Morgunblaðið - 06.12.1991, Side 71
71
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR
6. DESEMBER 1991
HANDKNATTLEIKUR
Rögnvald og Stefán
dæma í B-keppninni
Fyrstu íslensku dómararnir í heimsmeistarakeþpni karla. Fá sennilega
einnig tækifæri á Ólympíuleikunum í Barcelona næsta sumar
RÖGNVALD Erlingsson og
Stefán Arnaldsson dæma í b-
keppninni íhandknattleik, sem
verður í Austurríki í mars á
næsta ári. Dómaranefnd Al-
þjóða handknattleikssam-
bandsins hefur valið 12 pör frá
jafnmörgum þjóðum og hafa
Islendingar ekki áður átt par í
heimsmeistarakeppni karla.
Sennilegt er að sömu pör dæmi
á Ólympíuleikunum í Barcelona
næsta sumar.
Síðustu misseri hafa Rögnvald
og Stefán fengið æ viðameiri
verkefni. Til að mynda dæmdu þeir
fjóra leiki í heimsmeistarakeppni
kvenna í Seoul og síðan í U-21
keppni kvenna í Frakklandi í haust,
þar sem þeir dæmdu m.a. leikinn
um þriðja sætið. „Við höfum fengið
góða dóma hjá dómaranefndinni og
áttum von á að fá verkefni í B-
keppninni, en það hefur loks verið
staðfest,” sagði Rögnvald við Morg-
unblaðið. Hann bætti við að ekki
hefði verið þrautalaust að hljóta náð
fyrir augum ráðandi manna, „en
bronsleikurinn í Frakklandi gerði
útslagið.”
KNATTSPYRNA
á
Júri Sedov.
Júri Sedov til
Siglufjarðar?
Siglfirðingar hafa rætt við Júra
Sedov, fyrrum þjálfara Vík-
ings, og kannað hvort hann væri
tilbúinn að koma aftur til íslands
og þjálfa 3. deildarlið KS næsta
keppnistímabil. Sedov hefur ekki
gefið Siglfirðingum ákveðið svar,
en hann er að kanna málið.
Israelsmenn
með í Evrópu-
keppninni
Israelsmenn verða með í næstu
■ Evrópukeppni félagsliða í knatt-
spyi-nu. Lið frá ísrael fá að senda
lið í Evrópukeppni meistaraliða og
bikarhafa, en ekki í UEFA-bikar-
keppnina. Þetta var gert opinbert
í New York í gær.
FELAGSLIF
Aðalfundur Þórs
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Þórs á Akureyri verður haldinn í
Hamri föstudaginn 13. desember
n.k. og hefst kl. 20.30.
Bestu pörin frá Austurríki, Dan-
mörku, Spáni, Frakklandi, Þýska-
landi, íslandi, Noregi, Svíþjóð,
Tékkoslóvakíu, Sovétríkjunum,
Bandaríkjunum og Júgóslavíu
dæma í B-keppninni, en hætti Dan-
ir, Islendingar eða Norðmenn við
tekur fyrsta par Pólveija við. Ung-
veijar eru varamenn fyrir önnur
pör. 12 til 16 pör dæma á Ólympíu-
leikunum í Barcelona og sagði
Rögnvald að mikið mætti út af
bregða ef farið yrði út fyrir fyrr-
nefndan lista.
Rögnvald og Stefán fá ekki
greitt vinnutap vegna dómgæslu
og taka því út sumarfríið í Austur-
ríki, en þeir dæma leik GOG frá
Danmörku og Linz frá Austurríki
í Evrópukeppni bikarhafa um helg-
ina.
Þrír eftirlitsmenn hjá íslandi
Leikið verður í fjórum riðlum í
B-keppninni og verða þrír eftirlits-
menn í hveijum riðli. ísland er í
a-riðli og þar verða eftirlitsmenn
þeir Bernhard Thiele frá Þýska-
landi, Janis Grinbergas frá Litháen
og Dr. Georg Herrmann frá Þýska-
landi.
Rögnvald Erlingsson
Stefán Arnaldsson
Franska landsliðið út-
nefnt lið ársins 1991
FRANSKA landsliðið, sem lék
stórkostlega gegn íslendingum
í París á dögunum, hefur verið
útnefnt besta lið ársins í heimi
af knattspyrnutímaritinu World
Soccer. Þá var Frakkinn Jean-
Pirre Papin valinn leikmaður
ársins og Michel Platini, lands-
liðsþjálfari Frakka, valinn þjálf-
ari ársins.
Aeftir franska landsliðinu kom
landslið Argentínu, sem varð
S-Ameríkumeistari, og í þriðja sæti
var Evrópumeistaralið Rauðu
Stjörnunnar frá Júgóslavíu.
Papin, sem leikur með Marseille,
segist hafa áhuga á að fara ti!
Ítalíu eftir þetta keppnistímabil
„Eg hef rætt við menn frá AC
Milan, en það eru fleiri góð félög í
Italíu, eins og Napolí, Róma og
Juventus,” segir Papin.
Júgóslavarnir Roberto Prosineck
sem leikur nú með Real Madrid
og Darko Pancev, Rauðu Stjörn-
unni, komu í öðru og þriðja sæti oj.
í tjórða sæti var Mark Hughes
Manchester United.
Þess má geta að Platini, sem ni
var útnefndur þjálfari ársins, va
útnefndur leikmaður ársins hj;
World Soccer þegar hann lék me<
Juventus á árum áður.
ÍÞR&mR
FOLK
M BRODDI Ki'istjánsson hefur
verið valinn badmintonmaður ársins
1991 af stjórn Badmintonsam-
bands Islands. Broddi hefur verið
fremsti badmintonleikmaður hér á
landi um árabii.
■ INGÓLFUR Ingólfsson,
knattspyrnumaður úr Stjöriíunni,
sem hefur ákveðið að ganga til liðs
við Fram, fór ekki til Genk í Belg-
íu, eins og fyrirhugað var.
■ ÍVAR Webster, körfuknatt-
leiksmaður úr KR, hefur gengið til
liðs við ÍR. Webster fékk lítið að
leika með KR-liðinu.
■ GORAN Milojovic frá Júgó-
slavíu, hefur verið ráðinn þjálfari
4. deildarliðsins Neistans á Hofs-
ósi. Goran, sem var eitt sinn hjá
Rauðu Stjörnunni, hefur leikið
með Olympíu, er 28 ára. Hann
kemur til landsins í mars og fer
aftur í september.
■ RALF Sturm, sem verið hefur
varamaður hjá Köln, gerði sigur-
mark liðsins gegn Bochum á laug-
ardaginn. Sturm kom inní liðið fyr-
ir Maurice Banach,
sem lést í hörmulegu
bílslysi í síðustu
viku. Sturm, sem
lék í peisu Banachs,
númer 9, sagði að hann hefði ba-
rist fyrir Banach. Einnar mínútu
þögn var fyrir leikinn til minningar
um Banach og mátti sjá tár falla
hjá mörgum leikmönnum.
■ OLAF Tbon hefur ekki náð sér
að strik hjá Bayern frekar en aðr-
ir leikmenn liðsins. Fréttir herma
að hann sé á förum til Schalke þar
sem hann lék áður en hann kom
til Bayern.
■ ÍSLANDSBANINN Andreas
Thom hefur skrifað undir fjögurra
ára samning við Leverkusen. _Mörg
lið voru á eftir honum frá Ítalíu
og Spáni.
■ STEPHANE Chapuisat, leik-
maður Dortmund, hefur gert
samning við liðið fram til 1993.
Hann var í láni frá Bayer Uerding-
en. Inter Milan og Real Madrid
höðfu sýnt honum áhuga.
■ DORTMUND var í efsta sæti
þýsku úrvalsdeildarinnar í tæpan
sólarhring, eða frá föstudagskvöldi
til laugardags. Það var í fyrsta sinn
í 9 ár sem Dortmund vermdi efsta
sætið.
H ULI Stielike, sem hefur þjálfað
svissneska landsliðið með góðum
árangri, verður líklega ekki áfram
með liðið. Hann bað um að fá að
þjálfa félagslið samhliða landslið-
inu, en svissneska knattspymusam-
bandið neitaði því. Honum hefur
verið boðið að þjálfa svissneska lið-
ið Xamax næsta keppnistímabil.
Frá
Jóni Halldóri
Garðarssyni
iÞýskalandi
Stjómarmenn Skotsambands
Islands á verðlaunaveidum
FIMM skotmenn sendu
Morgunblaðinu eftirfarandi
bréf með ósk um birtingu.
Samkvæmt mótaskrá, sem
Skotsamband íslands birtir
í DV 22. apríl sl., áttu íslandsmót
í Enskri keppni (riffilskotfimi) og
Standard pistol að fara fram 5.
og 12. oktéber sl.
í annað sinn í 40 ár eru slík
mót ekki haldin í maí/júní, að lo-
knu hefðbundnu æfingatímabili
október/apríl.
Skotfélag Reykjavíkur hefur
hingað til eingöngu haft aðstöðu
til æfinga 1. október til 30. apríl
í þessum skotgieinum. Það er því
auðséð að októberbyijun er sá tími
ársins, sem keppendur SR eru í
lélegastri þjálfun.
Dagsetningar ofangreindra
móta eru ákveðnar af stjórn Skot-
með aðstoð stjómar Skotfélags Reykjavíkur
sambands íslands.
Tveir af þremur stjómarmönn-
um Skotsambands íslands, Hann-
es Haraldsson og Eiríkur Björns-
son (keppa fyrir Skotfélag Kópa-
vogs), hafa undanfarin ár verið
helstu keppinautar okkar um
verðlaunasæti í Standard pistol.
Þeir væru því vart sorgmæddir,
þó að undirritaðir væru í lélegri
þjálfun á viðkomandi íslandsmóti.
Skotfélag Kópavogs hefur hins
vegar aðstöðu til æfinga allt árið.
Félagsmenn þeirra (þ. á m. stjóm-
armenn Skotsambands íslands)
geta því verið í góðri þjálfun í
ofangreindum skotgreinum á
þeim árstfma, sem þeir kjósa.
Með því að velja_ ofangreindar
dagsetningar fyrir íslandsmót og
breyta þannig út af þeirri áratuga
gömlu hefð að hafa íslandsmótin
að vori, hefur stjórn Skotsam-
bands íslands (keppendur Skotfé-
lags Kópavogs) verulega aukið
sigurlíkur sínar á þessum mótum.
Þrátt fyrir ítiekaðar áskoranir
okkar til stjórnar Skotfélags
Reykjavíkur fór hún ekki fram á
það við Skotsamband íslands, að
Islandsmótin yrðu haldin sl. vor
þegar félagsmenn SR vom i sem
bestri þjálfun.
Af einhveijum ástæðum fre-
staði stjórn Skotsambands Islands
íslandsmóti í Standard pistol til
7. desember 1991.
Hefðu æfingar hjá SR-í ofan-
gieindum skotgreinum hafist að
venju f byrjun október, gætu fé-
lagsmenn átt möguleika á að
komast í þjálfun fyrir það mót.
Þær æfingar eru enn ekki hafnar,
sem hefur ekki gerst í áratugi.
Núverandi stjórn félagsins virðist
því ætla að tryggja að félagsmenn
SR gangi óþjálfaðir til keppni á
íslandsmótinu 7. desember nk.
Að sögn eins stjórnarmanns
Skotsambands Reykjavíkur munu
æfingar hefjast þegar að Ioknu
íslandsmóti!!!
Af ofangieindum ástæðum
rnunu undirritaðir ekki taka þátt
í íslandsmótum 1991, nema Carl
J. Eiríksson, sem mun keppa fyr-
ir hönd Aftureldingar, Mosfells-
bæ, sem hefur útvegað Carli æf-
ingaaðstöðu.
Björii Birgisson, Árni Þór
Helgason, Svanbjörn Ein-
arsson, Carl J. Eiríksson,
Loftur Harðarson.