-valdsens-
stræti eftir að tvístefnuakstur hefur verið tekinn upp í götunni. Að
sögn Sigurðar Skarphéðinssonar aðstoðargatnamálastjóra, er verið að
brenna eldri merkingar af götunni en framvegis verða bílastæði með
gangstéttinni við Austurvöll. Ekið verður inn og út frá Kirkjustræti,
þar sem Vallarstræti hefur verið breytt í göngugötu. Gert er ráð fyrir
að hægt verði að snúa bifreiðunum við enda götunnar. „Þetta verður
svona til bráðabirgða,” sagði Sigurður. „Það er nánast búið að ákveða
að endurbyggja næsta sumar Thorvaldsensstræti, Vallarstræti, Kirkju-
stræti og Aðalstræti að Ingólfstorgi í framhaldi af frekari framkvæmd-
um í Kvosinni.”
Spástefna Stjórnunarfélags íslands:
Stjóraendur fyrir-
tækja spá 7,6%
verðbólgu 1992
VERÐBÓLGAN verður 7,6% á næsta ári samkvæmt meðaltali af sp
forsvarsmanna 30 fyrirtækja sem kynnt var á Spástefnu Stjórnunarft
lags Islands í gær. Þar af telja forsvarsmenn 14 fyrirtækja að ver<
bólgan verði á bilinu 4-8% á næsta ári og tólf að hún verði 8-12°/
í nýrri þjóðhagsáætlun, sem gerð var eftir að ljóst varð að álversfran
kvæmdum yrði frestað, er gert ráð fyrir 5,1% verðbólgu. Þess bt
að geta að spá forsvarsmanna fyrirtækjanna 30 var gerð áður e
frainkvæmdum var frestað.
Meðaltal af spá forsvarsmann-
ánna gerir ráð fyrir að gengi dollars
í árslok 1992 verði 61,2 krónur og
gengi þýsks marks 37,3 krónur.
Miðað við meðaltalsspá forsvars-
mannanna um launaþróun á árinu
hækka atvinnutekjur á mann um
4,5%. í þjóðhagsáætluninni er gert
ráð fyrir 1,2% tekjuhækkun, en í
þjóðhagsáætlun sem gerð var í
haust, fyrir frestun álversfram-
kvæmda, var hins vegar spáð 3%
hækkun atvinnutekna.
Skv. meðaltali af spám fyrirtækj-
anna um hagvöxt á næsta ári verð-
ur hann neikvæður um 2,0%, en
þjóðhagsáætlun gerir ráð fyrir nei-
kvæðum hagvexti upp á 3,6%. Eldri
þjóðhagsáætlun gerði ráð fyrir að
hagvöxtur yrði neikvæður um 1,5%.
Þá er því spáð að raunvextir verði
8,2% í árslok 1992. Forsvarsmenn
fyrirtækjanna gera ráð fyrir 2,6
atvinnuleysi á næsta ári og er þa
sama niðurstaða og gert er ráð fyr
í þjóðhagsáætlun.
Aðspurðir um langtímahorfur
íslensku efnahagslífí töldu forsvari
menn 14 fyrirtækja þær vera slæn
ar og jafnmargir sögðu þær vera
meðallagi. Enginn taldi horfurna
vera góðar. Mikill meirihluti foi
svarsmanna fyrirtækjanna 30, eð
22, spáðu áframhaldandi þjóðarsát
niðurskurði lánsfjárþarfar og stöc
ugleika þegar þeir voru spurðir ur
kjarasamninga.
Þegar spurt var um ríkisbúskai
inn sögðust 11 forsvarsmenn ger
ráð fyrir að jafnvægi næðist me
því að hækka skatta í stað niðui
skurðar útgjalda. Einkavæðing yrc
takmörkuð.
Ættingjar Warhols telja mistök
læknahafa valdið dauða hans
Islenskur skurðlæknir meðal þeirra sem krafinn er um hundraða milljóna króna bætur
BIRNI Þorbjarnarsyni, fyrrum
yfirlækni skurðlæknisdeildar The
New York Hospital, hefur ásamt
forsvarsmönnum sjúkrahússins og
læknum og hjúkrunarfólki úr
starfsliði þess verið stefnt fyrir
rétt á Manhattan í New York af
ættingjum listamannsins Andy
Warhols, sem lést á sjúkrahúsinu
fyrir tæpum fimm árum, 58 ára
gamall. Málaferlin standa yfir
þessa dagana. Lögmenn ættingj-
anna hafa gert kröfur uin skaða-
bætur sem nema tugum milljóna
bandaríkjadala, hundruðum millj-
óna eða milljörðum króna, og rekja
dauða Warhols til mistaka við skoð-
un og meðferð þá sem honum var
veitt á sjúkrahúsinu þegar Björn
og læknir Warhols, Cox að nafni,
fjarlægðugallblöðrulistamannsins
daginn áður en hann lést. Lögmenn
sjúkrahússins vísaöllum ásökunum
á bug.
Mál þetta hefur vakið mikla at-
hygli vestra. Ættingjarnir saka
læknana um að hafa látið gefa
Warhol of mikinn vökva eftir að-
gerðina án þess að huga að því að
vökvinn safnaðist fyrir í líkaman-
um með þeim afleiðingum að lista-
maðurinn hafi drukknað af „of-
vökvun” („over-hydration”). Við
réttarhöldin í gær sagði Glen Dopf
lögmaður læknanna að kenningin
um „ofvökvun” ætti ekki við rök
að styðjast. Bruce Habian lögfræð-
ingur spítalans, sagði að vegna
mistaka læknaritara hefði Iáðst að
færa inn vökvagjafirnar.
The New York Times hefur eft-
ir lögfræðingi ættingjanna, Bruce
Clark, að við dauða sinn hafi War-
hol vegið um 10 kílóum (22 pund-
um) meira en við komu á sjúkrahús-
ið tveimur dögum fyrr og að lungu
hans hafi þá verið tvöfalt þyngri
en eðlilegt megi telja.
Björn, sem búsettur hefur verið
vestra um áratuga skeið, er nú
bandarískur ríkisborgari og sestur
í helgan stein að loknum löngurn
og glæsilegum starfsferli. Þegar
Andy Warhol
Morgunblaðið náði sambandi við
hann í gær, sagðist hann ekki ræða
þetta mál við blaðamenn.
Jonathan Weil, talsmaður sjúkra-
hússins, sagði hins vegar við Morg-
unblaðið að sjúkrahúsið hafnaði því
alfarið að nokkuð væri athugavert
við meðferð þá sem listamaðurinn
fékk á sjúkrahúsinu og rangt væri
að starfsfólki þar hefðu orðið á
mistök. Dauða Warhols megi rekja
til óvæntra hjartsláttartruflana og
vísar sjúkrahúsið í því sambandi
til viðkomandi réttarlæknisemb-
Björn Þorbjarnarson
ættis, sem annaðist krufningu.
Málstaður ættingjanna, þeirra á
meðal tveggja arflausra bræðra
Warhols, styðst meðal annars við
framburð sérfræðings, sem síð-
ustu daga hefur dregið í land frá
upphaflegum yfirlýsingum sínum
um hin meintu læknamistök, að
því er fram kemur í The New
York Times.
Andy Warhol lést á The New
York Hospita! 22. febrúar 1987
af hjartaslagi. Daginn áður hafði
gallblaðra hans verið fjarlægð
með skurðaðgerð, sem New Yor.
Times segir að einkalæknir lista
mannsins, fyrrnefndur Cox, hai
frestað þar til í lengstu lög, meða
annars vegna hræðslu Warhols vii
sjúkrahús og lækna. Að sögi
blaðsins var þó um fremur ein
falda aðgerð að ræða og ekki mui
um það deilt í málinu að Warho
hafi í fyrstu virst á eðlilegum bata
vegi eftir að aðgerðinni lauk, með
al annars horfði hann á sjónvarj
og notaði símann. Á hálfri annan
klukkustund hrakaði honum hin
vegar skyndilega, féll í dá og lés
um nóttina. I rannsóknarskýrslu
sem unnin var á vegum heilbrigðis
ráðuneytis fylkisins, var sjúkra
húsið gagnrýnt fyrir að hafa ekk
rannsakað Warhol nægilega vé
fyrir aðgerðina og fyrir að haf;
ekki fylgst nægilega með ástand
hans eftir aðgerðina. Auk sjúkra
hússins og læknanna, Björns 04
Cox, er hjúkrunarkonu sem vakt
yfir Warhol og fleirum ú;
starfsliði sjúkrahússins stefnt
málinu.
Eftir dauða Warhols, sem varc
víðfrægur og í hávegum hafður í
tímum pop-listar 7. áratugarins
voru eigur hans seldar á uppboð
og rann andvirðið til sérstakrai
stofnunar sem kennd er við nafr
hans. Þá eftirlét listamaðurinr
móður sinni lífeyri, en bræðrs
hans tveggja var að engu getið 1
erfðaskránni.
Húsavík:
Björgunarsveitin sótti slasaðan mann
Húsavík.
SLASAÐUR sjómaður var sóttur
um borð í Svan RE um hádcgisbil-
ið í gær, en skipið var þá statt
um 45 sjómilur frá llúsavík. Það
voru félagar í björgunarsveitinni
Garðari á Ilúsavík sem sóttu
manninn á björgunarbál sveitar-
innar, og var hann fluttur á
sjúkrahúsið þegar komið var með
hann i land.
Varaformanni björgunarsveit-
arinnar, Þresti Brynjólfssyni, barst
beiðni frá skipstjóranum á Svan um
að sækja skipveija sem slasast hafði
á handlegg, en skipstjórinn taldi að
koma þyrfti manninum undir lækn-
ishendur sem fyrst. Þrír félagar úr
Garðari fóru á bát björgunai’sveitar-
innar til að sækja manninn, 0g tók
siglingin að Svan um eina og hálfa
klukkustund. Komið var með mann-
inn, sem reyndist vera handleggs- ;
brotinn, á sjúkrahúsið laust fyrir
klukkan hálf þijú. fréttar. i