Morgunblaðið - 18.12.1991, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991
61
Hlustað á þingpöllum
Mánudaginn 9. þ.m. var ég undir-
ritaður staddur á þingpöllunum, þar
sem þingmaðurinn Ingi Björn Al-
bertsson var flutningsmaður að
frumvarpi, ásamt nokkrum öðrum.
Þar var óskað eftir stuðningi þing-
heims við ungt fólk á íþróttasvið-
inu. Hann taldi nauðsyn á að styðja
sérstaklega við bakið á þeim, sem
sýndu ótvíræðan áhuga á íþróttum
og þó sérstaklega þeim, sem náð
hefðu langt í einhverri grein og
væru líklegir til afreksverka. Og
nefndi hann sjóðsmyndun í því sam-
bandi. Auðvitað er frumvarp af
slíku tagi góðra gjalda vert. En er
þingm. hafði lokið ræðu sinni
kvaddi sér hljóðs ein kvennalista-
konan, 18. þingm. Reykvíkinga,,
Kristín Ástgeirsdóttir, og hélt hún
fjálglega ræðu um nauðsyn á öflugu
starfi, ungu fólki til aðstoðar með
uppbyggjandi íþróttastarfsemi, en
kvartaði þó undan því að hún - eða
kvennaljstakonurnar - hefðu ekki
verið kallaðar til meðflutnings á
þessari þingsályktunartillögu. Hún
gat þess í leiðinni að hún þekkti
kúluvarpara, sem hefði náð langt á
sínum tíma í þeirri íþrótt, en væri
nú með takmarkað starfsþrek og
gæti hún hugsað sér að slíkir menn
nytu styrktar við, og þá úr þeim
sjóði, sem stofnaður yrði í þeim til-
gangi að styrkja íþróttamenn.
Hún gat þó ekki setið á sér að
öfundast út í styrk þann, sem Borg-
arstjórinn veitti heimsmeisturunum
okkar í brids við heimkomuna, eftir
hinn glæsilega sigur í þeirri íþrótta-
grein, nú fyrir nokkru síðan. Lá í
orðunum að hún teldi brids ekki til
íþrótta og því ekki ómaksins vert
að veita þeim þann styrk, sem þeir.
fengu. Að vísu fengu þeir hann
ekki persónulega, heldur Bridssam-
bandið, sem mörg félög víðs vegar
um landið eru aðilar að. Og þá hefði
ég beðið um orðið, til að svara henni
af þingpöllunum, hefði ég ekki átt
það víst, að vera teymdur burtu í
lögreglufylgd, en þessari konu, sem
er 18. þingmaður Reykvíkinga, vildi
ég segja þetta: Að þó hún spili ekki
brids og sé ekki sjálf áhugasöm um
þá íþrótt, þá er nefnilega geysistór
hópur í þessu landi sem iðkar hana,
og ekki síður ungt fólk í öllum ald-
ursflokkum. Og þessari heiðurs-
konu, sem hefur fundið sig knúna
til að gefa kost á sér til setu á þingi
fyrir okkúr Reykvíkinga, skal á það
bent, af því ég býst ekki við að hún
viti það, að innan bridshreyfingar-
innar eru starfandi í dag nálægt
fimm þúsund manns, að vísu víðs
vegar á landinu og áreiðanlega
vægt áætlað er a.m.k. 'A hlutinn
ungt áhugafólk í greininni. Og ef
þetta unga fólk á ekki skilið að því
sé veitt verðskulduð eftirtekt og
aðhlynning fyrir sína starfsemi þar,
þá skil ég ekki nútíma alþingis-
menn. Og þá get ég upplýst alla
um það, að það er og hefur verið
stranglega bannað að hafa áfengi
um hönd í allri keppni, sem eru
mjög margar um árið, og ungir sem
aldnir hafa gaman af. Og þar á
ofan er nú búið að taka upp reyk-
ingabann í þeim sölum, sem keppt
er í. Þessar reglur hafa reynst vel.
Fólki er ekki endilega bannað að
reykja, en það fær sitt afdrep utan
spilastaðar til þeirrar svölunar. Að
lokum vildi ég aðeins geta þess, að
svo til öll þjóðin þekkti karl föður
hennar, sem var allt í senn, greind-
ur, frjálslegur og skemmtilegur
maður, sem margt gott liggur eftir
og lifir með þjóðinni. Og þingkon-
unni dóttur hans vildi ég óska allra
heilla í sínu starfi, og að henni
lærist að meta að gott íþróttafólk
er gulls ígildi, hvar í flokki sem það
stendur.
Lárus Hermannsson
Þessir hringdu . . .
Hálfur kalkúni
Kona hringdi og vildi foiyitn-
ast um hvort ekki væri hægt að
fá einhvers staðar hálfan kalk-
úna í verslunum. Hún sagði það
vera of mikið fyrir litla ijölskyldu
að kaupa heilan kalkúna og það
þyrfti ekkert endilega að fylla
kalkúna og því í lagi að kaupa
hálfan.
Poki með stelpufötum
Þriðjudaginn 10. des. fannst
blár plastpoki á Háaleitisbraut
þegar beygt var inn á hana frá
Bólstaðarhlíð. Á pokanum er
mynd af Andrési Önd og í honum
er fullt af stelpufötum. Frekari
upplýsingar hjá Ragnheiði í síma
21892.
Kettlingar óska eftir heimili
Fjórir kassavanir kettlingar
óska eftir góðu heimili fyrir jól-
in. Upplýsingar í síma 77910 eða
679630.
Höfðar til
-fólksíöllum
starfsgreinum!
fÍtnrgMuM&foifo
Gefid ykkur sjálfum jólagjöf
í heimilið.
BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK ■ SÍMI 91-681199 - FAX 91-673511
Spádómarnir rætast 1
GOÐ JOLAGJOF
STJÖRNUKORT
PERSÓNULEG JÓLAGJÖF
PERSÓNULÝSING
fjallar meðal annars um grunneðli, tilfinningar, hugsun, ást,
starfsorku og framkomu. Bent er á veikleika, hæfileika og
æskilegan farveg fyrir orku þína.
FRAMTIÐARKORT
fjallar um orku næstu tólf mánuði, bendir á hæðir og lægðir,
meðal annars hvað varðar lífsorku, tilfinningar, samskipti og
vinnu. Fjallað er um möguleika hvers mánaðar og hvernig
best er að bregðast við aðstæðum.
SAMSKIPTAKORT
lýsir samskiptum tveggja einstaklinga, til dæmis hjóna, vina
eða vinnufélaga. Stjörnukort beggja aðila borið saman.
Afgreiðum stjörnukort samdægurs.
Sendum í póstkröfu.
STJÖRNUSPEKISTÖÐIN
Gunnlaugur Guðmundsson,
Laugavegi 59, Kjörgarði, 2. hæð. Símar91-10377 og 91-617777.
r
Herrajakkar
Blazer-
jakkar
Velor -
sloppar
Náttföt
Skyrtur
Peysur
Frakkar
Hanskar
Loðhúfur
Hattar
GZísW
*
rC •
VIÐ HJÁLPUM -
HJÁLPAÐU OKKUR!
Munið heimsendan gíroseöil.
HIÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR