Morgunblaðið - 08.12.1991, Page 50
50
MORGU'NBtAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. 'DESEMBER’ 1991
*
Eggertlsdal - Kveðja
Fæddur 3. september 1910
Dáinn 1. nóvember 1991
Sá sem rekur fyrirtæki í hálfa
öld, þarf stundum að auglýsa eftir
fólki til starfa. Það var ekki mjög
oft auglýst eftir fólki hér á árum
áður, því starfsmenn komu ekki og
fóru, eins og stundum vill verða,
þegar vinnuframboð er meira. En
þegar auglýst var komu venjulega
margir, og þá var vandasamt að
velja úr hópnum.
Það var aðeins tvisvar, sem mér
var þetta auðvelt, þó oftast rættist
vel_ úr mannaráðningum.
í seinna skiptið réð ég Eggert
ísdal úr hópi margra álitlegra
manna. Ég þekkti hann ekkert, vissi
engin deili á honum, en mér fannst
strax að þetta væri rétti maðurinn,
og það reyndist svo vera.
Hann var húsvörður við fjöl-
skyldueign okkar Laugaveg 26 í 8
ár, og lést að kvöldi föstudags,
þann 1. nóvember sl., á 82. aldurs-
ári.
Eggert aðstoðaði starfsmenn og
leigjendur, hjálpaði til við rekstur
fyrirtækja okkar í húsinu og var í
hvívetna hin ágætasti starfsmaður.
Orðið starfsmaður nær engan veg-
inn nógu langt, þegar Eggert á í
hlut, því hann tók sér ekki afmark-
aðan verkahring, heldur hugsaði
um allt sem hann ætti það sjálfur.
Hann var í raun og veru orðinn
einn af okkur, félagi og vinur.
Eggert var framúrskarandi hag-
ur og hafði margvísleg áhugamál.
Hann smíðaði t.d. fullbúin skipa-
módel af mikilli leikni, gerði við
flókin gangverk og tæki, fékkst við
ættfræði og margt fleira mætti
nefna. Hann var ákaflega vel látinn
af starfsmönnum sem öðrum,
greindur og hlýr, áreiðanlegur og
fastur fyrir.
Við Eggert ræddum oft saman
um ýmis málefni, en aldrei um hans
uppruna eða.lífshlaup. Það, sem hér
er sagt, eru því aðeins augnabliks
drættir frá samstarfsárum okkar,
hripaðir úr fjarlægð, ófullnægjandi
ævikaflalýsing á eftirtektarverðum
samferðamanni.
Við Sigurður sonur minn áttum
mest saman við Eggert að sælda
þessi 8 ár og þar bar aldrei neinn
skugga á. Hann starfaði hjá okkur
fram eftir þessu ári, svo lengi sem
hann óskaði. Andlega sterkir menn
koma manni meir á óvart. Manni
finnst eins og þeir falli skyndilega
og óvænt í valinn.
Það er víst að Eggerti ísdal fylgja
hugheilar góðar óskir margra, sem
kynntust honum í húsinu á Lauga-
vegi 26, og við Sigurður vottum
honum sérstaka virðingu og þakkir
fyrir hönd okkar manna.
Við kveðjum þennan ágæta sam-
starfsmann og vin, og biðjum hon-
um blessunar Guðs á hinum
óþekktu leiðum. Aðstandendum
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Jarðarförin hefur farið fram.
Hjörtur Jónsson, Sigurður
Hjartarson.
Kveðja
Sál mín fyigir þér
unz hún nær þér að lokum
í skýjum uppi.
Að við séum að skilja,
ástin mín, þar skjátlaðist þér.
(K.F.)
Það fylgir því undarleg tilfínning
að afi skuli vera horfinn af sjónar-
sviðinu. Þetta skeði allt svo snöggt
að manni gafst varla tími til að
átta sig.
Nú mætumst við afi ekki lengur
Birtíng afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið ér við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
AÐVENTUTILBOÐ
A HOLTI
A HÓTEL HOLTI VERÐUR TILBOÐ ÍHÁDEGINU
ALLA ADVENTUNA, SEM SAMANSTEDNDUR AF
FORRÉTTIR, AÐALRÉTTI OG EFTIRRÉTTI, ÞAR
SEM ÁHERSLA ER LÖGD Á GÆÐI í HRÁEFNI,
MATREIÐSLUOG ÞJÓNUSTU.
TILBOÐIÐ GILDIR ÍHÁDEGI
ALLA DAGA VIKUNNAR
ÞRÍRÉTTAÐUR
HÁDEGISVERÐUR . ii .
FRÁ KR. 1.195.-
Bergstaðastræti 37,
sími 91-25700
CHATEAUX.
á Laugaveginum. Við setjumst ekki
saman til að ræða stjörnuspeki, hin
ýmsu andlegu málefni, tilfinningar
og duttlunga lífsins.
Þegar ég var smástelpa minnti
afi mig eitthverra hluta vegna á
jólasveininn. Ég held það hafi verið
nefið hans, stórt og rautt, í mínum
augum, og ekki var verra að hann
gat látið tísta í nefinu með því einu
að þrýsta á það. Hann lumaði líka
alltaf á eitthveiju góðgæti. Þær
voru ófáar ökuferðirnar semí hann
fór með okkur systkinin í. Þá var
ýmist farið niður að höfn eða í fu-
glaskoðunarferðir út á Alftanes.
Þar kenndi hann okkur að þekkja
í sundur hinar ýmsu fuglategundir.
Ég kynntist afa á nýjan hátt fyr-
ir tæpum 10 árum. Við höfðum
bæði gengið í gegnum tímabil erfið-
leika og komumst að raun um að
við áttum margt sameiginlegt. Þrátt
fyrir að við byggjum í sitt hvoru
landinu tókst með okkur mjög gott
trúnaðarsamband og mér hlýnaði
svo sannarlega um hjartaræturnar
í hvert sinn sem mér barst bréf frá
afa.
IngibjörgE. Kristíns-
dóttír — Minning
Fædd 3. ágúst 1903
Dáin 4. október 1991
Þann 15. október síðastliðinn var
gerð frá Ólafsvallakirkju útför Ingi-
bjargar E. Kristinsdóttur. Sendi ég
henni hér með síðbúna kveðju.
Ingibjörg er fædd 3. ágúst 1903
á Ingveldarstöðum á Reykjaströnd,
Skagafirði. Foreldrar hennar voru
hjónin Sigurlína Gísladóttir frá í
Neðra-Asi, Hjaltadal, og Kristinn
Erlendsson frá Gröf í Hofshreppi.
Alsystkinin urðu níu og ein hálf-
systir. Afþeim hafa nú kvatt okkur
Kristín, Asta, Ingibjörg, Konráð,
Guðberg, Erlendur og Margrét, en
eftir lifa Líney, Auður og Gísli.
Þriggja ára fer Ingibjörg til Lilju
móðursystur sinnar T Stóru-Más-
tungu í Gnúpveijahreppi og dvelur
þar til tíu ára aldurs. Þá fer hún
norður að Reykjum í Hjaltadal til
frænda síns Ástvalds Jóhannesson-
ar og konu hans Guðleifar Halldórs-
dóttur sem Ingibjörgu var mjög
kær. Eftir aðeins tveggja ára dvöl
á Reykjum fer hún til Sigurbjörns
Gíslasonar móðurbróður síns að Ási
í Reykjavík, nú Sólvallagata 23.
Þung raun hefur það verið for-
eldium hennar að láta hana frá sér
svo unga en sárabót að hún var hjá
góðu fólki sem reyndist henni vel.
Á meðan hún dvaldist í Ási var hún
kaupakona að sumrinu í Stóru-
Mástungu og var svo til tvítugsald-
urs. I Stóru-Mástungu kynntist hún
mannsefni sínu, Eiríki Eiríkssyni
frá Votumýri á Skeiðum, sem var
þar kaupamaður hjá Þórdísi systur
sinni. Eiríkur var dagfarsprúður,
mikið ljúfmenni sem allir dáðu og
virtu sem honum kynntust.
Ingibjörg og Eiríkur gengu í
hjónaband 4. desember 1927. Fram
á vor 1928 var Ingibjörg húskona
í Skeiðháholti hjá Jóni mági sínum
við gott atlæti, en á sama tíma var
Eiríkur við vinnu í Reykjavík. Um
vorið fóru þau í húsmennsku að
Stóru-Mástungu, þar sem þeim
fæddist dóttirin Kristín Sigurlína.
Árið 1929 leigðu þau Fjall á
Skeiðum og bjuggu þar í þijú ár,
og eignuðust þar soninn Vilhjálm
Halldór.
Árið 1932 festu þau kaup á Borg-
arkoti á Skeiðum, þar sem þau
byggðu upp og ræktuðu. í Borgar-
koti eignuðust þau Ástvald, Leif og
Guðrúnu.
I Borgarkoti bjuggu þau til ársins
1955, en fjölskyldan flutti að
Hlemmiskeiði 11.
Þáttaskil urðu í lífi Ingibjargar
frænku minnar 24. nóvember 1964
þegar Eiríkur lést og synir hennar
tóku við búinu. Hún hélt til á
Hlemmiskeiði til ársins 1973 er hún
flutti í lok ársins á Elli- og dvalar-
heimilið Ás í Hveragerði. Þar tók-
ust góð kynni við Sigurð Pálsson
og gengu þau í hjónaband 1974.
Lifðu þau vel saman í rúmt ár, en
hann dó í ágúst 1975. Þann tíma
sem hún var í Hveragerði dvaldi
hún oft á Hlemmiskeiði hjá börnum
sínum. Síðustu ár ævi sinnar bjó
hún svo á Elliheimilinu Grund í
Reykjavík.
Ingibjörg fór ekki varhluta af
heilsuleysi. Árið 1949 fékk hún
heilablóðfall aðeins 46 ára gömul.
Eftir það áfall var hún lömuð
vinstra megin. í fjögur ár var hún
ijarri heimili sínu, en komst á þeim
tíma nokkuð til heilsu. Heim í Borg-
arkot kom hún bundin í hjólastól,
en var síðan spelkuð.. Kjarkur
hennar var mikill og hún vann sín
húsmóðurstörf þrátt fyrir fötlun.
I Borgarkoti og á Hlemmiskeiði
var mikill gestagangur, þar sem
öllum var tekið með sömu ljúf-
mennskunni, auk þess voru þar oft
sumardvalarbörn, sem hún reyndist
sem móðir.
Veturinn 1946-47, var ég við
vinnu í Brautarholti. Þann vetur var
ég um hveija helgi í Borgarkoti.
Ljúfar eru minningarnar frá þeirri
dvöl.
Ingibjörg móðursystir mín og
Eiríkur reyndust mér sem bestu
foreldrar. Oft var grín og glens því
að frænka mín var glaðsinna og
hafði gaman af glensi okkar ungl-
inganna. Mér fannst alltaf að á
Skeiðum væri ein fjölskylda á þeim
AMKRÍ8K iAiliOf-ruIIft
OG HANDKLÆÐI NÝKOMIN.
HÁGÆÐAVARA FRÁ
CASTNON. OG j
/ 1
ilhíi - - -f
Stórhöfða 17, við Gullinbrú
sími 67 48 44
Þetta samband okkar hélt áfram
eftir að ég kom aftur heim. Það var
alltaf gott að leita til afa, mér
fannst hann alltaf svo skilningsrík-
ur. Það var ekki í hans anda að
hnýsast í einkamál annarra en þeg-
ar hann fann að eitthvað var að
spurði hann gjarnan, en flýtti sér
síðan að bæta við ......ef þér er
erfitt að svara þá slepptu því bara.
Þetta er bölv . . . forvitni í mér”.
Síðan hlustaði hann þolinmóður og
hjálpaði svo við að leysa vandamál
lífsins. Undanfarin ár hefur verið
stijálla á milli samfundanna en það
má ef til vill segja að þeim mun
betur nýttum við okkur þær stund-
ir sem við áttum saman.
Þær eru margar minningarnar
sem tengjast afa. Minningar sem
ég er þakklát fyrir að eiga, sem og
öll fallegu bréfin sem hann skrifaði
mér.
Ég kveð afa að sinni og bið góðan
Guð að geyma hann.
Sigrún
tíma sem ég var þar og samheldnin
eftir því.
Frænka mín var mikil húsmóðir
og lék allt í höndum' hennar hvort
sem það voru hannyrðir eða matar-
gerð.
Mikil hetja er kvödd sem skilaði
sínu starfi með alúð og kjarki þrátt
fyrir fötlun sína. Henni eru fluttar
kærar þakkir frá frændfólkinu á
Bæ. Samúðarkveðjur sendum við
til barna hennar og fjölskyldna.
Hvíli hún í friði.
Jófríður Björnsdóttir
_______Brids________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Breiðfirðinga
Hafinn er þriggja kvölda jólatví-
menningur hjá félaginu og spila 32
pör.
Staða í N/S eftir fyrsta kvöldið:
MagnúsOddsson-MagnúsHalldórsson 518
Ingvi Guðjónsson - Júlíus Thorarensen 482
Guðlaugur Karlsson - ÓskarÞórÞráinsson 477
Guðmundur Karlsson - Jóhann Jóhannsson 475
Kristófer Magnússon - Albert Þorsteinsson 460
Ingibjörg Halldórsd. - Sigvaldi Þorsteinss. 453
Staðan í A/V:
Bergsveinn Breiðfyrð - Axel Þorkelsson 531
Arnína Guðlaugsdóttir - Bragi Erlendsson 465
Ingi Agnarsson - Grimur Guðmundsson 458
Eðvarð Hallgrimsson - Eirikur Jónsson 456
HaukurHarðarson - Vignir Hauksson 453
Laufey Ingólfsdóttir - Björg Pétursdóttir 4 51
Bridsdeild Rangæinga
Fyrir fimmta og síðasta keppnis-
kvöld í hraðsveitakeppni félagsins, er
staða efstu sveita þessi:
Lilja Halldórsdóttir 2316
Eiríkur Helgason 2297
GuðmundurÁsgeirsson 2163
VZterkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!