Morgunblaðið - 18.12.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.12.1991, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991 1740. Raddskrár verkanna, sem þá voru leikin, þrír konsertar og ein sinfónía, voru gefnar prinsin- um og hafði hann verkin með sér til Dresden. Sinfónían var vel leik- inn og sama má segja um e-moll konsertinn R-277, sem nefnist II favorito og skráður sem op. 11 nr. 2. Þessi konsert er mjög skemmtilegur og lék Auður Haf- steinsdóttir einleikinn af miklum glæsibrag. Auður er góður fiðlari og var leikur hennar sérlega skýr, eins og hæfir þessu leikræna og ijöruga verki. „Flautino" konsert- inn, R-443 er saminn fyrir sópran- ínó-blokkflautu sem einleikshljóð- færi. Camilla Söderberg lék verk- ið af mikilli leikni og er ótrúlegt hversu mikið er hægt að gera á þetta litla hljóðfæri, sem kom sér- staklega fram í lokakaflanum, þar sem leikur Camillu var hreint út sagt glæsilegur. Tónleikunum lauk með flutn- ingi tveggja konserta úr L’estro Armonico, safni konserta sem gefið var út í Amsterdam og átti mestan þátt í vinsældum Vivaldis í Norður-Evrópu, J.S. Bach umrit- aði tvo úr þessu safni fyrir orgel, þ.e. nr. 8 R-522 og nr. 11, R- 565. Fyrri konsertinn R-578 er fyrir tvær fiðlur og léku Rut og Unnur María Ingólfsdætur sóló- hlutverkin mjög vel. Seinni kon- sertinn er fyrir Ijórar einleiksfiðl- ur, og að því leyti til sveija þessi verk sig í ætt við „Concerti Grossi", þó þau séu samt sem áður mótuð af þriggja kafla skip- aninni og hvergi sé yísað til kafla- skipan svítunnar. í fjórfiðlukon- sertinum, R-580, bættust í hópinn Bryndís Pálsdóttir og Auður og var leikur allra vel útfærður. Sama má segja um hljómsveitina í heild og voru þetta sannkallaðir hátíðartónleikar. Óperusmiðjan: Jólatón- leikar Óperusmiðjan stóð fyrir jóla- tónleikum í Langholtskirkju sl. sunnudag og komu þar fram nokkrir einsöngvarar, bæði lærð- ir, leikmenn og nemendur. Und- irleikari var Þorsteinn Gauti Sig- urðsson. Það er vandi að setja saman söngskrá, þar sem hver söngvari syngur aðeins tvö lög en vegna nálægðar jólanna bar efnisvalið nokkurn svip af því sem gerist í skólum og þegar skotið er inn andlegum söngvum við guðsþjónustur. Margir af þeim sem komu fram eru efnileg- ir söngvarar en reynslulitlir og setti það nokkurn deyfðarblæ á tónleikanna i heild. Þórunn Guðmundsdóttir söng ágætlega þijá jólasöngva eftir Frank Martin en með henni lék Hallfríður Ólafsdóttir á flautu og var flutningur þeirra og Þor- steins Gauta það bragðmesta á þessum tónleikum. Inga Back- man söng Ó, helga nótt, eftir Adam, og Ave Maríuna, eftir Sigvalda Kaldalóns og var seinna lagið mjög vel sungið hjá Ingu. í raun var ekki fleira á þessum tónleikum, sem ástæða er til að nefna en tónleikarnir enduðu á kórsöng, sem er í raun ekki hægt að kalla því nafni, því auð- heyrt var að lítið hafði verið æft eða unnið að samstillingu radd- anna. Kammersveit Reykjavíkur. VIVALDITONLEIKAR Tónlist Jón Asgeirsson Kammersveit Reykjavíkur und- ir stjórn Rutar Ingólfsdóttur stóð fyrir hátíðartónleikum, þar sem eingöngu voru leikin verk eftir Vivaldi. Rauðhærði presturinn, eins og Vivaldi var oft nefndur, hafði það starf með höndum að semja tvo konserta á mánuði til flutnings á tónleikum, þar sem nemendur fyrsta tónlistarskólans sem sögur fara af, léku og stjórn- uðu. Þessi stúlknaskóli, Ospedale della Pietá, var stolt Feneyinga og var öllum meiri háttar gestum boðið að hlýða á leik stúlknanna, sem margar hveijar voru frábærir tónlistarmenn. Friðrik IV, kon- ungur Dana, mun hafa hlýtt á tónleika undir stjórn Vivaldis 30. desember 1708, svo nefnt sé dæmi um það orð sem fór af þessari stofnun. Þriggja þátta konsert- formið, sem í reynd er'enn í gildi, var eitt af einkennismerkjum Viv- aldis, en auk þess er ritháttur tónlistar hans grundvallaður á skýrri hljómaskipan, er tengist ákaflega ljósri tematískri úr- vinnslu stefja, stefja sem bæði eru hrynskýr og lagrænt einföld. Tónleikamir hófust á sinfóníu nr. 3, en samkvæmt tónverkaskrá Ryom er þessi sinfónía nr. 149 og samin í tilefni heimsóknar Friedrich Christian, krónprins af Saxlandi og Póllandi, en hann kom á tónleika skólans 21. mars Ein af 10 söluhæstu bókum á sölulista DV 17./12. " Hann var sko ekki eblilegur". Ég sá það eins og skot..." (Saxi læknir um Þórhall Sigurbsson ungan) Maöurinn á bak viö þúsund andlitin Fáir hafa kitlab hláturtaugar landsmanna jafn rækilega og Þórhallur Sigurbsson, sem bregbur sér betur en nokkur annar í allra kvikinda líki. Nú hefur annar spéfugl, Þráinn Bertelsson, sem kunnur er af gamansömum kvikmyndum sínum og útvarpsþáttum, sett saman bók um feril Ladda frá upphafi til þessa dags. Þessi bók á eflaust eftir ab koma mörgum í gott skap, en hún á líka eftir ab koma mörgum á óvart. Þráinn gægist nefnilega undir skelina á listamanninum og Laddi segir hispurslaust frá lífi sínu, - hörbum heimi skemmtanabransans og Ijúfa lífinu í kringum hann, uppvexti sínum, fjölskyldu, vonum, sigrum og vonbrigbum. Hver er maburinn meb þúsund andlitin? Hver er þessi feimni Hafnfirbingur, sem á svo aubvelt meb ab koma öllum landsmönnum til a veltast um af hlátri? Hvernig stób á því ab upprennandi húsgagnasmibur varb vinsælasti skemmtikraftur þjóbarinnar? Þráinn skrifar um Ladda á einlægan og opinskáan hátt og lesendurfá ab kynnast Þórhalli Sigurbssyni, manninum sjálfum bak vib öll gervin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.