Morgunblaðið - 21.01.1992, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 21.01.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANUAR 1992 21 Norðurlandaráð: Bókmenntaverðlaun ákveðin á fímmtudag Dagskrá í Norræna húsinu á miðvikudagskvöldið DÓMNEFND, sem í eiga sæti 11 einstaklingar, sker úr um það, hver hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs næstkomandi fimmtudag og mun nefndin funda í Reykjavík að þessu sinni. Af hálfu íslands var tilnefnd bók Fríðu Á. Sigurðardóttur, „Meðan nótt- in líður“ og ljóðasafnið „Vatns götur og blóðs“ eftir Þorstein frá Hamri. Af þessu tilefni vill Norræna húsið leggja sitt af mörkum til að kynna þau verk sem tilefnd eru og höfunda þeirra. Því verður boðið til dagskrár í fundarsal hússins mið- vikudagskvöldið 22. janúar klukkan 20,30, þar sqm fulltrúar í dóm- nefndinni kynna verk og höfunda frá sínu landi. Auk þess mun norksa vísnasöngkonan Hanne Kjersti Yn- destad syngja nokkur lög. Þeir, sem eiga tilnefnd verk auk Fríðu og Þorsteins, sem áður eru nefnd eru: Anne Marie Ejrnæs (Snegelhu- set) og Soren Ulrik Thomsen (Hjemfalden) frá Danmörku, Fred- rik Nielsen (Nunaga siunissat qanoq ippa) frá Grænlandi, Olli Janonen (Johan ja Johan) og Ulla-Lena Lundberg (Stora Várlden) frá Finn- landi, Kjell Askildsen (Et stort ode landskap) og Roy Jacobsen (Seier- herrene) frá Noregi og að lokum frá Svíþjóð, Ingmar Bergman (Den goda viljan) og Göran Sonnevi (Trádet). í dómnefndinni eiga sæti: Dagný Kristjánsdóttir og Sigurður A. Magnússon fyrir ísland, Dorrit Will- umsen og Erik Aalbæk Jensen frá Danmörku, Kristian Olsen frá Grænlandi, Piijo Vaittinen og Ingmar Svedberg frá Finnlandi, Finn Jor og Sissel Lange-Nielsen frá Noregi og Heidi von Born og Ebba Witt Brattström frá Svíþjóð. í fyrra hlaut samíski rithöfundur- inn Nils-Aslak Valkeapáá verðlaun- in fyrir bók sína „Faðir minn sól- in“. Þrír íslendingar hafa hlotið verðlaunin Ólafur Jóhann Sigurðs- son 1976 fyrir bókina „Að lauffeij- um“ og Snorri Hjartarson 1981 fyrir ljóðabókina „Haustmyrkrið yfir mér“ og Thor Vilhjálmsson fyr- ir skáldsöguna „Grámosinn glóir“. Morgunblaðið/Sverrir * Olafs Thors forsætisráðherra minnst Athöfn til minningar um Ólaf heitinn Thors var haldin í Hólavallakirkjugarði á sunnudag. Þann dag voru 100 ár liðin frá fæðingu Ólafs, sem var forsætisráðherra í fimm ríkisstjórnum og formaður Sjálfstæðis- flokksins um 27 ára skeið. Ásgeir Pétursson, formaður undirbúningsnefndar setti samkomuna. Davíð Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, flutti ávarp og söngmenn úr karlakórnum Fóstbræðrum sungu. Þá lögðu Davíð Oddsson og Ásgeir Pétursson blómsveig að bautasteini Ingibjargar og Ólafs Thors. Gömul íslensk frí- merki afar eftírsótt - segir Richard Ashton frímerkja- sérfræðingur hjá Sotheby’s ÍSLENSKIR frímerkjasafnarar geta nú í boði breska upp- boðsfyrirtækisins Sotheby’s látið meta frímerkjasöfn sín. Sá sem veitir þessa þjónustu er Richard Ashton, aðalfrímerkjas- érfræðingur Sotheby’s í London, og dvelur hann hér á landi fram á fimmtudag. Richard metur söfn þeirra sem þess óska og heldur fyrirlestur um frímerkjasöfnun. Fyrirlesturinn er á vegum Sotheby’s, Angeliu og frímerkjasafnara í Síðumúla 17 kl. 20 í kvöld. Lagt verður mat á erlend og íslensk frímerki í eigu íslenskra safnara en Richard tekur fram að töluverð eftirspurn sé eftir íslenskum frímerkjum. „Elstu frímerkin sem enn eru á bréfum eru tvímælalaust verðmætust," segir Richard og talið berst að fyrstu íslensku frímerkjunum. „Það voru tvær tegundir af 4 skildinga frímerkjum fyrir emb- ættismenn og almúga sem prent- uð voru Thiele prentsmiðjunni í Kaupmannahöfn árið 1873 en voru einungis í umferð fram til 1876 vegna þess að þá varð mynntbreyting og prenta þurfti ný frímerki. Frímerkin, sem voru í 5 verðflokkum og jafn mörgum litum, eru ásamt öðrum íslensk- um frímerkjum frá því fyrir alda- mót afar eftirsótt ekki síst vegna þess hve fágæt þau eru. í því sambandi má geta þess að upp- lag íslensku frímerkjanna fyrstu árin samsvarar því að eitt ís- lenskt frímerki hafi verið gefíð út á móti 1000 sænskum." Hugs- anlegt verðmæti fágæts íslensks frímerkis er að sögn Richards upp í 100.000 pund (rúmar 10 milljónir ísl. kr.). Richard seg- ir að yfirleitt séu 9 af hveijum 10 frímerkjabókum sem hann skoði verðlitlar en engu að síður hvetur hann fólk til þess að kanna hvort gömul frímerki leynist í fóram þess. Nefnir hann í því sambandi atvik sem átti sér stað í Kaupmannahöfn árið 1985. „Við höfðum verið að meta frímerki og stór bunki af bókum beið eftir mér. Þá kom ég skyndilega auga á snjáða frí- merkjabók, sem póstburðarmað- urinn í hverfinu hafði komið með, og fór að fletta í henni. Frímerkin voru fremur verðlítil en inn á milli þeirra var fágætt Bermudafrímerki frá árinu 1861.“ „Kom þá í ljós að pósturinn hafði verið dönsku andspyrnu- hreyfingunni í stríðinu og farið með félaga sínum til þess að sprengja verksmiðju í Þýska- landi. Félagi hans lét lífið í ferð- inni og þegar hann sótti heim ekkjuna blöskraði honum svo eymd konutmar að hann keypti af henni frímerkjasafnið. Nú var Richard Ashton. konan dáin og því fannst mann- inum hann hafa leyfi til þess að selja frímerkin,“ segir Richard og bætti við að pósturinn hefði seinna fengið 36.000 pund (3.7 milljónir ísl. kr.) fyrir frímerkið á uppboði. Eins og áður segir staldrar Richard stutt við á Íslandi en þeir sem óskað eftir aðstoð hans geta haft samband við Sigríði Ingvarsdóttur fulltrúa Sotheby’s á Islandi. Ný sjónvarps- stöð Sýnar: Stillimynd send út til reynslu STILLIMYND frá aðalsendi nýju sjónvarpsstöðvar Sýnar hefur að undanförnu verði send út á rás 6, sem sjónvarps- stöðin fékk nýverið úthlutað. Þessi útsending er þó einungis til að athuga hvort einhverjar truflanir komi í Ijós. Hannes Jóhannsson, tæknistjóri Stöðvar 2, segir að stillimyndin sé aðeins send út í tilraunaskyni til að ganga úr skugga um að engar truflanir séu á rásinni. Sú stillimynd sem birtist á skjánum er ekki endanleg útgáfa hennar og á eftir að birtast af og til á næstunni á rás 6. Að sögn Jóhanns J. Ólafssonar, stjórnarformanns íslenska út- varpsfélagsins, er áætlað að hefja útsendingar á rás Sýnar í mars- mánuði, í síðasta lagi. Hann segir að um sé að ræða sjónvarpsstöð sem sendi út afþreyingarefni ein- ungis um heígar. Ef þú ekur lítiö átt þú kost á lægri tryggingaiðgjöldum! Réttlátt, ekki satt? Segðu upp tryggingunni þinni með mánaðar fyrirvara og notaðu tímann til að bera saman iðgjöldin! Viö erum viö símann 12 tíma á dag, frá 9 til 21. S: 629011. Grænt númer 99 6290. Skandia r Island

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.