Morgunblaðið - 18.12.1991, Page 63

Morgunblaðið - 18.12.1991, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991 63 HANDKNATTLEIKUR Eyjamenn hafa sent inn kæru vegna leiksins gegn Fram - segja aukakastið sem Fram skoraði sigurmarkið úr, hafi ekki verið framkvæmt á réttum stað. Framarar afar óhressir með framkomu Eyjamanna eftir leikinn, en þá brutust út slagsmál VESTMANNEYINGAR hafa sent inn kæru til dómsstóls HSÍ vegna framkvæmdar á aukakasti Framara í leik þeirra í Eyjum 13. desember, en leikurinn var mjög söguleg- ur. Mikil ólæti brutust út eftir leikinn þegar margir Eyja- menn gerðu aðsúg að þjálf- ara, liðsstjóra og leikmönnum Framliðsins. Kæra Eyjamanna er byggð á því að dómarar leiksins, Gunnar Kjartansson og Hákon Siguijónsson, hafi ekki látið au- kakastið fara fram á þeim stað sem brotið var á Karli Karlssyni. Gunnar Andrésson skoraði sigur- mark Fram, 31:32, úr aukakastinu - þegar 5 sek. voru til leiksloka. Eyjamenn mótmæltu í ieiknum þar sem þeir töldu að Framarar hafa verið fyrir innan punktalínu þegar aukakastið var tekið. Eftir leikinn sáu þeir á myndbandsupp- töku að Framarar voru ekki fyrir innan línuna. Þeir ákváðu þá að senda inn kæru um að aukakastið hafí verið tekið tveimur metrum frá þeim stað sem brotið var á leikmanni Fram. „Við erum búnir að senda inn kæru. Ég vil ekki ræða nánar um þetta,“ sagði Haraldur Óskarsson, formaður handknattleiksdeildar ÍBV karla. „Við munum að sjálfsögðu taka þessa kæru fyrir að fullri aivöru, eins og öllum málum sem við tök- um fyrir,“ sagði Valgarður Sigurðsson, formaður dómsstóls HSI. „Kæran er komin, en það á eftir að skoða öll gögn i sambandi við málið. Eins og leikskýslu dóm- ara og annað.“ Valgarður sagði að árangur dómara í leikvelli væri yfírleit ekki til skoðunar hjá dómstólnum. „Það er ekki okkar að breyta gangi mála á keppnisvelli.“ „Hvað segirðu - ertu ekki að gera grín. Eru þeir búnir að senda inn kæru?“ spurði Lúðvík Hall- dórsson, formaður handknattleiks- deildar Fram, þegar Morgunblað- ið, bað um álit hans á kæru Eyja- manna. „Það er mitt álit í þessu sambandi að Eyjamenn séu búnir að tapa vitinu." Atli Hilmarsson, þjálfari Fram, sagði hegðun Eyjamanna eftir leikinn hefði ekki verið til fyrir- myndar. „Áhorfendaskari geystist að leikmönnum mínum. Það urðu slagsmál. Hver ástæðan var, viss- um við ekki. Við áttum fótum okkar fjör að launa,“ sagði Atli. „Það er alvarlegt ef ekki er sagt frá þannig framkomu og sér- staklega þar sem þetta kom einn- ig fyrir þegar Eyjamenn töpuðu gegn Val í bikarkeppninni á dög- unum. Gæslan er ekki nægilega góð í Eyjum. Handknattleikssam- bandið ætti að kanna hvað er að gerast. Það er óþolandi ef leik- menn og dómarar eru í hættu. Þegar svona kom upp þegar ég lék með Granollers á Spáni, þurftum við að leika einn heimaleik úti og félagið fékk sekt. Það þarf að fara að taka hart á svona uppákomum hér á landi,“ sagði Atli. KNATTSPYRNA Guðni Bergsson og Paul Gascoigne á góðri stundu. Morgunblaöið/Börkur HANDKNATTLEIKUR Andreas Hansen á förum frá Fram Færeyingurinn Anndreas Hansen, sem hefur leikið með 1. deildarliði Fram, er á förum aftur til Færeyija. Framarar eru að reyna að fá Hansen, sem er mjög sterkur varnarleikmaður, til að leika tvo fyrstu leiki þeirra eftir jólafrí - gegn HK og Gróttu. Ástæðan fyrir því að Hansen er á förum, er að hann hefur verið kallaður til vinnu. Hansen fékk eins árs frí frá vinnu, en þegar annar starfsmaður hjá fyrirtækinu hætti á dögunum, vildu vinnuveitendur Hansens fá hann aftur sem fyrst. KÖRFUKNATTLEIKUR Langþráður sigur Þórsara ÞÓRSARAR nældu sér ítvö mikilvæg stig íbotnbaráttunni í Japísdeildinni er þeir unnu Skallagrím, 115:95, á Akureyri í gærkvöldi og eru liðin jöfn á botninum með 4 stig. Það var fyrst og fremst stórleikur Konr- áðs Óskarssonar sem skóp þenna sigur, en hann átti frá- bæran leik. Það voru annars gestirnir sem hófu leikinn mun betur og náðu fljólega 10 stiga forskoti og átti Sovétmaðurinn Krúpatsjev mjög góðan leik hjá þeim í fyrri hálfleik. Heimamenn gengu mám saman á lagið og náðu að omast yfir og höfðu 9 stiga for- énton Benjamínsson skrifar skot í leikhléi. í síðari hálfleik óx þessi munur jafnt og þétt og náðu Borgnesingar aldrei að höggva í þetta forskot Þórsara sem sigruðu nokkuð auðveldlega. Eins og áður segir var Konráð mjög góður í liði Þórs og einnig léku þeir Helgi Jóhannesson og Guðmundur Björnsson vel. Joe Harge á að geta meira en hann sýndi í gærkvöldi. Hjá Borgnesingum átti Maxím Krúpatsjev mjög góðan leik og var sterkur í fráköstum, auk þess sem hann skoraði grimmt. Hann varð síðan að fara af velli með 5 villur, eins og reyndar fleiri, þegar fimm mínútur voru eftir. Birgir Mikaels- son átti mjög góðan í síðari hálfleik og Sigurður Þórólfsson var dijúgur í lokin. Gascoigne hælir Guðna PAUL Gascoigne hefur mikið álit á Guðna Bergssyni, fyrrum samherja sínum hjá Tottenham, sem knattspyrnumanni. Þetta kemur fram í árbók Gascoignes, sem er nýkominn út og spannar knattspyrnutímabil enska landsliðsmannsins frá 4. júií 1990 tii 18. maf 1991. Gazza segir í bók sinni að fyrr- nefndur tími hafi verið há- punktur ferilsins, en vinur sinn Guðni Bergsson, sem var keyptur til Spurs skömmu á eftir sér, hafi aðra sögu að segja. Hann [Guðni] hafi byijað vel með aðalliðinu, en síðan verið settur út í kuldann. Gazza segir að það sé athyglisvert að Guðni hafi ávallt sagt að fríheija- staðan (sweeper) ætti best við sig og þar hafi hann lög að mæla. „Ég vona bara að hann fái tækifæri, annaðhvort með Spurs eða öðru liði, til að sýna hvernig frábær leikmað- ur, sem myndi sóma sér vel á meg- inlandinu, skilar þessari stöðu á árangursríkan hátt.“ Gazza segir að Guðni hafi mikla hæfileika og því hafi síðasta keppn- istímabil oliið honum miklum von- brigðum. „En hann er ekki leikmað- ur, sem verður haldið lengi niðri — nýtt tímabil þýðir ný áskorun fyrir hann.“ Þekktir knattspyrnumenn tjá sig um Gazza í bókinni og er Guðni þar á meðal. Hann segir að almenningur geri sér ekki grein fyrir álaginu, sem hefur verið á Gazza, en hann hafi ráðið við það og standi sterkari eft- ir. „Það getur komið Paul að gagni að leika erlendis, en knattspyrnan í Englandi á eftir að líða fyrir það,“ segir Guðni um fyrrum samheija sinn, sem hefur verið seldur til ít- alska liðsins Lazio, en vegna meiðsla, er enn allt í óvissu með félagaskiptin. „Stjömuviðtöl11 Gazza reyndist sannspár um Guðna. Hann hefur ^verið einn af lykilmönnum Spurs í vörn á þessu tímabili og skilað stöðu sinni með prýði. Með skömmu millibili hafa verið „stjörnuviðtöl" við hann í leik- skrá Tottenham. Þar kemur fram að hraði hans nýtist vel í bakvarðar- stöðunni, en Guðni segist kunna best við sig í miðvarðarstöðunni. í síðustu leikskrá er bréf frá stuðn- ingsmanni Spurs, sem segir að tími sé kominn'til fyrir aðra stuðnings- menn liðsins að styðja vel við bakið á Guðna. Hann hafi skilað miðvarð- arstöðunni mjög vel í vetur og eigi stóran þátt í bættum varnarleik liðs- ins. Guðni gerði eitt mark í fyrra fyr- ir Spurs og bætti öðru við í haust. Hann segist ekki fá mörg marktæki- færi, en nauðsynlegt sé að hafa augun ávallt opin og hann vonast til að skora fleiri í vetur. „En það er mikilvægara fyrir mig að koma í veg fyrir að móthetjarnir skori en að skora sjálfur." Rússar leika fyrir norðan Rússneska landsliðið í hand-tÞ knattleik, sem kemur hingað til lands 26. desember, mun leika tvo fyrstu leiki sína fyrir norðan - á Akureyri 27. desember og á Húsa- vík 28. desember. Miklar líkur eru á að þriðji leikurinn fari fram á Selfossi 29. desember. ÚRSLIT Körfuknattieikur Þór - Skallagr. 115:95 íþróttahöllin á Akureyri, íslandsmótið í körfuknattleik - Japísdeildin, þriðjudaginn 17. desember 1991. Gangur leiksins: 6:13, 12:20, 25:28, 35:34, 44:36, 50:41, 59:49, 65:52, 78:65, 91:77, 106:85, 115:95. Stig Þórs: Konráð Óskarsson 30, Joe Harge 24, Helgi Jóhannesson 19, Guðmundur Björnsson 18, Jóhann Sigurðsson 9, Björn Sveinsson 6, Högni Friðriksson 4, Birgir Birgisson 3 og Árni Þór Jónsson 2. Stig Skallagríms: Maxím Krúpatsjev 34, Birgir Mikaelsson 34, Sigurður Elvar Þó- rólfsson 17, Þórður Helgason 6 og Jón Bender 4. Dómarar: Kristján Möller og Kristinn Ósk- arsson. Dæmdu ágætlega. Áhorfendur: 150. NBA-DEILDIN Leikir á mánudag: DetroitPistons-DenverNuggets...l03: 89 £ Portland - Minnesota.....119:104 Knattspyrna England Deildarbikarinn, 4. umferð: Swindon - Crystal Palace....0:1 - Andy Gray Southampton - Nott. Forest..0:1 - Scot Gemmill Frakkland 1. deild: P.S.G. - Marseille...........0:0 EM U-21 árs: Aachen: Þýskaland - Lúxemborg........3:0 Poschner (30.), Fuchs (62.), Herrlich (83.). Lokastaðan: Þýskalandi...4 4 0 0 12: 1 8 Belgía........4 2 0 2 5: 6 4 Lúxemborg.....4 0 0 4 0: 10 0 Skíði Heimsbikarinn Madonna di Campiglio, Ítalíu: Svig karla: Finn Christian Jagge (Noregi) ........... 1:28.41 (43.03/45.38) Alberto Tomba (Italíu) ............ 1:28.50 (43.34/45.16) Tomas Fogdoe (Svíþjóð) ............ 1:28.97 (43.65/45.32) Ole Christian Furuseth (Noregi) ............ 1:29.33 (43.49/45.84) Paul Accola (Sviss) ............ 1:30.19 (44.07/46.12) Marc Girardelli (Lúxemborg) ............ 1:30.23 (44.40/45.83) Michael Tritscher (Austurríki) ............r: 1:30.42 (44.02/46.40) Fabio de Crignis (Italíu) ............ 1:30.50 (44.17/46.33) Staðan —v..........................stig Alberto Tomba...............640 Paul Accola.................581 Marc Girardelli.............319 ERKIFJENDUR I VIKINNI VÍKIHGUR I KVOLD KL. 20 Bæði liðin lofa hörkuleik

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.