Morgunblaðið - 18.12.1991, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991
13
I samfélagi Jóns
Edilonssonar
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Egill Egilsson: Spillvirkjar,
skáldsaga. Útg. Iðunn 1991.
í þessari nýjustu skáldsögu Eg-
ils Egilssónar segir frá Jóni nokkr-
um Edilonssyni sem, fæddist ein-
hvers staðar fyrir norðan í lok síð-
ustu aldar. Hann var óvelkominn í
heiminn, móðir hans ættlaus og lít-
ilsigld kaupakona og faðir hans var
trúlegast Jón nokkur sonur Edilons
bónda á Hvinná. Faðirinn gekkst
ekki við þessum syni og hljóp á
fjöll en Edilon ákvað að feðra
drenginn. Augljóst er að kona hans,
húsfreyjan á Hvinná var ekki
himinlifandi yfir þessari sendingu
ALMENNA bókafélagið hf. hefur
sent frá sér bókina Klettur í hafi
eftir Einar Má Guðmundsson og
Tolla (Þorlák Kristinsson).
í frétt frá útgefanda segir: „Bók-
in er í senn nýstárleg ljóðabók og
glæsileg myndlistarbók. Ljóðin eru
eftir Einar Má og málverkin eftir
Tolla en um 80 litmyndir eru í bók-
inni.
Kletturinn í titli bókarinnar skír-
skotar til íslands, enda er hún óður
til lands og lífs í ljóðum og litum.
Báðir höfundarnir horfa fremur til
hins svipmikla og stórbrotna en hins
fíngerða og ástúðlega - hið hijúfa
fremur en hið mjúka.
Einar Már Guðmundsson hefur
áður sent frá sér þijár ljóðabækur,
fjórar skáldsögur og eitt smásagna-
safn. Skáldsögur Einars Más hafa
og lagði sig í framkróka að hijá
og hrella drengstaulann, sem ekki
er beinlínis vel af guði gerður eftir
lýsingum höfundarins og á nú
drengurinn hina erfiðustu æsku,
og voru þó hrellingar hans í
bernsku bara blávatn miðað við það
sem síðar varð.
Höfundur lýsir ferli Jóns Edil-
onssonar og veru hans á Hvinná
sem drengurinn hlýtur vitanlega
að sætta sig við þó aumir séu hans
dagar þar. Afinn Edilon virðist
bera til hans nokkra umhyggju og
tekur hann með sér í afdrifaríkt
hrossadráp sem sprottið er af hér-
aðsríg og sveitungaillsku. Sá at-
burður verður hvað mestur örlaga-
valdur drengsins og upphaf að nýju
lífi annars staðar í sveitum og
verið þýddar á öll Norðurlandamálin
og fyrsta skáldsagan, Riddarar
hringstigans, á þýsku og ensku. Þá
hefur hann skrifað kvikmyndhand-
rit í samvinnu við aðra. Tolli hefur
haldið Ijölda myndlistarsýninga,
bæði hér heima og erlendis, s.s. í
Danmörku, Suður-Kóreu, Frakk-
landi og Svíþjóð. Auk málaralistar-
innar hefur hann sent frá sér tvær
hljómplötur og leikið í tveim kvik-
myndum."
Klettur í hafi er 135 blaðsíður
að lengd með um 80 litmyndum.
Umbrot og hönnun sá Metri hf. um
en filmuvinnslu litgreiningu, prent-
un og bókband annaðist Prentsmiðj-
an Oddi hf. Ljósmyndir af málverk-
um tóku Kristján Pétur Guðnason,
Arni Sæberg, Gerd Dost og Kristján
Ingi Einarsson. Margrét Ingólfs-
dóttir hannaði kápu.
Egill Egilsson
bæjum þar sem hver atburður öðr-
um hörmulegri og forkostulegri
verður í lífi hans.
Höfundur mun styðjast við
nokkurn raunveruleika þó persónur
séu meira og minna hans skapnað-
ur. Málfar sögunnar tilheyrir liðn-
um tíma og stíllinn er hægur og
stundum kiljanskur. Lýsingar á
kvennamálum Jóns Edilonssonar
og öðrum hans raunamálum þegar
lengra líður eru í senn grátlegar
og broslegar og smám saman varð
ég gripin af frásagnarmáta Egils
og forvitnin um þennan furðufugl
Jón Edilonsson sem raunar hefur
fjarri því látið kreista úr sér allan
kjark í uppvextinum.Það er stíg-
andi í frásögninni og þar til þráður-
inn leiðist út í að verða absúrd í
seinni hlutánum heldur höfundur
nokkuð þétt um þræði.
En eftir að Jón Edilonsson verð-
ur fyrir árás þjóðmálaskúms og
fleiri kumpána fer bygging sögunn-
ar og atburðarás dálítið út um víð-
an völl. Höfundur hefur skrifað
raunsæjan stíl og þó svo að raunir
og mæða söguhetjunnar séu svona
ívið og yfirgengilegar er eðlilegur
stígandi og samræmi í frásögninni.
Ekki er ljóst lengi vel hvar sagan
á að gerast þegar þessi atvik taka
við; er Jón Edilonsson kannski bara
dauður og kominn til himnaríkis
eða heljar. Ef hann er það eða ef
ekki af hveiju þarf að brjóta upp
söguna á þennan hátt. Án efa er
þetta meðvitað hjá höfundi en
þarna hefur ekki tekist sem skyldi
og í þessum köflum liggja veikleik-
ar að mínum dómi þó mér detti
ekki í hug að bera á móti að mér
var verulega skemmt við lestur
þessa hluta sögunnar.
Undirbúningsvinna höfundar
varðandi atvinnuhætti, málfar og
náttúru virðist innt af hendi af öt-
ulli samvisku. Hvort sem það er
nú ekki fullmikið sagt að sagan sé
hjartablóð norðlensks þjóðlífs á
fyrri hluta aldarinnar eins og ég
sá haft eftir Agli, breytir það ekki
þeirri skoðun að hún er unnin af
kostgæfni og leikni í öllum mæðun-
um að þessi bók er að mínum dómi
það langbesta sem ég hef lesið eft-
ir Egil. Honum virðist láta vel að
semja um fyrri tíð og sumar persón-
ur bókarinnar auk Jóns Edilonsson-
ar verða eftirminnilegar.
Tolli og Einar Már.
Myndlistar- og ljóðabók
eftir Einar Má og Tolla
Sjálfstæði og vinátta
Bókmenntir
Súsanna Svavarsdóttir
Lotta flytur að heiman
Höfundur: Astrid Lindgren
Þýðandi: Sigrún Árnadóttir
Anís og Ölviður
Höfundur: Tove Fagerholm
Þýðandi: Vilborg Dagbjartsdótt-
ir
Sumir dagar eru ömurlegir og
Lotta vaknar einn slíkan, rétt eftir
fimm ára afmælisdaginn sinn. Hana
hafði dreymt ljótan draum og hélt
að allt sem hana dreymdi hefði
gerst í alvöru. Mamma sýnir henni
svo lítinn skilning að Lotta ákveður
•að flytja að heiman, beint yfir til
frú Berg í næsta húsi. Frú Berg
lætur hana hafa geymsluloftið sitt
til umráða og þar hreiðrar Lotta
um sig, innan um gömul húsgögn
og leikföng sem dóttir frú Berg
átti þegar hún var lítil. Og Lotta
er alsæl, þangað til byijar að
skyggja.
Hér er á ferðinni sú hin sama
og lærði að hjóla í Skarkalagötu.
Hún er yngst af þremur systkinum
og vill alltaf fá að gera allt sem
þau gera. Henni er mikið í mun að
geta það sem systkinin Jónas og
Mía María geta. Og Lotta er
skemmtilega þversum og ákaflega
lifandi sögupersóna.
Sagan er þráðskemmtileg og seg-
ir á sérstæðan hátt að það sé allt
í lagi að vera ekki alltaf yfir sig
lukkulegur með foreldrana. Það
þarf ekki að vera hættulegt.
Anís og Ölviður er dálítið ólík
öðrum bókum í Litlum lestrarhest-
um. Hún ijallar um vináttuna og
segir frá Anísi litlu álfastúlku sem
er minnst í Stubbaskólanum. En
hún er aldrei hrædd, því besti vinur
hennar, hann Ölviður, er svo stór
og hann verndar hana.
En einn daginn verður Ölviður
alvarlega veikur og er vart hugað
líf. Læknirinn segir að enginn geti
kunni ráð við sjúkdóminum nema
grasakonan á Keldum.
Ferðin til hennar er hættuleg,
en Anís litla tekst hana á hendur.
Grasakonan fer með vísu sem er
lykillinn að því að Öviði batni, en
það er nú þrautin þyngri fyrir An-
ísi að leysa hana. Allir aðrir en
sannir vinir myndu gefast upp. En
Anís litla gefst ekki upp og hún
bjargar lífi vinar síns.
Anís og Ölviður og virkilega sæt
saga, einföld og vel sögð, ein af
þessum sögum sem fela í látleysi
DESEMBER
Viö þökkum öllum þeim sem
hafa þegar borgaö heimsenda
happdrættismiöa og minnum hina á
góðan málstað og glæsilega vinninga.
Athugið: í þetta sinn voru miöar
einungis sendir konum, á aldrinum
20-75 ára, en miðar fást á skrifstofu
happdrættisins í Skógarhlíö 8
(s. 621414) og í sölubílnum
á Lækjartorgi.
VINNINGAR:
1.FORÐ EXPLORER XLT
4ra dyra, sjálfskiptur.
Verðmæti 3.000.000 kr.
2.-4. BIFREIÐ AÐ EIGIN VALI
eða greiðsla upp í íbúð.
Verðmæti 1.000.000 kr.
5.-54. VÖRUR EÐA FERÐIR
fyrir 130.000 kr.
55.-104. VÖRUREÐA FERÐIR
fyrir 80.000 kr.
HVER KEYPTUR MIÐI EFLIR SÓKN
OG VÖRN GEGN KRABBAMEINI!
I Krabbameinsfélagið