Morgunblaðið - 18.12.1991, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 18.12.1991, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991 Kynbótamat Búnaðarfélags Tslands fyrir undaneldishross eftir Kristin Hugason Að undanfömu hafa átt sér stað ritdeilur á síðum Morgunblaðsins um aðferðir við að leggja mat á kynbótagildi undaneldishrossa. Er þar átt við grein dr. Þorvaldar Árna- sonar frá 1. nóvember síðastliðnum: ^.„Fjörbrot nátttröllanna í heimi ís- lenskrar hrossaræktar", og greinar þeirra feðga, Gunnars Bjarnasonar, fyrrv. hrossaræktarráðunautar Búnaðarfélags íslands, og Halldórs Gunnarssonar, formanns út- flutningsnefndar Félags hrossa- bænda og sóknarprests í Holti und- ir Eyjafjöllum. Grein Gunnars birt- ist 5. nóvember og grein Halldórs þann 14. sama mánuðar. Áður, bæði nú í október og fyrir um ári, birti blaðið einnig fréttir af máli því sem deilt er um. Deiluefnið er einkum það hvort ákveðin reikniað- ferð sem notuð er til að leggja mat á kynbótagildi undaneldishrossa sé nothæf eða ekki, en fleira hangir á ^spýtunni. Vegna þess að þessi umræða hefur átt sér stað á síðum blaðsins vill undirritaður að eftirtalin atriði komi fram málinu til skýringar. Um meint samráðsleysi Búnaðarfélags íslands Halldór Gunnarsson fullyrðir í grein sinni að Búnaðarfélag Islands hafi ekki haft neitt samráð við hrossaræktarmenn þegar nýjar að- ferðir voru teknar upp í leiðbeining- ~«arstarfí félagsins í hrossarækt. Þetta er rangt svo sem nú skal frá greint. Nám og rannsóknarstarf Þor- valdar Árnasonar varðandi notkun nútíma búfjárkynbótafræði við ræktun íslenskra hrossa hófst um 1975 og kynning hans á nýjum aðferðum í hrossaræktinni á meðal bænda, hestafólks og ráðunauta hófst um 1977. Á árinu 1983 var birt í fyrsta sinn kynbótamat fyrir íslensk undaneldishross sem reikn- að var út með ákveðinni tölfræði- legri aðferð í kynbótafræði sem nefnd er BLUP-aðferð. BLUP er skammstöfun á hinu enska nafni þessarar aðferðar, sem .#er besta óbjagaða spá, („Best Line- ar Unbiased Prediction“) og lýsir nafnið að hluta til tölfræðilegum eiginleikum hennar. Megin heiður- inn af útfærslu aðferðarinnar á Bandaríkjamaður að nafni C.R. Henderson prófessor við Cornell- háskólann í New-York-fylki í Bandaríkjunum. Þar í landi stóð enda vagga nútíma kynbótafræði sem er ung fræðigrein, hún fer fyrst að þróast verulega upp úr síðari heimsstyijöld. Þróun kynbótafræð- innar hefur síðan haldist í hendur við aukna tölvu- og reiknitækni. Rannsóknarstarf Hendersons að útfærslu aðferða til að meðhöndla og vinna úr afurðatölum í búfjár- rækt, fyrst og fremst til þess að reikna út kynbótamat undaneldis- gripa, má rekja allt aftur til ársins 1949. Árið 1973 birti Henderson grein þar sem hann gerði grein fyrir BLUP-aðferðinni við kynbóta- mat. Segja má að í kjölfar birtingar þeirrar greinar hafi fylgt mjög hröð þróun í sífellt ijölbreyttari notkun aðferðarinnar. Ekki sér enn fyrir enda þeirrar þróunar. Henderson hefur hlotnast heimsfrægð innan fræðisviðsins og margvíslegur heið- ur fyrir framlag sitt til vísindanna. Á löngum rannsókna- og kennara- ferli hafa fjölmargir þekktir kynbót- afræðingar numið af eða unnið með Henderson. Má þar geta um Dale van Vleck sem árum saman var nánasti samstarfsmaður Henders- ons og Norðmanninn Knut Rönningen sem hefur átt glæstan feril sem prófessor í kynbótafræði í Ultuna í Svíþjóð og síðar í Noregi. I upphafi var ekki unnt að reikna út kynbótamat fyrir nema einn eig- inleika í einu og ekki fyrir aðra gripi í stofninum en feður. Stærsti þröskuldurinn við notkun þessarar aðferðar frá upphafi hefur verið skortur á fullnægjandi reiknitækni og reiknirými í tölvum. Fljótlega fóru þó brautryðjendumir að leita leiða til að útfæra aðferðina svo að takast mætti að reikna út kynbóta- mat fyrir nokkra eiginleika samtím- is, nýta gögnin betur sem hverju sinni liggja til grundvallar útreikn- ingunum og fá kynbótamat á fleiri gripi hveiju sinni en einungis feð- urna. Fræðilegar úrlausnir fundust og tölvurnar urðu öflugri og svo- nefnd einstaklingslíkön komu til sögunnar og með þeim varð unnt að reikna út kynbótamat fyrir hvern grip fyrir sig. Fram komu aðferðir til að reikna samtímis út kynbóta- gildi margra eiginleika undaneldis- gripa með BLUP-aðferð á grunni einstaklingsiíkans. Við þróun þeirra aðferða hefur Þorvaldur Árnason unnið mikið fræðistarf, jafnframt því sem útfærsla á BLUP-aðferð- inni í reiðhrossarækt var brautryðj- andastarf. Þessar rannsóknir Þor- valdar Ámasonar hafa vakið heims- athygli á meðal búfjárkynbótafraið- inga. Hér að framan var þess getið að á árinu 1983 var birt í fyrsta sinn fræðilegt kynbótamat fyrir íslensk undaneldishross. Kynbótamatið var reiknað út með BLUP-aðferð með einstaklingslíkani og lausnir voru reiknaðar út fyrir marga eiginleika samtímis. Birtingin var í tengslum við lok doktorsnáms Þorvaldar Árn- asonar, á hans ábyrgð, en í fullu samráði við Búnaðarfélag Islands sem ber ábyrgð á kynbótastarfi í búfjárrækt hér á iandi. Á næstu ámm voru möguleikar þessara nýju aðferða víða ræddir svo sem í sýningamefnd Búnaðarfélags ís- lands og hjá Landssambandi hesta- mannafélaga, en nefnd sú starfaði í samræmi við ákvæði búíjárrækt- arlaga frá 1973 og var eins konar kynbótanefnd í hrossarækt. Þor- valdur Árnason var einnig mjög ötull á þessum árum að halda fyrir- lestra á almennum fundum hesta- manna víða um land. I sýningar- nefnd voru gerðar samþykktir um að taka BLUP-aðferðina í notkun í hrossaræktinni og leggja BLUP- kynbótamat til grundvallar við upp- gjör afkvæmadóma. Síðla árs 1985 reiknaði Þorvaldur út kynbótamat að nýju en þá höfðu dómar frá þremur sýningarámm bæst við. Niðurstöðurnar voru kynntar í nefndinni, haldið var fast við fyrri samþykktir um þessi mál og ákveð- ið að breyta vægi tölts og taka upp nýtt skýrsluhaldskerfi í hrossarækt. í samræmi við það var ættbókar- númerakerfið gamla lagt niður og tekin upp fæðingamúmer allra skráðra hrossa sem er undirstöðu- atriði svo að grunngögnin nýtist að fullu og kostir einstaklingslíkansins fái notið sín við útreikning kynbóta- matsins. I ljósi m.a. samþykkta sýningar- nefndar ákvað stjóm Búnaðarfélags íslands á fundi sínum í júlímánuði 1986 að taka BLUP-aðferðina í notkun hjá félaginu tii að meta kynbótagildi undaneldishrossa hér- lendis. Jafnframt var samið við fyr- irtæki Þorvaldar Ámasonar í Sví- þjóð um að reikna kynbótamatið út árlega eftir þeim gögnum um dóma og skráningu hrossa sem fé- lagið sendi honum. Eftir þessum samningi var unnið næstu árin en frá 1989 hefur Búnaðarfélagið sjálft haft alla útreikninga á kyn- bótamatinu með höndum. Hins veg- ar samdi félagið við Þorvald Árna- son um að vera faglegur ráðunaut- ur þess við þróun aðferða við kyn- bótamat og við forritagerð til út- reikninganna. í samræmi við það samkomulag var unnið fram á árið 1990. Til stóð að útfæra þetta kerfi enn frekar og sú vinna var í fulium gangi þegar þráðurinn slitnaði um mitt ár 1990. Upp úr slitnaði Þegar hér er komið sögu hafði sú breyting orðið á að Hrossarækt- arnefnd Búnaðarfélags Islands, sem starfar í samræmi við ákvæði bú- íjárræktarlaga frá 1989, var tekin til starfa. Hrossaræktarnefnd kom m.a. í stað sýningarnefndar og þar eru teknar ákvarðanir er lúta að framkvæmd meginþátta ræktunar- starfsins. í búfjárræktarnefndum Búnaðarfélags Islands, þ.m.t. í Kristinn Hugason „Það liðu rúm þrjú ár frá því að kerfi Þor- valdar Árnasonar var fullbúið þar til það var tekið í notkun í leið- beiningastarfi félagsins og tæp átta ár liðu þar til kerfið var loks notað sem grunnur að dómi stóðhesta með afkvæm- um. Þrátt fyrir að hér sé um kjöraðferð að ræða til þeirra hluta. Nær væri að gagnrýna okkur hjá Búnaðaðar- félagi íslands fyrir að fara of hægt í þessu máli.“ Hrossaræktarnefnd sitja fulltrúar starfandi ráðunauta og bænda (hrossaræktarmanna). Lögum sam- kvæmt, til að styrkja hlut faglegra sjónarmiða í afgreiðslu mála, eru fulltrúar starfandi ráðunauta í bú- íjárræktarnefndum í meirihluta. Tilvalið þótti að bjóða Þorvaldi til fundar í Hrossaræktarnefnd 18. apríl 1990 þar sem hann var þá staddur á landinu í einkaerindum, auk þess sem hann notaði ferðina til að rækja samstarf sitt við Búnað- arfélag Islands. Á nefndarfundinum varð Þorvaldur Árnason hins vegar fyrir feiknalegu aðkasti annars full- trúa Félags hrossabænda í nefnd- inni, Halldórs Gunnarssonar. Hall- dór gekk af fundi á meðan að Þor- valdur hélt framsöguerindi sitt en tók svo þátt í umræðum fundar- manna um efnið o? líkti þá mennt- un Þorvaldar við „nýju fötin keisar- ans“ og fór fram á opinbera rann- sókn á menntun hans og hæfni. Hinn fulltrúi Félags hrossabænda, Einar E. Gíslason, lýsti sig ekki andvígan málflutningi Halldórs. Aðrir nefndarmenn lýstu yfir ger- ólíkri skoðun á framlagi Þorvaldar Árnasonar til hrossaræktar á ís- landi. Þeir lýstu yfir skilningi á að nýta bæri ferska kynbótafræði- þekkingu í hrossaræktarstarfinu en leiddu að öðru leyti hjá sér málflutn- ing Halldórs og svöruðu honum í engu. Leit þorri fundarmanna svo á að afloknum fundinum að máli þessu væri lokið. Á þessum og næsta fundi Hrossaræktarnefndar voru gerðar gagnmerkar samþykkt- ir sem treystu undirstöðu notkunar BLUP-kynbótamats i íslenskri hrossarækt og festu aðferðina í sessi. Nú á árinu 1991 á vorfundi var þeirri stefnu fylgt enn frekar í starfi nefndarinnar. Veigamestu atriðin í ofangreind- um samþykktum Hrossaræktar- nefndar eru eftirfarandi: Reglur um verðlaunastig stóðhesta með af- kvæmum eftir kynbótamati er fyrsta atriðið. Stefnumótun í dóm- störfum í samræmi við stigunar- kvarða þar sem markvisst er leitast við að dæma hrossin í samræmi við þann erfðabreytileika sem býr í ís- lenska hrossastofninum er annað atriðið. Það næst með því að auka dreifíngu einkunna og vinna dóm- ana í samræmi við skýrar reglur sem hafa verið gefnar út og kynnt- ar. Á þann hátt verða dómar á kynbótahrossum betri gundvöllur að útreikningi kynbótamats og al- mennt upplýsingagildi þeirra eykst. Þriðja atriðið sem hér skal nefnt er breytt vægi í kynbótadómstigan- um sem hefur sama tilgang og hækkun á vægi tölts sem var gerð 1986, þ.e. að leggja meiri áherslu í ræktuninni á þá eiginleika í fari íslenska reiðhestsins, sem helst marka myndugleik hans og þokka. Flestu hestafólki og jafnvel fleir- um eru eflaust í fersku minni þau átök sem urðu á árinu 1990 í sam- bandi við kynbótadóma. Það er afar skiljanlegt að nokkurn tíma tæki fyrir umráðamenn kynbótahrossa að átta sig á þeim nýju áherslum, sem þá voru teknar upp við dóma kynbótahrossa, og frá var greint hér að framan. Aftur á móti var það sá andi, sem ríkti innan Hrossa- ræktarnefndar og Þorvaldur Árna- son fékk smjörþefinn af, sem réði því hvaða stefnu mál þessi tóku í heild. í ár hefur verið unnið áfram að þessu starfi í góðri einingu, bæði innan og utan Hrossaræktar- nefndar, en þar á Halldór Gunnars- son ekki lengur sæti. Undirritaður vill í því sambandi þakka hrossa- ræktendum um land allt fyrir gott samstarf að þessum málum bæði á sýningarstöðum og á fundum. Fyrrgreind framkoma Halldórs á fundi Hrossaræktarnefndar varð til þess að Þorvaldur Árnason taldi sér ekki fært að starfa lengur fyrir Búnaðarfélag íslands og íslenska hrossarækt. Hann sleit því formlega öllu samstarfi við Búnaðarfélag Is- lands með bréfi til búnaðarmála- Matargerð er list og undirstaðan er úrvals hráefni _ /S00_ kjotiðnaðarstoð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.