Morgunblaðið - 21.01.1992, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992
Jf-
Zia o g Rosenberg unnu Cap Gemini Pandata tvímenninginn:
Jón og Aðalsteinn í miðj-
um hópi mest allt mótið
Brids
Guðmundur Sv.
Hermannsson
Aðalsteinn Jörgensen og
Jón Baldursson enduðu í 9.
sæti í hópi 16 para á stórmóti
í Haag í Hollandi, sem kennt
er við Cap Gemeni Pandata,
og lauk á sunnudag. Þeir fé-
lagar byrjuðu heldur illa og
voru í neðsta sæti eftir fyrsta
keppnisdaginn af fjórum en
voru síðan lengstaf í miðjum
hópi. íslandsvinurinn Zia Ma-
hmood frá Pakistan vann mót-
ið ásamt Michael Rosenberg,
sem er skoskur að uppruna
en hefur búið í Bandaríkjun-
um í nokkur ár.
Keppnissformið var Butlertví-
menningur þar sem allir spiluðu
við alla 10 spila leiki. Reiknað
var út meðalskor spilanna við öll
borðin. Spilararnir báru skor sína
saman við meðalskorið og mis-
munurinn var reiknaður út í
IMP-stigum. Ynni par til dæmis
með 12 impa mun fékk það +12
en mótherjarnir -12. Þetta var
lokastaðan:
1. Mahmood-Rosenberg 103
2. Leufkens-Westra 101
3. Chagas-Branco 73
4. Martens-Zsymanowski 56
5. Meckstroth-Rodwell 54
6. Eisenberg-Garozzo 30
7. Chemla-Perron 24
8. Fallenius-Nilsland -1
9. Aðalsteinn-Jón -9
10. Glubok-Kaplan -12
11. Huang-Tai -16
12. Kokosh-Mittelmann -58
13. Bocchi-Duboin -62
14. Forrester-Robson 62
15. Jansen-Westerhof -95
16. Fischer-Weigkricht -140
Flestir leikir þeira Jóns og
Aðalsteins voru jafnir og örfá
stig skiptu um eigendur. Þeim
tókst þó að vinna Meckstroth og
Rodwell með 17 stigum og Eisen-
berg og Garozzo með 16 stigum,
en stærstu töpin voru gegn Hu-
ang og Tai, -20, og Fallenius og
Nilsland, -12. í þessu spili tókst
þeim að stela slemmu gegn
Meckstroth og Rodwell þegar
Rodwell sleppti ímyndunaraflinu
lausu.
V/AV
Norður
♦ ÁKD9753
VÁ4
♦ D85
♦ 3
Vestur Austur
♦ 86 ♦ 10
♦ 1052 ¥K8
♦ K10743 +ÁG9G2
♦ Á92 ♦ D8754
Suður
♦ G42
♦ DG9763
♦
♦ KG106
Vestur Norður Austur Suður
Rodw. Jón Meckstr. Aðalst.
- 1 lauf 1 tígull 1 grand
pass 2 lauf pass 2 tíglar
dobl pass pass 2 spaðar
pass 2 grönd pass 3 spaðar
pass 4 lauf pass 4 tíglar
pass 6 spaðar a.pass
Jón opnaði á sterku laufi og
Meckstroth stakk inn tígli sem
sýndi annað hvort háliti eða lág-
liti. Með 1 grandi sýndi Aðal-
steinn hjartalit og Rodwell ákvað
að fara sér hægt á hættunni
þótt AV ættu líklega tígul sam-
an. 2 lauf var biðsögn og 2 tíglar
sýndu annaðhvort 6- eða 7-lit í
hjarta. Þá stakk Rodwell inn
dobli, pass Jóns var biðsögn og
2 spaðar sýndu 6 hjörtu og 3
spaða. 2 grönd var biðsögn, 3
spaðar sýndu 4-lit í laufi og eng-
an tígul, 4 lauf var biðsögn og 4
tíglar sýndu 0-1 háspil (ás eða
kóng). Jón skaut þá á slemmuna
sem á að vera óvinnandi eins og
spilið liggur.
En það gerist oft ýmislegt
óvænt við spilaborðið. Að öllum
líkindum taldi Rodweil sennilegt
að Mechstroth ætti laufakónginn
fyrir innákomunni en laufakóng-
urinn gæti einnig vel verið annar
í blindum. Og ef Aðalsteinn ætti
t.d. gosann fjórða í laufi myndi
hann aldrei finna að stinga upp
kóngnum í blindum ef lauf kæmi
út. Að minnsta kosti taldi Rodw-
ell það áhættunnar virði að spila
út litlu laufi undan ásnum gegn
slemmunni og þar með voru öll
vandamál Aðalsteins úr sögunni;
hann gat einfaldlega spilað
hjartaás og meira hjarta og fríað
þannig hjartalitinn.
Sigur Zia og Rosenberg í mót-
inu hékk á bláþræði því umdeilt
atvik kom fyrir í einni af síðustu
umferðunum. Kröfur um að
keppendur kunni full skil á sagn-
kerfi sínu eru sífelt að verða
strangari eins og þeir Enri Leuf-
kens og Barry Westra frá Hol-
landi, sem unnu þetta mót fyrir
tveimur árum, komust að raun
um.
Vestur
♦ K8762
♦ 752
♦ Á104
♦ G5
Norður
♦ Á
♦ K10863
♦ K83
♦K1072
Austur
Suður
♦ D109543
♦ -
♦ G72
♦ D863
♦ G
♦ ÁDG94
♦ D965
♦ Á94
Leufkens opnaði á 1 hjarta í
suður og Westra stökk í 3 grönd,
sem samkvæmt kerfi þeirra sýndi
stuttan spaða og góðan hjartast-
uðning. En Leufkens sagði Bras-
ilíumanninum Gabríel Chagas,
sem sat í austur, að 3 grönd
væri eðlileg sögn með jafnskipta
hönd og 13-15 punkta. Chagas
sagði þá pass og Leufkens breytti
í 4 hjörtu sem unnust slétt.
Chagas k'vartaði við keppnis-
stjóra, sagðist hefðu getað doblað
3 grönd til að sýna spaðalit, og
Branco hefði þá örugglega fórnað
í 4 spaða yfir 4 hjörtum sem
hefðu kostað 300 í stað 420.
Þetta var tekið til greina. Skor-
inni var breytt í 300 og þar töp-
uðu Leufkens og Westra 3 imp-
um. Og til viðbótar voru þeir
sektaðir um 3 impa fýrir að gefa
andstæðingurnum rangar upp-
lýsingar um sagnir. Þetta kostaði
Hollendingana því 6 stig og sig-
urinn á mótinu.
Svala Sigurleifsdóttir
Svala sýnir
í Gallerí
Sævars Karls
SVALA Sigurleifsdóttir sýnir por-
tret af listamönnum í Galleríi
Sævars Karls, Bankastræti 9, frá
18. janúar til 8. febrúar 1992.
Svala er fædd 10. júní 1950 og
stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1972-75. Hún
tók BA-próf frá CWC í Denver 1976
og las listasögu við Kaupmannahafn-
arháskóla 1979-80. 1980-81 stund-
aði hún nám við Statens Kunstaka-
demi í Osló. Svala tók MFA-próf frá
Pratt Institute, New York 1984.
Portretin eru gerð með svart-hvít-
um ljósmyndum sem eru litaðar með
olíulitum. Þau eru eins konar ljóð
um listamenninga á myndunum.
Aðaláherslan er lögð á túlkun þeirra
innra heims og aðstæðna í heimi list-
arinnar. Flestir listamannanna eru
af millikynslóð íslenskra listamanna
en einnig eru myndir af „grand old
masters" og erlendum listamönnum.
Sýningin stendur til 8. febrúar og
er opin á sama tíma og verslunin.
Bókamarkaður
VflUfll I
Dæmi um verð: Verð áður Verð nú Afsl.
Laddi eftir Práinn Bertelsson 2.890,- 2.450.- 15%
Trillukarlar eftir Hjört Gíslason 2.790.- 2.370.- 15%
Að lifa er list eftir Pétur Guðjónsson 2.690,- 2.290.- 15%
Spurningakeppnin þín fyrir alla fjölskylduna 980,- 830.- 15%
Miklu meira skólaskop bráðfyndin bók 1.490,- 1.260.- 15%
Á ferð um hringveginn eftir Ara Trausta Guðmundsson 8.900.- 5.900.- 40%
Hannibal Valdimarsson og samtíð hans 3.490,- 1.290.- 63%
stjórnmálasaga Hannibals eftir Þór Indriðason
Hundalíf handbók fyrir hundaeigendur eftir Guðrúnu Petersen 4.950,- 2.950.- 40%
Réttarhald reiðinnar skáldsaga eftir J.A. Jance 2.380,- 690.- 71%
Hin hlið íslands eftir Ara Trausta Guðmundsson 3.890,- 1.990.- 49%
og Hrein Magnússon með íslenskum, þýskum og
enskum texta, fjöldi Ijósmynda.
Ráðgátan spennandi unglingabók 1.490,- 690.- 54%
Keflavík í byrjun aldar 3 bindi í öskju 15.975,- 8.900.- 44%
í dvalarheimi, ræður Halldórs Kristjánssonar á Kirkjubóli 2.500,- 25.- 99%
Ljósmyndir gamla tímans Ijósmyndir frá 9.900.- 5.900.- 40%
hinum ýmsu stöðum á landinu.
allt nýjar og nýlegar bækur!
15-99% AFSLÁTTUR
Ath. bókamarkaðurinn stendur aðeins í 7 daga.
Opiö virka daga frá kl. 9-19 Líf Qg §aga
Suöurlandsbraut 20 2. hæð
sími: 91-689938
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
17. - 20. janúar 1992
Um helgina var áberandi
hversu oft lögreglan var kölluð
í heimahús vegna ölvunar og
hávaða í heimilisfólki og gestum
þess, eða 31 sinni. í flestum til-
vikum var um að ræða fólk, sem
gleymt hafði, eða hafði ekki
hugsun á, að taka tillit til ná-
lægra íbúa, eða bar sig þannig
að við áfengisneysluna að um-
merki hennar má sjá enn á lík-
ama og innanstokksmunum. í
öðrum 60 tilvikum þurfti lögregl-
an að hafa afskipti af ölvuðu
fólki í misjöfnu ásigkomulagi.
Auk þess voru 6 ökumenn stöðv-
aðir í akstri grunaðir um ölvun.
Á laugardagsmorgun skarst
maður á hendi eftir átök við
annan í húsi í austurborginni.
Á laugardagskvöld sló maður
til vagnstjóra SVR. Maðurinn
var handtekinn og færður á geð-
deild Kleppsspítala.
Um miðjan dag á sunnudag
varð gangandi vegfarandi fyrir
bifhjóli á Hringbraut við Laufás-
veg. Gangandi vegfarandinn lést
síðar og ökumaðurinn slasaðist
lítilsháttar.
Annar ungur maður undir
áhrifum áfengis var handtekinn
við að reyna að brjótast inn í
verslun við Bræðraborgarstíg að
morgni laugardags. Glöggur
vegfarandi hafði séð til unga
mannsins og hafði þegar í stað
samband við lögregluna, sem
brást skjótt við með fyrrgreind-
um árangri. Maðurinn var að
reyna að spenna upp hurð ba-
katil við húsið þegar hann varð
lögreglunnar var. Hann henti þá
frá sér felgujámi, sem hann
hafði undir höndum, leit í kring-
um sig, en sá að öll sund voru
lokið. Hans beið vistun í fanga-
geymslunni.
14 ára gömul stúlka var stað-
in að því að reyna að hnupla
teningaspili í verslun Hagkaupa
í Kringlunni á föstudag. í ljós
kom þá að hún hafði einnig
ýmislegt annað í fórum sínum
sem grunur er um að hafi verið
tekið ófrjálsri hendi í annarri
verslun. Allmargir hafa verið
staðnir að hnupli í verslunum að
undanförnu og svo virðist sem
verslunareigendur gefi þessum
þætti verslunarrekstursins meiri
og betri gaum en áður. Að sama
skapi eykst áhætta þeirra, sem
reyna að hnupla í verslunum. Á
laugardag var t.d. fimmtugur
karlmaður staðinn að því að
reyna að hnupla hárlögsbrúsa í
verslun við Laugaveg. Sama dag
gat tvítug stúlka ekki gert grein
fyrir því hvernig merkt skóá-
burðardós komst í vasa hennar
í verslun við þá götu.
Á laugardagskvöld handtók
lögreglan ölvaðan mann, sem
reyndi að brjótast inn í hús við
Bergstaðastræti. Sá hafi reynt
að spenna upp hurð bakatil við
húsið. Þegar hann var spurður
um ferðir sínar sagðist hann
hafa átt að þrífa gluggana fyrir
eigandann. Eigandinn kannaðist
ekki við að hafa beðið nokkum
um slíkt.
Aðfaranótt laugardags handt-
ók lögreglan tvo unga ölvaða
menn þar sem þeir voru að reyna
að bijótast inn í hús við Snorra-
braut. Þá kom í ljós að þeir höfðu
áður farið inn í aðra íbúð í ná-
grenninu.