Morgunblaðið - 21.01.1992, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992
45
1 Sumtmá
Eftir að ríkisstjórnin lagði fram
fjárlagafrumvarpið og kynnti áætl-
anir sínar um sérstakar agerðir í
ríkisfjármálum hefur hver hags-
munagæslumaðurinn af öðrum og
ein starfsstétt eftir aðra risið upp
og mótmælt af heilagri vandlæt-
ingu. Sumt má vel spara, annað
síður. En hvenær á að grípa í taum-
ana, ef ekki nú? Eða hvaða þáttur
þjóðlífsins getur einn tekið á sig
allan samdráttinn? Þegar róttæku
og að einhveiju leyti harkalegu
aðgerðir ríkisstjórnarinnar eiga
ekki að standa til eilífðar. Þetta
ástand verður um stundarsakir,
meðan við erum að komast út úr
þeim vandræðum, sem Framsókn-
arflokkur og Alþýðubandalag öðr-
um fremur, hafa komið okkur í.
j Ætli það væri nú ekki flott fyrir
® ráðherrana, að hlaða bara gjöldum
og skuldum á herðar okkar hinna
i til þessað kaupa hálfkarað hús á
nokkur hundruð milljónir króna
undir „listaháskóla", sem er ekki
■ einu sinni til á pappírunum. Enginn
® veit hvernig á að nota þetta slátur-
hús, sem Guðrún Helgadóttir nefndi
„Perlu alþýðubandalagsmanna".
Enda hlóu þeir út undir bæði eyru
próf. dr. Ólafur Ragnar Grímsson,
Svavar Gestsson og Steingrímur
Hermannsson, þegar þeir slógu um
sig á okkar kostnað og keyptu
SS-húsið á Laugarnesi. Þeim vannst
ekki tími til að ganga á bak orða
sinna og svíkjast undan þeim samn-
ingi eins og fór með „tímamóta-
samninginn" við BHMR nokkru
fyrr. Þetta var einn af mörgum
kosningavíxlum próf. dr. Ólafs og
Steingríms Hermannssonar.
Það verður að skrifast á reikning
W Framsóknar fyrst og fremst, að
grípa þarf til jafn róttækra björgun-
araðgerða og nú. Framsóknarmenn
9 hafa setið við kjötkatlana í 20 ár
og oftast haft þar forystu. Allan
tímann reyndust þeir vera þær
P gungur, að þora ekki að stjórna,
taka á málunum, láta jafnvel sverfa
til stáls. Pólitík Steingríms Her-
mannssonar er að þefa uppi vin-
sældir, halda öllum góðum. Þess
vegna getur hann ekki kennt Davíð
Oddssyni neitt. Óvinsælu málin
voru látin danka. Því er vandinn
mikill nú. Við lok 20 langra fram-
sóknarára kemur fram umræðan
um „tvær Jjjóðir í einu landi“ og
„fátækt á Islandi". Það þýðir ekk-
ert að stinga höfðinu í sandinn og
mala um það, að þjóðin sé að kafna
í bölmóði. Það verður að horfast í
augu við vandamálin og leysa þau.
Bölmóður er gamalt og gott orð,
P sem nú hefur komistí tísku og hver
étur upp eftir öðrum. Nú á bara
að skella í góm, yppta öxlum og
segja: „Ekki þennan bölmóð, strák-
ar — það reddast." En við erum
okkar eigin gæfu smiðir. Og gæfa,
h eða gæfuleysi, þjóðarinnar er ekki
spara, annað síður
síst undir störfum ríkisstjórnarinnar
komin. Þess vegna verður að líta
staðreyndirnar í réttu ljósi, einnig
þær óþægilegu.
Harmagráturinn vegna aðgerða
ríkisstjómarinar er að verða hlægi-
legur. Hver rígheldur í þær drusl-
ur, sem honum hefur tekist að reyta
af samfélaginu og vill ekki fyrir
nokkurn mun sleppa. Svo upphefst
fúkyrðaflaumur um einstaka þing-
menn og þeim hótað öllu illu, fari
þeir að hrófla við hefðum og hags-
munum stétta og starfshópa. Sumir
halda að alþingismenn séu fulltrúar
einhverra stétta eða stéttahags-
muna á þingi. Þetta er misskilning-
ur. Guðmundur Hallvarðsson t.d.
er ekki fulltrúi sjómanna á Alþingi.
Hann er fulltrúi minn. í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins hér í Reykjavík
hafði ég hann meðal 5 efstu manna
á listanum og sé sannarlega ekki
eftir því. Og í kosningunum kaus
ég lista Sjálfstæðisflokksins og þar
með Guðmund Hallvarðsson. Hann
er minn þingmaður og okkar sjálf-
stæðismanna í Reykjavík. Hann er
fulltrúi hugsjóna og stefnu Sjálf-
stæðisflokksins. Ég kann ekki við
þá þingmenn, sem snögglega fá
samvisku á miðju kjörtímabili og
skutlast þá yfir í næsta flokk eða
stofna nýjan. Ég vil, að þingmenn
mínir sýni flokkshollustu. Við meg-
um ekki kjósa einstaklinga á þing,
heldur aðeins flokka (eða lista). Það
eru þess vegna svik við okkur kjós-
endur, ef þingmaður heldur uppi
stefnu, sem gengur í berhögg við
stefnu þingflokksins og þeirrar for-
ystu, sem við höfum valið. Slíkir
þingmenn hafa ekki siðferðilegan
rétt til þingsetu.
Ég er því ánægður með störf
þingmanns míns, Guðmundar Hall-
varðssonar. í deilunum um sjó-
mannaafsláttinn sýndi hann (og
einnig aðrir sjómenn í þingliði sjálf-
stæðismanna) þá viðsýni og sann-
girni, sem hæfír fulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins. Guðmundur á að sinna
hagsmunum sjómanna á skrifstofu
Sjómannafélagsinss, en hagsmun-
um þjóðfélagsins á Alþingi.
Ég hefði viljað fá fólk úr miklu
fleiri starfsstéttum en nú eru í
þingliði Sjálfstæðisflokksins, jafn-
vel á kostnað lögfræðinga og hag-
fræðinga. Ekki til að ota fram
stéttahagsmunum og veija sporslur
og dúsur sinnar stéttar með oddi
og egg. Heldur til að ná fram þeirri
reynslu og þekkingu, sem hvar-
vetna finnst með þjóðinni og fá fram
sem flest sjónarhorn á öll þau mál,
sem löggjafínn á að fást við. Því
sjálf smíðum við gæfu þjóðarinnar.
Og smiðjan er Alþingi.
Gunnlaugur Eiðsson.
V m ■.
LÉTTOSTU R
MtP B^Osiy>vlt>Y GRItNMm
LÉTTOSTAR
þrjár tegundir á léttu nótunum
MUNDU EFTIR OSTINUM
Macintosh fyrk byqendui
Grunnatriði Macintosh, Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, teikning,
töflureiknir og stýrikerfi á 15 klst námskeiði fyrir byrjendur.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Verkfræðistota Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16*stofnuð 1. mars 1986 (Q
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
é
GD|
P
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
i
1
j
I
i
SJBJBJSJBJBjgjBJBJcLiBJBJBJBJBJBJBJBJBJcLfgJBLJB.
a
3
3
3
3
|
3
3
Þ
p3
m
HÓTEL HOLT
í hádeginu
Príréttaður hádegisverður
alla daga.
Verð kr. 1.195,-
CHATEAUX.
Bergstaðastræti 37, sími 91-25700
*—t
m
k
i
ú
tnrargrBrgrgrgrBrgrBrBnarBrBrBrBrgrBTBfBrBngrBrBf
TÓNLEIKAR
Rauð áskriftarröð
í Háskólabíói
fimmtudaginn 23. janúar kl. 20.00
Efnisskrá:
Finnur Torfí Stefánsson: Hljómsveitarverk II
Richard Strauss: Till Eulenspiegel
Béla Bartók: Píanókonsert nr. 2
Einleikari: Tzimon Barto
Hljómsveitarstjóri: Osmó Vnska
Finnur Torfí Stefánsson kynnir efni tón-
leikanna í FÍH-salnum, Rauðagerði 27,
í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.00.
Fjölmennum!
Miðasala á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitarinnar
í Háskólabíói daglega frá kl. 9-17 og í miðasölu
við upphaf tónleikanna.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS,
HÁSKÓLABÍÓIV/HAGATORG, SÍMI622255