Morgunblaðið - 21.01.1992, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992
31
Ekki leyfi fyrir hass-
hundi á Akureyri:
Brýn nauð-
syn á þjálf-
uðum hundi
til fíkni-
efnaleitar
- segirDaníel
Snorrason
GISSUR, er tveggja ára gam-
all Labradorhundur í eigu
Daníels Snorrasonar lögreglu-
fulltrúi á Akureyri. Daníel
heldur hundinn sjálfur og hef-
ur þjálfað hann í frítíma sín-
um, en yfirvöld hafa ekki talið
ástæðu til að hafa hund á veg-
um rannsóknarlögreglunnar á
Akureyri.
„Gissur er ekki viðurkenndur
opinber starfsmaður," sagði Dan-
íel, en hann hafði farið fram á
það að rannsóknarlögreglan
hefði hund til yfirráða, en ástæða
þótti ekki til þess, þannig að
Daníel keypti hundinn sjálfur
fyrir tveimur árum og greiðir af
honum gjöld og tryggingar auk
þess að ala hann og þjálfa í frí-
tíma sínum.
„Ég tel brýna nauðsyn á að
hafa hér þjálfaðan hund í tengsl-
um við fíkniefnaleit. Fíkniefna-
málum hefur fjölgað mikið og
þá er augljóst að auðgunarbrot-
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Daníel Snorrason lögreglufulltrúi og Gunnar Jóhannsson rannsóknarlögregla með hinn óviður-
kennda opinbera starfsmann, Gissur í þjálfun á flugvellinum á Akureyri.
um hefur fjölgað umtalsvert hér
í bænum, en þau brot tengjast í
auknum mæli fíkniefnaneyslu,"
sagði Daníel.
Hann benti á að á síðasta ári
var brotist inn á tvo staði, skip-
asmíðastöðina Vör og Bjarg, hús-
næði Sjálfsbjargar og skemmdir
unnar fyrir um eina milljón króna
samtals. Þeir sem þar voru að
verki viðurkenndu að hafa brotist
inn á ellefu staði til viðbótar og
voru kröfur á hendur þeim að
upphæð þijár milljónir króna.
Báru þeir við yfírheyrslur að til-
gangur innbrotanna hafi einung-
is verið sá að komast yfir fé til
að fjármagna fíkniefnaneyslu.
A síðasta sumri komu einnig
upp nokkur lifrarbólgutilfelli,
sem bendir til þess að óhreinar
nálar hafi verið notaðar er menn
sprautuðu sig og loks bendir
Daníel á að beint flug til Akur-
eyrar frá útlöndum sé sífellt að
aukast.
Fjárhagsáætlun rædd í bæjarstjóm í dag:
Heildartekjur ríflega 1,3 milljarðar
956 milljónir fara í rekstrargjöld
HEILDARTEKJUR bæjarsjóðs
Akureyrar á þessu ári eru áætl-
aðar ríflega 1,3 milUarðar og
munar þar mestu um tekjur
vegna útsvars. Rekstrargjöld eru
áætluð um 956 miiyónir króna,
en mestu fé er veitt til félags-
mála og almannatrygginga auk
fræðslumála.
Hvað tekjurnar varðar er gert
ráð fyrir að útsvarið nemi tæplega
790 milljónum króna, aðstöðugjald
gefí 250 milljónir, skattar af fast-
eignum tæplega 230 milljónir, frá-
veitugjöld 73 milljónir og landsút-
svar 8,3 milljónir, en tekjurnar
nema samtals 1.348.260 krónum.
Rekstrarútgjöld bæjarsjóðs á yf-
irstandandi ári verða 956 milljónir
króna. Mest fer til félagsmála og
almannatrygginga, 232 milljónir
króna, til fræðslumála verður varið
197 milljónum og ríflega 100 millj-
ónum til íþrótta- og æskulýðsmála.
Þá er gert ráð fyrir í fjárhagsáætl-
un að 83,3 milljónir króna fari til
gatna- og holræsagerðar og 80,8
milljónir vegna umhverfísmála.
Til menningarmála verður varið
64 milljónum króna, 46 milljónum
til hreinlætismála og 42,6 milljónir
verða notaðar til skipulags- og
byggingamála. Þá má nefna að yfir-
stjórn bæjarins kostar tæplega 70
milljónir króna, tæplega 20 milljón-
ir króna fara í eldvamir og al-
mannavarnir og 17 milljónir vegna
Fundum fækkað og gjaldtaka
vegna þjónustu tekin upp
Fjárveiting til endurbóta á almenningssalernum tekin upp
BÆJARSTJÓRN Akureyrar mun taka fjárhagsáætlun Akureyrar-
bæjar fyrir árið 1992 til fyrri umræðu á fundi sínum í dag, þriðju-
dag. Á fundi bæjarráðs á fimmtudag í liðinni viku voru rædd
nokkur atriði er sérstaklega voru bókuð vegna afgreiðslu frum-
varps að fjárhagsáætlun.
í frumvarpinu er að því stefnt
að fækka fundum hjá nefndum
og stjórnum stofnana bæjarins
og er því sérstaklega beint til
formanna nefnda og stjórna að
halda fundafjölda á árinu niðri
sem kostur er og breyta vinn-
ulagi þannig að þetta markmið
náist.
Lagt er til að veitt verði stöðu-
heimild fyrir starfsmanni í fullu
starfi við Þjónustumiðstöðina í
Hlíð og í 70% starf við félags-
starf aldraðra í Víðilundi 22. Þá
er lagt til að endurskoðaður verði
samningur um sjúkraflutninga
með tilliti til fjölgunar vakt-
manna og þar með bættrar og
öruggari þjónustu.
I þremur tilvikum er lagt til
að tekið verði upp gjald fýrir
þjónustu, þar er um að ræða að
auk innheimtu á heilbrigðiseftir-
litsgjaldi verði innheimt eftirlits-
gjald og leyfísgjald vegna
mengunareftirlits, að tekið verði
upp tengigjald og þjónustugjald
fyrir brunaviðvörunarkerfi sem
tengd eru Slökkvistöð Akureyrar
og að innheimt verði þjónustu-
gjald vegna meindýraeyðingar.
Einnig er tillaga um að Hita-
veita og Rafveita leggi hvor um
sig fram 1,5 milljón króna fram-
lag til kaupa á öflugri tölvu fyrir
bæjarstofnanir og þá kom einnig
fram tillaga um að tekin verði
upp fjárveiting til endurbóta og
rekstrar á almenningssalernum
við Kaupvangsstræti, en gert er
ráð fyrir að þau verði opin
mánuðina júní til september í
sumar.
atvinnumála. Áætlað er að veija
tæplega 16 milljónum vegna stræt-
isvagna, 3,4 milljónum í heilbrigðis-
mál og um 10 milljónir falla undir
liðinn afskrifaðar tapaðar kröfur.
Einnig er gert ráð fyrir að tæplega
25 milljónir verði notaðar til ýmissa
mála.
Tæplega 420 milljónir króna
verða eftir af skatttekjum að frá-
dregnum rekstri málaflokka og
vöxtum af hreinu veltufé bæjarins,
en til ráðstöfunar verða um 220
miiljónir eftir greiðslu lána. Á þessu
ári er gert ráð fyrir að afborganir
langtímaskulda nemi 172 milljónum
króna og vextir vegna þeirra um
50 milljónum. í ijárhagsáætlun
bæjarins er ráðgert að fjárfestingar
á árinu verði um 372 milljónir sam-
tals. Reiknað er með að tekin verði
ný langtímalán að upphæð ríflega
240 milljónir á árinu.
Morgunblaðið/Benjamín
Merkið sem hlaut fyrstu verðlaun
í samkeppninni.
Merki fyrir Eyja-
fjarðarsveit
Feðgar
hlutufyrstu
verðlaun
Ytri-Tjörnum.
I HÓFI á Hrafnagili síðastliðinn
sunnudag voni kunngerð úrslit
í samkeppni um merki fyrir
sveitarfélagið.
Fyrstu verðlaun, kr. 100 þúsund
hlutu feðgarnir Gunnlaugur
Bjömsson og Steindór Gunnlaugs-
son og segja þeir um verðlauna-
merkið: „Eyjafjörður er fagur
fjörður við hafið þar sem fjöllin
þijú standa sameinuð sem klettur,
tákn fyrir sveitimar þijár sem
verða að einni.“
Önnur verðlaun hlaut Dóra
Hansen úr Hafnarfirði og þriðju
verðlaun fékk Kristbjörg Ingólfs-
dóttir, Akureyri.
Hreppsnefnd hefur frestað
ákvörðun um val á merki og bíður
eftir nýrri reglugerð frá félags-
málaráðuneytinu um slík merki.
Það er því ekki fullvíst að merki
feðganna verði valið þar sem ráðu-
neytið hefur síðasta orðið.
í dómnefnd vom Atli Guðlaugs-
son, Aðalsteinn Júlíusson og Rósa
Eggertsdóttir. í umsögn þeirra um
merkið segir m.a. „Það er einfalt
að lit, stílhreint og form einföld
og skýr. Merkið er talið geta stað-
ið vel sem sjálfstætt merki og fara
vel sem bréfsefni og á borðfána.
Dómnefnd telur að merkið sam-
svari sér vel og geti staðið um
ókomna framtíð, sérstaklega fyrir
það hve formin eru óhlutbundin."
- Benjamín
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásídum Moggans!
BATUR TIL SOLU
Til sölu er Bjargey II EA-87, mjög vel búin tækjum
en kvótalaus. Upplýsingar í síma 96-73132.