Morgunblaðið - 18.12.1991, Page 64

Morgunblaðið - 18.12.1991, Page 64
VÁTRYGGING SEM BRÚAR BILIÐ SJOVA RISC SYSTEM/6000 KEYRIR UNIX FRAMTÍÐARINNAR: IBM AIX MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK SÍMI 691100, FAX 691181, PÓSTIIÓLF 1565 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Þjóðhagsstofnun: Fjárlaga- •halliiin 4-5 milljarðar FJÁRMÁlÆrÁÐUNEYTIÐ telur í endanlegri tekjuáætlun vegna fjárlagafrumvarpsins að enn vanti 1.048 millj. kr. upp á að tekjumarkmið frumvarpsins ná- ist. Þjóðhagsstofnun telur áætlun ráðuneytisins of bjartsýna og að reikna megi með um 500 millj. króna tekjutapi til viðbótar vegna samdráttar í veltu á næsta ári, að sögn Þórðar Friðjónssonar. Fjármálaráðherra telur að enn takist að standa við að halli ríkis- ■tu - sjóðs á næsta ári verði ekki meiri en 4 milljarðar en skv. mati Þjóð- hagsstofnunar er fjárlagavandinn á bilinu 4-5 milljarðar. Breyttar efnahagsaðstæður frá í oktbóber leiða að mati fjármálaráðu- neytisins til þess að áætlaðar tekjur ríkissjóðs dragist saman um 1,7 milljarða frá því sem gert var ráð fyrir í frumvarpinu vegna breyttra þjóðhagshorfa á næsta ári og um 298 millj. vegna endurmats á inn- heimtu virðisaukaskatts sem hefur ^dregist verulega saman á síðustu ^mánuðum. Á móti kemur sérstök tekjuöflun, sem ríkisstjórnin hefur samþykkt og er nú til meðferðar í fjárlaganefnd Alþingis, að upphæð 950 millj. kr. Helstu breytingar sem orðið hafa á tekjuáætlun ijármálaráðuneytisins fyrir næsta ár eru m.a. að tekju- skattar einstaklinga aukist um 1.215 millj. frá því sem áætlað var í fjár- lagafrumvarpinu í haust. Þá er gert ráð fyrir að óbeinir skattar ríkisins verði 76.040 milij. eða 2.232 millj. kr. minni en gert var ráð fyrir þegar ríkisstjórnin afgreiddi frumvarpið í október. Þar munar mest um inn- heimtu virðisaukaskatts, sem fjár- málaráðuneytið gerir ráð fyrir að '^i»‘skili 40.450 millj., sem er samdrátt- ur upp á 2.520 millj. Hins vegar er áætlað að innflutningsgjöld muni aukast um 334 millj. og trygginga- gjald um 250 millj. Áætlun um tekj- ur af sölu ríkiseigna að upphæð um 1,3 milljarðar kr. er óbreytt frá fyrri áætlun en skv. upplýsingum fjár- málaráðherra er enn ófrágengið hvernig að henni verður staðið og því er sú áætlun háð óvissu. Ein af rúðunum sem brotin var í Laugardalshöll í gærkvöldi. Morgunblaðið/Þorkell Ólæti eftir að tónleik- um var aflýst NOKKUR ólæti urðu við Laugar- dalshöll í gærkvöldi, eftir að tón- leikum kanadíska tónlistarmanns- ins Bryans Adams var aflýst vegna tæknilegra örðugleika, en rafmagn fór af Höllinni fyrr um daginn. Tónleikunum var aflýst laust eftir klukkan 22 í gærkvöldi, en þá höfðu rúmlega 4.000 ungmenni beðið í allt að þijá klukkutíma eftir að þeir hæf- ust. Nokkrir unglinganna létu reiði sína bitna á rúðum og gæslumönnum, og um tíma var óttast að ólætin breiddust út, en upp úr klukkan 23 hafði ró komist á og fólk fór til síns heima. Að sögn lögreglu voru 4 stór- ar rúður brotnar í Laugardalshöli og einn var tekinn til yfirheyrslu vegna rúðubrotanna. Aðrir tónleikar eru fyrirhugaðir með Bryan Adams í kvöld, og hafa forsvarsmenn tónleikanna ákveðið að miðarnir frá í gærkvöldi gildi einnig á tónleikana í kvöld, en einnig er hægt að fá þá endurgreidda eftir helgina. Tillögur heilbrigdisráðherra í málum Landakots og Borgarspítala: Tlafiiar verði nýjar viðræður nni sameiningu spítalanna Samkomulag um rekstrarhagræðingu og hækkun framlags til St. Jósefsspítala í Hafnarfirði SAMKOMULAG náðist í gær milli Sighvats Björgvinssonar heilbrigðis- ráðherra og stjórnenda St. Jósefsspítala í Hafnarfirði um rekstur spítalans á næsta ári. Þá hefur ráðherra lagt fram nýjar tillögur, sem miða að sameiningu Landakots- og Borgarspítala á næsta ári. Hann segist telja að þessi mál séu nú leyst, og unnið hafi verið að tillögunum í samráði við alla hlutaðeigandi aðila. „Samkomulagið við St. Jósefsspít- ala gerir ráð fyrir að um verulega hagræðingu verði að ræða, en fjár- veiting til spítalans verði hækkuð frá því, sem fjárlagafrumvarpið gerði ráð fyrir, um 60 milljónir, sem er nálega helmingur af því, sem áform- að var að lækka útgjöld spítalans um. „Um þetta er fulit samkomu- lag,“ sagði Sighvatur í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að hag- ræðingin fælist í því að tekið yrði upp nýtt rekstrarform, svokallaðar fímm daga deildir. Þá yrði lögð auk- in áherzla á að auka sértekjur spítal- ans. Sighvatur sagðist eiga von á að í dag myndu stjórnendur og læknar á Landakoti gefa viljayfirlýsingu um að þeir vildu á ný hefja samstarf við heilbrigðisráðuneytið og Borgar- spítalann um viðræður, sem hefðu sameiningu spítalanna að markmiði. „Þeir hafa endurskoðað sína af- stöðu,“ sagði Sighvatur. Um þetta sagði Sigurður Björnsson, læknir á Landakoti, í samtali við Morgunblað- ið, að uppkast að viljayfirlýsingu hefði verið rætt í gærkvöldi í hópi fáeinna manna. Læknar á Landa- koti væru áfram ósáttir við álit þeirr- ar nefndar, sem fjallaði um hugsan- lega sameiningu spítalanna, en spurningin væri hvort hægt væri að hefja nýjar viðræður. Heilbrigðisráðherra segir að til- lögur þær, sem hann hefur lagt fyr- ir fjárlaganefnd Alþingis, geri ráð fyrir að horfið verði frá því að Landa- Hagræðing í mjólkuriðnaði rædd í sjömannanefnd: -Verðmiðlun verði afnumin og misjafnt greitt fyrir mjólkina kotsspítali og Borgarspítali fái fé á sama fjárlagalið, eins og gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. „Þetta miðast við að rekstarumsvif Borgar- spítalans verði óbreytt frá því sem var á yfirstandandi ári og ekki verði um niðurskurð að ræða. Þar verði um að ræða eðlilegt viðhaldsfé til meiriháttar tækjakaupa. Það verður hins vegar verulegur samdráttur á framlögum til Landakotsspítala, sem myndi að öllu óbreyttu hafa í för með sér verulegar breytingar á rekstri þess spítala," sagði ráðherra. Hann sagði að 200 milljónir frá rík- inu og 30 milljónir frá Reykjavíkur- borg yrðu settar til hliðar, sem vænt- anlegt framkvæmdafé, sem hann myndi ráðstafa eftir því hvernig nið- urstöður úr viðræðum um samruna spítalanna yrðu. Auk þess yrði sett í 6. grein fjárlaga ákvæði þar sem íjármálaráðherra væri heimilt, í samráði við heilbrigðisráðherra, að ganga til samninga um stofnun nýs, sameinaðs spítala. Sighvatur sagðist eiga von á að viðræður myndu halda áfram eftir dálítið hlé. Ætti að leiða til lægra vöruverðs til neytenda RÓTTÆKAR tillögur varðandi hagræðingu í mjólkuriðnaði eru nú til umfjöllunar í sjömannanefnd, en samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins gera þær ráð fyrir að verðmiðlunarkerfi í mjólkurframleiðslu verði afnumið og mjólkursamlögin kaupi mjólk á misjöfnu verði eftir því í hvaða framleiðsluþætti hún fer. Gert er ráð fyrir að þetta leiði til fækkunar mjólkursamlaga í landinu og aukinnar hagræðingar hjá ^heim sem eftir verða, en það ætti síðan að leiða til lægra vöruverðs til neytenda. Núverandi verðmiðlunarkerfi tryggir öllum framleiðendum sama verð fyrir vöru sína burt séð frá því hvar þeir búa á landinu, en jafnað er úr sameiginlegum verðmiðlunar- sjóði svo að mismunandi kostnaður við vinnslu og dreifingu komi ekki niður á framleiðendum. Þetta fyrir- komulag þykir hafa leitt til stöðnun- ar í mjólkuriðnaðinum, en í skýrslu nefndar um hagræðingu og skipulag í mjólkuriðnaði, sem kynnt var síð- asliðið vor, var afkastageta greinar- innar sögð vera langt umfram þarf- ir, og fækkun mjólkurbúa og aukin verkaskipting milli þeirra taiin for- senda þess að ná megi fram sparn- aði í greininni. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er gert ráð fyrir því í þeim tillögum sem nú eru til umijöllunar í sjömannanefnd að mjólkursamlögin kaupi mjólk úr sameiginlegum potti, en á misjöfnu verði eftir því í hvaða vöruframleiðslu hún yrði notuð. Með þessum hætti yrði það látið ráðast hvaða mjólkursamlög gætu stundað framleiðslu mjólkurafurða með hag- kvæmum hætti. Þannig yrði hvert og eitt hinna 15 mjólkurbúa í land- inu að meta hvort það gæti staðið undir því verði sem greiða þyrfti fyrir mjólkina, og þá myndi reyna á það hvort hægt væri að auka hag- ræðingu innan búsins eða auka sér- hæfingu í framleiðslunni, eða hvort skynsamlegt væri að sameinast næsta mjólkursamlagi. í því sam- bandi eru þó ýmsar spurningar sem eftir á að leysa varðandi eignarhald á mjólkurbúunum. í tillögunum er gert ráð fyrir því að kúabændur fengju greitt meðal- verð fyrir mjólkina, sem ákveðið yrði af nefnd sem samanstæði af fulltrúum framleiðenda, afurða- stöðva og neytenda. Talið er að þetta fyrirkomulag myndi leiða til ein- hverrar lækkunar á verði mjólkuraf- urða, auk þess sem svigrúm gæfist til að haga verðinu liverju sinni að einhveiju leyti eftir eftirspurn á markaðinum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru líkur á því að sjömanna- nefnd, sem skipuð er fulltrúum laun- þega, atvinnurekenda, bænda og stjórnvalda, skili tillögum sínum varðandi hagræðingu í mjólkuriðn- aðinum í byrjun næsta árs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.