Morgunblaðið - 18.12.1991, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991
Miðvikudagur 18. desember.
I dag klukkan 11 kemur
Hurðaskellir í heimsókn á Þjóð-
minjasafnið ásamt Barnakór
Víðistaðaskóla.
Bubbi spil-
ar á Tveim-
ur vinum
TÓNLEIKAR með Bubba Mort-
hens verða I kvöld á skemmti-
staðnum Tveir vinir og hefjast
þeir klukkan 22,30.
Með Bubba kemur fram nýja
hljómsveitin hans, en hana skipa
Pálmi Gunnarsson, Reynir Jónas-
son, Gunnlaugur Briem og Tryggvi
Hiibner.
Sálin hans Jóns míns.
Sálin með
tónleika á
Púlsinum
HLJÓMSVEITIN „Sálin hans
Jóns míns“ heldur tónleika á
Púlsinum fimmtudagskvöldið 19.
desember.
Sveitin sendi nýlega frá sér þriðju
breiðskífu sína, sem nú hefur náð
svokallaðri platínusölu, þ.e. selzt í
7.500 eintökum. Á Púlsinum verður
efni nýju plötunnar kynnt með
hljóðfærasslsætti að hætti Sálar-
manna. Útvarpað verður frá tón-
leikunum á Rás 2. Þetta verða síð-
ustu tónleikar Sálarinnar á þessu
ári.
Alit Evrópudómstóls-
ins kemur ekki á óvart
- segir í ályktun Samstöðu um óháð Island
SAMSTAÐA um óháð ísland,
samtök sem nýlega voru stofnuð,
hafa sent frá sér ályktun sem er
svohljóðandi:
„Álit Evrópudómstólsins á samn-
ingsdrögum um Evrópskt efnahags-
svæði hefur sett EES-málið í hnút,
sem óvíst er að verði leystur. Eins
og lesa má í nýútkomnu fréttabréfi
Samstöðu kemur þessi síðasta
hindrun ekki á óvart. Dómstóllinn
vill ekki framselja neitt af valdi sínu
til EES-stofnana. Þessi athugasemd
EB-dómstólsins í Lúxemborg sýnir
í senn eðli EES-samningsins og
hver það er sem myndi hafa undir-
tökin á efnhagssvæðinu.
íslensk stjórnvöld eiga að viður-
kenna í hvert óefni er komið. Við
eigum ekkert erindi í áframhaldandi
samflot með ríkjum sem keppa að
inngöngu í Evrópubandalagið.
Samningsdrögin sem fyrir lágu voru
ótæk og geta úr þessu aðeins versn-
að. Þau eru þegar komin í mótsögn
við ákvæði stjórnarskrárinnar og
stofna efnahagslegu og stjórnar-
farslegu sjálfstæði þjóðarinnar í
mikla hættu.
Islendingar eiga góðra kosta völ
í samskiptum við Evrópubandalagið.
Nú þegar á að hætta þátttöku í frek-
ari EES-viðræðum, leggja yfirvegað
mat á þjóðlega hagsmuni og leita
eftir tvíhliða viðræðum við EB um
endurbætur á gildandi fríverslunar-
samningi og gagnkvæmum sam-
skiptum á öðrum sviðum. Stjórn
Samstöðu hefur að undanförnu lagt
áherslu á að sú leið verið farin og
telur hana farsælasta fyrir framtíð
lands og þjóðar.
Aðild að Evrópsku efnahagssvæði
var slæmur kostur, en sýnu verri
væri innganga í Evrópubandalagið
sem tók í -Maastricht viðbótaskref í
átt að stórríki með sameiginlega
mynt, óháðum seðlabanka og póli-
tísku samstarfi í utanríkis- og ör-
yggismálum."
Grundartangakórinn
Sextán lög með Grimdatangakór
ÚT ER kominn geisladiskur og
snælda með 16 lögum, sem
Grundartangakórinn syngur.
Meðal laga eru lög eftir Jón Múla
Árnason, Sigfús Halldórsson,
Magnús Kjartansson og Magnús
Eiríksson og sameiginlegt með
þeim öllum er að útsetningar
þeira eru sérstaklega gerðar fyr-
ir kórinn af nokkrum nemendum
Tónlistarskólans í Reykjavík,
þeim Eiríki Árna Sigtryggssyni,
Gunnari Gunnarssyni, Hilmari
Sverrissyni, Úlfi Haraldssyni og
Þuríði Jónsdóttur. Upptaka fór
fram í Stúdíó Stemmu undir
handleiðslu Sigurðar Rúnars
Jónssonar.
Stjórnandi kórsins er Lárus Sig-
hvatsson skólastjóri Tónlistarskól-
ans á Akranesi. Undirleikari er Flosi
Einarsson píanóleikari, en auk hans
komu þeir Eðvarð Lárusson, Eiríkur
Guðmundsson, Halldór Sighvatsson
og Páll Einarsson við sögu.
Grundartangakórinn er 19 manna
karlakór starfsmanna við járn-
blendiverksmiðjuna við Grund-
artanga. Hann hefur starfað nær
órlitið frá 1980 og sungið víða vest-
anlands og norðan, auk þess sem
hann hefur sungið á nokkrum stöð-
um í Noregi.
Umsjón með dreifingu hefur Þor-
steinn Ragnarsson, íslenska járn-
blendifélaginu, Grundartanga.
Þúsundir á faraldsfæti
ÞÚSUNDIR manna leggja land
undir fót síðustu dagana fyrir
jól, og frá Umferðarmiðstöðinni
eru daglega yfir 60 komur og
brottfarir. Fyrir hátíðirnar flylja
langferðabifreiðar sem fara frá
Umferðamiðstöðinni hátt í þrjú
þúsund farþega til síns heima.
En það er ekki bara fólk sem
flutt er, því landsmenn eru iðnir
við að sepda vinum og ættingjum
jólagjafir. Fyrir jólin í fyrra fóru
um 60 þúsund pakkar um í gegn-
um pakkaafgreiðslu BSÍ og síst
lítur út fyrir að álagið verði
minna nú.
Jól og áramót eru miklir anna-
tímar hjá sérleyfishöfum. Á öllum
styttri leiðum út frá Reykjavík eru
frá einni upp í sjö ferðir á dag, og
á lengri leiðum ein til tvær ferðir.
Auk þess hefur verið bætt inn all-
mörgum aukaferðum.
Síðustu ferðir langferðabifreiða
fyrir jól á lengstu sérleyfísleiðum
frá Umferðarmiðstöðinni eru á Þor-
láksmessu kl. 08:00 og 17:00 til
Akureyrar, kl. 08:30 til Hafnar í
Hornafirði, á Snæfellsnes kl. 09:00
og 19:00, til Búðardals og Króks-
fjarðar kl 08:00 og til Hólmavíkur
kl. 10:00. Á styttri leiðum verða
bifreiðar í förum á aðfangadag, en
engar ferðir verða á jóladag. Fólki
er bent á að tryggja sér farmiða
tímanlega og einnig er áríðandi að
allir pakkar séu vandlega merktir,
og með símanúmeri móttakenda.
Allar nánari upplýsingar um
ferðir sérleyfishafa um jól og ára-
mót eru veittar hjá BSI, Umferð-
arniiðstöðinni. Einnig hefur verið
gefin út sérprentuð áætlun sem
fæst endurgjaldslaust á sama stað.
(Úr fréttatilkynningn).
Eitt atriði úr myndinni Flugásar.
Bíóborgin og Sagabíó
sýna myndina „Flugásar“
BIÖBORGIN og Sagabíó hafa haf-
ið sýningar á jólamyndinni 1991
„Flugásar". í aðalhlutverkum eru
Charlie Sheen og Valeria Golion.
Leikstjóri er Jim Abrahams.
Myndin segir frá „flugásum" í
bandaríska flughemum. Hér er tekið
á gamansaman hátt á ýmsum töff-
aramyndum, þó aðallega „Top Gun“
enda eru hér á ferðinni sömu aðilar
og gerðu myndirnar „Airplane" og
„Naked Gun“.
, *\
<#
%,
&
°
Velkomin f verslunina Jötu, viö Laugaveginn ofanverðan.
Hálft hundraö bílastæöa norðan búðarinnar.
Það titheyrir jólunum að fara f Jötuna.
Opið virka daga frá 9 - 22.00
Laugardaga frá 10-22.00
Sunnudaga frá 18-22.00
Sendum í póstkröfu.
l/erslunin
Hátúni 2 S 25155