Morgunblaðið - 21.01.1992, Page 35

Morgunblaðið - 21.01.1992, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANUAR 1992 35 Kristín Þórðar- dóttir — Minning Fædd 15. nóvember 1914 Dáin 11. janúar 1992 sem var ófæddur er faðirinn féll frá. En hún missti hann aðeins tveggja ára gamlan. Maður Önnu er Artúr Gestsson, vélstjóri frá ísafirði. Þau eru nú flutt til Hafnarfjarðar. Börn þeirra eru Helgi Már, Elín Alma og Erl- ing. Seinni maður Möggu frænku var Magnús Asgeirsson, sjómaður frá Isafirði. Börn þeirra eru Sigríður Kristín, Helgi Gunnar Birgir og Ólína Rut. Sigríður Kristín fæddist 29. maí 1932, á eina dóttur, Eyrúnu Ósk. Sigríður er gift Helga Einþórs- syni. Þau búa í Hafnarfirði. Helgi Gunnar Birgir fæddist 18. ágúst 1934. Kona hans er Jenní Hall- bergsdóttir. Þau búa í Hafnarfirði. Börn þeirra eru Dýja Björk og Magnús. Yngst er Ólína Rut, fædd 2. ágúst 1936, gift Gunnari Ólafs- syni. Þau búa í Grindavík. Börn þeirra eru Margrét, sem ólst upp hjá Margréti ömmu sinni, Linda Berglind, Ólafur Víðir, Magnús og Kristinn. Margrét og Magnús bjuggu á ísafirði til ársins 1949, er þau fluttu til Hafnarfjarðar. Margrét Híramsdóttir var fríð kona og mikið bar hún íslenska búninginn vel. Ég man vel hvað við börnin dáðumst að myndum af þessari fallegu frænku okkar. En vegna fjarlægðar milli heimila þeirra systranna gáfust fá tæki- færi til funda og hvorug átti heim- angengt. En bréf þeirra á milli lýstu kærleika og umhyggju. Ég man þá alúð þegar móðir mín útbjó hlýja ullarboli handa litlu frænd- systkinunum og það var eins á báða bóga. Eitt sólríkt sumar var Sirrí litla, þá fjögurra ára, hjá okkur í sveitinni og varð hún okk- ur systkinunum afar kær. Þegar hún kom heim aftur hafði hún eignast litla systur. Um ferm- ingu fékk ég að heimsækja frænd- fólk mitt á ísafirði. Þá sá ég frænku mína fyrst. Hún var þá um fertugt. Ég man hvað mér þótti hún glæsileg er hún hafði klætt sig uppá og fór með mig í búð og gaf mér efni í sumarkjól. Hún var smekkleg, velvirk og ailt lék í höndum hennar, hún saumaði allt á fjölskyldu sína og kom það sér örugglega vel. Ég átti eftir að kynnast mann- kostum hennar betur eftir að hún flutti suður. Engan var betra að biðja bónar, þess þurfti ég eitt sinn. Ekki var spurt um ástæðu. Ég var bara velkomin. í Hafnarfirði eignuðust þau sitt eigið hús við Vesturgötu og bjuggu þar lengst af. Þangað var gott að koma því alltaf mætti manni sama velvildin og hlýjan. Þar ríkti svo góður andi, ró og öryggi. Húsmóð- irin var stjórnsöm og hugsaði vel um sitt fólk. Hún fór gjarnan snemma á fætur og var búin að baka fulla dunka af kleinum þegar aðrir vöknuðu. Magnús vann alltaf verka- mannavinnu. Hann var góður mað- ur og vann heimili sínu allt sem hann mátti. Oft var margt um manninn í litla húsinu, þau hjónin ólu upp dótturdóttur sína, Mar- gréti Érlingsdóttur, elsta barn Ól- ínu. Og Sigríður dóttir þeirra bjó þar með þeim með dóttur sína, Eyrúnu Ósk. Hún var móður sinni mikil hjálparhella á þeim árum en þá voru gömlu hjónin farin að eld- ast. Lengst af voru þau heilsu- hraust en á síðasta áratug fór heilsan að bila. Þá fluttu þau á Sólvang. Þar nutu þau góðrar að- hlynningar og umhyggju síðustu árin. Gott samband hélst við börnin sem voru dugleg að heimsækja þau. Magnús lést þar árið 1988. Börn Margrétar hafa beðið fyrir sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs, sem annaðist hana af svo mikilli alúð og virðingu að at- hygli vakti, sérstaklega í þessum síðustu veikindum hennar. Það er ættingjum hennar mikils virði. Ég kveð frænku mína með þakklátum huga og votta aðstandendum hennar samúð. Margrét Sæmundsdóttir. Stína er dáin. Hún kvaddi okkur að heimili sínu við Ægisíðu að morgni 11. þessa mánaðar. Þóttvitað væri að engin lækning er til við sjúk- dómi þeim er htjáði hana kom kveð- justundin óvænt og söknuðurinn er sár. Missirinn er mikill fyrir ástvini Stínu , því þeir eru margir sem í gegnum árin hafa notið góðmennsku og gestrisni á heimili Nonna og Stínu. í huga Stínu sátu ávallt aðrir en hún sjálf í fyrirrúmi. Allir vel- komnir hvort sem þeir voru veislu- gestir, spilafélagar, vinir og ættingj- ar í kaffispjall eða börn í pössun. Stína var lífsglöð kona, gjafmild á hlýju og umhyggjusemi og þess nutu ekki hvað síst börnin í kringum hana. Sem barn, og fullorðin, var alltaf gaman að koma á Síðuna og njóta gáska og hláturs Nonna og hlýlegs viðmóts Stínu. Hlýjunnar nutum við ekki aðeins í hennar fé- lagsskap því þær eru ófáar hendurn- ar og fæturnir sem ekki varð kalt vegna þeirra ullarvettlinga og sokka sem hún Stína hafði prjónað. Góðar eru einnig minningarnar af kirkjuferðum á sunnudögum með Nonna, og hann gat verið stór barna- hópurinn sem fylgdi Stínu á jólaböll- in í Iðnaðarbankanum. Við sem stunduðum nám í skólum við Tjörn- ina nutum þess einnig að skreppa til Stínu í löngu frímínútunum og fá hjá henni mjólkursopa og meðlæti ásamt ráðleggingum í stórum og smáum málum. / Aðstæður höguðu því þannig að ég varð í raun þeirrar gæfu aðnjót- andi að fá að dveljast hjá Stínu í nokkurn tíma. Margir eflaust ætla að sú dvö) hafi verið gerð fyrir hana, en reyndin varð nú að dvölin reynd- ist mér mikið vel. í daglegum sam- skiptum okkar saman þessar vikur öðlaðist ég slíka reynslu og dýrmætt veganesti að á er við marga skóla. Þótt sjúkdómurinn næði að setja mark sitt á hana líkamlega var hann yfirbugaður andlega með viljastyrk, þrautseigju, lífsgleði og húmor. Sinn síðasta dag á fótum fékk hún mig til að brosa og hlæja með léttu gríni. Þrátt fyrir að vera orðin fársjúk var það enn og aftur velferð annarra sem var efst í hennar huga, en gerði maður sig líklegan til að huga að henni eða spurði að líðan var svarið nær iðulega. „Mér líður ágætlega.“ Þökk sé dvöl minni hjá Stínu að ég á góðar minningar af umræðum við eldhúsborðið, sögur frá gömlu dögunum sem veittu mér tækifæri til að „kynnast" ættingjum mínum sem börnum og ungu fólki. Síðast og ekki hvað síst sýndi hún hvernig með gleði, hlýju og jákvæðu hugarf- ari er hægt að nýta og njóta þess tíma sem maður hefur, bæði fyrir sig og aðra, vitandi þess að endalok- in hér eru á næsta leiti. Einnig hafa afi, amma og Nonni og Stína, sem stofnuðu til vináttu sinnar fyrir rúm- um 50 árum, kennt mér að með því að rækta vel vináttuböndin er maður ekki aðeins að búa í haginn fyrir sig í nútíðinni heldur e.t.v. að taka gæfu- spor fyrir börn sín og barnabörn í framtíðinni. Ég bið góðan Guð að geyma ein- staka konu og minningu hennar og þakka fyrir að hafa fengið að kynn- ast henni. Anna Bryndís. Andlát Kristínar, vinkonu minnar, kom mér ekki á óvart, svo mjög sem sjúkdómur, sem ekki varð við ráðið, hafði bugað heilsu hennar á skömm- um tíma. Það rifjaðist upp fyrir mér, þegar hún lést að morgni 11. jan- úar, að á þessum sama mánaðardegi fyrir 39 árum fluttust ég og fjöl- skylda mín í húsið við Ægisíðu, sem við reistum með hjónunum Jóni Páls- syni og Kristínu, en þau voru þá nýflutt í sína íbúð. Það var okkur mikið lán að eign- ast sambýlisfólk eins og þau heiðurs- hjón, Kristínu og Jón, og þar féll ekki styggðaryrði á milli öll þessi ár. Þó hefur stundum verið hávaðasamt í krakkahópnum uppi hjá mér, en börnin mín öll tengdust þeim innileg- um vináttuböndum, enda voru þau Jón og Kristín barngóð með afbrigð- um. Kristín Þórðardóttir fæddist í Espiholti í Borgarfirði 15. nóvember 1914. Foreldrar hennar voru þau hjónin Þórður Oddsson og Loftveig Guðmundsdóttir, sem þar bjuggu, en Kristín var elst í hópi fimm systra. 1935 giftist Kristín Jóni Pálssyni, starfsmanni við Tollstjóraembættið. Þau eignuðust 1938 dótturina Stein- unni Elsu, en hún er gift Sigmundi M. Andréssyni. Jón og Kristín voiu bæði ákaflega félagslynd. Jón hafði góða söngrödd og var lengi í karlakórnum Fóstbræð- rum, og bæði höfðu þau mikla ánægju af brids-spilamennsku. Minnist ég þess, að Kristín var eitt sinn í hópi bridskvenna, ssem völd- ust til að keppa erlendis fyrir íslands hönd. í þessum hópi söng- og spila- félaga eignuðust þau marga vini, sem þau mátu mikils. Jón Pálsson lést árið 1984 en Kristín bjó áfram ein í íbúðinni við Ægisíðu. Hún var svo nátengd staðn- um og minningunum, að henni fannst hún ekki geta annars staðar unað. Hún dvaldist yfir hátíðarnar hjá Elsu, en fljótlega eftir áramótin dreif hún sig „heim á Ægisíðu“. Tveim dögum fyrir andlátið varð hún mikið veik og rænulítil úr því. Henni varð að þeirri ósk að kveðja lífið á gamla heimilinu sínu. Ég og börnin mín munum ávallt minnast Jóns og Kristínar með hlý- hug og þakklæti. Elsu og fjölskyldu hennar votta ég innilega samúð. Auður Auðuns. í dag er til moldar borin Kristín Þórðardóttir. Mig langar að minnast hennar í nokkrum orðum. Þegar fregnin barst að Stína væri látin varð mér hugsað til gömlu góðu dag- anna þegar ég var í pössun hjá þeim hjónum, Jóni Pálssyni og Stínu, en foreldrar mínir voru miklir vinir þeirra. Stlna var alveg yndisleg og elskuleg kona sem hafði dálæti á börnum og voru það nokkur sem hún átti dálítið í. Stína var dugmikil kona og ósér- hlífin. Jón Pálsson og Stína áttu eina dóttur, Steinunni, sem var þeim mjög kær og hugsaði hún vel um móður sína eftir að Jón dó, en það var 20. júlí 1984. Síðustu mánuði var hún hjá dóttur sinni og manni hennar Sigmundi Andréssyni þar sem sjúk- dómur hennar var farinn að heija á hana. Á aðfangadag sá ég að hún var orðin mjög veik, en hún barðist vel og hetjulega til dauðadags. Ég vil að lokum láta koma fram kveðjur frá móður minni Helgu Lár- usdóttur, sem ekki getur fylgt henni í dag vegna veikinda. Aðstandendum sendi ég mína dýpstu samúð frá minni fjölskyldu. Helgi Loftsson. Þann 11. janúar sl. lést Kristín Þórðardóttir. Það er ávallt söknuður sem fylgir því að kveðja góða vini og þá sem manni þykir vænt um. Það er þó huggun harmi gegn þegar eftir standa góðar minningar og vitn- Oft skortir orð, en í svona sorg- arfrétt um hann stóra bróður minn, vissi ég ekki hvað við áttum að skrifa en hann langafi minn orti ljóð á sínum tíma og ég veit að hann hefði lánað mér þau, blessuð sé minning hans. Hann langafi minn var Halldór Benediktsson. Það hafa komið mörg kvæði eftir hann. Hann bróð- ir minn sem alltaf var svo kátur og hress hefði orðið tvítugur 6. janúar. Nú berst mér að eyrum sú fjarlæga frétt, það fer ekki hiá því að heyri ég rétt: eskja um gott og farsælt lífshlaup þess sem kvaddur er. Minningar mínar um þau hjónin Stínu og Jón Pálsson eru orðnar fjöl- margar, enda 50 ár frá því vinátta tókst með foreldrum mínum, Ásu og Sigurjóni og þeim Stínu og Nonna. Um árabil bjuggu fjölskyldurnar í sama húsi og efldi það vináttutengsl- in sem aldrei dvínuðu. Það þótti sjálfgefið að Stína og Nonni væru ávallt með á öllum sam- komum íjölskyldu minnar stóium sem smáum. Stína var ung að árum þegar hún eignaðist sinn lífsföru- naut, Nonna Páls. Hjónaband þeirra var mjög fareælt, þar kom saman hógværð og hlýtt viðmót Stínu og glaðværð og fjör Nonna. Það glaðn- aði yfir sérhverri samkomu sem þau mættu til. En sameiginleg var þeim hjartahlýjan og umhyggjan fyrir ættingjum og vinum, sem ávallt sat í fyrirrúmi. Vina og ættingjahópur- inn var stór, en alltaf virtist þeim gefast tími til að rækta ættar- og vináttutengslin. Börn og ungmenni voru meira og minna í nánd við Stínu og Nonna, þeim var eðlislægt að sinna þeim og styðja. Sjaldan var annað þeirra nefnt, svo hins væri ekki getið, svo sam- tengd voru þau í hugum þeirra sem þekktu þau. Hamingjuauki þeirra hjóna var einkadóttirin Elsa, serrl var þeim mjög hjartkær og síðar stoð og stytta móður sinnar, ásamt eigin- manni sínum Sigmundi M. Andrés- syni. Bæði voru þau Stína og Nonni félagslynd og áttu sín hugðarefni, söngurinn hjá Nonna og bridsspila- mennska hjá þeim báðum. Öll upplifum við þáttaskil í lífi okkar og stundum dregur ský fyrir sólu. Slík þáttaskil urðu í lífi þeirra hjóna og Elsu dóttur þeirra þegar fyrri eiginmaður Elsu, Egill Bene- diktsson lést af slysförum 1967. Og mikil voru umskipti í lífi Stínu þegar Nonni lést 1984. Hún bjó yfir miklum andlegum styrk og góðum þroska. Þroska sem ekki hafði verið numinn í skóla eða lesinn af bók, heldur eðlislægur og áunninn af innri hvöt. Hún sýndi ætíð aðgát í nær- veru sálar og lagði ávallt gott til sérhvers manns. Hæverska, jafnað- argeð og kærleiksríkur hugur var það sem einkenndi Stínu. Síðustu mánuðina hafði sjúkdóm- ur gengið hart að líkamsþreki henn- ar, var henni og þeim er til þekktu, vel ljóst að kveðjustundin væri skammt undan. Ekki var kvartað, það hafði aldrei verið hennar háttur. Virtist hún með viljastyrk og þraut- seigju, geta hagað flestu eins og hann bróðir minn dáðrikur dáinn. Nú vildi ég hraðskreiðan farkostinn fá, mig fýsir að staðnæmast gröfmni hjá, og ná til með kross yfir náinn. En minningastraumurin örskreiður er, til æskunnar stöðva á, svipstundu fer, þar lékum við leikina saman. Þar byggðum við vonanna háreistu höll og hlupum um móa og blómskreyttan völl, þá lífið var gleði og gaman. En seinna kom alvaran, sýndi mér það, að sópuðust margskonar þrekraunir að, því lífið varð grimmúðleg glíma. Þá átti ég vísan í horninu hauk, í honum, sem nýlega ævinni lauk, og því skal nú þakkirnar ríma. (Halldór Benediktsson) Kveðjuorð: Baldvin Karlsson Fæddur 6. janúar 1972 Dáinn 21. september 1991 áður var. Að hafa samband við ætt- ingja og vini og halda jólin með fjöl- skyldu og vinum. Hún var þakklát þeim sem gerðu henni unnt að dvelja á heimili sínu allt til síðustu stund- ar. Enn sem áður, var hún okkur fagurt fordæmi um andlega reisn og þroska. Ég vi! að leiðarlokum þakka Stínu allt það sem hún hefur verið mér og fjölskyldu minni um ævina. Blessuð sé minning hennar. íris. Hjarta okkar hjóna, sem búum á jarðhæð á Ægisíðu 86, er harmi sleg- ið í raun og sannieika, vegna andláts Kristínar Þórðardóttur 11. janúar sl. sem bjó með okkur í sama húsi á efri hæðinni. Ég efa stórlega að önn- ur eins manneskja sem hún var komi í staðinn í húsið. í 40 ár höfum við átt samleið og eins konar samkrull eins og gengur, án þess að orði hafi nokkurn tímann hallað í samskiptum okkar. Á vináttuna bar engan skugga öll þessi _ár, svo ljúf og indæl var Kristín. Ég vil halda því fram, að slíkir mannasiðir sem hún sýndi í hvívetna séu einsdæmi meðal íbúðar- eigenda. Síðustu árin bjó Kristín ein- sömul, því að hún missti mann sinn, Jón Pálsson, innheimtumann hjá Torfa tollstjóra hér áður fyrr, fyrir allmörgum árum. Jón var einnig eins og Kristín, hvers manns hugljúfi, og þau bæði voru samtaka um að halda frið í húsinu og virðingu sinni. Þau hjónin áttu aðeins eina dóttur barna, Elsu, einnig indælis manneskju, sem gift er Sigmundi M. Andréssyni, og búa þau í Lækjarási 9. Hafi Kristín vinkona okkar þökk fyrir samfylgd- ina og viljum við hjónin að endingu færa Elsu innilegustu og samúðar- fyllstu kveðjur. Laufey og Páll. Allt mannlegt hefur ávallt tak- mark og tilgang í sjálfu sér. Þó er erfitt að skilgreina lífið með einföld- um hætti. Eitt er þó víst, að þar sem líf er, þar er einnig dauðinn skammt und- an, aðeins misjafnlega langt. Þessa staðreynd erum við áþreif- anlega minnt á þegar vinir kveðja þetta jarðlíf. Hugljúf og hjartahlý kona, Kristín Þórðardóttir, hefur nú verið kölluð heim til hinna himnesku bústaða á fund skapara síns. Kristín fór snemma að taka til hendinni við hin margvíslegu störf, eins og títt var um þá kynslóð sem fæddist á fyrrihluta þessarar aldar, og vann þá hörðum höndum við allt önnur skilyrði en sú kynslóð sem nú lifir. Það var árið 1963 sem Kristín hóf störf í mötuneyti Iðnaðarbankans, hún starfaði þar til 1988. í því starfi naut hún sín vel. Hún var samvisku- söm og skyldurækin í öllum störfum sínum. Henni var umhugað um að enginn færi vannærður frá borði. Frá Kristínu stafaði ylur og mannleg hlýja. Kristín giftist góðum manni, Jóni A. Pálssyni, sem nú er látinn. Um leið og við drúpum höfði í virð- ingu og þökk til hinnar látnu þökkum við Guði fyrir að hafa fengið að vera samferða Kristínu á lífsleiðinni og fengið að njóta vináttu og hins hlýja hjartaþels hennar, sem auðgað hefur líf hvers þess manns, sem kynntist. Við biðjum Guð að blessa eftirlifandi ættingja. Samstarfsfólk Lækjárgötuúti- bús Iðnaðarbankans. Að lokum bið ég guð að varð- veita stóra bróður minn. Stefán Rúnarsson, Ástþór Rúnarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.