Morgunblaðið - 21.01.1992, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.01.1992, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992 í Sj 6 vá-Almennar; Sömu ið- gjöld allra aldurshópa Tryggingaeftirlitið segist þurfa lengri tíma til að skoða beiðnina SJÓVÁ-AImennar tryggingar hf. lagði inn beiðni til Tryggingaeftir- litsins um breytingar á iðgjöldum bifreiðatrygginga í gærmorgun. Síðdegis barst síðan tilkynning frá Tryggingaeftirlitinu að beiðni fé- lagsins yrði ekki afgreidd sam- dægurs, en ráðgert var að breyt- ingin tæki gildi í dag. Félagið hyggst veita 6 þúsund kr. afslátt á ári til þeirra sem hafa fjöl- skyldutryggingu og húftrygg- ingu. Þá hyggst félagið breyta í nokkru reglum um bónus. Ragnar Ragnarsson hjá Trygg- ingaeftirlitinu sagði að eftirlitið treysti sér ekki til að fjalla um beiðni Sjóvá-Ainiennra á svo skömmum tíma og auk þess skorti frekari gögn um málið. Hann kvaðst eiga von á því að beiðnin yrði afgreidd fyrir næsta endurnýjunardag, 31. janúar. Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár- Almennra, sagðist vera mjög undr- andi á viðbrögðum Tryggingaeftir- litsins og kvaðst ekki fullviss um hvort því bæri nokkur skylda að fjalla um þetta erindi þar sem ekki væri hér um að ræða iðgjaldahækkun eða -lækkun, heldur einvörðungu breytta iðgjaldauppbyggingu. „Við ætlum ekki að hækka iðgjöld þeirra sem aka mikið né heldur ið- gjöld unga fólksins. Við ætlum að veita hópi ákveðinna viðskiptavina afslátt að upphæð 6 þúsund krónur. Þeir viðskiptavinir fá þar með lægstu iðgjöld á markaðnum. Þetta eru þeir viðskiptamenn sem eru í hæsta bón- usflokki og eru með fjölskyldutrygg- ingu og húftryggingu á bíl,“ sagði Ólafur Jón Ingólfsson, deildarstjóri almenningstengsla hjá Sjóvá- Almennum. Allir ökumenn 23 ára og yngri greiða sjálfsábyrgð ef þeir lenda í tjóni, kr. 22.800. Þá kynnir félagið svonefnda hálf-húftryggingu og þeim tryggingatökum sem eru í hæsta bónusflokki og taka hálf-húf- tryggingu verður boðinn 3 þúsund kr. afsláttur af iðgjöldum. Þá verður reglum um bónus breytt á þann veg að skemmri tíma tekur að öðlast 65% bónus. Tryggingatakar hækka um eitt bónusþrep við hvert tjónlaust ár. Samkvæmt eldri reglum fengu tryggingatakar 65% bónus eftir tíu ára tjónlausan akstur en nú hækka þeir um eitt bónusþrep fyrir hvert tjónlaust ár upp að 65%, þann- ig að það tekur tryggingataka með 55% bónus tvö ár að fá 65% bónus. Varðskipið Týr tekur Rauðanúp í tog suð-austur af Hornarfirði s.l. föstudag. Morgunblaðið/Guðmundur Valdimarsson Stakfell landar á Raufarhöfn Raufarhöfn. FISKIÐJA Raufarhafnar hefur náð samningum við útgerð Stakfells á Þórshöfn, sem nú er að fara á ísfiskveiðar, að togarinn landi einhverjum afla til vinnslu á Raufarhöfn á með- an Rauðinúpur ÞH 160, togari Raufarhafnarbúa, er bilaður. Þór Pétursson ÞH tók að sér að landa hér á meðan Rauði- núpur var í eðlilegri slipptöku og heldur því áfram. Báturinn landaði hér 15 tonnum í gær og dugar það, ásamt afla þriggja linubáta, til að halda uppi vinnu fyrir fastráðið fisk- verkafólk í Fiskiðjunni. Vél Rauðanúps hefur bilað tví- vegis frá því slipptöku og vélar- upptekt lauk. Varðskipið Týr dró hann til Reykjavíkur eftir síðari bilunina, sem varð þegar skipið var á veiðum suð-austur af Horna- firði sl. föstudag. Komu skipin til Reykjavíkur á sunnudag. Tog- arinn hefur ekki verið á veiðum frá því um miðjan desember vegna þessa. Vél togarans var opnuð í gær en síðdegis var von á manni frá framleiðanda vélarinnar í Japan og átti að rífa vélina að honum ásjáandi. í dag kemur í ljós hvað gera þarf til þess að koma skipinu á veiðar, og hvort það tekur, daga, vikur eða mánuði. Helgi Síldarútvegsnefnd: Kannað hver áhætta er af því að hefja söltun strax SÍLDARUTVEGSNEFND og fé- lög síldarsaltenda kanna nú hver áhætta kynni að vera í því fólgin fyrir saltendur að hefja söltun eins og mál standa í dag. Þetta upplýsti Gunnar Flovenz stjórn- arformaður Síldarútvegsnefndar Morgunblaðið um í gærkveldi. Björn Tryggvason aðstoðar- bankastjóri Seðlabankans og Einar Benediktsson fram- kvæmdastjóri Síldarútvegs- nefndar eru farnir til Moskvu til þess að kanna hver staðan er í hugsanlegum bankaviðskiptum milli landanna vegna fyrirhug- aðra kaupa Rússa á saltsíld. Gunnar Flovenz sagðist á þessu stigi lítið vilja tjá sig um stöðu mála í síldarviðskiptum íslands og Rússlands. Hann sagði þó: „Það er unnið af því af hálfu félaga síldar- saltenda og Síldarútvegsnefndar að kanna hver áhættan kunni að vera í því fólgin fyrir saltendur að heija söltun eins og málin standa í dag. Ennfremur liggur ekki alveg ljóst Neytendasamtökin kæra til RLR: Klám á Strumpamyndbandi Sama uppi á teningnum á myndbönd- um um Kalla kanínu í Bretlandi MYNDBAND með teiknimyndum fyrir börn, sem selt hefur verið í verslunum, reyndist einnig hafa að geyma hluta af klámmynd. Neytendasamtökin hafa nú kært sölu myndbandsins til Rannsókn- arlögreglu ríkisins. Hjá dreifingaraðila myndbandanna fengust þær upplýsingar, að eitt slíkt tilfelli hefði komið upp áður og mætti rekja þetta til fyrirtækisins, sem útvegaði auðar spólur til fjölföldunar. í gær kom sams konar mál upp í Bretlandi. Yfir- völd þar hvöttu foreldra til að kanna teiknimyndir barnanna, þar sem brögð væru að því að á þeim væri brot úr klámmyndum. Átta ára stúlka í Reykjavík eignaðist myndband fyrir skömmu. Á því voru tvær teikni- myndir um Strumpana, með ís- lensku tali, og er myndbandið tölusett sem hið fyrsta' í röð myndbanda um litlu bláu kallana og ævintýri þeirra. Þegar síðari myndin á snældunni var á enda rak foreldra stúlkunnar í roga- stans, því þá tók við brot úr grófri klámkvikmynd. Foreldrarnir sneru sér til Neytendasamtak- anna, sem kærðu sölu mynd- bandsins til rannsóknarlögregl- unnar. 0S2Z»~,,M" ISMIIIItil R 3Þ »:ni: Vorkinnun. Sá j'ttfti, s:t vmuii t>í4 sá. Flrumpaði Steinar hf. dreifa Strumpa- myndunum hér á landi. Þar feng- ust þær upplýsingar í gær, að eitt tilfelli hefði komið upp áður um klámmynd fyrir aftan Morgxinblaðið/Sverrir Myndband þetta með litlu, bláu Strumpunum reyndist einnig hafa að geyma brot úr grófri klámmynd. Strumpa-mynd. Það hefði verið rakið til þess, að fyrirtækið, sem útvegaði auðar spólur til fjölföld- unar, hefði í ógáti sent frá sér spólu með klámmynd á. Allar myndir á lager hefðu verið yfir- farnar, án þess að nokkuð óvenjulegt kæmi í ljós, en greini- lega hefði annað klámeintak þá verið farið í sölu. í fréttaskeyti, sem barst frá Reuter-fréttastofunni í gær, er haft eftir yfirvöldum í West- Yorkshire í Bretlandi að svo virt- ist sem teiknimyndir með Kalla kanínu hefðu verið fjölfaldaðar á myndbönd, sem áður höfðu að geyma klámmyndir. Foreldrar voru hvattir til að kanna teikni- myndir barnanna, eftir að lög- reglan hafði fengið ábendingu um slíkt efni á myndbandsspólu, sem keypt var í verslun. fyrir hvemig afurðalánum til salt- enda verður háttað ef til söltunar kemur fyrir rússneska markaðinn.“ Gunnar sagði að á fundi hjá Síld- arútvegsnefnd síðastliðið laugar- dagskvöld hefði verið ákveðið að framkvæmdastjóri Síldarútvegs- nefndar, Einar Benediktsson, færi til Moskvu „til að ganga eftir því að hinir rússnesku kaupendur standi við sinn hluta af gerðu sam- komulagi um síldina og um leið til þess að fylgjast með því sem skeð- ur í sambandi við bankaviðræðurn- ar þar“. Gunnar sagði að Síldarútvegs- nefnd myndi í samráði við félög sildarsaltenda taka afstöðu til síld- arsöltunar, strax og fréttir bærust af bankaviðræðunum í Moskvu. „Það er ekki gott að segja á þessu stigi málsins, hvað mun koma út úr þessum viðræðum. Fyrst og fremst eru menn að fara þarna austur til þess að kanna betur hver staðan raunverulega er og hver afstaða Rússanna er,“ sagði Jó- hannes Nordai seðlabankastjóri í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði að markmiðið væri að kanna hvort hægt væri að „finna traustan grundvöll fyrir viðskipti" og kvaðst vonast til þess að Bjöm Tryggvason næði fundum með full- trúum Utanríkisviðskiptabanka Rússlands. Stefán L. Stefánsson sendiráðs- ritari í Moskvu sagði í gær að hann byggist ekki við því að fundir yrðu haldnir með fulltrúum Utanríkisvið- skiptabanka Rússlands fyrr en á morgun í fyrsta lagi, þar sem Björn Tryggvason væri ekki væntanlegur til Moskvu frá Kaupmannahöfn fyrr en síðdegis í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.