Morgunblaðið - 21.01.1992, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANUAR 1992
Kjörbúð
Til sölu er stórglæsileg kjörbúð við stærsta þétt-
býlis-verslunarkjarna borgarinnar - þar sem fólkið
er. Öll tæki til staðar. Hagstæð leiga. Laus strax.
Ársvelta kr. 250 millj.
SUÐURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Sýnishorn úr söluskrá:
★ Heildverslun með um 70 mlllj. kr. ársveltu.
★ Smásala - sérhæfð - sú eina á landinu.
★ Notaðar og nýjar barnavörur, tryggar tekjur.
★ Framköllunarfyrirtæki, smásala, góð aðstaða.
★ Skyndibitastaður m. pizzur, húsnæði fylgir.
★ Bónstöð, vel staðsett.
★ Gamalgróin bílapartasala.
★ Antikverslun - skemmtilegt starf.
★ Vefnaðarvöruverslun á góðum stað.
★ Hárgreiðslustofur, bæði litlar og stórar.
★ Blómaverslun, góð velta - gott verð.
★ Þekkt fataverslun á ótrúlega góðu verði.
★ Veislueldhús - öll tæki nýleg.
★ Skyndibitastaður - sá besti á landinu.
★ Kaffi-, matsölu- og veitingahús, það þekktasta.
★ Matvöruverslun, kr. 250 millj. ársvelta.
★ Heildverslun m. sportfatnað, hagstætt verð.
r^rTTTTT77^T?7IX^riTVIT71
SUÐURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Til sölu eða leigu
Hafnarbraut 11, Kópavogi
Jarðhæð v/götu 500 fm, 2. hæð 500 fm, 3. hæð 500
fm. Hentar vel fyrir verslun/iðnað/skrifstofur/félaga-
samtök. Hagstæð langtímalán til 14ára, 2% fastir vext-
ir. Eignin er fullfrágengin að utan. Næg bílastæði. Fal-
legt útsýni. Lagnir fyrir vatn, síma, rafmagn og hita
komnar inn í húsið. Hagstætt verð og greiðslukjör. Góð
fjárfesting.
Ymis eignaskipti koma til greina.
Upplýsingar gefur Hjörleifur Hringsson, sími 45625.
011 RH 01 07H LARUS Þi VALDIIV'AfíSS0N ERAMKVÆMDASTJÓRI
L I KjU"LlO/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. lóggiltur fasteignasau
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
IMý stækkað og endurbyggt
steinhús, ein hæð 129,5 fm á útsýnisstað í Hafnarfirði. Bílskúr 36 fm.
Ræktuð lóð 630 fm með trjágróðri. Eignaskipti möguleg.
Járnklætt timburhús
með 3ja herb. íbúð tæpir 80 fm nettó á vinsælum stað við Blesugróf.
Vel með farið. Góð lán kr. 3,5 millj. fylgja.
Rétt við Álftamýrarskóla
3ja herb. mjög góð íbúð rúmir 80 fm á 3. hæð. Ágæt sameign nokkuð
endurbætt. Byrjunarframkvæmdir að bílskúr fylgja. Æskileg skipti á
raðhúsi við Háaleiti, Hvassaleiti eða nágrenni.
Nýlegt steinhús - gott vinnuhúsnæði
Á útsýnisstað við Jöldugróf ein hæð 132 fm. 4 svefnherb. Nýtt park-
et. Mjög gott vinnu- og/eða ibúðarhúsnæði 132 fm i kjallara. Sérbyggð-
ur bílskúr 49 fm. Margskonar eignaskipti möguleg. Tilboð óskast.
Skammt frá Sundlaugunum í Laugardal
Rétt við Dalbraut 4ra herb. íbúð á 1. hæð í reisulegu steinhúsi. Tölu-
vert endurnýjuð. Risherb. fylgir. Góð sameign.
Einbýlishús í Garðabæ
180-200 fm óskast fyrir traustan fjársterkan kaupanda. Góður bilskúr
þarf að fylgja.
• • •
Leitum að góðri sérhæð
íVesturborginni
eða á Nesinu.
Opið á laugardaginn.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAN
LAUGAVEGI18 SÍMAR 21150 - 21370
Frúmar fjasa um Michelangelo
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Skírnir hefur viðhaldið þeim sið
að birta greinar um bækur frem-
ur en stutta ritdóma og fer yfir-
leitt ágætlega á þessu. í haust-
hefti 1991 ritar Kristján Krist-
jánsson um þtjár bækur eftir
Pál Skúlason, Halldór Stefáns-
son um Sambúð manns og sjávar
eftir Gísla Pálsson og Einar Fal-
ur Ingólfsson um sögur eftir
Gyrði Elíasson og Sigfús Bjartm-
arsson.
Skírnir er ekki síst aldurs síns
vegna, gamallar hefðar, mjög upp-
tekinn af fornum fræðum og bók-
menntum, en það hindrar ekki að
samtíminn komist að. Þessi við-
leitni hefur orðið meira áberandi
en oft áður með nýjum ritstjórum,
Vilhjálmi Árnasyni og Ástráði Ey-
steinssyni. Auk fyrrnefndra greina
um bækur sakar ekki að geta
Skírnismála þar sem rædd eru
ýmis samtímaefni, sum að því er
virðist eldfim.
Hér skal allra síst dregið úr gildi
ritgerða eins og Efnisskipan í
Kaupmannabálki Konungsskugg-
sjár eða Af fiskrykni og hvalbera.
Ekki heldur er ástæða til að
fjargviðrast vegna umræðu um lýð-
ræði, fróðleiks um nöfn Dalamanna
eða hvernig Gunnlöð og Loðbróka
eru skoðaðar í nýju samhengi og
tengdar nútímabókmenntum.
Sverrir Hólmarsson hefur af
dirfsku og hugkvæmni kynnt er-
lendan skáldskap, einkum með þýð-
ingum sínum á T.S. Eliot. í Skírni
birtist eftir Sverri þýðing á Man-
söng J. Alfred Prufrocks eftir Eliot
og fylgir greinargerð um ljóðið. Það
er í þessu ljóði sem konurnar ganga
inn og út úr herberginu og ræða
ákaft um Michelangelo: „In the
room the women come and go/
Talking of Michelangelo“ sem í
þýðingu Sverris hljóðar svo: „í stof-
unni koma frúrnar og fara, og þó/
ijasa þær allar um Michelangelo."
Óþarft er að láta þetta rímsins
vegna „og þó“ fara í taugarnar á
sér því að þýðing Sverris hefur upp
á meira að bjóða. Vandræðagangi
Prufrocks, hinum vonlausa upp-
gerðarlega hversdagsheimi hans,
er m.a. lýst þannig:
Degi hallar, kvöldið sefur vært
og langir fingur stijúka því svo kært,
það sefur... er þreytt... eða þá letin lokkar
og liggur hér á gólfmu á milli okkar.
Get ég þá, eftir ís, kökur og te,
knúið fram allt sem hefði átt að ske?
Eins og tíðkast hjá Eliot skiptist
á daglegt mál og fiátíðlegt skálda-
mál og þessu kemur Sverrir til skila.
Lokaerindið er um þanka Prufrocks
þegar hann gengur með sjó:
Við höfum dvalist lengi í sjávarsölum
krýndir brúnu þangi af hafsins meyjum
uns mennskar raddir vekja oss, og við dejjum.
Hjá Eliot eru endalokin drukkn-
un sem á betur við, enda rímar
„drown“ í ljóði hans á móti
„brown“.
Fyrst og fremst (að slepptum
aðfinnslum) held ég þó að Prufrock
Sverris kæti lesendur. Þannig áhrif
hafði þýðingin á mig, endurfundur-
inn við þetta kúnstuga ljóð sem
höfðaði til mín og fleiri í æsku.
Heimspeki og samfélagsfræði
setja svip sinn á umræðumál Skírn-
is, ekki bara umgetið hefti. Lýð-
ræði í skugga stjórnmálakenninga,
T.S. Eliot
félags- og ftjálshyggju, er til dæm-
is aðsópsmikið efni og ekki alltaf
til þess fallið að draga upp hreinar
línur. Félagshyggjan virðist eiga
sér fleiri formælendur meðal
Skírnishöfunda, en það leiðir ekki
endilega til einfeldni. Þannig kemst
Ágúst Hjörtur Ingþórsson að þeirri
niðurstöðu í ritgerð sinni Til varnar
lýðræðinu, skilji ég hann rétt, að
meira sé um vert að hyggja að
gildum lýðræðislegra samfélags-
hátta en efnahagsmálum, hag-
fræðilegum viðhorfum eingöngu.
Það sem á endanum allt snúist um
séu gildi eins og „frelsi, jöfnuður,
fjölbreytileiki og þroski“.
Segja má að hér sé bætt um
betur í upptalningu hinna gömlu
vígorða frönsku byltingarinnar.
En hvað eru vígorð? Hafa þau
enn merkingu? Er ekki alltaf í þeim
tómahljóð? Hugleiðingar Vilhjálms
Árnasonar til dæmis í greininni í
leit að lýðræði verka „loðnar“ á
mig. Vilhjálmur talar um trú á
skynsemi mannsins sem aflvaka
lýðræðishugsjónarinnar, „hinn sér-
staka möguleika sem hann býr yfir
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Æviskrár MA-stúdenta, fjórða
bindi 1964-1968
Ritsljóri: Gunnlaugur Haralds-
son
Utgáfustjórn: Knútur Oskars-
son, Málfríður Þórarinsdóttir,
Björgvin Þorsteinsson, Kristján
Pálmar Arnarsson og Hulda
Ólafsdóttir
Útgáfa:Steinholt, Bókaforlag
1991
Áfram heldur bókaforlagið
Steinholt að gefa út Æviskrár
stúdenta frá Menntaskólanum á
Akureyri og eru þetta nú orðin
fjögur myndarleg bindi og von á
að minnsta kosti einu í viðbót í
þessari lotu.
Þessi bók ber öll svipuð vinnu-
brögð og hinna fyrri bóka, ævi-
skrár nokkuð ítarlegar, ættir
skipulega og vel raktar og einkar
fróðlegt að sjá tengsl við aðra MA
stúdenta í lok hverrar skýrslu.
Mér finnst það kostur við þessar
bækur að útgáfustjórn og ritstjóri
virðast reyna að hafa samræmi í
frásögn manna, svo að fáar eru
Sverrir Hólmarsson
að hefja sig yfir náttúrulegar að-
stæður sínar og móta líf sitt af
vilja og vitund“. Jafnframt telur
hann margs konar ræði, ekki síst
gerræði þrýstihópa, hættulegra
lýðræði en alræðistilhneigingar
vegna þess „að lýðræðisfyrirkom-
ulagið elur“ óvini sína „við bijóst
sér“.
Unnt er að vera sammála um
að hér er bent á veikleika lýðræðis-
ins, en þetta er einn af þáttum
þess, þ.e.a.s. hlusta á röksemdir
annarra hversu fáránlegar sem þær
reynast. Þegar þrýstihóparnir fara
aftur á móti að stjórna og hafa
áhrif á kostnað heildarinnar hafa
þeir tekið við hlutverki alræðisins.
Þá þarf lýðræðið að sýna og sanna
styrkleika sinn, en forðast alræð-
isaðgerðir engu að síður.
Tuttugasta og þriðja Bókmennt-
askrá Skírnis (um árið 1990) fylgir
haustheftinu, frá upphafi tekin
saman af Einari Sigurðssyni. Þessi
skrá um skrif um íslenskar bók-
menntir síðari tíma, heima og er-
lendis, er afar gagnleg og tiltækið
því aldrei oflofað.
áberandi lengri eða styttri en aðr-
ar. Með stjörnu eru þeir auðkennd-
ir sem ekki sendu inn upplýsingar
sjálfir. Ekki fékk ég betur séð en
þeir væru furðu fáir miðað við all-
an þennan fjölda og sýnir það at-
orkusemi þeirra sem að þessu riti
standa.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að menn eru mjög misjafn-
lega röskir við slíkt og láta það
oft dragast svo til vansa er. Aðrir
eru andsnúnir slíkum bókum en
vitanlega er ekkert í þeim að finna
sem ekki mætti sjá í opinberum
plöggum svo hér er ekki verið að
hnýsast í einkamál eða upplýsa
leyndardóma heldur einfaldlega
veita upplýsingar sem oft kemur
sér vel að geta fundið á einum stað.
Fyrir nú utan að mjög almennur
áhugi er fyrir að glugga í ættir
manna og uppruna. Og síðast en
ekki síst hljóta skólafélagar að
hafa áhuga á að sjá hveija stefnu
gamlir félagar hafa tekið í námi
og starfi. Leiðir skiljast oft að lo-
knu menntaskólanámi og hver fer
sinn veg eins og gengur en áreiðan-
lega eru þó vináttu og tilfinninga-
bönd sterkari sem eru mynduð á
þessum mótunarárum en verður
síðar á ævinni. Jafnvel þó togni á
þeim böndum af aðskiljanlegum
ástæðum.
Myndir eru af öllum stúdentum
og fyrir framan hvern árgang er
hópmynd. Einstaklingsmyndirnar
eru afskaplega misjafnar að gæð-
um og fróðlegt að draga ályktanir
af því hvernig myndir þeir sendu
inn sem tóku þátt í þessu tali.
Nafnaskrá er aftast.
Af hálfu Steinholts er vel að
þessari útgáfu er staðið, letur,
pappír og band virðist allt unnið
svo til sóma er.
Einbýlishús
Skrifstofu okkar hefur verið falið að sjá um sölu á einu
stærsta og glæsilegasta einbýlishúsi borgarinnar. Hús-
ið er mjög vandað og býður uppá ýmsa möguleika
m.a. tvær íbúðir. Stór og góð lóð. Húsið er staðsett á
besta stað við nýja miðbæinn.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á Málflutninsskrif-
stofu Guðmundar Péturssonar, Péturs Guðmundsson-
ar, Hákonar Árnasonar og Jakobs R. Möller, Suður-
landsbraut 4a, 5. hæð, Reykjavík.
Húrra fyrir MA