Morgunblaðið - 06.12.1991, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 06.12.1991, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991 STIGIÐIBEN SINFOTINN Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Saga-bíó. Thelma og Louise - „Thelma and Louise”. Leik- stjóri Ridley Scott. Aðalleik- endur Susan Sarandon, Geena Davis, Harvey Keitel, Michael Madsen, Christopher McDon- ald, Brad Pitt, Stephen To- bolowski. Bandarísk. MGM 1991. Vinkonurnar Thelma (Davis) og Louise (Sarandon) ætla að hvíla sig yfir helgina frá musku- legu hversdagslífinu. Thelma er húsmóðir í sambúð með eigin- gjörnum, tillitslausum og tauga- trekktum teppasala en Louise hefur verið í heldur vansælu sam- bandi með tónlistarmanni sem ekki vill stíga skrefið til fulls og giftast henni. Thelma hírist dag- langt heimavið en Louise vinnur fyrir sér sem gengilbeina á skyndibitastað. En margt fer öðruvísi en ætlað er, á fyrsta dagi ferðalagsins lenda þær stöllurnar í afar vond- um málum og eru hundeltar af lögreglunni, grunaðar um morð. Nú er ekki um annað að ræða en stíga þétt á pinnann, þær eru í Alabama þegar ósköpin byrja og sjá ekki annað ráð vænna en freista þess að komast til Mex- íkó. Einn þrándur f götu — utan laganna varða — er ærið um- svifamikill, sem sé Texasríki, en af persónulegum ástæðum vill Louise ekki stíga þangað fæti. Eftir þetta tekur Thelma óg Louise stefnu á malargöturnar, breytist í vegamynd og hana óvenjuleg þar sem það eru kven- menn sem fara með gamalkunn- ug hlutverk félaganna. Þeir verða fljótlega útlagar á skjön við íög og reglur á þeyting um Suð-Vest- urríkin, það hvín í fímmtána ára Thunderbirdinum á þeysireið ,um Arkansas, Oklahoma, Kansas, Colorado, Utah, Arizona og Nýja Mexíkó. Scott og kvikmyndatök- umanni hans verður mikill matur úr sérkennum hraðbrautarmenn- ingarinnar vestra; eiturspúandi, ógnvekjandi flutningabíla- skrímslin, ekkert nema krómið og krafturinn, ökuþórar þeirra, karlremburnar, skyndibitastað- irnir við vegkantinn með sínu sjóaða starfsliði og steikarbrælu og allstaðar er fjörug kántrítónl- istin í bakgrunni. Sólríkt og skrælnað suðvestrið er ramminn utanum feigðarflan þessara lán- leysingja, myndað af tilfinningu, einkum atriðin í Monument Val- ley, sem tæpast hefur verið fíl- maður af slíkum sóma síðan á dögum Johns heitins Ford. Leikkonumar passa vel í myndina. Sarandon sem hin ver- aldarvanari og harðskeyttari og Davis gefur henni ekkert eftir í hlutverki heimilistækisins sem kippt er úr sambandi. Ólánlega saklausrí og ginkeyptri fyrir framandi freistingum holdsins. Þær ljá þessum lífsleiðu, næsta ótrúlegu manngerðum og dra- matísku atferli þeirra trúlegt yf- irbragð. Flestir aukaleikaranna standa sig einnig með ágætum. Keitel er traustur í vandræðalegu hlutverki hliðholls lögreglu- manns, sömuleiðis sá athyglis- verði Madsen (Kill Me Agairí) sem elskhugi Louise. Öllu betri er þó Christopher McDonald sem hinn sjálfumglaði sambýlismaður Thelmu en best er nýstimið Brad Pitt, sem virðist njóta þess fram í fíngurgóma að vera sem skítleg- astur í hlutverki snoppufríðs ódáms sem kynnist Thelmu — og veskinu hennar. En á bak við öll átökin og hraðann er tómarúm. Persónum- ar grunnar, atburðarásin vægast sagt ólíkleg og lokaatriðið ódýr lausn á sögufléttunni, nema vin- konurnar hafí sönglað undir stýri gömlu, góðu laglínurnar hans LÆKNIRIVANDA Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Hollywood-Iæknirinn („Doc Hollywood”). Sýnd í Bíóhöll- inni. Leikstjóri: Michael Caton- Jones. Aðalhlutverk: Michael J. Fox, Julie Wamer, Woody Harrelson, Bridget Fonda. Michael J. Fox leikur lækni sem á bjarta framtíð fýrir sér. Hann ætlar að gerast lýtalæknir, , eða fegrunarlæknir öllu heldur, í Beverly Hills, græða pening á lít- illi vinnu og lifa hinu ljúfa lífi. Skítt með þá sem þurfa á raun- verulegum lækningum að halda. En á leiðinni í draumalandið hrek- ur hann af leið og verður stranda- glópur í vinalegum, sólríkum, fal- legum og sveitó smábæ. Hann hatar kannski ekki umhverfið eins og pestina en þetta er ná- kvæmlega eins kmmmaskuð og hann á sínum tíma flúði frá til stórborgarinnar í von um fé og frama. En það er svolítið annað í þess- um bæ sem hann var búinn að gleyma, nefnilega raunverulegt mannlíf. Og það þarf á góðum lækni að halda. Svo bæjarbúar flestir með bæjarstjórann í farar- broddi gera hvað þeir geta til að lokka drenginn til að vera og þjóna þeirra litla samfélagi. Lítið gengur þar til læknirinn ungi kynnist gullfallegri einstæðri móður og tekur að hugsa sitt líf upp á nýtt. Þannig er sagan í bandarísku gamanmyndinni Hollywood- Susan Sarandon og Geena Davis fara á kostum sem vinkonurnar Louise og Thelma í hraðri og athyglisverðri mynd eftir Ridley Scott. Kris Kristofferson; ... frelsi er aðeins enn eitt orð yfir að hafa engu að tapa ...! En hröð keyrsla leikstjórans, sem hér fer svo sannarlega inn á nýjar brautir, óvenjulegar persónurnar og sú sterka samúð sem þær Sarandon og Davis vekja hjá manni og læknirinn, fyndinni og skemmti- lega gerðri mynd um borgarlækni sem loks fínnur bæði tilgang með lífí sínu í smábænum og um leið sjálfan sig. Hið stutta stopp kynn- ir fyrir honum nýjar hliðar á til- verunni sem hann var búinn að gleyma eða hafði ekki löngun til að meðtaka áður, móður af lífs- gæðakapphlaupinu. Hið rólega og indæla sveitalíf er mjög rómað og andstæða þess, hið fírrta borgarlíf, er sett upp á einfaldan en spaugsaman hátt þegar læknirinn nær lokum kynn- ist því hvað það raunverulega er að vera fegrunarlæknir og fær um það leiðsögn hárrétta manns- ins, Guys Hamiltons. Þar er góð- ur svartur húmor á ferðinni. Breski leikstjórinn Michael Ca- ton-Jones („Scandal”, „Memphis Belle”) stjórnar og þótt handritið sé á stundum full einfeldningslegt og skorti raunverulega dýpt þá hefur honum tekist að gera gletti- lega góða gamanmynd, spaugs- vandað yfirbragðið duga til þess að Thelma og Louise stendur vel uppúr meðalmennskunni sem skemmtimynd og þær vinkonurn- ar með þekkilegri útlögum hvíta tjaldsins síðan þeir Butch Cassidy og Sundance strákurinn riðu um héröð. ama og indæla skemmtun sem engum ætti að leiðast. Það tekst m.a. með einkar upp- lýsandi smáatriðum í lýsingu á bæjarbragnum þar sem allir vita allt um alla og líflegri persónu- sköpun. Fox er auðvitað hinn lög- gilti smábæjarstrákur eftir Aftur til framtíðar-myndimar, geð- þekkur leikari með afbrigðum og tilvalinn í hlutverkið. Julie Wam- er, sem leikur kærustu Fox, Wo- ody Harrelson, sem leikur bæj- argæjan og Bridget Fonda, sem getur ekki beðið eftir að flytja burt, eru öll mjög góð í hlutverk- um sínum og sama er að segja um aðra leikara í aukahlutverk- um. Hollywoodlæknirinn er fyrsta myndin í Bíóhöllinni eftir smíði viðbyggingar sem tengir það við Saga-bíó og er hið nýja anddyri bíóanna. Það verður ekki annað sagt en að það sé hið glæsileg- asta að allri gerð, stórt, rúmgott og tilkomumikið. r SÍMINN ER 689400 FOSTUDAGUR TIL FJAR mtiiuinnwirgn'wwwnrn BYGGT & BUIÐ KRINGLUNNI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.