Morgunblaðið - 18.12.1991, Qupperneq 62
62
MORGÚNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991
ÍÞRÖmR
FOLK
■ JÚGÓSLA VINN Dejan
Savicevic, miðvallarspilari hjá
Rauðu Stjörnunni í Júgóslavíu,
skrifar undir samning við AC
Milan í vikunni. Rauða Stjarnan
mun fá 407,5 millj. ÍSK fyrir
Savicevic, sem er 23 ára. Hann
mun leika út þetta keppnistímabil
með Rauðu Stjörnunni.
■ TÉKKINN Ivo Stas, 23 ára,
sem Aston Villa keypti frá Banik
" Ostrava fyrir 300 þús. pund fyrir
þrettán mánuðum, er hættur hjá
félaginu vegna þrálátra meiðsla í
hásin. Aston Villa fær 500 þús.
pund í bætur út úr slysatryggingu
leikmannsins og ræður félagið hver
hlutur Stas verður.
■ NANTES hefur fest kaup á
danska landsliðsmanninum Jonny
Mölby frá Vejle. Mölby er 22 ára.
Með Nantes leika tveir aðrir útlend-
ingar - Argrnínumaðurinn Jörge
Nurruchaga og Júgóslavinn Zor-
an Vulic, sem er Króati og þess
vegna hættur að leika með landsliði
Júgóslavíu.
■ EKKERT verður að leik Alba-
níu og Spánar í Evrópukeppni
landsliða, sem átti að fara fram í
Albaníu í dag - og óvíst er hvort
að leikurinn verði nokkurntíma leik-
inn. Ástæðan fyrir þessu er hið
ótrygga ásand sem er í Albaníu.
Leikurinn skiptir engu máli í EM,
þar sem Frakkar hafa þegar tryggt
sér sigur í 1. riðli.
■ AAD de MOS, hollenski þjálfar-
inn hjá Anderlecht, hefur end-
urnýjað samning sinn við belgíska
félagið til tveggja ára. Hann hefur
verið þjálfari Anderlecht í þijú ár.
Frá
Bob
Hennessy
ÍEnglandi
■ TREVOR Francis, fram-
kvæmdastjóri Sheffield Wed., er
nú að vinna í því að fá Chris
Waddle til félagsins frá Marseille.
Francis mun fara
til Frakklands eftir
jól til að ræða við
forráðamenn Mar-
seille, sem vilja fá
1,5 millj. pund fyrir Waddle, en
Francis hefur boðið eina millj.
punda. Marseille keypti Waddle
fyrir tveimur árum frá Tottenham
á 4,5 millj. pund. „Ég vona að ég
komi heim með Waddle með mér,“
sagði Francis.
■ NEWCASTLE hefur einnig
■» mikinn áhuga að fá Waddle til fé-
lagsins, en Ossie Ardiles, fram-
kvæmdastjóri Newcastle, lék með
honum hjá Tottenham. Kevin
Keegan er byijaður að starfa hjá
Newcastle og er það í hans verka-
hring að safna peningum til að
kaupa Waddle.
■ MIKLAR líkur eru á að Gary
Lineker leiki með Tottenham
gegn Liverpool í kvöld.
■ ASTON Villa seldi Ian Orm-
ondrojo til Derby í gær á 300
þús. pund, en hann hefur verið í
láni hjá Derby sl. tvo mánuði.
■ ALAN Smith, aðstoðarmaður
Steve Coppel hjá Crystal Palace,
sagði í gær að það hafi verið mis-
■^tök að kaupa Marco Gabbiadni frá
Sunderland á 1,8 millj. punda.
Hann hefur ekki skorað nema eitt
mark í ellefu leikjum. Palace keypti
hann þegar félagið seldi Ian
Wright til Arsenal.
FELAGSLIF
Aðatfundur hjá Fram
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Fram verður haidinn í félagsheimili
Fram við Safamýri, föstudaginn 20.
desember kl. 20.30.
í kvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Víkin, Víkingur - ÍBV 20
Bikarkeppni kvenna, 8-liða úrslit: |
Hlíðarendi: Valur-Víkingur....kl. 20
Körfuknattleikur
Japisdeildin:
Stykkish.: Snæfell-KR kl. 20
KNATTSPYRNA
lan Rush leikmaður Liverpool segir að stuðningsmenn Liverpool komi til með
að haga sér vel í Evrópuleikjunum gegn Genoa.
Liverpool gegn
flölsku liði í
fyrsta sinn í 7 ár
Liverppol mætir ítalska liðinu
Geona í átta liða úrslitum Evr-
ópukeppni félagsliða, en dregið var
í gær. Liverpool fékk sex ára bann
í Evrópukeppni eftir harmleikinn á
Heyselleikvanginum í Brússel, þeg-
ar 39 áhorfendur fórust í ólátum
fyrir úrslitaleik Liverpool og Ju-
ventus í Evrópukeppni meistaraliða.
Síðan hefur Liverpool ekki leikið
gegn ítölsku liði í opinberri keppni.
Peter Robinson, framkvæmda-
stjóri enska félagsins, var ánægður
með mótheijana. Hann sagði leik-
menn Liverpool vera fulla sjálf-
strausts eftir velgengnina í keppn-
inni til þessa, en engu að síður yrðu
þetta erfiðir leikir vegna reglna sem
giltu um §ölda erlendra leikmanna.
Á móti kæmi að Graeme Souness
hefði mikla reynslu af ítalskri knatt-
spyrnu, en hann lék með Sampdor-
ia, sem deilir velli með Genoa. Sou-
ness segir að leikurinn í Genoa verði
erfiður, en ef við leikum okkar leik
þurfum við ekkert að óttast. „Við
höfum fengið smá bónus með því
að leika fyrri leikinn á Ítalíu."
Ian Rush, sem fór frá Liverpool
til Juventus eftir harmleikinn í
Brussel 1985, sagði að stuðnings-
menn Liverpoll hafi hagað sér vel
í undanförnum Evrópuleikjunum og
því ekkert að óttast. Rush skipti
aftur yfir í Liverpool frá Juventus
1988. „Ef stuðningsmenn Liverpool
haga sér eins vel í leikjunum gegn
Genoa og þeir gerðu í síðustu Evr-
ópuleikjum og við leikum góða
knattspyrnu, geta ítalir sagt: „þetta
er Liverpool eins og við þekktum
það fyrir harmleikinn í Brussel,"
sagði Rush.
Leikirnir fara fram 4. og 18.
mars og verður fyrri leikurinn á
Ítalíu, þar sem Sampdoria á heima-
leik gegn Anderlecht í meistara-
keppninni 18. mars.
Real Madríd dróst gegn tékk-
neska liðinu Olomouc, en vildi fá
Liverpool. „Það hefði verið drauma-
dráttur," sagði Trigo, þjálfari Real,
„en Olomouc er sterkt lið, sem við
getum ekki vanmetið." Real hefur
ekki tapað leik í spænsku deildinni,
en Tékkamir komu á óvart í síð-
ustu umferð og unnu þá HSV 6:2
samanlagt.
Tórínó, sem sigraði KR í fyrstu
umferð ,mætir B 1903 frá Kaup-
mannahöfn og Ghent frá Belgíu
leikur við Ajax frá Hollandi.
UEFA-drátturinn
Dregið var í 8-liða úrslit í UEFA-keppninni í Gefn í gær:
Torínó (Italíu) - B 1903 (Danmörku)
Sigma Olomouc (Tékkóslóvakíu) - Real Madrid (Spáni)
Genóa (Italíu) - Liverpool (Englandi)
Gent (Belgíu) - Ajax (Hollandi)
Leikið verður 4. og 18. mars.
Úrslitakeppni Evrópumótsins íknattspyrnu:
Danir og Kalir í viðbragðsstöðu
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, ákvað á fundi sínum
í gær að Danmörk og Ítalía tækju
þátt í úrslitakeppni Evrópumótsins
í knattspyrnu, sem fer fram í Sví-
þjóð í júní n.k., ef Júgóslavía og
Sovétríkin verða ekki með lið. End-
anleg ákvörðun verður tekin 16.
janúar, en daginn eftir verður dreg-
ið í riðla keppninnar.
Danmörk var stigi á eftir Júgó-
slavíu í 4. riðli, en sigri Ítalía Kýp-
ur á laugardaginn eða verði jafn-
tefli verða ítalir í 2. sæti 3. riðils,
þremur stigum á eftir Sovétmönn-
um. Kýpur hefur tapað öllum sjö
leikjunum í forkeppninni og aðeins
gert tvö mörk.
UEFA tók fyrrnefnda ákvörðun
vegna ástandsins í Sovétríkjunum
og Júgóslavíu og óttast að þjóðirnar
neyðist til að hætta við þátttöku í
EM.
Hermann Neuberger, formaður
þýska knattspyrnusambandið,
sagði í gær að það væri tímabært
að vera með 16 þjóða úrslitakeppni
í Evrópukeppni landsliða 1996, en
ekki 8-liða eins og er í dag. Hann
hefur lagt fram tillögu þess efnis
til UEFA. „Þegar byijað var með
átta þjóða úrslitakeppni á Ítalíu
1980, tóku 32 þjóðir þátt í for-
keppninni. Nú eru þjóðirnar orðnat’
38 og ég er viss um að Evrópuþjóð-
irnar verða orðnar 42 innan árs.
Urslitakeppni með sextán þjóðum
mun aðeins standa yfir þremur dög-
um lengur, en með átta þjóðum,“
sagði Hermann Neuberger.
Undankeppni ÓL:
Svíar gegn
Hollend-
ingum
Svíar mæta Hollendingum í
8-iiða úrslitum í undan-
keppni fyrir Ólympíuleikana og
Evrópukeppni 21 árs landsliða.
Þær þjóðir sem fara með sigur
af hólmi í 8-liða úrslitunum
tryggja sér um leið farseðilinn
á Olympíuleikana í Barcelona
1992.
Dregið var í Gefn i gær og
var drátturinn þannig: Dan-
mörk - Pólland, Holland - Sví-
þjóð, Þýskaland - Skotland og
Tékkóslóvakía - Ítalía.
Þá var einnig dregið um
hvaða þjóðir leika í undandrslit-
um: Danmörk eða I’ólland -
Tékkóslóvakía eða Ítalía.
Þýskaland eða Skotland - Hol-
land eða Sviþjóð.
Leikirnir í 8-liða úrslitum og
undanúrslitum eiga að fara
fram á tímabilinu 31. mars til
30. apríl.
SKIÐI / HEIMSBIKARINN
Fyrsti sigur Jagge
NORÐMAÐURINN Finn Christian Jagge kom
mjög á óvart er hann sló Alberto Tomba við
og sigraði í svigi heimsbikarsins í Madonna
di Campiglio á Italíu í gær. Þetta var fyrsti
sigur Norðmannsins í heimsbikarkeppninni.
Jagge, sem er 25 ára, var með besta tímann
eftir fyrri umferð svigsins og náði að halda
efsta sætinu í síðari umferð, þó svo að Tomba
hafi náð besta tímanum í síðari umferð. Norður-
landabúar geta vel við unað því Tomas Fogdö frá
Svíþjóð varð þriðji og Norðmaðurinn Ole Christian
Furuseth fjórði.
„Það er frábært að vinna Tomba. Þessi sigur
er geysilega mikilvægur fyrir mig því svigið er
mjög erfið grein,“ saðgi Jagge. Tomba var ekki
ánægður með annað sætið og kenndi rásnúmeri
sínu í fyrri umferð um það. En brautin var orðin
slæm þegar hann fór niður. En engu að síður fékk
hann mikilvæg stig í keppninni og kannski fær
hann frið frá áhangendum sínum um í jólafríinu.
Karlarnir keppa í alpatvíkeppni, bruni og svigi
í St. Anton í Áusturríki um næstu helgi. Tomba
verður ekki með þar, en helsti keppinautar hans,
Paul Accola og Marc Girardelli, gætu nælt sér í
dýrmæt stig í St. Anton.
Reuter
Finn Christian Jagge frá Noregi hafði ríka ástæðu til að
brosa eftir fyrsta sigurinn.