Morgunblaðið - 18.12.1991, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 18.12.1991, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991 eKOtír&i Uzngb-frcú ffi- meHcjctsa/^nina slna." \t-i‘i ' - ... boðskapur jólanna. TM Reg. U.S. Pat Off. —afl nghts reserved ° 1991 LosAngeles Times Syndicate Með morgxmkaffrnu Þú hefðir nú getað spurt hann hvort hann Iéki tennis áður en þú gerðir þinn helming kláran. HOGNI HREKKVISI ,E/N6 OG JÓLAkZ>R.T /V)EE> LVÓ.S/WVvVo ." Leiksoppur Húsnæðis- stofnunar ríkisins Það þykir furðu sæta þegar ein- staklingar gera samning sín á milli og annar þeirra riftir samningi án þess svo að geta til um hvað um hafi verið að ræða. Sá sem uppi situr með spurningarmerki átti sér einskis ills von, en einsog við sem búum við hið svokallaða réttarríkis- sjónarmið vitum að ef samningur er kominn á milli aðila verður sá sem gengur burtu án þess að geta fært ástæðu fyrir skyndilegri brott- vikningu frá samningi þessum með rökum til að afsaka tilvik sem slíkt, að standa samt sem áður við hlut sinn sem viðkomandi gerði við við- semjanda sinn. Um þetta er nánar tíundað í samningalögunum og í kröfurétti, til eru óskráð lög virðist ætla að mati þeirra sem vinna hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. Góðkunningi Velvakanda var metinn í húsabréfakerfið nú sl. mars og eftir að hafa skoðað allar kjallaraholur og risíbúðir var sá tími sem Húsnæðisstofnun gaf honum til athugunar að renna út, þ.e.a.s. 4 mánuðir, svo hann fór uppí stofn- unina og bað um hvort möguleiki væri á því að fá örlítið meiri tíma til umhugsunar. Ekkert var því til fyrirstöðu, heiðarlegur maður og góður skattgreiðandi. Vini Velvak- anda var sagt að honum yrði send yfirlýsing þess efnis þegar frestur- inn rynni út og sagt hvernig hann ætti að snúa sér. Fresturinn rann út og vinur Vel- vakanda hélt áfram sinni ábyrgðar- fullu leit því að leita að þaki yfír höfuðið er ekkert smámál eins og að fara út í sjoppu þó að það geti að vísu verið flókið stundum, en það er nú önnur saga. Kona vinar Vel- vakanda sem var að ganga með sitt fyrsta bam varð þyngri með hveijum degi, þrýsti óneitanlega á ákvarðanatöku í sambandi við val á fyrstu íbúð þeirra hjóna, hringur- inn þrengdist og loks kom íbúðin sem þau gátu hugsað sér að búa í pg borga af uppí hendurnar á þeim. I millitíðinni barst vini Velvakanda bréf frá Húsnæðisstofnun ríkisins þess efnis að fresturinn væri runn- inn út, einsog vinur Velvakanda þá þegar vissi, en jafnframt var þess getið að ef hann vildi fá annað greiðslumat eða framlengingu á því ætti hann að leita til banka eða verðbréfafyrirtækja sem tekið hafa alfarið við gerð greiðslumatsins. Eins og hann og flestir aðrir í hans sporum hugsaði hann að fá þessa framlengingu og þá fara í banka enda væri stóra stundin, stund ábyrgðar, runnin upp, það átti að festa kaup á framtíðarhúsnæði fyr- ir verðandi, stækkandi fjölskyldu. Vinur Velvakanda kominn í kaupa- stöðu og seljandi fús til að láta af hendi rakna íbúðina gegn öruggum greiðslum húsbréfa. Nú fór vinur Velvakanda í banka með öll þau gögn sem til var ætlast og orðsend- inguna frá Húsnæðisstofnun ríkis- ins auk bréfsins um framlenging- una, lagði gögnin inn og vænti svars fljótlega. Ekki leið á löngu, því þeg- ar hafði Húsnæðisstofnun ríkisins gert greiðslumat og því ekkert til fyrirstöðu að það þyrfti að láta meta upp á nýtt, einungis var um að ræða að framlengja eldra mat. Nú fóru atburðir þessarar nýbök- uðu fjölskyldu að taka á sig nýja mynd, bankastjórinn bar sig aum- lega og tjáði vini Velvakan'da að þrátt fyrir að hann hefði bent á bréfið hefði viðkomandi starfsmað- ur hjá Húsnæðisstofnun sagt að það væri ekki hægt að framlengja gamla greiðslumatið, bankastjórinn bað vin Velvakanda innvirðulegrar afsökunar og eina sem hann gæti gert væri að meta hann upp á nýtt. Þetta væri það leiðinlegasta sem hann gerði að eiga við starfsfólk Húsnæðisstofnunar því í fyrsta lagi væri aldrei eða sjaldan nokkur við og í öðru lagi væri bókstaflega ekk- ert mark takandi á því sem þeir sögðu eða létu hafa skriflega eftir sér, þeir skiptu og breyttu til, eins og þeim lysti og væru gjörsamlega ábyrgðarlausir í gerðum sínum. Stuttu seinna kom bamið í heim- inn en þá hafði átt að vera komið þak yfir fjölskylduna en svo er að þakka Húsnæðisstofnun ríkisins um að allt er komið í strand þrátt fyrir yfirlýsingu þeirra. Hvað skal til ráða taka? Vinur Veivakanda er margítrek- að búinn að reyna að fá samband við starfsfólk Húsnæðisstofnunar- innar, en án árangurs, því hann vill ekki trúa slíkum vinnubrögðum að það sé með gerræðislegum vinnubrögðum verið að blekkja fjöl- skyldufólk með því að opna fyrst dyrnar er skella svo hurðinni svo fast þrátt fyrir skriflega yfirlýsingu þess efnis að hafa þær opnar. Nú þegar jólamánuðir og hátíðin er í sjónmáli og draumar ungs fólks orðnir að engu er spurningin sem hægt er að varpa fram: Ef skrifleg yfirlýsing frá opinberri stofnun er ekki nægileg, hvað er þá fullnægj- andi? Hjálagt þessu til sönnunar sendi ég ofanrætt bréf Húsnæðisstofnun- ar ríkisins undirritað f.h. hennar. íslendingur í húsnæðishrakningum. Víkverji skrifar Vegna verkfalla Dagsbrúnar hafa Reykvíkingar og gestir í höfuðborginni orðið fyrir nokkrum óþægindum undanfarna daga. Til að árétta launakröfur ákváðu Dags- brúnaianenn að stöðva þjónustu ein- stakra fyrirtækja. Almennu við- brögðin við þessum aðgerðum, sem nú er sem betur fer lokið, birtast helst í hneykslan og reiði og ekki vænkast hagur Dagsbrúnar meðal almennings, þegar í Ijós kemur, að til verkfallanna er eifnt í óþökk þeirra sem leggja niður vinnu. Raunar hefur einnig verið skýrt frá því, að þessi verkfallahrina hafi beinlínis torveldað samninga um kjör hlaðmanna hjá Flugleiðum. I sjálfu sér vekur ekki neina undrun, að launafólk sætti sig illa við að fá fyrirmæli frá verkalýðsfé- lagi sínu um að leggja niður störf og afsala sér launum í mestu önnum fyrir hátíðarnar. Hitt er furðulegra að forysta Dagsbrúnar skuli ekki hafa fengið samþykki og umboð til vinnustöðvunar hjá þeim félags- mönnum, sem leggja niður störf í því skyni að treysta samningsstöðu allra Dagsbrúnarmanna. Vekur þetta spurningar um skipunarvald verkalýðsfélaga gagnvart einstök- um starfshópum innan félaganna. Er forsvaranlegt fyrir félögin að velja fámenna hópa sem gegna við- kvæmum störfum og skipa þeim að fórna þannig eigin hagsmunum fyrir heildina? xxx Enn er ástæða til að ræða um vinnubrögð á Alþingi. Frá því var greint í sjónvarpsfréttum á laugardagskvöld, að formenn þing- flokka hefðu komist að samkomu- Iagi um þinglega meðferð á þriðju umræðu fjárlaga. Þrátt fyrir þetta samkomulag voru umræður um þingsköp á Alþingi í klukkustund á laugardagsmorgninum, þar sem deilt var um þessa meðferð. Var iaugardagurinn þó aukadagur undir þingstörfin, þar sem ætlunin var að greiða fyrir afgreiðslu mála. Samkvæmt heimildum Víkveija verða menn nú varir við skýr skil innan stjórnarandstöðunnar í af- stöðunni til vinnubragða á Alþingi. Forystumenn Kvennalistans og Framsóknarflokksins hafa verið að fjarlægjast Alþýðubandalagið, en innan þess virðist ágreiningur milli Margrétar Frímannsdóttur, for- manns þingflokksins, og Ólafs Ragnars Grímssonar, formanns flokksins. Er litið þannig á, að við Kvennalistann og Framsóknar- flokkinn sé unnt að gera samkomu- lag um þingstörf, sem haldi, en gagnvart Alþýðubandalaginu verði að hafa þann fyrirvara, að Ólafur Ragnar sýni þingflokksformanni sínum þá óvirðingu að hafa hana að engu. xxx Aðventan er tími undirbúnings og eftirvæntingar. Hún á einnig að minna okkur á, að tíminn er dýrmætur og ástæðulaust að sóa honum. Þeir sem stofna til tilgangs- lausra verkfalla eru að kasta tíman- um á glæ, svo að ekki sé minnst á þá, er telja sér það helst til fram- dráttar í stjórnmálum að halda uppi tilangslausu málþófi í sölum Alþing- is. Lýðræðið er í eðli sínu tíma- frekt, sú staðreynd réttlætir síður en svo skipulagða tímasóun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.