Morgunblaðið - 08.12.1991, Síða 41
MÓRGtJKBÍ.ÁÐID MIIMNI I\IG AWI^^n).'uli^R ^desember 1991
Kristinn Vilhjálms-
son - Minning
Fæddur 29. nóvember 1904
Dáinn 1. desember 1991
Mánudaginn 9. desember verður
jarðsunginn frá Fossvogskapellu
vinur okkar Kristinn Vilhjálmsson.
Kristinn er fæddur og uppalinn í
Tungu í Skutulsfirði við ísafjarðar-
djúp. Hann var kvæntur Helgu Jóns-
dóttur og eignuðust þau fjögur börn.
Bjuggu þau fyrst í Reykjavík en
árið 1949 reistu þau sér heimili í
Kópavogi og voru þau ein af frum-
byggjum þar.
Kristni kynntumst við þegar hann
fluttist til Akureyrar til dóttur sinn-
ar Margrétar og Gunnars Sólnes.
Tókst með okkur mikil og góð vin-
átta. Ætíð er við heimsóttum Norð-
urland áttum við hauk í horni, þar
sem Kristinn var. Hann var einkar
greiðvikinn, lánaði okkur bílinn sinn
ef á þurfti að halda og ekki er hægt
að minnast Kristins án þess að geta
jafnframt um dýrindis pönnukökurn-
ar. Þær bakaði ha'nn af list, sem
enginn fær eftir honum leikið, enda
lét hann sér ekki nægja nema besta
hráefni, 18 egg, ‘A iítri af ijóma og
eitt stórt smjörstykki.
Lífsgleði og þróttur Kristins, þrátt
fyrir háan aldur, vakti aðdáun okk-
ar. Hann fór reglulega í göngutúra
í fjörunni á Akureyri_ og gekk þá
allt að 10 km á dag. Á níræðisaldri
lærði hann sund og hafði gaman af.
Þegar fjölskylda okkar kom til Akur-
eyrar síðastliðið haust, var Kristinn
tilbúinn með skútu, sem hann smíð-
aði fyrir börn sín, fyrir hálfri öld.
Yar skútan hinn mesti kjörgripur.
Ákveðið var að sigla skútunni við
fyrsta tækifæri á Drottningartjörn.
Um leið og viðraði til siglinga kom
Kristinn og skútan var sett á flot.
Undum við hjónin, Kristinn, synir
okkar og vinir þeirra sólríkan eftirm-
iðdag við að sigla skútunni. Var
hópurinn á aldrinum 4 til 86 ára,
því með Kristni var kynslóðabil ekki
til.
Kristinn var ljúfmenni og elskaði
bæði börn og skepnur. Það var í
frásögur fært þegar tík nágranna
hans eignaðist hvolpa, því eftir gotið
færði Kristinn tíkinni ilmandi pönnu-
kökur „á sæng”. Þannig var hann
hugulsamur og nærgætinn við alla.
Við minnumst Kristins með hlýhug
og erum ríkari eftir að hafa fengið
að kynnast slíkum höfðingja.
Við vottum íjölskyldu Kristins
allri einlægar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Kristins Vil-
hjálmssonar.
Inga Sólnes,
Jón Sigurjónsson.
Mánudaginn 9. desember verður
Kristinn Vilhjálmsson borinn til
grafar í Fossvogskirkjugarði.
Kristinn var fæddur í Tungu í
Skutulsfirði sonur hjónanna Vil-
hjáhns Bessa Pálssonar sjómanns
og bónda þar og Margrétar Jónsdótt-
ur. Þar ólst hann upp í hópi fimm
systkina og átti þar heima til tutt-
ugu og sjö ára aldurs er hann flutti
til Reykjavíkur ásamt Helgu Jóns-
dóttur konuefni sínu, sem var ættuð
frá Hvammi í Dýrafirði. Þau giftu
sig sama ár og hófu þar sinn bú-
skap. Þau eignuðust ijögur börn:
Auði, sem nú er látin, Margréti,
búsetta á Akureyri, Vilhjálm Bessa
og Einar Kari sem búsettir eru í
Reykjavík. Fjölskyldan fluttist árið
1945 í Kópavog og urðu því ein af
frumbyggjum bæjarins.
Starfsævi Kristins var óvenju löng
eða frá barnæsku til áttatíu og eins
árs aldurs er heilsa hans bilaði. Fyrst
við búskap og sjómennsku á æsku-
stöðvunum og víðar, en þó lengst af
í húsgagnaiðnaðinum. Nánar tiltekið
við krómun húsgagna, en við það
vann hann í rúm fimmtíu ár, þar af
í fjörtíu og sjö ár hjá fyrirtækinu
Króm og málmhúðun.
Meðan Kristinn bjó í Kópavogi
átti hann smábát og stundaði á hon-
um grásleppuveiðar á vorin og hand-
færaveiðar og skytterí á öðrum tím-
um árs. Hann hafði yndi af ferðalög-
um og útiveru og ferðaðist mikið
um landið allt fram á síðasta ár.
Oft tengdust þessar ferðir veiðiskap
og beijatínslu. Eftir að Kristinn
fluttist til Akureyrar fór hann í dag-
legar gönguferðir eftir Aðalstræti
allt til síðasta dags.
Hann var mikill áhugamaður um
íþróttir og var knattspyrnan þar í
öndvegi. Kristinn var sérlega hagur
og liggja eftir hann margir fallegir
smiðsgripir, meðal annars listilega
gerðar seglskútur, sem þeir feðgar
sigldu hér áður fyrr á tjörninni í
Reykjavík.
I einu var hann algjör snillingur,
en það var í pönnukökubakstri og
eru pönnukökurnar hans frægar víða
um land.
Kristinn las mikið íslenskar bók-
menntir og fylgdist með daglegri
umræðu fram á síðasta dag. Hann
var ekki maður hástemmdra yfirlýs-
inga, en hafði sínar skoðanir og
fylgdi þeim. Hann var skýr í hugs-
un, hafði gott minni og sagði vel
frá. Kíminn var karlinn og var jafn-
an stutt í grínið hjá honum. Kæmi
maður fisklaus úr veiðiferð, þá lét
hann mann heyra það á sinn góðlát-
lega hátt að ekki væri maður nú
mikill veiðimaður. Hann samgladdist
fólki líka innilega og var stoltur af
sínum nánustu þegar vel gekk í leik
eða starfi.
Síðustu æviárin dvaldi Kristinn á
heimili Margrétar dóttur sinnar og
Gunnars Sólnes manns hennar í
Aðalstræti 82, Akureyri. Hjá þeim
leið honum mjög vel og eignaðist
þar fjölda nýrra vina.
Um leið og ég votta börnum hans,
tengdafólki og ættingjum samúð
mína, kveð ég góðan vin.
Þorleifur Stefánsson
+
Kveðjuathöfn um móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
JÓNU JÓNSDÓTTUR
frá ísafirði,
til heimilis íÁlfheimum 25,
Reykjavík,
verður í Fossvogskapellu mánudaginn 9. desember kl. 10.30.
Jarðarförin fer fram frá ísafjarðarkapellu fimmtudaginn 1 2. desem-
ber kl. 14.00.
Ása Fanney Þorgeirsdóttir, Páll Lúðvíksson,
Ólafur Þorgeirsson,
Jóhann Þorgeirsson, Ingibjörg Magnúsdóttir.
Þorgeir Pálsson, Hildur Pálsdóttir,
Páll Reynir Pálsson
og barnabarnabörn.
t
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall
og útför konu minnar, móður okkar, dóttur, systur og mágkonu,
ODDNÝAR STELLU ÓSKARSDÓTTUR,
Hellisgötu 5,
Hafnarfirði.
Óskar John Bates,
Nikulás Óskarsson,
Óskar Kristinn Óskarsson,
Þuríður Óskarsdóttir,
Una Nikulásdóttir,
Borgþóra Gréta Óskarsdóttir, Hannes Benediktsson,
Nikulás Óskarsson, Kristólina Jónsdóttir,
Örn Ægir Óskarsson, Elín Guðmundsdóttir,
Kristínn Karlsson.
+
Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og lan-
gafa,
STEINÞÓRS SIGHVATSSONAR,
Vatnsnesvegi 36,
Keflavik.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hlévangs og Garðvangs.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Stefánsdóttir,
Lára Steinþórsdóttir, Bragi Magnússon,
Unnur Ingunn Steinþórsdóttir, Jón William Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
H Ó T E 'L Ö R K
19 9 2
Veittu konunni, foreldrum eða vinum
birtu í skammdeginu
STJÖRNUDAGAR:
5 daga lykill, mánudagur til fösludags.
Innifalið: 5 dagar, 4 nætur,
morgunverðir, 3ja rétta kvöldverðir.
Fyrir manninn í 2ja manna herb. kr. 12.900,-
HELGARLYKILL:
föstudagur, laugardagur, sunnudagur
lnnifalið: 3 dagar, 2 nætur,
morgunverðir, 3ja rétta kvöldverðir.
Fyrir manninn í 2ja manna herb. kr. 10.900,-
HVUNNDAGSÞRENNA: 3ja daga lykill,
mánudagur til miðvikudags/miðvikudagur til föstudags
Innifalið: 3 dagar 2 nætur,
morgunverðir, 3ja rétta kvöldverðir
Fyrir manninn í 2ja manna herb. kn 6.900,-
Með
gjafalykli
er hægt að bóka
út allt árið 1992
E
RABGRBÐSLUR
Þar að auki fylgir: Aðgangur að sundlaug vatnsrennibraut,
líkamsrækt, gufubaði, heitum pottum, golfvelli, dansleikjum,
hárgreiðslustofu ofl.
Á ölltun herbergjum er gervihnattasjónvarp, sími og minibar
Hringdu strox við erum við símann.
HÓTELÖQK
Upplýsingar ogpantanir í síma 98-34700
Verið velkomin í
jólagjafahús
Hótel Arkarí
Kringlunni
SöluaOllan Hotel Arkar á landsbyggölnnl
eru m.a.:
Vesturland
Xkranes: UmboStekrltstolan
EarOabraut 2, s. 83-12800.
Borgarnes: Magnús Valsson, s. 88- 71282.
BrundarfjiirSur: FluglalBaumboS, s. 83-88655.
Ólafsvík: VlSsklptablónustan, s. 83-81480.
Stykklshólmur: ÞorSur ÞórBarson,
S. 83-81288.
BóSardalur: Melkorka Banedlktsdóttlr,
S. 88-41415.
Vestfirðlr
IsatjörOur: Últar Xgóstsson, s. 84- 4150.
Bíldudalur: FlnnbJörn BJarnason, s. 84-2151.
Suðurland
KeDavik: UmboOsskrltstola Helga Hólm,
S. 82-15880.
Grlndavík: Rakkarlnn, t. 82-88080.
Hella/Hvolisvöllur: UmboOsskrHstolan Hellu,
1.88-75185.
Vestmannaeyjar:
FarOabJónusta Vestmannaeyjar, s. 88-12822.
Austurland
SeyölstJörOur: FJörOur ht„ s. 87- 21555.
NaskaupsstaSur: Slgtós GuOmundsson,
S. 87-71118.
EskltJörOur: Erna Nlelsen, s. 87- 81181.
EgllsstaBur: FerfiamlOstöO austurlands,
S. 87-12000.
Hötn: Jólia bnaland, i. 87-81888 — 87-81248
Norðurland
Akureyrl: Ferðaskrlfstola Akurayrar,
1.86-25000.
SiuOárkrókur: FerOapJonusta Arna Btöndal, t
85-85223.
Hóaavik: FarOaakrlfatota Hósavikur,
t. 88-42100.
SlgluTJörOur: Oddný Jóhannsdóttlr,
S. 88-61405.
Dalvik/ÓtslslJ.: Arnl Jóliusson, t. 68-61405.
Blöndós: Slgurbur Kr. Jónsson, s. 85-24222.