Morgunblaðið - 08.12.1991, Side 11
Samkeppni
Fjölmargar þjóðir, sem búa við
atvinnuleysi, einkanlega í þróunar-
löndunum, hafa fylgt fordæmi íra
og eru nú rekin nokkur hundruð
fríiðnaðarsvæði í heiminum. Á öll-
um þessum stöðum eru mikil
fríðindi í boði fyrir þau fyrirtæki
sem þangað vilja koma. Mjög ólík-
legt er að það sé fjárhagslega hag-
kvæmt fyrir íslendinga að keppa á
almennum grundvelli við önnur frí-
iðnaðarsvæði í heiminum um að fá
til sín erlend fyrirtæki. Á meðan
atvinnuástand er jafn gott og raun
ber vitni á íslandi getur varla talist
hagkvæmt að bjóða erlendum fyrir-
tækjum sömu kjör og önnur fríiðn-
aðarsvæði bjóða. Hinsvegar virðist
full þörf á að kanna hvort einhver
erlend fyrirtæki sjái sér hag í því
að koma á lakari kjörum en annars
staðar vegna þeirra sérstöku að-
stæðna sem í boði yrðu, svo sem
jarðhiti, ódýrt rafmagn og vinnuafl
með tækniþekkingu í. sjávarútvegi,
að mestu tollfrjáls aðgangur að
Evrópumörkuðum og lega mitt á
milli Ameríku og Evrópu. Ekki er
vafí á því að fjölmörg íslensk fyrir-
tæki myndu sjá sér hag í því að
reka sína starfsemi á fríiðnaðar-
svæðinu. Varðandi slíkt þyrfti að
kanna hvort fríiðnaðarsvæði sé
hagkvæm leið til þess að efla íslen-
skan útflutningsiðnað eða hvort ein-
hveijar aðrar ráðstafanir væru jafn-
góðar eða betri.”
Ávinningur
Með því að setja á stofn fríiðnað-
arsvæði er verið að hvetja til stofn-
unar atvinnurekstrar sem að öðrum
kosti væri vart mögulegur, eða hag-
kvæmur, í landinu, segja flutnings-
menn jafnframt, en þeir sem helst
virðast hafa áhuga á aðstöðu og
rekstri á fríiðnaðarsvæði á Kefla-
víkurflugvelli, eru aðilar á eftirtöld-
um vettvangi:
a) Japönsk og bandarísk fyrir-
tæki gætu séð sér hag í því að reka
samsetningarverksmiðju hér vegna
nálægðar við Evrópumarkað og
vegna þess tollfrelsis sem þau nytu
gagnvart innflutningi til landa
EFTA og Efnahagsbandalagsins.
b) Sérhæfð alþjóðleg fyrirtæki
gætu séð sér hag í því að reka
vörugeymslur á Keflavíkurflugvelli
vegna hagstæðrar legu hans mitt á
milli Evrópu og Norður-Ameríku.
c) Ekkert fríiðnaðarsvæði í heim-
inum, svo vitað sé, getur boðið upp
á jarðhita, en hann má nýta á ýmsa
vegu í iðanaði. Einnig gæti reynst
hagkvæmt að nýta hann til eldis á
verðmætum krabbadýrum, t.d.
humri og rækju, fiskum og e.t.v.
til kjúklingaeldis í stórum stíl. Toll-
frelsi á fóðri myndi e.t.v. hafa mjög
hvetjandi áhrif á slíka starfsemi.
d) Einn möguleiki enn er að kjöt-
vinnslufyrirtæki kaupi dilkakjöt og
njóti útflutningsbóta á kjötinu eins
og aðrir útflytjendur. Bæði í Fær-
eyjum og á Nýfundnalandi er mark-
aður fyrir unnar kjötvörur sem ís-
lensk kjötvinnslufyrirtæki gætu
hugsanlega komist inn á. Ekki er
þó víst að fríiðnaðarsvæði þurfi til
þess að framkvæma þessa hug-
mynd.
e) Þá eru ýmsir möguleikar fyrir
hendi í rafeindaiðnaði sem er tengd-
ur sjávarútvegi og nýtingu annarra
auðlinda á hafi úti. Ef tækniþekking
er fyrir hendi má þróa upp ný tæki
á þessu sviði vegna þeirrar reynslu
og verkþekkingar sem fyrir hendi
er í fiskvinnslu og sjómennsku.
Einhæfir atvinnuvegir
I skýrslu Byggðastofnunar um
fríiðnaðarsvæði frá því í desember
1987 segir að iðnaður hafi eflst
nokkuð hérlendis á síðustu árum
og fjölbreytni í útflutningi aukist
talsvert. Jafnframt hafi hlutdeild
þjónustu farið vaxandi í útflutningi
og sé þjónusta við varnarliðið og
ferðamenn líklega orðin önnur
mesta gjaldeyrisuppspretta þjóðar-
búsins. „Samt sem áður eru útflutn-
ingsatvinnuvegir okkar einhæfir og
víst að verulegar sveiflur verða í
útflutningstekjum þjóðarbúsins
meðan svo er. Þótt vafalítið megi
vinna meira úr sjávarafurðum okk-
ar og auka ferðamannaþjónustu er
nauðsynlegt að reyna nýjar leiðir
og koma upp fleiri útflutningsgrein-
um sem búa við trausta markaði
og jafnan vöxt. Slíkt verður best
gert með því að styðja við bakið á
nýjum útflutningsfyrirtækjum,
auka tengslin við mikilvægustu
markaðssvæði okkar og fá erlend
fyrirtæki til að fjárfesta hér mun
meira en verið hefur. Jafnframt er
tímabært að gera átak í atvinnulífi
á Suðurnesjum. Stofnun fríiðnaðar-
svæðis sem miðast við sérstakar
aðstæður hér er athyglisverð leið
að þessu marki.”
Niðurstöður
í athugun Byggðastofnunar eru
helstu niðurstöður dregnar saman
í eftirfarandi þætti.
„Fyrirtæki, sem ijárfesta á frí-
iðnaðarsvæðum, eru yfirleitt að
sækjast eftir ódýru vinnuafli eða
ýmsum fríðindum svo sem skattf--
ríðindum. Aðstæður hér virðast
ekki vera neitt betri en annars stað-
ar, til dæmis á írlandi, hvað varðar
almennar aðstæður til iðnrekstrar
enda langt til næstu markaðssvæða
og ýmis þjónusta við atvinnurekstur
fábrotin svo sem bankaþjónusta.
Samkeppnisaðstaða hérlendis
virðist ekki sterk miðað við þann
atvinnurekstur sem einkum leitar á
fríiðnaðarsvæði og þá hörðu sam-
keppni sem er nær alls staðar um
erlend fyrirtæki á milli fríiðnaðar-
svæða og ýmissa þróunarfélaga.
Til að vega upp ókosti við aðstæður
hér þyrfti því sennilega að umbuna
flestum erlendum fyrirtækjum
verulega til að fá þau á „venjulegt”
fríiðnaðarsvæði við Keflavíkurflug-
völl eða annars staðar.
Reynslan af fríiðnaðarsvæðum
er í heild misjöfn og vafasamt að
þær þjóðir sem lagt hafa í slík svæði
hafi hagnast meira á að fjárfesta í
svæðunum fremur en að beina fjár-
magninu í almenna uppbyggingu
innanlands. Niðurstaðan af laus-
legri athugun á reynslu annarra
þjóða er því sú að hér verði ekki
komið upp fríiðnaðarsvæði eða
skyldri starfssemi í þeirri mynd sem
tíðkast hefur meðal annarra þjóða.
Lagt er þó til að skipulegt átak
verði gert til þess að efla útflutning
iðnvarnings og til að fá erlend fyrir:
tæki til að fjárfesta hérlendis. í
þeim tvíþætta tilgangi verði komið
á fót vísi að fríiðnaðarsvæði við
Keflavíkurflugvöll í formi iðngarða
með tollvörugeymsluréttindum. Slík
aðstaða gæti hentað bæði innlend-
um og erlendum fyrirtækjum. At-
vinnurekstur á svæðinu gæti hag-
nýtt sér nálægð Keflavíkurflugvall-
ar og ef til vill lægri vinnulaun sér-
fræðinga til að framleiða vörur eða
hugbúnað tengdan hátækniiðnaði.
Einnig má nota slíka aðstöðu til að
umpakka og dreifa matvælum eða
öðrum vörum til sölu erlendis.
Til þess að af þessu geti orðið
þurfa stjórnvöld að leggja talsvert
af mörkum í samstarfi við heima-
menn. Fyrsta skrefið væri að stofna
hlutafélag um rekstur iðngarða með
tollvörugeymslurétti á sérstöku
svæði við Keflavíkurflugvöll. Þetta
félag gæti byijað á því að gera lóð-
ir byggingarhæfar og kynna hug-
myndina innanlands og utan. Félag-
ið ætti einnig að safna nánari upp-
lýsingum um starfsemi fríiðnaðar-
svæða með því að hafa samband
við til dæmis írska þróunarfélagið
og ýmsar alþjóðastofnanir sem
fjalla um málefni fríiðnaðarsvæða.”
RAÐGREIÐSLUR
TIL18 MÁNAÐA
Raðgreiðslur VISA hafa reynst afar öruggur
og vinsæll greiðslumáti vegna stærri viðskipta,
og til kaupa á varanlegum munum,
svo sem húsbúnaði, heimilistækjum
og innréttingum.
Nú getur þú jafnað út greiðslubyrði þinni á
ódýran og þægilegan hátt á allt að 18 mánuði,
eftir þvi sem þú telur þörf fyrir
og söluaðili samþykkir.
VISA GREIÐSLUÞJÓNUSTA
- SNIÐIN AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM!
Láttu RAÐGREIÐSLUR VISA
létta þér róðurinn...
ÓSKIN RÆTIST
VI5A ISLAND
HÖFÐABAKKA 9, 112 REVKJAVIK
SÍMI 91-671700, FAX 91-673462