Morgunblaðið - 06.12.1991, Síða 69
rpp r HMnwirí?.r*in jnioArprmft (TTGAJnMnoHOM
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
B91282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Fullveldi Islands í hættu
Utanríkisráðherra íslands hefir að
undanförnu staðhæft á svokölluðum
kynningafundum um EES- samning-
inn, að í samningnum sé tryggilega
gengið frá því, að útlendingar geti
ekki keypt hér land, bújarðir, veiðiár
og vötn, auk annarra gagna og gæða
lands okkar. Hann segir að settir
hafi verið fyrirvarar af Islands hálfu,
sem komi í veg fyrir að þetta geti
gerst, fyrirvarar sem „halda", eins
og hann orðar það.
En hvað stendur svo í sjálfum
samningnum? í ijórða kafla hans
stendur orðrétt: „Hvers konar mis-
munun á grundvelli ríkisfangs er
bönnuð á gildissvæði samnings þessa
nema annað leiði af einstökum
ákvæðum hans.” Það eru engar
undanþágur í þessum samningi varð-
andi fyrrgreind atriði, þar virðist allt
vera galopið. Utanríkisráðhen-ann
hefir sagt að setja eigi lög á ís-
landi, sem komi í veg fyrir að þetta
gerist. Þau lög eru ekki fyrirsjáanleg
í dag og engan veginn tryggt, að lög
sem sett verða í. þeim tilgangi að
„mismuna” fólki innan ESS-svæðis-
ins muni ekki valda ágreiningi. Það
mun því, ef að líkum lætur, verða
hlutverk hins erlenda EB/EES -
dómstóls að úrskurða í því máli.
Fáir munu efast um hvemig tekið
yrði á því. Um fjárfestingar útlend-
inga í orkuverum landsmanna og
orkulindum gildir hið sama. Um það
eru engar undanþágur frá almennu
reglunni, um jafnan rétt allra sem
búa á EES-svæðinu, til fjátfestinga
jafnt í orkugeiranum sem og í öllum
öðrum auðlindum þjóðarinnar. Með
fyrirhugaðri einkavæðingu orkuvera,
svo ekki sé nú talað um sömu örlög
ríkisbankanna, þá liggur í augum
uppi að erlend auðfyrirtæki munu
eiga greiðan aðgang að orkufyrir-
tækjunum sem og öllum öðrum fyrir-
tækjum landsmanna. I sjávarútvegs-
málunum hefir verið stigið mikið
óheillaspor með því að samþykkja
veiðiheimildir EB-þjóðanna á einum
af nytjastofnum okkar, veiðiheimild-
ir, sem öll þjóðin var einhuga um
að aldrei mætti aftur veita þessum
þjóðum. Verði þessi heimild staðfest,
verður það mikið óheillaverk. Utan-
ríkisráðherrann hefir staðhæft að
fjárfestingar útlendinga í útgerð og
fiskvinnslu verði ekki leyfðar. Þetta
er hættuleg óskhyggja og hlýtur að
kalla á hörð viðbrögð allra þeirra sem
hafa hagsmuna að gæta á þessu
sviði, en það er mikill meirihluti þjóð-
arinnar. Á grundvelli hins alkunna
leppa-fyrirkomulags og í skjóli
ákvæða um frelsi fjármagnsins til
kaupa á hlutabréfum á „markaðs-
torgum fullveldisins”, munu útlend-
ingar eiga greiðan aðgang til áhrifa,
og jafnvel eignar, á fyrirtækjum í
sjávarútvegi rétt eins og öðrum fyrir-
tækjum í grundvallaratvinnuvegum
þjóðarinnar. Þessi samningur er því
miklu hættulegri fullveldi þjóðarinn-
ar_ en talsmenn Evrópubandalagsins
á íslandi vilja vera láta. í grundvall-
aratriðum er EES-aðild svipuð og
full ábild að EB. Með samningi um
EES undirgangast viðkomandi þjóðir
veruiegt afsal fullveldis m.a. með því
að samþykkja að lúta lögum, reglu-
gerðum og dómsúrskurðum Evrópu-
bandalagsins, ekki aðeins eins og
lögin eru í dag, heldur einnig þeim
lögum sem kunna að verða sett á
komandi tímum. íslendingar verða
að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu
um þetta örlagamál, hér er verið að
ráðskast með sjálfstæði þjóðarinnar
og rétt hennar til þess að ráða málum
sínum sjálf. Hagur nokkurra einka-
fyrirtækja og hlutafélaga réttlætir
ekki að öllu því sem barist var fyrir
um aldir verði í fljótfærni kastað í
hendur útlendinga á nýjan leik. Full-
veldið verður að standa á sterkari
grunni, það má aldrei vera til sölu.
Jóhannes R. Snorrason
íslensk kirkja hvar varstu?
Þegar slys ber að höndum, viljum
við Íslendingar sýna samúð þeim,
er sorgin sækir heim og þar með
láta þá er syrgja vita að hugur
okkar er hjá þeim og að við biðjum
fyrir þeim, en sameiningartákn
okkar þjóðar við slíkar aðstæður
hlýtur að vera þjóðkirkjan.
Ég er viss um að Ríkisútvarpið
hefði ljáð tíma fyrir biskup eða
Um mörg undanfarin ár hafa til-
lögur Hafrannsóknastofnunar um
hæfilega þorskveiði verið rökstuddar
með því, að nauðsyn væri að byggja
þorskstofninn upp til þess að tryggja
viðkomu hans og varanlegan afrakst-
ur. Nú ber svo við, að Svend Aage
Malmberg (SM), einn af sérfræðing-
um stofnunarinnar, bendir á það í
Morgunblaðinu 22. f.m. (í greininni
„Hvers vegna ekki 400 þúsund
tonn?”), „að stærð hrygningarstofns-
ins ... virðist ekki hafa áhrif á nýlið-
un, hún virðist fremur oftast vera
háð árferðinu í sjónum.” Ennfremur
„að lokum, engan skal undra að fisk-
stofnar minnki og stækki eftir því
sem lendur þeirra breytast að víðáttu
og ástandi”.
Þarna er viðurkennt, að æti í sjón-
um sé takmarkað og það komi fram
í stærð fiskstofna. Við sem viljum
læra betur fiskifræði, m.a. af því að
hún er grundvöllur efnahags lands-
ins, þurfum þá næst að vita, hvernig
fiskurinn bregst við minna æti. Kem-
fulltrúa kirkjunnar, til þess að
koma fram fyrir þjóðina í útvarpi
og sjónvarpi daginn eftir hið
hörmulega slys til þess að flytja
Guðs orð og biðja fyrir þeim, sem
sorgin hefur svo átakanlega sótt
heim.
Biðja fyrir sjómönnum okkar,
fjölskyldum þeirra, björgunar-
sveitamönnum og því að okkur
ur kyrkingur í þorskinn? Hefur það
verið mælt? Fer þorskurinn að éta
bræður sína? Er ekki ástæða til að
ganga harðar að þorskinum með
veiðum, þegar náttúran þrengir að
honum? Þrengir það enn að þorskin-
um, að lágmarksmöskvar voru
stækkaðir svo um árið, að fiskar, sem
engar nytjar eru af, svo sem lang-
hali og gulllax, sleppa í gegn og
halda áfram að keppa við þorskinn
um takmarkað æti? Ef þeim væri í
staðirin kastað fyrir borð, gætu þeir
fyllt maga þorsksins. Spurning SM,
hvers vegna ekki 400 þúsund tonn?,
verður enn áleitnari eftir þessa við-
urkenningu á því, að ætið sé tak-
markað.
Nú veiðist ekki síld. í fyrra var
veiði takmörkuð og allmikið skilið
eftir, að talið var, til að tryggja við-
komu hennar. Hefur verið rannsakað
hvort fæðuskortur sé farinn að hijá
síldarstofninn?
Björn S. Stefánsson
mætti auðnast að eignast þau tæki,
sem skortir svo tilfinnanlega í bar-
áttunni við náttúruöfiin.
Biðja fyrir íslenskri þjóð, um
vernd Guðs henni til handa.
Það hefðu verið smyrsl á sárin,
því þótt við séum æði oft sundruð
þjóð, þá sameinar sorgin okkur
meira en allt annað.
íslenska kirkja, þetta var einn
af þínum vitjunartímum. Vertu
vakandi og reiðubúin til þess að
færa okkur líkn í neyð.
Þá ert þú kirkjan okkar og svo
sannarlega þurfum við á sér að
halda.
Jóhann Guðmundsson
Töskur frá Cartier,
Yves Saint Laurent
og Dupont
BORGARKRINGLUNNI,
SI'MI 677230.
Kom kyrkingur
í þorskstofninn?
Þroskandi jólagjöf
Persónulýsing
fjallar um lífsorlcu, tilfinningar, hugsun, ást
og starfsorku. Samantekt á aðalatriðum
Sendum í póstkröfu. Gunnlaugur Guðmundsson,
Afgreiðum kortið samdægurs. Stjörnuspekistöðin,
sími 91-10377.
Við erum flutt í Kjörgarð, Laugavegi 59
I fundaherbergjum ó vinnustöðum
er lögum samkvæmt óheimilt að reykja
nema með samþykki allra viðstaddra!
TÓBAKSVARNANEFND
Skíðapakka
og
kíðagaUaf
flldtt
SKIÐAPAKKAR:
ELU skML UPIW skór,
SILOIHM UniliRt H stafir.
Barnapakki
fró kr. 12.500,-
fraltr. 15.990,-
Fullorðinspakki
fró kr. 19.990,-
Gönguskíðapakki
fro kr. 13.980,-
Barnaskíðagallar
fró kr. 6.880,-
;