Morgunblaðið - 18.12.1991, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 18.12.1991, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991 27 Tannheílsa á markaðstorgi eftir Ólaf Höskuldsson í 17. grein frumvarps ríkisstjórn- ar íslands um efnahagsaðgerðir sem nú liggur fyrir Alþingi segir meðal annars: „Fyrir tannlæknaþjónustu, aðra en tannréttingar, greiða sjúkra- tryggingar sem hér segir: 1. Fyrir börn og unglinga 15 ára og yngri 90% kostnaðar við tannlækningar, aðrar en gullfyllingar, krónu- og brúargerð. Sjúkratryggingar skulu þó aldrei greiða tannlæknakostnað hjá almennum tannlæknum vegna barna og unglinga 6-15 ára á svæð- um þar sem skólatannlækningaj- eru skipulagðar og starfræktar. Á svæðum þar sem tannlæknaþjón- usta hefur verið boðin út skulu sjúkratryggingar þó aldrei greiða tannlæknakostnað barna og ungl- inga 15 ára og yngri hjá öðrum tannlæknum en þeim sem aðilar eru að samningum sem leiða af útboði." Lofsvert er að nú skuli loksins' ráðgert að veita öllum tryggðum börnum sömu endurgreiðslu. Félag íslenskra barnatannlækna átelur þó harðlega þá aðför ríkis- stjórnarinnar að þeim rétti íslenskra barna að geta útlátalaust leitað tannlæknis að eigin eða foreldra vali. í lok janúar 1990 var sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins frá 1989 undirritaður af íslands hálfu. í lauslegri þýðingu segir í 3. grein þess samnings að við allar aðgerðir stjórnvalda og löggjafa er varði börn skuli fyrst og fremst tekið tillit til velferðar barnsins. í 2. grein samningsins segir að með jöllum viðeigandi Oskabrunn- ar Lions- manna í Tý LIONSKLÚBBURINN Týr í Reykjavík hefur um árabil styrkt fatlaða íþróttamenn. Nú hafa Týsmenn látið gera „óska- brunna“, sem eru söfnunarbauk- ar, sem settir hafa verið upp víða í verzlunum í Reykjavík. Allt söfnunarfé rennur til styrktar olympíuliði fatlaðra íþrótta- manna. Þrír stærstu óskabrunnarnir eru í afgreiðslu Flugleiða á Reykjavík- urflugvelli, í Miklagarði og Kaup- stað í Mjódd. Söfnunarfé fer í að standa undir kostnaði við þátttöku íþróttafólksins í Paralympicsleikun- um, sem haldnir verða í Barcelona í kjölfar Olympíuleikanna þar 1992. Leikarnir verða bæði fyrir hreyfi- hamlaða.og þroskahefta. -----♦ » ♦----- Jólasöngva- kvöld að- ventista MEÐ JÓLIN í huga verður efnt til ,jóla-söngva-söngs“ föstu- dagskvöldið 20. desember nk. kl. 20.00, í Aðventistakirkjunni, Reykjavík, Ingólfsstræti 19. Þar verða fegurstu og kærustu jóla- sálmarnir í almennum söng. Allir eru velkomnir til að nema staðar um stund, gleðjast og hvílast frá ofurönnum við þessa fögru söngva hátíðanna, sem eru raun- verulega alltof sjaldan sungnir — einu sinni á ári — og með því syngja inn jólin. (Frcttatilkynning) ráðum skuli firra börn sérhverri mismunun er kunni að leiða af stöðu foreldra þeirra eða forráð- amanna. Nái fyrrgreind áform ríkisstjórn- arinnar fram að ganga verða börn efnaminni foreldra neydd til þess við sjötta afmælisdaginn að yfirgefa tannlækni fjölskyldunnar og leita til einhvers tannlæknis sem ríkis- valdið lætur þeim í té. Hér heggur sá er hlífa skyldi. Jafn illa grunduð er sú breyting- artillaga við frumvarpið sem hvetur Ólafur Höskuldsson „ Jafn illa grunduð er sú breytingartillaga við frumvarpið sem hvetur til þess að foreldrar þeyti börnum sínum milli skólatannlæknis og heimilistannlæknis.“ til þess að foreldrar þeyti börnum sínum milli skólatannlæknis og heimilistannlæknis allt eftir því hverrar þjónustu er þörf. Þegar fleiri en einn bera ábyrgð ber hana enginn. Einnig segir í 17. grein frum- varpsins: „Greiðslur sjúkratrygg- inga samkvæmt þessari grein skulu vera í samræmi við samninga sem Tryggingastofnun gerir eða sam- kvæmt samningum sem leiða af útboði.“ Félag íslenskra barnatannlækna harmar mjög það skeytingarleysi sem ríkisstjórn okkar sýnir tann- heilsu íslenskra barna með þeim áformum sínum að bjóða út gæslu hennar á markaðstorgi. Hvati þessara hugmynda ríkis- stjórnarinnar mun vera sú virðing- arverða viðleitni hennar að spara almannafé. Hinsvegar verður ekki séð að sá verði árangur þessara aðgerða. Þvert á móti má ráða af ýmsum upplýsingum frá ráðuneyti heilbrigðismála, Tryggingastofnun ríkisins og Skólatannlækningum Reykjavíkurborgar að umtalsverður kostnaðarauki muni af hljótast. Félag íslenskra barnatannlækna hvetur alla þá er láta sig þessi mál varða til að ræða þau við þingmenn sína. Höfundur er formaður Félags íslenskra barnatannlækna. Á.AÁÁÁA JQlMl Yeljir þú íslenskt jólatré gróðursetjum við þrjátíu ný í staðinn! Gefðu íslandi skóg í jólagjöf. Með því að kaupa íslenskt jólatré leggur þú íslenskri skógrækt lið. Fyrir hvert selt jólatré fær Skógræktin fé til að gróðursetja þrjátíu ný í staðinn. íslensk jólatré eru í langílestum tilvikum ódýrari en þau erlendu, en framleiðsla og sala íslensku jólatrjánna er þó mikilvæg íjáröílunarleið fyrir skógrækt í landinu. íslensk jólatré fást á helstu sölustöðum. Við þökkum stuðninginn við íslenska skógrækt og bjóðum ykkur velkomin í skóglendi okkar til að njóta þar útivistar í fögru umhverfi. SKOGRÆKT RÍKISINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.