Morgunblaðið - 21.01.1992, Side 16

Morgunblaðið - 21.01.1992, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992 Tjónabætur — tjónabíl- ar — virðisaukaskattur eftir Kristján Gr. Tryggvason Tilefni þessarar greinar eru greinar Sigmars Ármannssonar framkvæmdastjóra Sambands ísl. tryggingafélaga í Mbl. 26. nóv. sl. og Jónasar Þórs Steinarssonar framkvæmdastjóra Bílgreinasam- bandsins í Mbl. 17. des. sl. Báðar greinarnar fjalla um tjónabætur á bílum vegna umferðaróhappa og samband þeirra og virðisaukaskatts. Sem stöðvarstjóri VÍS Tjónaskoðun- arstöðvar telur undirritaður nauð- synlegt að fjalla sé ítarlega um ýmis atriði, sem fram koma í grein Jónasar og einnig í viðtali við Sæv- ar Pétursson bifvélavirkjameistara, sérstaklega þar sem þau eru til þess fallin að valda misskilningi. Viðtalið við Sævar birtist í aukablaði Mbl. 13. des. sl. Tjón og virðisauki Eins og Sigmar Ármannsson benti á í sinni grein er tjón and- hverfa virðisauka. Tjón er verð- mætarýrnum og sem slíkt getur það ekki verið virðisaukaskattskylt. Virðisaukaskatt ber einungis að greiða af verðmætaaukningu, t.d. viðgerð á tjóni, þ.e. vinnu og vara- hlutum sem þarf til þess að auka verðmæti bíls á ný. Þegar bótaskylt tjón er metið hjá VÍS Tjónaskoðunarstöðinni, er virð- isaukaskattur reiknaður af viðgerð- arvinnu, varahlutum og málun. Virðisaukinn myndast hins vegar ekki fyrr en við viðgerð (við að verð- mæti bflsins eykst á nýjan leik) og er þá greiddur samkvæmt reikningi. Samkomulagsbætur Það er misskilningur ef einhver stendur í þeirri trú að það sé reglan að bjóða tjónþola samkomulagsbæt- ur, þ.e. að greiða tjónið út, í stað þess að láta gera við bíl. Þvert á móti er reglan sú að gert er við bílinn. Fernt verða menn að hafa í huga í þessu sambandi: I fyrst lagi er ekki nema hluti tjóna bættur af tryggingafélögum. Tjónþoli sem telst í órétti og er ekki með húftryggingu (kaskó) ber sitt tjón að öllu leyti sjálfur. Trygg- ingafélög hafa ekkert með viðgerð slíkra tjóna að gera og ráða engu um það hvernig tjónþolinn kýs að leysa málið. í öðru lagi getur tryggingafélag ekki neitað að semja um uppgjör tjóns með greiðslu bóta til tjónþola óski hann þess sérstaklega. Náist samkomulag um bætur fyrir tjónið er það byggt á undangenginni skoð- un og mati á tjóninu. í þriðja lagi er reglan sú að tjón er bætt með viðgerð. Tryggingafé- lag hefur augljósan hag af því að sú viðgerð fari fram á viðurkenndu verkstæði sem það hefur reynslu af. Það er því eðlilegt að trygginga- félag mæli með ákveðnum verk- stæðum í því skyni að gæta hags- muna sinna og tjónþola. Óski tjón- þolinn sérstaklega eftir því að skipt sé við ákveðið verkstæði er ekkert við það að athuga enda áskilur tryggingafélagið, sem greiðir fyrir viðgerðina, sér rétt til þess að fylgj- ast með því að verkið sé unnið á eðlilegan hátt. í fjórða lagi skal haft í huga að tryggingafélög skipta við viður- kennd verkstæði og eru líklega flest þeirra aðilar að Bflgreinasamband- inu. Þessi verkstæði eru virðisauka- skattskyld samkvæmt lögum eins og önnur fyrirtæki. Það er hins veg- ar ekki hlutverk tryggingafélaga að hafa eftirlit með skattskilum þeirra frekar en annarra aðila yfirleitt — til þess höfum við skattstofur með sérhæfðum starfsmönnum. Varðandi samkomulagsbætur, en Jónas Þór Steinarsson dregur þá ályktun í grein sinni að þær séu „ein af helstu orsökunum fyrir svartri atvinnustarfsemi í bílavið- gerðum", þarf að hafa í huga að við búum í fijálsu þjóðfélagi og blöskrar þó sumum það sem stund- um er nefnt „reglugerðarfargan“. Tryggingafélag getur ekki neitað að greiða einstaklingi bætur fyrir tjón sem hann hefur orðið fyrir og því er skylt að bæta. Tryggingafélag getur ekki heldur gerst dómari og skorið úr um það hvort viðkomandi eigi að leyfast að aka um á bíl sín- um t.d. með dældaðan eða rispaðan stuðara, dæld í hurð eða skottloki, án þess að láta gera við skemmdina tafarlaust. Bíleigandinn ræður því einfaldlega sjálfur, m.a. getur aldur og útlit bílsins skipt hér verulegu máli. Og í þessu sambandi er sér- stök ástæða til að geta þess að hjá VÍS er reiknaður virðisaukaskattur af varahlutum þegar um samkomu- lagsbætur er að ræða. Tryggingafélag, sem verður við ósk tjónþola og bætir honum tjón sem hann hefur tryggt sig fyrir, getur ekki sett sig í dómarasæti og úrskurðað um hvort bíleigandi er fær um að gera við brotið ljósker eða annað sem ekki telst til alvar- legra skemmda á öryggisbúnaði bíls. Til þeirra verka eru aðrir aðilar svo sem vegaeftirlit, lögregla, og Bifreiðaskoðun íslands hf. þá ber einnig að hafa í huga að geri bfleig- andi við bílinn sinn sjálfur er það Kristján Gr. Tryggvason „Iðgjöld endurspegla þær tjónabætur sem tryggingafélög greiða. Sé hægt að draga úr viðgerðarkostnaði kemur það öllum bíleig- endum til góða með lækkun iðgjalda, ekki einungis sérhópum, sem aka minna en aðr- ir, heldur öllum.“ ekki virðisaukaskattskyld starfsemi fremur en ef hann málar íbúðina sína, plantar ttjám í garðinum eða skiptir um þakrennur og telji hann sig geta unnið þessi verk af hendi þannig að hann sætti sig við árang- urinn virðisti löggjafinn ekki sjá neitt athugavert við það. Hverjir kaupa tjónabíla? í áðurnefndu viðtali við Sævar Pétursson er haft eftir honum orð- rétt: „Það fer allt of mikill hluti tjónabíla til svokallaðra „bílskúrs- kalla“ (Sic) sem gera misvel við og oftast fer þetta framhjá kerfinu og enginn virðisaukaskattur greiddur.“ Síðar í viðtalinu lætur Sævar að því liggja að tjónabílar, sem trygginga- félög hafa leyst til sín og selja á uppboðum, séu ekki skoðaðir sér- staklega af hálfu Bifreiðaskoðunar íslands hf. og fullyrðir að talsverður misbrestur sé á því að tjónabílar, sem boðnir eru upp, séu afskráðir áður. Nú getur undirritaður ekki svarað fyrir aðra aðila en VÍS Tjónaskoðun- arstöðina. Gagnvart henni standast þessar fullyrðingar Sævars ekki. Frá því undirritaður var fenginn til að byggja upp starfsemi Tjónaskoð- unarstöðvarinnar sf. en hún hóf starfsemi 12. ágúst 1987. og síðar sem stöðvarstjóri VÍS Tjónaskoðun- arstöðvarinnar, sem tók til starfa 1. júní 1989, hefur verið samkomu- lag á milli mín og Bifreiðaeftirlits ríkisins og síðar Bifreiðaskoðunar íslands hf. sem tók til starfa 2. jan- úar 1989, um að eftirlitsmenn komi vikulega til að skoða og meta hvort afskrá eigi tjónabíla áður en þeir eru boðnir upp hjá stöðinni. Sam- starfíð við Bifreiðaskoðun íslands hf. hefur verið með ágætum og hefur það auðveldað mat á nauðsyn afskráningar að VÍS Tjónaskoðun- arstöðin hefur yfir tæknilega full- komnum skoðunar- og mælingar- búnaði að ráða. Því má bæta hér við, bæði Sæv- ari og fleirum til glöggvunar, að um % þeirra sem kaupa tjónabíla af VÍS eru starfandi verkstæði eða starfsmenn þeirra, þ.e. aðilar með virðisaukaskattskylda starfsemi. Það er hálfundarlegt að fagmenn skuli ekki hafa meiri trú á kunnáttu sinni og verkþjálfun en svo að telja að hvaða ófagiærður Jón Jónsson utan af götunni víli ekki fyrir sér að kaupa klessukeyrðan bíl og gera hann upp eins og ekkert sé sjálf- sagðara og það nánast verkfæra- laus? Hvað er fúsk? í sambandi við tjón á bílum og viðgerðir verður mönnum tíðrætt um sk. fúskara og eiga þá oftast við ófaglærða menn sem stunda bílaviðgerðir eða faglærða sem starfa við ófullnægjandi aðstæður. Það vill oftar gleymast að illa unnið verk af fagmanni er engu minna fúsk. Sá sem óskar eftir samkomulags- bótum í stað þess að láta trygginga- félag sjá um viðgerð á bótaskyldu tjóni telur sig ef til vill geta komist að hagstæðari kjörum en ella vegna kunningsskapar, tilboðs, skiptivinnu eða einhvers annars. Stundum hefur hann haft fyrir því að fá tilboð í viðgerð frá fleirum en einum aðila og telur sig geta hagnast á því að semja um bætur og sjá síðan um viðgerðina sjálfur. Þar með ber hann jafnframt ábyrgð á því að hún sé framkvæmd á réttan hátt. Bifreiðaskoðun íslands hf. Rúmu ári eftir að VÍS Tjónaskoð- unarstöðin tók til starfa hóf Bifreið- askoðun íslands hf. starfsemi sína. Þar með er í fyrsta sinn hægt að skoða bíla við viðunandi aðstæður hérlendis og með til þess gerðum tækjum. Fáir hafa t.d bent á þá staðreynd að með tilkomu Bifreiða- skoðunar íslands hf. er tekin upp reglulega árleg mæling á stillingu bílvéla (CO-mæling) en hún dregur ekki einungis úr mengun í útblæstri heldur sparar bíleigendum mikla peninga vegna bensínsparnaðar. Frá upphafi hefur verið gott sam- starf á milli fyrirtækjanna um ýmis- legt sem ætla má að auki öryggi í umferðinni. Á meðal þess eru nýjar hugmyndir um fyrirkomulag af- skráningar farartækja sem lent hafa í óhöppum. Fram hefur komið til- laga um að númer verði tekin af öllum bílum, sem seldir verða á uppboðum hjá VÍS og hafa ekki þegar verið afskráðir, og þau send Bifreiðaskoðun. Með þessu móti væri tryggt að allir bílar sem lentu í bótaskyldum umferðaróhöppum séu skoðaðir að viðgerð lokinni. Þótt ýmislegt vanti enn upp á að skylduskoðun farartækja sé nægi- lega ítarleg með tilliti til öryggis- þátta, t.d. skoðun á ástandi burðar- virkja flutningatækja, er skipulega unnið að endurbótum. Þetta hefur viljað gleymast í fjölmiðlaumræð- unnni um Bifreiðaskoðunina en hún hefur nánast öll verið á einn veg, þ.e. neikvæð. Öryggi hins almenna bíleiganda, sem hefur aukist með tilkomu fullkomnari árlegrar skoð- unar, hefur varla verið minnst á. Aukin tækni — lægri iðgjöld Nú virðist sem aukin samkeppni ætli að verða til þess að breyta því fyrirkomulagi sem verið hefur á bif- reiðatryggingum og ef það verður til þess að lækka iðgjöld er það vel. Iðgjöld endurspegla þær tjóna- bætur sem tryggingafélög greiða. Sé hægt að draga úr viðgerðar- kostnaði kemur það öllum bíleigend- Tölvuendunnemtun fyrir konur Grunnatriði, ritvinnsla og tölvubókhald fyrir konur sem vilja breyta til. 12 vikna námskeið, mætt 3 klst í viku • Hagstætt verð og greiðsluskilmálar. Q Leiðbeinandi: Kristín Þormar, kerftsfræðingur TVÍ Tölvu- og verkfræðiþjónustan Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar fgg Grensásvegi 16*stofnuð 1. mars 1986 (£) & um til góða með lækkun iðgjalda, ekki einungis sérhópum, sem aka minna en aðrir, heldur öllum. Að undanförnu hafa Vátrygg- ingafélag íslands hf., Sjóvá- Almennar hf. og Tryggingamiðstöð- in hf. haft samstarf um að fá hing- að til lands erlenda sérfræðinga og kostað námskeið sem haldin hafa verið með þeim fyrir bifvélavirkja og bifreiðasmiði. Tilgangurinn er sá að efla tækniþekkingu í Bílgreininni og stuðla þannig að hagkvæmari bílaviðgerðum. Lækkun viðgerðar- kostnaðar gagnast ekki einungis þeim sem verða fyrir tjóni sem er bótaskylt heldur lækkar þannig við- haldskostnaður hins almenna bíleig- anda. Nú þegar hafa verið haldin nám- skeið þar sem kynnt var nýjasta tækni við boddýviðgerðir, límingar og punktsuðu og kynnt ný efni sem gjörbylta ýmsum þáttum bílavið- gerða. Sérstakt námskeið fjallaði um rúðuísetningar. Á öðru nám- skeiði fjallaði sænskur sérfræðingur um nýjustu tækni við mælingar og réttingu á stigagrindum vöruflutn- ingabíla. Öll hafa þessi námskeið verið mjög vel sótt og stefnt er að fleiri slíkum í náinni framtíð. Það er at- hyglisvert, þegar fjölmiðlar eru ann- ars vegar, að þeir virðast, næstum undantekningarlaust, hafa áhuga á að fjalla um tryggingafélögin undir neikvæðum formerkjum. Gagnrýni virðist eiga miklu fleiri lesendur vísa en það sem ætla mætti að horfði til framfara og kæmi hinum al- menna bíleiganda að gagni. Þessi námskeið voru kynnt öllum fjölmiðl- um og þeim boðið að koma og kynna sér hvað þar færi fram. Með einni undantekningu sýndi ekki einn ein- asti fjölmiðill þessum málum áhuga, lét sjá sig eða óskaði frekari upplýs- inga. Undantekningin er Bílablaðið Bíllinn en í því mun á næstunni birt- ast ítarleg grein um eitt þessara námskeiða (ný tækni og ný efni til boddýviðgerða; límingar og punkts- uða). Ábyrgð bílstjóra — trassaskapur Það er ekkert launungamál að okkur sem störfum við tjónaskoðun blöskrar oft og iðulega ótrúlegur trassaskapur bíleigenda. Það hlýtur að þurfa að breyta einhverju í um- ferðarlögum þannig að bíleigandi sé gerður ábyrgari fyrir ástandi bíls. Það ætti að færast í vöxt að trygg- ingafélög endurkrefji bílstjóra vegna bóta, sem greiða hefur þurft vegna tjóns sem rakið er til gáleys- is eða glannaskapar. En það er ein- ungis ein hliðin á málinu. Til okkar á skoðunarstöðina hafa komið bílar sem hafa verið með húftryggingu (kaskó), og ekið aftan á annan bíl í fljúgandi hálku og á sléttslitnum sumardekkjum. Tjónið á báðum bílunum getur numið á aðra milljón króna. Flestum er áreið- anlega ljóst að svona á ekki að eiga sér stað. Það er ekki einungis að dekkin séu sléttslitin heldur virðast margir bíleigendur ekki hafa hug- mynd um að ákveðnar reglur gilda um dekk, það er t.d. óheimilt að hafa radíaldekk að framan en díag- ónaldekk (venjuleg) að aftan eða öfugt. Við höfum séð allar samsetn- ingar undir bflum sem- hafa lent í tjóni og því má gera ráð fyrir að ástandið sé ekki gott. Hér vantar skipulegra eftirlit, svipað því sem er í Þýskalandi og Svíþjóð um að bíleigandi sé ábyrgur fyrir ástandi bíls, a.m.k. hvað varð- ar öryggisbúnað svo sem bremsur, stýrisgang, ljósabúnað og dekk. Hjá Vátryggingafélagi Islands hf. eru öll flutningatæki og vinnuvélar, önnur en fólksbílar, látin fara í gegnum sérstaka öryggisskoðun áður en þau eru húftryggð (kaskó). Sé eitthvað fundið athugavert við ástand tækisins er viðgerðar kraf- ist. Þetta gildir einnig um sérbúna bíla svo sem fjallabíla eftir að þeim hefur verið breytt. í þessu atriði er fólgin ákveðin slysavörn og ber að líta á sem þjónustu við trygginga- taka. Höfundur er bifvöln virkjanwisturi og stöðvurstjóri VÍS Tjóimskoihuuirstöðvnrimmr á Smiðjuvegi 2.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.