Morgunblaðið - 08.12.1991, Side 42

Morgunblaðið - 08.12.1991, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR.&UNNUBA£UR,8. DESEMBER 1991 Helga Pétursdóttir, Akureyri Fædd 26. maí 1905 Dáin 2. desember 1991 Ég minnist hennar Helgu langömmu minnar með söknuði og sendi henni kveðju með ljóði Davíðs Stefánssonar, Skógarhind: Langt inn í skóginn leitar hindin særð og leynist þar, sem enginn hjörtur býr, en yfir hana færist fró og værð. Svo fj'arar lífíð út. Ó, kviku dýr, reikið þið hægt, er rokkva tekur að og ijúfíð ekki heilög skógarvé, því lítil hind, sem fann sér felustað vill fá að deyja ein á bak við tré. Um blóð, sem fyrr var bæði ungt og heitt, mun bleikur mosinn engum segja neitt. Er fuglar he§a flug og morgunsöng og fagna því, að Ijómar dagur nýr, þá koma öll hin ungu, þyrstu dýr að uppsprettunnar silfurtæru lind - öll, nema þessi eina, hvíta hind. Edda María Vignisdóttir Nú er hún elskulega amma mín dáin. Eftir annasama ævi kvaddi hún þennan heim að morgni 2. des- ember sl. eftir að hafa legið á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri um nokkurra ára skeið. Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi - Minning að alast upp hjá ömmu minni og nöfnu að stórum hluta fram á ungl- ingsár. Ég stend í þakkarskuld við hana fyrir alla þá hjálp og allan þann stuðning sem hún hefur veitt mér í gegnum tíðina og þá sérstak- lega eftir að ég eignaðist dóttur mína, Eddu Maríu. Hún taldi það ekki eftir sér að sauma allan fatnað á hana og studdi mig á ýmsa lund þrátt fyrir takmarkaðan efnahag. Þannig er henni rétt lýst. Alltaf boðin og búin að rétt hjálparhönd. Mér er einkum minnisstætt hversu gott vald amma mín hafði á töluðu íslensku máli. Kjarngott íslenskt mál rann af vörum hennar og var unun að hlýða á frásagnir hennar af liðnum atburðum. Við deildum herbergi í þá daga og oft þegar búið varð að þvo upp og ganga frá settist hún við sauma en lét mig lesa upphátt fyrir sig ýmsan þjólegan fróðleik. Þannig fræddist ég um ýmsa hluti sem ég mun búa lengi að meðan hún hélt sinni vinnu áfram. Það var notalegt að sofna hjá ömmu að loknum annasömum degi. I huga mínum mun minnin^in lifa um þessa snaggaralegu ömmu mína, með flétturnar niður á hné, sem góðs uppalanda, manneskju sem allir dáðu og virtu fyrir rétt- sýni. Kvikar hreyfingar hennar, hvellur hlátur sem alla smitaði og kleinuilmurinn úr eldhúsinu á Norð- t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa. ÞÓRÐAR JÓNSÞORVARÐARSONAR, Birkihvammi 6, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við Sverri Bergmann, lækni, og öðrum læknum og hjúkrunarfólki á deild 32A, Landspítalanum. Sjöfn Bachmann Bessadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. urgötu 33 eru minningar sem öll barnabörnin hennar mun trúlega minnast um ókomin ár. Trúrækni, sjálfsbjargarviðleitni, kurteisi og mannrækt voru hennar einkunnarorð. Hún fór sínar eigin ótroðnu leiðir til að ná fram þessum uppeldismarkmiðum sínum. Hún Helga amma mín var skapstór manneskja, bar höfuðið ávallt hátt og studdi eftir föngum börn sín og barnabörn af elju og dugnaði í gegnum lífið. Helga fæddist 26. maí árið 1905 að Gauksstöðum á Skaga í Skaga- fjarðarsýslu. Hún var dóttir hjón- anna Péturs Björnssonar, bónda, sem var af Skeggstaðaætt í Húna- vatnssýslu, og konu hans Ingibjarg- ar Bjarnadóttur. Leið ömmu minnar lá í Húsmæð- raskólann á Blönduósi sem í þá daga var tveggja vetra skóli. Seinna fór hún til Akureyrar og lærði þar karlmannafatasaum. Eftir það lá leið hennar til Sauðárkróks og kynnist hún þar manni sínum, Bjarna Sigurðssyni, útgerðar- og sjómanni. Hún var 23 ára þegar þau giftu sig. Bjarni fórst í aftaka- veðri sjö árum síðar, þann 14. des- ember 1935, með allri sinni áhöfn af bátnum Oldunni. Börn þeirra voru: Ingibjörg Alda, húsmóðir sem var gift Magnúsi E. Guðjónssyni, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem lést fyrir rúmu ári. Fyrri mað- ur Öldu var Stefán Skaftason, læknir. Sigrún, verslunarmaður sem er gift Sigurði Garðarssyni, verslunarmanni. Guðrún Sigurlaug sem lést 8 ára að aldri og Bjarni, kaupmaður á Akureyri, sem er gift- ur Jónu Baldursdóttur, húsmóður. Við barnabörn Helgu erum níu og barnabarnabörnin eru sjö tals- ins. Helga átti bróður er dó ungur en fósturbróðir hennar var Pétur Laxdal, húsasmíðameistari. Með þeim voru ávallt miklir kærleikar og talaði hún oft um þann mikla styrk. sem Pétur bróðir sinn hefði veitt sér. Árið 1945 fluttist hún til Akur- eyrar og vann þar við að sauma herraföt en auk þess þótti hún lista- manneskja í að sauma íslenska þjóðbúninginn. Fyrir hugskotsjónum mínum stendur arnma mín fyrir framan spegilinn og er að kemba hár sitt og flétta - hún hlær öðru hvoru og strýkur gleðitárin úr augunum. Hafi elsku amma mín þökk fyrir uppeldið og allar ráðleggingarnar. Hafðu þökk mína fyrir að hafa ver- ið mér ávallt innan handar. Með söknuði ég kveð ömmu - um sinn. Hún fölnaði, bliknaði fagra rósin mín, því frostið var napurt. Hún hneigði til foldar hin blíðu blöð sín, við banastnð dapurt. En guð hana í dauðanum hneigði sér að hjarta og himindýrð tindrandi um krónuna bjarta. Sof, rósin mín í ró, í djúpri ró. (Guðm. Guðmundsson) Hauður Helga Stefánsdóttir Helga frænka mín er látin í hárri elli. Eins óhjákvæmilegur og dauðinn er öldruðu fólki, þá fyllist maður samt tómleika í hvert sinn sem fréttir berast af láti ættingja og vinar. Helga fæddist 26. maí 1905 að Gauksstöðum á Skaga, dóttir hjón- anna Péturs Björnssonar bónda þar, og Ingibjargar Bjarnadóttur konu hans. Helga var einasta bam þeirra hjóna, þar til þau léðu ungri ófrískri konu, vestan af Ijörðum húsaskjól, þegar hún hrökklaðist úr fyrri vist. Þegar barnið fæddist var það skírt Pétur í höfuðið á velgjörðarmanni t Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug við andlát föður okkar og tengdaföður, HAUKS EINARSSONAR prentara frá Miðdal. Fyrir hönd vandamanna. Rúnar Hauksson, Erla Hauksdóttir, Brynja Guttormsdóttir, Kjell Gustavsson. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, HARALDAR ÓLAFSSONAR sjómanns, Sjafnargötu 10, Reykjavík. f Ólafur Haraldsson Ásgerður Höskuldsdóttir, Hörður Haraldsson, Haraldur Haraldsson, Ragnheiður Snorradóttir, Rafn Haraldsson, Sigurbjörg Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför GUNNLAUGS JÓNASSONAR, Seyðisfirði, og virðingu sýnda minningu hans. Vilhelmína Jónsdóttir, Áslaug G. Nielsen, Jónas Gunnlaugsson, Hallfriður Gunnlaugsdóttir, Lárus Gunnlaugsson, Jón Gunnlaugsson, Margrét Pétursdóttir, Bjarni Þorsteinsson, Halia Gísladóttir, Pálína Karlsdóttir, Hildur Hjörleifs- dóttir - Kveðja barnabörn og barnabarnabörn. Fædd 10. mars 1972 Dáin 26. nóvember 1991 Til eru fræ, sem fengu þennan dóm: að falla í jörð, en verða aldrei blóm. Eins eru skip, sem aldrei landi ná, og iðgræn lönd, er sökkva í djúpin blá, og von, sem hefir vængi sína misst, og varir, sem að aldrei geta kysst, og elskendur, sem aldrei geta mæst, og aldrei geta sumir draumar ræst. Til eru Ijóð, sem lifna og deyja í senn og lítil böm, sem aldrei verða menn. (Davíð Stefánsson) Þótt kynni okkar Hildar Hjör- leifsdóttur yrðu aððins tveir og hálf- ur vetur fór ekki fram hjá mér hve einstök manneskja hún var. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Hérranótt Sérfræðingar í blómaskreytingum viö öll tækifæri blómaverkstæði ®INNA Skólavörðustíg 12 á horni Bergstaðastrætis sími 19090 veturinn 1989-90. Þar kom strax í ljós hve ríkum leikarahæfileikum hún var búin. Hún náði svo skemmtilegum tökum á hlutverki sínu að erfitt var að trúa að húrt væri ekki í raun og veru írskur prestur heldur ung menntaskóla- stúlk-a í Reykjavík. Eftir þessa ánægjulegu samveru í leik og starfí gladdist ég mjög þegar í ljós kom haustið eftir að Hildur yrði ekki aðeins með mér í bekk heldur einnig í fyrstu deild fornmála, svo að við urðum þá tvær stúlkur og tveir piltar. í svo fá- mennri deild þar sem aðeins fjórir nemendur glímdu í sameiningu við grísku og goðafræði fór ekki hjá, að samskipti yrðu mjög náin. Við Hildur skiptumst oft á glósum og hún hringdi stundum til mín til að ræða námsefni næsta dags, beyg- ingar og málfræði þessa forna tungumáls sem var okkur svo fjar- lægt. Oft spunnust þá skemmtileg- ar og flóknar umræður um kviður Hómers eða túlkanir á heimspeki Sókratesar. Við unnum einnig saman ásamt öðrum að næstu sýningu Herranæt- ur. Nú fengu hæfileikar Hildar enn betur notið sín í stóru og marg- brotnu hlutverki. Kom þá skýrt í ljós hve tilfinningarík sál bjó í þess- ari stúlku. Hugsanir Hildar beindust oft inn á brautir sem fæst okkar hinna lögðu leið sína um færði þá jafnan rök fyrir máli sínu, enda ákveðin í skapi og lá ekki á skoðunum sínum. sínum. Móðir þess dó, þegar snáð- inn var rétt ársgamall, og tóku Pétur og Ingibjörg hann þá að sér, sem sitt barn, og slepptu ekki af honum hendinni síðan. Þannig eignaðist ég föðursystur, sem ég kveð nú með þakklæti fyrir ótaldar samverustundir. Helga giftist ung Bjarna Sigurðs- syni sjómanni á Sauðárkróki. Þau eignuðust fjögur börn og af þeim komust þijú til fullorðinsára. Alda, ekkja eftir Magnús Guð- jónsson framkvæmdastjóra Sam- bands ísl. sveitarfélaga, og áður bæjarstjóra á Akureyri. Sigrún, tannsmiður, gift Sigurði Garðars- syni verslunarmanni. Guðrún Sigur- laug, sem lést vegna veikinda 1940 aðeins 8 ára að aldri. Bjarni, kaup- maður á Akureyri, kvæntur Jónu Baldvinsdóttur. 14. desember árið 1935 gerði mikið mannskaðaveður á Skaga- firði. Margir bátar voru á sjó og náðu þeir ekki allir landi. Meðal þeirra sem fórust var Bjarni Sig- urðsson. Sonur hans nýfæddur var skírður yfir kistu föður síns og gefíð hans nafn. Þau hafa verið dapurleg þessi jól í litlu sjávarþorpi, þegar margir höfðu misst ástvini eða ættingja og allir í plássinu vini. Það er erfitt fyrir íslending nú- tímans að gera sér í hugarlund lífs- baráttu kreppuáranna. Enn erfiðara er að ímynda sér aðstæður ein- stæðrar móður með fjögur börn á þeim tímum. Engin félagsleg hjálp var boðin fram, engar tiyggingar léttu lífsbaráttuna. Annað hvort var að bjarga sér sjálfur eða segja sig til sveitar og glata með því öllum almennum mannréttindum. Helga Pétursdóttir bað engan um hjálp. Hún vann við saumaskap og þótti ákaflega vönduð og sanngjörn saumakona, þannig að oftast voru verkefni næg og þegar þrengdi að ijárhagslega var ráðið bara eitt; vinna lengur og sofa skemur. Helga fluttist með fjölskyldu sína til Akureyrar árið 1945 og vann þar áfram við saumaskap. Helga vann mikið heima og kannski þess vegna var hún svo fastur punktur í tilverunni. Það var alltaf hægt að ganga að henni vísri heima. Hún vann mikið við að sauma í september hittist bekkurinn okkar á ný að liðnu fögru sumri og lagði ótrauður í lokaáfangann fyrir stúdentspróf. Allt lék í lyndi og við okkur brosti framtíðin björt og heillandi. Þá allt í einu þyrmdi yfir okkur við helfregn sem batt harkalegan endi á gleðina: Hildur er dáin. Við dijúpum höfði harmi slegin og fáum ekki skilið hver tilgangur- inn geti verið með ótímabærum dauða svo ungrar og göfugrar stúlku. Hópurinn sem býst til prófs í vor verður ekki eins og við höfðum vonað vegna þess að Hildi vantar. En þótt hún sé horfin fær ekkert máð minningu hennar úr hjarta okkar. Full sorgar og saknaðar kveð ég kæran vin. Ég votta ástvinum hennar ein- læga samúð. Æsa Strand Viðarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.