Morgunblaðið - 08.12.1991, Síða 35

Morgunblaðið - 08.12.1991, Síða 35
fleiri menn tii greina. Ég vildi ekki blanda mér of mikið inní ráðningu nýs forstjóra enda var það verkefni stjórnar Sambandsins að velja hann. Auðvitað ráðfærðu ýmsir forystu- menn í samvinnuhreyfingunni sig við mig um það mál og ég lét í Ijós skoð- anir mínar á því enda hafði ég ákveðnar hugmyndir um það. Ef ég hefði fengið að ráða hefði ég hiklaust valið Axel Gíslason. Ég treysti honum manna best. En það lá fyrir að hann hafði ekki stuðning ýmissa kaupfélagsstjóra. Ég býst við því að þeim hafi þótt hann full ákveð- inn í viðskiptum við kaupfélögin þeg- ar hann stjórnaði skipadeild Sam- bandsins. Hann fékk því ekki að njóta sannmælis fyrir dugnað sinn og metnað. Axel varð því snemma úr leik í baráttunni um forstjórastólinn og ég gerði mér grein fyrir því að það myndi ekki duga að tefla honum fram, jafnvel þótt hann væri besti kosturinn. Ég og ýmsir fleiri töldu að hleypa þyrfti nýju blóði inn í forstjórastarf- ið. Því var það að augu okkar beind- ust að Guðjóni B. Olafssyni, fram- kvæmdastjóra Iceland Seafood í Bandaríkjunum, sem þá var talinn hafa staðið sig vel fyrir vestan. Guð- jón hafði stuðning fulltrúa sjávarút- vegsins innan Sambandsins. Ég studdi hann einnig þar sem ljóst var að samstaða næðist ekki um Axel. Guðjón vissi hvar ég stóð. Hann hafði nefnt það við mig þegar ég var á ferð fyrir vestan að hann hefði áhuga á því að verða forstjóri Sambandsins. Þegar hér var komið sögu, á fyrri hluta ásins 1985, stóð valið á milli þeirra tveggja, Guðjóns B. Ólafsson- ar og Vals Arnþórssonar. Ymsir kunna að halda að þessi barátta hafi verið hörð en svo var ekki. Þetta var frekar friðsamleg kosningabar- átta, ef svo má að orði komast, þó að fjölmiðlar hafi verið að reyna að stilla þessari forstjóraráðningu upp með átökum innan Sambandsins. Ráðning nýs forstjóra var svo leidd til lykta á fundi stjórnar Sambands- ins 20. maí 1985. Valur Arnþórsson stjórnarformaður ákvað að láta fara fram skriflega skoðanakönnun á því hvern stjórnarmenn vildu ráða næsta forstjóra Sambandsins. Þar sem Valur átti sjálfur hlut að máli tók hann ekki þátt í skoðaná- könnuninni heldur fyrsti varamaður í stjórn, Þorsteinn Sveinsson. Urslit skoðanakönnunarinnar urðu þau að Valur Arnþórsson fékk sex atkvæði en Guðjón B. Ólafsson þijú atkvæði. Þegar þessi úrslit lágu fyrir lýsti Valur því yfir að hann gæfi ekki kost á sér í forstjórastarfið. Hann lýsti því jafnframt yfir að hann vildi stuðla að fullri einingu meðal sam- vinnumanna um þetta mikilvæga starf. Lýstu fundarmenn allir yfir þakklæti og virðingu í garð Vals Arnþórssonar fyrir drengilega og stórmannlega afstöðu. Þessu næst lagði Valur til að leit- að yrði til Guðjóns B. Ólafssonar um að hann tæki forstjórastarfið að sér. í skriflegri atkvæðagreiðslu um þessa tillögu fékk Guðjón öll níu at- kvæði aðalstjórnarmanna Sam- bandsins. Með þessum hætti var ákveðið hver yrði eftirmaður minn. Sagt hef- ur verið að Valur Arnþórsson hafi sóst mjög eftir því að verða forstjóri Sambandsins en ekki viljað taka stöðuna nema hann fengi atkvæði allra stjórnarmanna. Víst má það vera rétt en ég held að hann hefði getað tryggt sér atkvæði allra stjórn- armanna ef hann hefði sótt það fast. Valur hafði hins vegar önnur áform. Fyrir lá að samþykktum Sambands- ins yrði breytt á þann veg að heim- ild yrði veitt til þess að stjórnarform- aður Sambandsins gæti verið þar í fullu starfi. Á þessum tíma taldi ég fullvíst að Valur ætlaði sér að nýta þessa heimild. Ég reiknaði þess vegna með þvl að Valur yrði stjórnar- formaður í fullu starfi þegar Guðjón tæki við, eins og hugur hans stóð til, _en af því varð ekki. Ég held að það hefði verið mjög mikilvægt fyrir Sambandið að fá mann eins og Val Arnþórsson í fullt starf. Það hefði verið kjörið viðfangs- efni fyrir stjórnarformann Sam- bandsins að annast félagsmálastarfið enda er það mjög mikilvægur þáttur í samvinnuhreyfingunni. Á síðustu árum mínum hjá Sam- bandinu var rekstur þess sérstaklega erfiður. Að hluta til var það slæmu itófebÚNBLÁÐÍb' SuWnUdÁGÚR ÍÉsÉlMÚd 1991 Erlendur og Margrét heilsa George Bush Bandaríkjaforseta og Barböru, konu lians, á Hótel Sögu árið 1984. Auk þeirra eru á myndinni lijónin Edda Guðmundsdóttir og Steingrímur Hermannsson, og Ólafur Egilsson sendiherra. Erlendur Einarsson, nýráðinn forstjóri Sambands íslenskra sam- vinnufélaga. árferði að kenna en einnig kom raun- vaxtastefnan mjög illa við okkur, ekki síst eftir að raunvextir hækkuðu jafn mikið og raun var á. Þessir háu raunvextir voru óbærilegir fyrir allan atvinnurekstur og afleiðingar þeirra eru að koma fram enn þann dag í dag. Erfiðleikarnir byijuðu strax árið 1982 þannig að grípa þurfti til að- haldsaðgerða þegar á árinu 1983. Sérstakra aðgerða var einnig þörf á árinu 1985 og aftur árið 1986. Mér var mikið í mun að tekið yrði í taumana árið 1986 og rekstur Sam- bandsins færður í rétt horf. Þetta var síðasta árið mitt sem forstjóri og ég vildi skilja við Sambandið í eins góðri stöðu og frekast var unnt. Þess vegna beitti ég mér fyrir því að ítarlegar tillögur um aðhaldsað- gerðir yrðu samdar og þær tillögur voru síðan lagðar fram á stjórnar- fundi Sambandsins í mars 1986. Þær fólu þaðnneðal annars í sér að hætt yrði við rekstur á deildum og fyrir- tækjum sem rekin voru með tapi, eignir yrðu seldar, framkvæmdum frestað og almenns aðhalds gætt í rekstrinum á sem flestum sviðum. Þessar aðgerðir voru í mörgum liðum. Til dæmis lagði ég til að hætt yrði rekstri kjötiðnaðarstöðvar Sam- bandsins og sú starfsemi færð út í kaupfélögin. Jafnframt lagði ég það til að rekstur Kexverksmiðjunnar Holts, Torgsins og Herraríkis í Glæsibæ yrði lagður niður. Einnig vildi ég að tekin yrði ákvörðun um framtíð ullariðnaðarins og að rekstur á byggingavöruverslun yrði endur- skipulagður. Ég vildi einnig að fræðslu- og kaupfélagadeild yrði lögð niður og skólastjóri Samvinnuskólans yrði ábyrgur fyrir öllum fræðslumálum en kaupfélagaeftirlit færðist yfir í fjárhagsdeild. Þetta var svolítið við- kvæmt því ekki lá fyrir að Kjartan P. Kjartansson, framkvæmdastjóri fræðslu- og kaupfélagadeildar, fengi annað jafn ábyrgðarmikið starf hjá Sambandinu ef deildin hans yrði lögð niður. Við Valur Arnþórsson höfðum unnið að þessum tillögum saman. Guðjón B. Ólafsson fékk að fylgjast með og var þeim samþykkur. Hann sat stjórnarfundinn þegar tillögurnar voru lagðár fram og hann var með- flutningsmaður okkar Vals. Guðjón kvaddi sér einnig hljóðs og lagði áherslu á nauðsyn þess að taka á vandanum. Stjórnin samþykkti þess- ar aðhaldsaðgerðir með örlitlum breytingum. Ég tók þegar til hend- inni við að hrinda þessum aðgerðum í framkvæmd. Margar tillagnanna voru þó þess eðlis að þær þurftu verulegan undirbúningstínia og því gát ég ekki látið nema lítinn hluta þeirra koma til framkvæmda áður en eg hætti. Ég hafði ákveðið að láta af störf- um 1. september 1986. Mér fannst það vel við hæfi að hætta þann dag því þá voru liðin nákvæmlega fjöru- tíu ár frá því 'Samvinnutryggingar voru stofnaðar. Þetta var eftirminni- legur dagur. Hann bytjaði með stjórnarfundi í Sambandinu þar sem ég skilaði formlega af mér og gerði grein fyrir stöðu fyrirtækisins. Ég hélt smáræðu þar sem ég nefndi nokkur atriði í rekstri Sambandsins sem mér voru ofarlega í huga á þess- aristundu. Ég benti á að breytingarnar í þjóð- félaginu væru nú örari en áður. Því væri mikilvægt fyrir stjórnendur að skynja þessar breytingar rétt og bregðast við þeim nógu snemma. Þá minntist ég á fjárhagslega uppbygg- ingu samvinnufélaga og benti á það að hvergi í heiminum væri til þess ætlast að fyrirtæki byggðu upp sterka eiginfjárstöðu með hagnaði eingöngu. Þess vegna yrði fjármagn að koma í gegnum hlutafé eða hlið- stæða eignarhluta. Þessi staðreynd kæmi berlega í ljós í því að ekki hefði verið stofnað nýtt samvinnufé- lag á íslandi í áratugi. Þess í stað hefðu samvinnufélög stofnað hluta- félög þegar þau hefðu lagt út í nýjan atvinnurekstur. Ég nefndi ýmis fleiri brýn mál en lauk ræðu minni með því að minna á þær aðhaldsaðgerðir, sem vora í gangi, og mikilvægi þeirra fyrir rekstur Sambandsins. Eftir hádegi var fundi stjórnar Sambandsins framhaldið. Þá hafði Guðjón tekið formlega við mínu sæti en ég sat aðeins og hlustaði á umræð- ur. Tilfinningar mínar voru blendnar á þessari stundu. Ég fann til léttis að vera laus við þá miklu ábyrgð, sem hvílt hafði á herðum mínum í þrjátíu og tvö ár, en ég fylltist einn- ig söknuði við að kveðja Sambands- húsið þar sem ég hafði unnið ævi- starf mitt, samfellt í fjörutíu ár. Við Margrét vorum nokkni seinna kvödd formlega. Stjórn Sambandsins hélt okkur kveðjuhóf í Lækjar- hvammi á Hótel Sögu en fram- kvæmdastjórnin kvaddi okkur í hófi á Þingholti. Það er víða venja að fráfarandi forstjórar stórfyrirtækja fái skrif- stofu til þess að vinna að ýmsum verkefnum sem þeir hafa með hönd- um. Að eigin ósk fékk ég skrifstofu í húsnæði Samvinnubankans í Bank- astræti og þar fór vel um mig. Ég þurfti ekki að kvíða aðgerðaleysi því ég hafði nóg að gera. Gert var ráð fyrir því að ég yrði eftirmanni mínum til aðstoðar þessa fjóra mánuði sem eftir voru af árinu. Hins vegar kom það mér mjög á óvart að hann hafði aldrei samband við mig þann tíma sem ég átti að vera honum til ráðu- neytis. Hann leitaði engra upplýsinga og sótti engin ráð til mín sem for- vera síns, hvorki varðandi þau mál, sem voru í gangi í Sambandinu þeg- ar ég hætti, né ný mál sem komu upp. Ymsir hafa spurt mig hvers vegna við Guðjón störfuðum ekki meira saman þennan stutta tíma þar sem ég studdi hann til forstjórastarfsins og vænti góðs af störfum hans fyrir Sambandið. Ég kann engin svör við þessari spurningu. Vera má að ein- hveijir innan Sambandsins hafi borið sögur á milli sem skapað hafa tor- tryggni. Hver veit? Að vísu kann það að hafa haft einhver áhrif á sam- starf okkar Guðjóns að okkur varð sundurorða nokkru áður en hann tók við. Það atvik átti sér svolítinn að- draganda. Ákveðið hafði verið fyrir löngu að Eggert Á. Sverrisson, framkvæmda- stjóri fjárhagsdeildar Sambandsins, fengi stöðu framkvæmdastjóra á skrifstofu Sambandsins í London þegar hún losnaði. Ég hafði haft augastað á Þorsteini Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra Steinullarverk- smiðjunnar á Sauðárkróki, í starf framkvæmdastjóra fjárhagsdeildar- innar í stað Eggerts og vissi að hann var tilbúinn í það. Þorsteinn er ákaf- lega hæfur maður og er hann nú aðstoðarbankastjóri Norræna fjár- festingarbankans í Helsingfoi-s. Þegar Guðjón kom til íslands í mars 1986 til þess að sitja áður- nefndan stjórnarfund Sambandsins aegar aðhaldsaðgerðirnar voru á dagskrá ræddi ég við hann og sagði honum að ég hefði góðan mann handa honum, ef hann kærði sig um, til að taka við framkvæmdastjóra- starfi í fjárhagsdeildinni af Eggerti þegar þar að kæmi. Fyrir mín orð ræddi Guðjón við Þorstein. Mér til mikillar undrunar sagði Guðjón eftir þær viðræður að Þorsteinn væri ekki maður að sínu skapi. Ég bað hann að hugsa sig um en hann sagðist ekki þurfa þess. Við ræddum þetta ekkert frekar. í maímánuði kom Guðjón aftur til íslands á aðalfund Iceland Seafood. Þá bað hann mig að finna sig upp á herbergi sitt á Hótel Sögu. Erindið var það að hann vildi að ég segði Sigurði Á. Sigurðssyni, framkvæmd- astjóra skrifstofu Sambandsins í London, upp störfum. Sigurður var einn af þeim mönnum sem ákærðir voru í kaffimálinu og mér var Ijóst að brottvikning hans yröi túlkuð á þann veg að Sambandið væri að viðurkenna sök hans. Það vildi ég síst af öllu. Ég sagði Guðjóni að ég myndi ekki hrófla við Sigurði af þess- um sökum auk þess sem engin ástæða væri til þess að segja honum upp því hann stæði sig vel í starfi. Mér fannst einkennilegt hvað Guð- jón sótti þetta mál fast enda vissi ég ekki hvað bjó undir. Honum var nú orðið heitt í hamsi og hann bein- línis krafðist þess að Eggert Á. . Sverrisson yrði farinn til Londón þegar hann tæki við 1. september því Guðjón vildi fá Kjartan P. Kjart- ansson sér við hlið sem framkvæmd- astjóra fjárhagsdeildar Sambands- ins. Þar kom skýringin. Ég hvikaði ekki frá afstöðu minni og sagði Guð- jóni að hann yrði að sjá um það sjáll’- ur að losa stöðuna í London enda væri stutt þangað til hann tæki við af mér. Þessi framkoma hans kom mér á óvart og ég var mjög hugsi á eftir. Guðjón greip síðan til þess ráðs að færa menn til í starfí í stað þess að beita uppsögnum þannig að fram- kvæmdastjórastaða fjárhagsdeildar losnaði handa Kjartani P. Kjartans- syni strax og Guðjón varð forstjóri. Því hefur stundum verið haldið fram síðar, þegar syrti í álinn hjá Sambandinu, að rekja mætti alla erfiðleika Sambandsins til þess að viðskilnaður minn hafi verið svo slæmur. Margir hafa viljað trúa þessu enda hef ég ekki haft góða aðstöðu til andsvara. Þennan mis- skilning vil ég leiðrétta hér. Út úr ársreikningum Sambandsins og milli- uppgjöri árið 1986 má lesa að staðan var alls ekki slæm. Þvert á móti skilaði ég góðu búi ef litið er á eigna- stöðuna en ég dreg ekki dul á það að reksturinn var erfiður. Erfiðleik- arnir voru þó ekki óyfirstíganlegir. Við höfðum ekki látið reka á reiðan- um þessa síðustu mánuði heldur hafði þegar verið gripið til strangra aðhaldsaðgerða sem vænta mátti mikils af ef þeim yrði fylgt eftir. Á stjómarfundi 1. september 1986, er ég skilaði af mér, gerði ég grein fyrir rekstrarafkomu Sam- bandsins fyrstu sex mánuði ársins samkvæmt milliuppgjöri. Heildar- veltan hafði þá aukist um 9,2% um- fram það sem áætlað var. Hagnaður þetta tímabil var rúmar níutíu og sjö milljónir króna. Þessar tölur bentu til þess að við værum á réttri leið en aðeins lítill hluti af aðhaldsaðgerð-' um hafði þá komist í framkvæmd. Eiginfjárstaða Sambandsins í árslok 1986 var tæpir sex milljarðar ef við framreiknum hana til dagsins í dag og bætum við raunvirði á eign Sam- bandsins í Regin. Það er ekki í mínum verkahring að dæma um rekstur Sambandsins eftir að ég hætti störfum. Hins veg- ar verð ég að segja að það olli mér vonbrigðum þegar ég uppgötvaði það að tillögunum um aðhaldsaðgerðir hafði flestum verið stungið undir stól. í stað þess að framkvæma þær fyllt- ust menn skyndilegri bjartsýni þegar kom fram á árið 1987! Sambandið ætlaði að kaupa Útvegsbankann og stórt landsvæði í Kópavogi fyrir höf- uðstöðvar sínar í framtíðinni. Þetta var gert þó menn hefðu í höndunum stjórnarsamþykkt um að nú ættí að rifa seglin. Þá var ekki verið að tala um slæma stöðu og erfiðan rekstur Sambandsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.