Morgunblaðið - 18.12.1991, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991
Jöfnunargj aldið
verði framlengt
— Nauðsyn brýtur lög segir utanríkisráðherra
Frumvarp um framlengingu á jöfnunargjaidi var til umræðu í
gær. Gjaldið hefur verið lagt siðan 1978 á innfluttar vörur til að
jafna upp aðstöðumun og óhagræði sem innlendir framleiðendur
urðu að þola vegna mismunar á álagningu söluskatts og virðisauka-
skatts. Þetta gjald hefur verið mjög umdeilt, sérstaklega eftir að
virðisaukaskattur var upptekinn í ársbyrjun 1990. Það er ekki ann-
að að heyra í umræðum í gær en að þingmenn hafi tekið nokkrum
sinnaskiptum. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði að
nauðsyn bryti lög. Olafur Ragnar Grímsson (Ab-Rn) og fyrrum fjár-
málaráðherra var einna helst á því að álagning þessa gjalds orkaði
nokkuð tvímælis. Friðrik Sophusson núverandi fjármálaráðherra
hefur barist gegn þessu gjaldi utan þings og innan.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra mælti fyrir frumvarpinu.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
framlengja jöfnunargjaldið fram á
mitt næsta ár. Þessu gjaldi er ætl-
að að afla ríkissjóði. 350 milljóna
króna tekna. Friðrik hafði ekki
mörg orð um þetta frumvarp, hann
lagði til að þessu máli sem væri
einfalt og auðskilið yrði vísað til
efnahags- og viðskiptanefndar.
Þingmenn stjórnarandstöðu
gagnrýndu mjög hvernig ríkis-
stjórn stæði að afgreiðslu ijárlaga
og meðfylgjandi tekjufrumvarpa.
Ríkisstjómin virtist ekki hafa talað
við nokkurn mann um nokkurn
hlut. Halldóri Ásgrímssyni (F-Al)
var ljóst að fjárlagavandinn væri
mikil en ríkisstjórnin gæti aldrei
leyst hann nema í bærilegu sam-
komulagi m.a. við aðila vinnu-
markaðarins. En nú virtust allir
koma af fjöllum og mótmæla harð-
lega. Halldór greindi t.a.m. frá því
að fulltrúar Vinnuveitendasam-
bands íslands hefðu haft uppi stór
orð á fundi með efnahags- og við-
skiptanefnd um morguninn, s.s.
að enginn stæðist slíka skatt-
heimtu nema eiturlyfjasalar. Einn-
ig var minnt á það að Vilhjálmur
Egilsson framkvæmdastjóri
Verslunarráðs íslands hefur ritað
Stuttar'
þingfréttir: y;
efnahags- og viðskiptanefnd bréf
og væri þar hótað málaferlum.
Stjórnarandstæðingar minntu á
það að Sjálfstæðismenn hefðu
mjög barist gegn þessu gjaldi í tíð
fyrri ríkisstjórnar. Olafur Ragnar
Grímsson (Ab-Rn) sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráð-
herra hafa verið mjög andstæðan
þessu jöfnunargjaldi og fært fyrir
því nokkur rök að gjaldið bryti í
bága við alþjóðasamninga og
skuldbyndingar. Ólafi þótti mjög á
skorta að orð skyldu standa. Það
kom einnig fram í orðræðu Ólafs
Ragnars að hann hefði alltaf verið
fylgjandi jöfnunargjaldi en hann
hefði tekið Jón Baldvin Hannibals-
son alvarlega áður en hann gæti
tekið afstöðu til þessa máls núna
yrði hann að fá skýringar frá utan-
ríkisráðherra. Væru orð hans
markleysa? Kristín Einarsdóttir
(SK-Rv) taldi að aðstæður sem
réttlættu þetta gjald væru ekki
lengur til staðar.
Jóni Baldvini Hannibalssyni
utanríkisráðherra sýndist líðan
Ólafs Ragnars Grímssonar fyiTum
fjármálaráðherra vera svipuð líðan
gamanleikara sem horfði nú uppá
það að annar hefði stolið frá honum
rullunni. Ráðherrann sagði að
Ólafur Ragnar og Halldór Ás-
grímsson fyrrum sjávarútvegsráð-
herra hefðu verið einlægir og
ódeigir baráttumenn fyrir jöfnun-
argjaldinu á fyrri tíð. Utanríkisráð-
herra var engin launung á því að
honum væri ekkert fagnaðarefni
að verða una þessu gjaldi lengri
lífdaga, en nauðsyn bryti lög. Það
væri nauðsynlegt að skila trúverð-
ugu ijárlagafrumvarpi.
Nýr fjárlagavandi?
Ólafur Ragnar Grímsson
(Ab-Rn) hvatti ríkisstjórnina til að
taka sér hlé og skoða stöðu sinna
mála, sérstaklega fjármálin, m.a.
taka upp fjárlagafrumvarpið. Þjóð-
hagsspáin sem núna væri að koma
sýndi stórkostlegt tekjutap miðað
við forsendur fjárlaga, innheimtu-
tölur fyrir virðisaukaskattinn í nóv-
embermánuði sýndu einn milljarð
í mínus frá upphaflegri áætlun.
Eins og fjárlagafrumvarpið stæði
núna fyrir 3. umræðu miðað við
endurskoðaða tekjuspá, í ljósi
nýrra upplýsinga frá Þjóðhags-
stofnun og fjármálaráðuneyti, og
miðað við það sem væri að gerast
á þeirri hliðinni sem sneri að út-
gjöldum; væri Ijóst að fjárlaga-
frumvarpið stefndi í 7-8 milljarða
halla á nýjan leik. Nú væri sýnt
af tekjuspá Þjóðhagsstofnun að
tekjur ríkissjóð yrðu 1-2 milljörð-
um lægri en ætlað hefði verið við
2. umræðu. Nú hefði frumvarpinu
um skattlagningu innlánsstofnana
verið frestað fram yfir áramót og
líklegt væri að 100-200 milljónir
myndu fara út úr tekjuöflunar-
frumvörpunum. Gjaldamegin hefði
það gerst að „Össur Skarphéðins-
son og félagar" hrósuðu sigri í
skólagjaldamálinu, sjúkrahúsmálin
og heilbrigðismálin væru öll uppi
í lofti. Ólafi Ragnari reiknaðist að
þótt einungis væri miðað við þegar
teknar ákvarðanir væri ljóst að
vantaði 500-1.000 milljónir. Fjár-
lagavandi ríkisstjórnarinnar milli
2. og 3. umræðu væri um^3.500
milljónir.
Friðrik Sophusson
Steingrímur J. Sigfússyni
(Ab-Ne) sagði að efnisleg rök fyrir
álagningu þessa gjalds hefðu farið
dvínandi á síðustu árum en hins
vegar væri fullkomlega réttlætan-
legt að huga að sértækari
jöfnunargjöldum á innfluttar vörur
sem nytu styrkja og niðurgreiðslna
í framleiðslulandi. Það var á Hall-
dóri Ásgrímssyni (F-Al) að skilja'
að innlendir framleiðendur byggju
við margháttað óhagræði og fjár-
hagstjón vegna skattastefnu ríkis-
stjórnarinnar og væru ýmsir skatt-
ar verri en jöfnunargjaldið. Halldór
taldi íhugunarefni hvort ekki ætti
að halda þessu gjaldi út árið 1992.
í lok þessarar umræðu í gær
þakkaði Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra víðtækan stuðning
við þetta jöfnunargjald. En ráð-
herra lét þess getið í leiðinni að
hann yrði að hryggja áköfustu
stuðningsmennina með þeirri
áminningu að það yrði ekki lagt
lengur á en næstu sex mánuði.
Margir stuðningsmenn ríkisstjórn-
arinnar væru áhugamenn um að
leggja þetta gjald niður.
Máli þessu var vísað til annarrar
umræðu og efnahags- og við-
skiptanefndar.
MMAQ
Síldarverksmiðjur ríkisins hf. Utanríkisráðherra í umræðum um EES:
• Stuttar
þirigfréttir:
Lög frá Alþingi
Síðastliðinn laugardag sam-
þykkti Alþingi með 38 samhljóða
atkvæðum sem lög fnimvarp um
breytingu á ýmsum lögum vegna
aðskilnaðar dómsvalds og um-
boðsvalds í héraði. Einnig var
samþykkt sem lög frumvarp um
veitingu ríkisborgararéttar. 46.
einstaklingar munu öðlast íslenskan
ríkisborgararétt þegar forseti ís-
lands hefur staðfest lögin. Enn-
fremur var samþykkt sem ályktun
Aþingis heimild handa ríkisstjórn-
inni að fullgilda fyrir íslands hönd
saming um hefðbundinn herafla
í Evrópu. Samningurinn er um
takmörkun vígbúnaðar á sviði hefð-
bundinna vopna og var undirritaður
í París 19. nóvember 1990.
Síðastliðinn föstudag voru sam-
þykkt sem lög frumvarp um nauð-
ungarsölu og frumvarp um sér-
stakan skatt á verslunar- og
skrifstofuhúsnæði. í gær var laga-
frumvarp samþykkt um Verðjöfn-
unarsjóð sjávarútvegsins, nú er í
lög fest að inngreiðslur í sjóðinn
verða ekki á tímabilinu 1. janúar
1992 til 31. ágúst 1992. Fyrstu
lögin sem Alþingi afgreiddi á þessu
ári voru fjáraukalög fyrir árið 1991
en þau voru samþykkt 2. desember.
Vaxtabætur
Vaxtabætur verða óbreyttar á
næsta ári. Samkomulag varð í ríkis-
stjórninni að draga nokkuð úr
vaxtabótum en það getur ekki orðið
fyrr en eftir næsta ár, þar sem
ástæða er til að athuga og gaum-
gæfa breytt fyrirkomulag betur og
bíða með löggjöf þar til síðar.
25% hækkun á vörugjaldi
Ráð hefur verið fyrir því gert
samkvæmt fjárlagafrumvarpi að
afla Hafnabótasjóði 125 milljóna
króna tekna m_eð hækkunum á
hafnargjöldum. í gær var nánari
útfærsla á þessum hugmyndum
kynnt í efnahags- og viðskipta-
nefnd. Ráð mun vera fyrir því gert
að leggja 25% álag ofan á vöru-
gjaldið. Aflagjaldið er því undan-
þegið.
Bæði þingmenn úr stuðingsliði
stjómar sem og stjórnaandstöðu
létu í ljós ugg og ótta við uppsöfn-
unaráhrif af gjaldtöku þessari sem
yki dýrtíðina.
Lagt hefur verið fram stjórnar-
frumvarp um stofnun hlutafélags
um Sildarverksmiðjur ríkisins.
Frumvarpið gerir m.a. ráð fyrir því
að fastráðnir starfsmenn Síldar-
verksmiðja ríkisins skulu hafa rétt
til starfa hjá hinu nýja hlutafélagi
við stofnun þess og skuli þeim boð-
in sambærileg staða hjá félaginu
og þeir gegndu áður hjá verksmiðj-
unum.
í athugasemdum með frumvarp-
inu segir m.a. að telja verði eðlilegt
að fyrirtæki eins og Síldarverk-
smiðjur ríkisins sem starfi á sam-
keppnismarkaði, búi við sama
rekstrarfonn og samkeppnisaðil-
amir. Ýmis önnur rök eru einnig
tíunduð s.s. að reksturinn verði
sveigjanlegri. Vilji stjóm fyrirtækis-
ins ráðast í fjárfrekar framkvæmd-
ir og ríkið vilji ekki ieggja fram
aukið hlutafé, verði unnt að leita
að nýju fjármagni með hlutafjár-
aukningu og nýjum hluthöfum.
„Lifi byltingin"
Jón Kristjánsson (F-Al) var tmfl-
aður í sínum ræðuflutningi þegar
þingmaðurinn var að tala um frum-
varp til fjárlaga fyrir árið 1992 síð-
astliðinn fímmtudag. Um kl. 13.45
heyrðist, hátt og hvellt frá áheyr-
endapöllum: „Lifi byltingin." Var
þar ungur maður sem virtist vera
undir annarlegum áhrifum, sum-
part af völdum lyfja og sumpart
af völdum áfengis.
. Manninum gafst ekki færi á því
að útlista nánar þau pólitísku áhrif
sem hann var undir. Þingverðir fjar-
lægðu snarlega þennan ræðumann
af pöllunum.
Tvíhliöa viðræður við EB koma
ekki til greina að svo stöddu
JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði í utandagskrár-
umræðu um Evrópska efnahagssvæðið á Alþingi í gær að hann
teldi ekki koma til greina að hverfa frá áformum um aðild að
EES og taka í staðinn upp tvíhliða viðræður við Evrópubandalag-
ið um útvíkkaðan viðskiptasamning. Fulltrúar stjórnarandstöðunn-
ar Iýstu sig hins vegar fylgjandi því að gefa EES upp á bátinn
vegna synjunar Evrópudómstólsins á samningnum og taka upp
tvíhliða viðræður. Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanríkis-
málanefndar þingsins, lýsti sig einnig fylgjandi tvíhliða viðræðum.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði,
í svari við fyrirspurn Hjörleifs Gutt-
ormssonar, Alþýðubandalagi, að
EES-samningurinn væri hagstæður
íslenzkum þjóðarhagsmunum. ís-
lendingar hefðu þá sérstöðu innan
Fríverzlunarbandalagsins (EFTA)
að hafa langtímahagsmuni að sjón-
armiði með gerð EES-samningsins.
Hann sagði að ærin tvíhliða sam-
skipti hefðu farið og færu fram
milli íslands og EB, en ótímabært
væri að hætta samfloti með EFTA-
ríkjunum og fara í tvíhliða viðræður
um viðskiptasamning fyrr en í ljós
kæmi hvort EB gæti efnt EES-
samninginn.
Utanríkisráðherra svaraði því
einnig hver væri staða í tvíhliða
samningum við EB um sjávarút-
vegsmál. Hann sagði að efnislega
væri samningurinn því sem næst
tilbúinn, en hann teldi þó að vegna
dráttar á staðfestingu EES-samn-
ingsins myndi lúkning þessa samn-
ings einnig frestast. Ráðherra sagð-
ist telja það fullkomlega samrýman-
legt að taka að sér formennsku í
EFTA um næstu áramót og gæta
um leið íslenzkra hagsmuna, af því
að það samrýmdist fyllilega íslenzk-
um hagsmunum að ná EES-samn-
ingi, sem væri EFTA í heild hag-
stæður.
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, taldi
ólíklegt að fram næðist endurskoð-
un á EES-samningnum, sem Evr-
ópudómstóllinn gæti sætt sig við.
Hann hafnaði jafnframt þeim kosti
að ganga í Evrópubandalagið. Hins
vegar sagðist þingmaðurinn ekki
vilja útiloka þann kost að halda
samskiptunum við EB óbreyttum
Jón Baldvin Hannibalsson
og auka hér í staðinn frelsi á ýms-
um sviðum, til dæmis í fjármagns-
pg þjónustuviðskiptum. Sá kostur
íslendinga, sem Steingrímur sagð-
ist helzt mæla með, var meiri
áherzla á sérstakan samning við
Evrópubandalagið, sem tryggði
meðal annars betri stöðu íslenzks
sjávarútvegs.
Kristín Einarsdóttir, Kvenna-
lista, sagði að komið væri í óefni í
EES-samningunum og hætta bæri
samflotinu við hin EFTA-ríkin, leita
þess í stað eftir tvíhliða viðræðum
við EB um endurbætur á fríverzlun-
arsamningnum frá 1972. Hjörleifur
Guttormsson, Alþýðubandalagi,
sagði að tími væri kominn til að
kistuleggja áformin um EES og
fara í tvíhliða samninga.
Eyjólfur Konráð Jónsson, Sjálf-
stæðisflokki, formaður utanríkis-
málanefndar, sagðist alltaf hafa
bent á að enginn EES-samningur
væri í höfn, aðeins væru til drög
og þau léleg. Eyjólfur Konráð sagð-
ist vilja tvíhliða viðræður fljótlega,
en samt ekki að EES-málinu yrði
lokað. „
Björn Bjarnason, Sjálfstæðis-
flokki, tók undir með utanríkisráð-
herra um að sú staða, sem komin
væri upp í EES-samningunum,
væri alfarið innra mál EB. Hann
sagðist sammála því, sem Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, þingmaður
Kvennalista, hefði sagt; að ef EES-
samningurinn færi út um þúfur
ykist þrýstingur á EB-aðild íslend-
inga. Bjöm hafnaði tvíhliða viðræð-
um við EB að svo stöddu og sagði
að ekki ætti að hverfa frá EES-
samningnum fyrr en í fulla hnefana.