Morgunblaðið - 18.12.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991
29
Jólafagnaður Yeradar
ARLEGUR jólafagnaður
Verndar á aðfangadag verður
haldinn í Skipholti 37, veit-
ingahúsinu Furstanum.
Húsið verður opnað kl. 15. Þá
er á boðstólum síðdegiskaffi með
kökum, gosdrykkjum og sælgæti.
Þríréttaður hátíðarmatur verð-
ur framreiddur kl. 18. Á matseðl-
inum verður súpa, hangikjöt með
uppstúfi og grænmeti, síðan
blandaðir ávextir með þeyttum
tjóma.
Að borðhaldi loknu verður
stutt helgistund.
Boðið verður upp á kaffi og
ijómatertu kl. 22.
Allir eru velkomnir, sem ekki
hafa í önnur hús að venda þetta
helgasta kvöld.
Með bestu kveðjum,
f.h. Jólanefndar Verndar,
Hanna Johannessen, formaður.
Morgunblaðið/Þorkell
Tryggvi Pálsson, bankastjóri íslandsbanka, Eiður Guðnason umhverfisráðherra, Hulda Valtýsdóttir,
formaður Skógræktarfélags Islands, Sveinn Runólfsson framkvæmdastjóri Landgræðslu ríkisins, Sigurð-
ur Þráinsson, fulltrúi Náttúruverndarfélags Islands, og Auður Sveinsdóttir formaður Landverndar.
Islandsbanki styður Skógræktarfélag Islands:
Heitir fjórum plöntum fyrir
hvern nýfæddan Islending
Verðmæti gjafarinnar 1,9-2,3 milljónir kr.
ÍSLANDSBANKI hefur ákveðið að gefa Skógræktarfélagi íslands fjór-
ar plöntur næstu fjögur árin fyrir hvern nýfæddan Islending, eða
eina plöntu til gróðursetningar í hveijum landsfjórðungi. Þá ætlar
Islandsbanki á næsta ári að gefa Landgræðslu ríkisins eina milljón
króna til að kaupa raðsáningarvél til uppgræðslu og landbóta. Af
árlegri pappírsnotkun bankans eru um 10 tonn vistvænn pappír og er
í athugun innan bankans að prenta tékkhefti á vistvænan pappír.
Morgunblaðið/Bjarni
Sendiherrahjón Bandaríkjanna, Charles og Sue Cobb, við fagurlega
skreytt jólatréð á Laufásvegi.
Sendiherra Banda-
ríkjanna hættir
Aðeins eitt raðsáningartæki er til
á íslandi, en það hefur margsannað
gildi sitt. Bankinn mun einnig af-
Aðventustund
í Hafnarborg
KÓR og barnakór Hafnarfjarð-
arkirkju, Tónlistarskóli Hafnar-
fjarðar og Hafnarborg gangast
fyrir Aðventustund í Hafnarborg
fimmtudaginn 19. desember
klukkan 20,30.
Á efnisskrá eru aðventu- og jóla-
tónlist og fram koma: Inga Bachman
sópransöngkona, Einar Jónsson
trompetleikari, Hallfríður Ólafsdótt-
ir flautuleikari, Gunnar Guðmunds-
son fiautuleikari, Guðrún
Guðmundsdóttir orgelleikari, Ric-
hard Korn kontrabassaleikari, Barn-
akór Hafnarijarðar og Kór Hafnar-
fjarðarkirkju. Stjórnendur eru Bryn-
hildur Auðbjargardóttir og Helgi
Bragason.
henda Náttúruverndarráði hálfa
milljón króna til að bæta aðstöðu
og hefta sandfok við Dimmuborgir.
Svæðinu stafar nú hætta af vaxandi
ferðamannaþunga og sandfoki á
svæðinu sunnan Dimmuborga.
Á síðasta ári fæddust 4.768 ís-
lendingar og sé miðað við að sami
fjöldi fæðist næstu fjögur árin er
gjöf íslandsbanka 76.288 plöntur.
Meðalverð á skógarplöntu er á bilinu
25-30 kr. og er verðmæti gjafarinn-
ar því 1,9-2,3 milljónir kr., þar af
renna 467-560 þúsund kr. til ríkis-
sjóðs í formi virðisaukaskatts.
Islandsbanki gaf síðastliðið sumar
Skógræktarfélagi íslands 90 þúsund
trjáplöntur til gróðursetningar og
þar af gróðursettu starfsmenn bank-
ans 25 Jmsund plöntur á Skógrækt-
ardegi Islandsbanka. Þá gaf bankinn
500 þúsund krónur til landgræðsluá:
taksins „Græðum og græðum". í
fréttatilkynningu frá íslandsbanka
segir að þessu samstarfi við upp-
græðslu Islands og gróðurverndar
verði haldið áfram.
Um áramótin kemur út dagatal
bankans í 80 þúsund eintökum sem
prentað er á vistvænan pappír. Da-
gatalið er helgað umhverfísmálum
og umhverfisvernd og vill bankinn
með útgáfunni hvetja alla landsmenn
til dáða á þessu sviði. Samhliða da-
gatalinu gefur Islandsbanki út vegg-
spjald með sömu myndum og boð-
skap og er að finna á dagatalinu.
Tryggvi Pálsson bankastjóri íslands-
banka afhenti á mánudag fulltrúum
Landgræðslunnar, Skógræktarfé-
lags Islands og Náttúruverndarráðs
áheitin við hátíðlegt tækifæri í bank-
anum. Viðstaddur var Eiður Guðna-
son umhverfisráðherra sem fékk
afhent fyrsta eintakið af dagatalinu
og veggspjaldinu.
CHARLES E. Cobb sendiherra
Bandaríkjanna á Islandi lætur
brátt af störfum sem slíkur og
hverfur til Bandarikjanna á nýj-
an leik. Hann og kona hans Sue
hafa verið hér á landi síðan
haustið 1989.
Cobb sagði í samtali við Morgun-
blaðið að George Bush Bandaríkja-
forseti hefði óskað eftir því að hann
yrði einn af kosningastjórum sínum
og meðal annars þess vegna hyrfi
hann aftur heim fyrr en upphaflega
hefði staðið til, til þess að taka þátt
í og undirbúa kosningabaráttu
Bandaríkjaforseta.
Auk þess segist Cobb þurfa að
hætta fyrr en ella af persónulegum
ástæðum, viðskiptalegs eðlis, svo
og vegna þess að seta hans í stjórn
Háskólans í Miami geri það að verk-
um að hann þurfi að sinna stjórnun-
arstörfum þar í auknum mæli.
Ekki hefur verið ákveðið hver
mun taka við af Cobb en reiknað
er með því að sendiherraskipti fari
fram seinnihluta janúarmánaðar
eða í byijun febrúar á næsta ári.
Reyndum að sinna þeim
sem verst urðu úti í stríðinu
Morgunblaðið/Emilfa
Aðalstöðin styður
rannsóknastarf-
semi Krabbameins-
félagsins
Almar Grímsspn, formaður Krabba-
meinsfélags íslands, og Baldvin
Jónsson, eigandi Aðalstöðvarinnar,
innsigluðu í gær samstarfssamning
með handabandi á skrifstofu Aðal-
stöðvarinnar, en helmingur nettó-
tekna stöðvarinnar af jólakveðjum
sem lesnar verða yfir hátíðirnar
rennur til rannsóknastarfsemi
Krabbameinsfélagsins. Verður fénu
varið til grunnrannsókna á bijósta-
krabbameini á rannsóknastofu í
sameinda- og frumulíffræði. Auk
þess rekur rannsóknastofan lífsýna-
banka sem ætlaður er til að safna
efnivið, aðallega blóðsýnum, fyrir
rannsóknir framtíðarinnar.
- segir Björn Óli Hauksson, sem
vann á vegum Rauða krossins í írak
BJÖRN Óli Hauksson rekstrarverkfræðingur hefur undanfarna sjö
mánuði unnið á vegum Alþjóðanefndar Rauða krossins í írak, m.a.
við að koma upp vatnsdreifingarkerfi, en víða í landinu var vatns-
laust eftir Persaflóastríðið. Hann segir ástandið í írak ekki hafa
verið eins slæmt eftir stríðið og hann hafði í upphafi talið. Björn
segir íraka vera vingjarnlegt fólk og jákvætt þrátt fyrir þær hörm-
ungar, sem það hefur gengið í gegnum.
Björn fór til írak um miðjan
apríl en þá var hann var beðinn
um að sinna neyðarhjálp þar ásamt
fjórum öðrum Islendingum, Magn-
úsi Hallgrímssyni verkfræðingi,
Kristjóni Þorkelssyni pípulagning-
armanni, Magnúsi Björnssyni vél-
virkja og Helgu Leifsdóttur við-
skiptafræðingi.
N eyðarvatnsdr eifikerfi
sett upp
Fljótlega eftir komuna til
Bagdad fór hluti hópsins til Nasiri-
yah, sem er rúmlega 400 kílómetra
suður af Bagdad og eru íbúar borg-
arinnar um 250 þúsund. „Þegar
við komum þangað var búið að
sprengja flestar brýr yfir Efrat-ána
og þar sem vatnsleiðslur voru
byggðar inn í brýrnar var hálf
borgin orðin vatnslaus og í hinum
helmingnum varð fólk að taka
vatnið úr meginæðum, þar sem það
blandaðist grunnvatni og skolpi,“
segir Björn.
Björn segir að þeir hafi því byij-
að á því að koma upp neyðarvatns-
dreifikerfi fyrir borgina og ná-
grenni með því að byggja neyðar-
vatnstanka úr bárujárni og
plastdúk. „Þessir tankar taka um
70 þúsund lítra hver og þegar við
vorum búnir að byggja alla tankana
voru þeir alls um níu talsins í borg-
inni sjálfri og nágrenni. Með þessu
gátum við dælt vatni frá vatns-
veitunum rétt fyrir utan borgina
yfir í tankbíla, sem fluttu svo vatn-
ið í neyðartankana og við dreifðum
þegar mest var rúmlega milljón lítr-
um af vatni á dag. Þarna reyndum
við aðallega að sinna þeim, sem
verst höfðu orðið úti í stríðinu,"
segir Björn.
Lítill skaði eftir stríðið
Þegar búið var að byggja neyð-
arkerfið upp fór, að sögn Björns,
að hægja á framkvæmdum í Nasiri-
yah og fór hann þá til Bagdad þar
sem hann tók við stjórnunarstöðu
og sá meðal annars um alla þá
birgðaflutninga, sem komu við
vatnsdreifingu og vatnsveitum í
írak. Þar var hann í rúmlega fjóra
mánuði eða þar til verki hans í Irak
var lokið.
Björn segir að það hafí komið
sér á óvart hversu lítill skaði hafði
orðið eftir stíðið. „Ég átti von á
því að skaðinn væri meiri í land-
inu. Það var búið að eyðileggja
ákveðin skotmörk í landinu, sem
gerði að verkum að til dæmis var
ekki rafmagn á mörgum stöðum
og víða var vatnslaust. Þegar ég
kom fyrst út var eins og stríðið
væri enn í loftinu og vegna raf-
magnsleysis var Bagdad alveg
myrkvuð. Þetta gerði einnig erfið-
ara en ella að hefja neyðarstarfið."
Irakar vingjarnlegir
„Ég kunni alveg sérstaklega vel
við Iraka. Þetta er mjög stolt fólk,
en samt mjög vingjarnlegt og vill
allt fyrir mann gera og gildir það
fyrir alla þjóðfélagshópa í landinu.
Gagnvart mér var fólk mjög já-
kvætt og jafnvel þó að stundum
væri ég tekinn sem Bandaríkja-
maður var samt sama viðhorfið til
staðar þrátt fyrir að stríðið hefði
Morgunblaðiö/Ámi Sæberg
Björn Óli Hauksson
endað aðeins nokkrum vikum áð-
ur,“ segir Björn.
Björn segist gjarnan vilja fara
aftur á vegum Rauða krossins ef
honum byðist það. „Ég var mjög
ánægður með veruna í Irak, meðal
annars vegna þess hve Rauða
krossinum tókst að inna af hendi
gott starf í þágu allra þjóðfélags-
hópa, hvort sem það voru Kúrdar
eða aðrir írakar. Svona starf er
náttúrlega allt bundið þörfinni á
hverjum tíma en ég myndi ekki
hika við að fara aftur ef eitthvað
byðist," sagði Björn Óli Hauksson
að lokum.