Morgunblaðið - 21.01.1992, Side 38

Morgunblaðið - 21.01.1992, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992 fclk f fréttum Vala Óla synir Óskari Finnssyni eitt verka sinna. ARGENTINA Þjóðleg argentínsk myndlist afhjúpuð JÓLABÆKUR Metsölubók um lauslæti Kennedy-frænda -og konur sem allt virðast fyrirgefa Florída. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. etta kemur í beinu framhaldi af því að við tókum „Lista- vegginn" í gagnið í ágúst á síð- asta ári,“ sagði Óskar Finnsson vert á Argentínu Steikhúsi er af- hjúpaðar höfðu verið tíu myndir eftir myndlistakonuna Völu Óla. Vala var fengin til að vinna um- ræddar myndir fyrir Argentínu og í því skini kynnti hún sér fyrst argentínska menningu. „Þetta á að færa gesti okkar nær hjarta Argentínu og mér fínnst Völu hafa tekist vel upp,“ bætti Óskar við. Myndir Völu hanga á veggjum við gestaborð steikhússins, en fyrrgreindur Listaveggur er í for- drykkjarstofunni skammt frá inn- ganginum. Þar hafa þegar fjórir myndlista- menn sýnt verk sín, , Cheo Cruz, Hubert Nói Jóhannesson, Tolli og Hulda Hákon. Óskar sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að eigendur staðarins hefðu nú ákveðið að til einhvers væri að vinna að sýna á veggnum. Fimm manna dómnefnd hefði nú verið skipuð og væri hlutverk hennar að velja „Listaverk ársins“ og sá sem það hnoss hreppir fær 100.000 króna sýningarstyrk frá veitingahúsinu. Óskar sagði enn fremur að ekki væri víst að myndir Völu Óla fengju að hanga einar á veggjun- um nema um hríð, því hugmyndir væru uppi um að fá ljóðskáld til að yrkja ljóð við myndirnar og myndu þau ljóð því væntanlega vera hengd við myndirnar. Ein af metsölu jólabókunum hér um slóðir varð að þessu sinni allítarleg frásaga af ástamálum þeirra Kennedy-frænda, allt frá ættföðurunum, Joseph, sem var m.a. sendiherra Bandaríkjanna við hirð Bretakonungs í upphafi seinni heimsstyijaldarinnar, til nútímans. Joseph þótti ekki vera við eina fjö- lina felldur í ásta- málum frekar en synir hans og önnur ættmenni síðar. Hann varð kunnastur fyrir samband sitt við Hollywood-leik- konuna frægu Gloríu Swanson en sonur hans, John Kennedy forseti, átti ving- ott við Marilyn Monroe og aðrar fegurðardísir samtíðar sinnar. í bókinni er nefnist „The Kennedy’s: An American Tra-1 gedy“ (Kennedy ættin: Amerísk harmsaga) eftir David Horowitch eru ástarævintýri þeirra frænda rakin allt frá ættföðumum til dótt- ursonar hans Williams Kennedy Smith, sem sýknaður var hér ný- lega af nauðgunarákæru. Þótt höfundurinn greini ná- kvæmlega frá ástamálum og framhjátökum þeirra Kennedy- frænda lofar hann jafnframt eigin- konur þeirra og kveður þær „nær undantekningarlaust og ævinlega" hafa stutt eiginmenn sína þrátt fyrir lauslæti þeirra „a.m.k. á yfir- borðinu" eins og höfundurinn orð- ar það. „Hvað er það sem veldur því að eiginkonur þeirra virðast fyrir- gefa þeim lauslætið æ ofan í æ þrátt fyrir auðmýkinguna sem því fylgir?“ spyr höfundur bókarinnar. Sumir vinir Kennedy-fjölskyldunn- ar halda því fram að viljinn til að standa saman sé sterkasti þáttur- inn í lífi íjölskyldunnar og það sé gert í von um „betrun og bót hinna afvegaleiddu.“ Aðrir telja að slík samstaða fylgi metorðum og ver- aldlegum auði og því standi Kennedy-fjölskylda saman um „heiður ættarinnar“ hvað sem á dynur. Hér sé því raunverulega ekki um neitt annað að ræða en að þola raunirnar og láta sem ekkert hafi gerst. Sálfræðingur nokkur frá Balti- more, Shirley Glass að nafni, sem er sérfræðingur í hjúskaparmálum og einkum framhjáhaldi, skýrir það á annan veg hvers vegna Kennedy-konur beri lauslæti eigin- manna sinna möglunarlaust. Hún segir: „Konur valdamikilla manna telja sig sjálfar valdamiklar og eru oftast ófáanlegar til að skerða þá aðstöðu sína með hjónaskilnaði." Annar „sérfræðingur“ er borinn fyrir því að það sé ekki ólíklegt að eiginkonur þeirra Kennedy- frænda hafi þegar í upphafi gert sér ljóst að hveiju þær gengu og mættu eiga von á og þær hafi þess vegna tekið því sem að bar með þegjandi þögninni. Enn einn sérfræðingurinn, sem sérhæft hefur sig í sögu ættmóð- urinnar, Rósu, eiginkonu Josephs, segir það einkenna eiginkonur þeirra að þær horfi einkum til framtíðarinnar frekar en að ein- blína á það sem liðið er. Sá heldur því fram að það hafi verið djúp og einlæg guðstrú Rósu er hafi gert henni kleift að þola framhjá- hald eiginmannsins. „Rósa Kennedy horfði framhjá því sem hún vissi að var að gerast og sótti huggun í einlæga trú sína, sem varð henni eitt og allt. Bænir hennar, trúin á Guð og vilja al- mættisins gerðu henni lífið þolan- legt.“ I bókinni kemur fram að undan- tekningar hafi verið á þessari reglu innan Kennedy-fjölskyld- unnar. Þær Joan Kennedy, eigin- kona Edwards (Ted) Kennedy og Patricia, eiginkona Peters Law- fords, skildu báðar við menn sína. Kona Teds stóð í upphafi við hlið hans er stúlkan lést í bifreið hans við Chappaquidick-fljótið um árið. Að því kom að hún stóðst ekki mátið og kom í kvöldverð í Hvíta húsinu klædd gegnsæjum skyrtu- bol til að gefa í skyn að þannig teldi hún að „flennum" sem giftar væru kvennabósum bæri að klæð- ast. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíúum Moggans!_____________xj Morgunblaðið/Sverrir. Margt gesta var við afhjúpun listaverkanna á Argentínu. ISLENSKAR SKALDS0GUR • ÞYDDAR SKALDSOGUR • BARNA OG UNGP Stóró BOKAMARKAÐURINN 1992 BUCAFEN110 Magnaóasti bókamarkaður allra tíma c* * 3 I — 3 uj S <J3 | • S cr> 20 =3= 5» z moraun Ppi 20 uo CZ>: CTi Eymundsson j l- ™ STOFNSETT 1872 = ^ C c unMavflQfi • mmmi MDHfloto • viroi3/aiqy\H • wdninnii? Joan Kennedy sýndi bijóstin í Hvíta húsinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.