Morgunblaðið - 06.12.1991, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
f lok sýningar voru kennarar á hrossaræktarbraut kallaðir fram og þeim klappað lof í lófa en þeir Sýning nemenda hófst með því að tveir knapar þau Jón Sveins-
eru frá hægri talið Magnús Lárusson, Éyjólfur ísólfsson og Egill Þórarinsson. son og Kolbrá Höskuldsdóttir riðu inn með íslenska fánann und-
ir dynjandi tónlist.
Hestamennska og hrossarækt á Hólum:
Fyrirboði reiðskólans langþráða?
_________Hestar_____________
Valdimar Kristinsson
„FÁKSSPOR til framtíðar” var
yfirskrift kynningar sem nem-
endur á hrossaræktarbraut
bændaskólans á Hólum gengust
fyrir á dögunum á náminu I
hrossarækt og hestamennsku.
Ástæður þess að boðið var upp
á þessa kynningu nú má rekja
til þess að nemendum fannst
almenningur vita lítið um
hversu umfangsmikil og fjöl-
þætt kennslan er orðin á Hól-
um.
Á undanförnum árum hefur
aðstaða til kennslu í greininni
verið stórbætt. Á staðnum er 40
hesta hús sem er reyndar að verða
of lítið fyrir starfsemina. í bygg-
ingunni eru einnig kennslustofur
fyrir bæði bóklegt nám og.verk-
legt og síðast en ekki síst er ný-
byggð vönduð reiðskemma með
20x40 metra gerði og aðstöðu þar
í kring fyrir áhorfendur.
Kennarar eru Magnús Lárus-
son og Eyjólfur ísólfsson en þeir
sjá um bæði verklega og bóklega
kennslu. Egill Þórarinsson tamn-
ingamaður aðstoðar auk þess við
kennslu í tamningum. Eyjólfur og
Magnús skipulögðu námsefnið
fyrir rúmu ári í samvinnu við Jón
Bjarnason skólastjóra sem nú er
í árs leyfi. í fjarveru hans gegnir
Sveinbjörn Eyjólfsson stöðunni.
Árið 1987 var námið í hrossarækt
4 einingar eða 104 kennslustund-
ir en er nú komið í 29 einingar
sem gera 754 kennslustundir.
Tamningar og reiðmennska eru
fyrirferðarmesti hlutinn í verklegu
kennslunni. Frumtamningar eru
kenndar á fyrstu önn auk veru-
legrar reiðkennslu og járningar. Á
annarri önn fara nemendur í verk-
nám til bænda eða tamninga-
manna og eru þar í þrettán vik-
ur. Nemendur taka verulegan
þátt í fóðrun og hirðingu hross-
anna á búinu á seinna ári og er
þeim þá úthlutað hrossi sem þau
þjálfa frá grunni og taka hluta
af prófinu á þeim að vori. Eiga
nemendur þá að geta riðið þeim
hlýðniæfingar-B með tilskildum
árangri. Kennd er erfða- og kyn-
bótafræði seinni veturinn sem er
grunnur að umfjöllun um kynbót-
amat, blendingsrækt, stofnrækt
og skyldleikarækt. Þá er farið í
kynbótadóma, bæði byggingu og
hæfileika. Einnig er kennd rekstr-
arfræði og landnýting en Svein-
björn skólastjóri sagði markmiðið
að nemendur Bændaskólans á
Hólum þekktust af grænum beit-
arhögum en ekki brúnum rótnö-
guðum sveltihólfum.
Boðið var upp á sýningu nem-
enda þar sem gat að líta þver-
skurð af því sem þeir fást við í
tamninganáminu auk þess sem
slegið var á létta strengi á milli.
Sýnd voru m.a. trippi á ijórða
vetri sem nemendur hafa verið
að frumtemja í rúman mánuð og
mátti þar sjá fagleg og samhæfð
Allir verða að læra járningar
og þar með að slá til skeifur
og stelpurnar líka. Hulda Sig-
urðardóttir glímir hér við eina
skeifuna og fór létt með.
vinnubrögð þar sem mikil áhersla
er lögð á grunnvinnu. Á annað
hundrað manns sótti Hóla heim
þennan dag og voru undirtektir
góðar. Duldist engum að áhugi
nemenda á viðfangsefninu er mik-
ill og námið stundað af miklu
kappi. Virðist Hólaskóli vera á
góðri leið með að breytast í fyrsta
reiðskólann þar sem kennd er
hrossarækt og reiðmennska í sinni
víðustu mynd. Miðað við þá þróun
sem orðið hefur í landbúnaði al-
mennt og hestamennsku í landinu
er ekki óeðlilegt að megin áhersl-
an verði lögð á hestamennsku þar
á bæ og jafnvel að skólinn verði
alfarið lagður undir slíka starf-
semi. 011 aðstaða er þarna fyrir
hendi og greinilegur vilji skólayf-
irvalda til að ýta undir þá þróun.
í samtölum við nemendur kom
greinilega fram að þeim þykir
vanta að með náminu fáist ein-
hver áþreifanleg réttindi til starfa
við hestamennsku. Á kynninguna
mættu fulltrúi frá stjórn Land-
sambands hestamannafélaga og
Félagi hrossabænda en fulltrúa
frá Félagi Tamningamanna var
hinsvegar sárt saknað af mörgum
bæði nemendum og velunnurum
skólans.
Ekki fer milli mála að þeir
Eyjólfur og Magnús hafa unnið
merkt starf í samvinnu við skóla-
stjóra og vonandi að þar verði
framhald á. Sá orðrómur hefur
verið á kreiki að Eyjólfur væri á
förum frá Hólum til reiðkennslu
í Reykjavík en í samtali við hann
kom fram að þetta væri ekki als-
kostar rétt því ljóst væri að hann
yrði með annan fótinn á Hólum.
Þó kvað hann ekki alveg frágeng-
ið hvaða fyrirkomulag yrði þar á.
Athygli vekur að stúlkur eru
nú í meirihluta á Hólum og ljóst
að ekki á lengur við að tala um
Hólasveina eins og tíðkaðist á
þeim tímum þegar stúlkur fóru í
húsmæðraskóla og strákar í
bændaskóla. Kann þar að valda
aukið vægi hestamennsku í nám-
inu og líklegt að svipuð þróun
eigi sér stað og gerst hefur erlend-
is en þar eru stúlkur í miklum
Sá nemandi á hrossaræktar-
braut sem hvað bestum árangri
hefur náð í faginu að sögn mun
vera Geirþrúður Hildibrands-
dóttir og var hún að sjálfsögðu
aðalnúmerið í sýningunni þar
sem hún geystist um salinn á
fimu og léttu lulli á gráum
gæðingi sem greinilega var
kostamikil skepna. Að sjálf-
sögðu sat hún í söðli að hætti
hefðarkvenna og í lokin hleypti
hún gamminum á flugskeið út
úr Salnum.
meirihluta í hestamennskunni.
Utlendingar sækja nokkuð í að
komast í nám á Hólum og nú eru
þar þijár stúlkur frá Svíþjóð,
Noregi og Hollandi. Þá er ein
stúlka frá Englandi í sérhæfðu
verknámi. ~
Það sem er að gerast á Hólum
verður að teljast góð tíðindi fyrir
hestamennskuna í landinu og
spurning hvort ekki sé að rætast
langþráður draumur íslenskra
hestamanna um öflugan og metn-
aðarfullan reiðskóla?
S'
Við bjóðum nú takmarkað magn afþessum gæðatækjum frá TOSHIBA
á einstöku verði.
B
• Textavarpsmóttaka MEÐ ÍSLENSKUM STÖFUM.
• NICAM STEREO móttaka (Stereoútsendingar hefjast um áramót).
• Flatur, kantaður skjár með fínni upplausn (625 línum).
• Tölvustýrð litgreining (CAI), skarpari skil milli lita.
• Fullkomin fjarstýring, allar aðgerðir birtast á skjánum, en hverfa að
5 sek. líðnum.
• SUPER VHS og SCART tengi fyrir myndbandstæki, hljómtæki,
tölvurog gervihnattamóttöku.
m
Jt
m
&
m
f
m
Þetta er tímamótatæki á einstöku verði, búið öllu því nýjasta!
f!S
TOSHIBA
Einar Farestveit & Co hf.
Borgartúni 28-S 622901 og 622900
* Staðgreiðsluverð
Afborgunarverð er kr. 119.900