Morgunblaðið - 03.03.1992, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
Það sem auðvelt
er að einkavæða
eftir Harald
Sumarliðason
Einkavæðing hefur verið til meiri
og alvarlegri umfjöllunar á opinber-
um vettvangi en oftast áður, og er
það vel. í nútímaþjóðfélagi hafa rík-
isvaldið og sveitarfélög auðvitað
vissu hlutverki að gegna varðandi
stjómsýslu, lög og rétt og ýmsa
þjónustu á sviði mennta-, heilbrigð-
is- og félagsmála. Yfirburðir einka-
rekstrar á sviði alls almenns at-
vinnurekstrar hafa hins vegar kom-
ið æ betur í ljós á undanförnum
árum, bæði með hruni hagkerfa
A-Evrópuþjóða og óhagkvæmni í
opinberum rekstri í svonefndum
blönduðum hagkerfum á Vestur-
löndum. Einkavæðing er því á
stefnuskrá flestra ríkisstjóma í Evr-
ópu og víðar.
Með einkavæðingu er ekki aðeins
stefnt að sölu allra venjulegra at-
vinnufyrirtækja í eigu hins opin-
bera, heldur einnig að víðtækum
útboðum á þjónustu, sem hið opin-
bera þarf á að halda. Hafa margar
kannanir leitt í ljós, að það er mun
hagkvæmara fyrir hið opinbera að
láta einkaaðila keppa um að leysa
sem flest verkefni, sem það þarf að
fá unnin, fremur en að ríki eða sveit-
arfélög séu sjálf að glíma við þau
í vernduðu umhverfi. Þessi sannindi
hafa nú meira að segja Svíar viður-
kennt og eru nú í óða önn að einka-
væða.
Gleymir ríkisstjórnin
útboðum?
Núverandi ríkisstjóm hefur
einkavæðingu á stefnuskrá sinni og
hefur þegar lagt drög að því að
hrinda henni í framkvæmd á af-
mörkuðum sviðum, einkum með sölu
á ríkisfyrirtækjum. Lítið hefur hins
vegar verið aðhafst varðandi útboð
á margvíslegri þjónustu, sem ríkis-
stofnanir þurfa á að halda vegna
rekstrar síns, en er samt alls óskyld
aðalstarfsemi eða markmiðum
stofnananna. Hér má -nefna ýmsar
framkvæmdir og viðhald á mann-
virkjum, tækjum og búnaði, rekstur
mötuneyta, hársnyrtiþjónustu o.fl.
í einkarekstri þykir verkaskipting
sjálfsögð og hagkvæm, þ.e. að
kaupa aðföng ogþjónustu frá öðrum
fyrirtækjum, fremur en að reyna
að gera alla hluti sjálfur. Hjá stofn-
unum hins opinbera er hins vegar
ótrúlega rík tilhneiging til þess að
menn vilji vasast sjálfír í að leysa
alla sína þörf á þjónustu (og jafnvel
einnig framleiða vörur til eigin
nota), Jiafa starfsfólk á launum við
störf, sem eru alls óskyld aðalstarf-
semi þeirra og byggja upp sinn eig-
in rekstur í starfsemi, sem engin
stjórnunarþekking er á innan stofn-
ananna.
Slík starfsemi, sem auðvelt er að
sækja til einkafyrirtækja, leynist
mjög víða hjá hinu opinbera, en án
þess að hún komi skilmerkilega
fram í reikningum þess. Það vita
t.d. ekki allir, að sum sjúkrahúsanna
reka hálfgildings trésmíðaverkstæði
innan sinna dyra! Fjöldamargar rík-
isstofnanir eru með iðnaðarmenn
úr hinum ýmsu greinum á launaskrá
til að sinna margskonar þjónustu í
eigin þágu, enda þótt auðvelt sé að
fá slíka þjónustu keypta með hag-
kvæmum hætti af einkafyrirtækj-
um. Ríkisstjórnin ætti að láta kanna
það, hvers vegna svo mikil fyrir-
staða er innan ríkiskerfísins fyrir
eðlilegri og hagkvæmari verkaskipt-
ingu. Umfram allt ætti hið opinbera
að láta reyna á það með útboðum,
hvort ýmsir þættir í starfsemi þess
eru ekki betur komnir hjá einkaaðil-
um. Meðan það hefur ekki verið
gert hafa þeir, sem með fjármál
hins opinbera fara, enga vissu feng-
ið fyrir því, að ekki megi hagræða
og spará á fjölmörgum sviðum.
Það eru því margir möguleikar á
hagkvæmri einkavæðingu í ríkis-
rekstrinum, ekki aðeins með sölu
ríkisfyrirtækja, heldur þarf að gefa
aukinn gaum að því að bjóða út þá
þætti í rekstri stofnana, sem betur
eru komnir hjá einkaaðilum. En
möguleikar á einkavæðingu eru
ekkert síður til staðar hjá sveitarfé-
lögunum. Þau hafa verið og eru enn
stórtæk í ýmsum atvinnurekstri,
sem er þess eðlis, að hann væri
betur kominn hjá einkaaðilum. Enn
sem komið er hafa sveitarfélögin
þó farið sér ótrúlega hægt í einka-
væðingu. Borgarstjórinn í Reykjavík
hefur nýlega vakið máls á ýmsum
möguleikum til einkavæðingar hjá
borginni. Er það fagnaðarefni og
óskandi, að ekki verði látið sitja við
orðin tóm. í ljósi þessa verður hér
á eftir bent á ýmsa starfsemi hjá
borginni, sem álitlegt er að einka-
væða. Það skal tekið fram, að
Reykjavíkurborg er hér aðeins tekin
sem dæmi að gefnu tilefni, en hlið-
stæðar ábendingar eiga við flest
önnur stór sveitarfélög.
w
w
SPARIÐ ALLT AÐ 50% OG
■■■■■■■■
SETJIÐ SAMAN SJALF
B
'jöminn býður upp á gott og
fjölbreytt úrval efniviðar til
smíði á eldhús- og baðinnréttingum
og fataskápum.
Fagmenn okkar sníða efnið eftir
þínum þörfum.
Þú setur innréttinguna saman
sjálf(ur) og sparar þannig
peninga.
Gerðu verðsamanburð.
— Það borgar sig.
Eldhúsinnréttingar.
Baðherbergisinnréttingar.
Fataskápar.
Æ,.
BJORNINN
BORGARTÚNI28S.621566
ASSt fyéverá úmnkáss
Haraldur Sumarliðason
„í umræðum um einka-
væðingu hætitir mörg--
um til að einblína á
stærstu stofnanir, svo
sem banka og orkufyr-
irtæki. Vill þá gjarnan
gleymast, að ríki og
sveitarfélög stunda
margvíslegan annan at-
vinnurekstur, sem auð-
velt og hagkvæmt er
að einkavæða. “
Rétt forgangsröð mikilvæg
í umræðum um einkavæðingn
hættir mörgum til að einblína á
stærstu stofnanir, svo sem banka
og orkufyrirtæki. Vill þá gjarnan
gleymast, að ríki og sveitarfélög
stunda margvíslegan annan at-
vinnurekstur, sem auðvelt og hag-
kvæmt er að einkavæða. Pípugerð
og sorphreinsun borgarinnar hafa
að visu verið nefndar sem í sjálfu
sér er jákvætt og tímabært. En
óðar en varir eru menn samt komn-
ir á flug og famir að tala um millj-
arða fyrirtæki á borð við orku- og
veitufyrirtæki borgarinnar. Liggur
þá í loftinu sú skoðun, að hin
smærri rekstur skipti litlu sem engu
máli.
Hér væri mönnum hollt að kynna
sér reynslu annarra þjóða í sam-
bandi við einkavæðingu, t.d. Breta.
Þar hefur komið í ljós, að einkavæð-
ing fyrirtækja, sem að hluta eða
öllu leyti búa við einkarétt á til-
teknum sviðum, svo sem orku- og
veitufyrirtæki, er margfalt flóknara
og vandasamara mál en þar sem
samkeppnisaðstæður eru fyrir
hendi. I Bretlandi hafa veitu- og
símafyrirtækin verið seld einkaaðil-
um en eru eigi að síður undir
ströngu opinberu eftirliti, sem m.a.
tekur til verðlagningar þjónustunn-
ar.
Orku- og veitufyrirtæki Reykja-
víkurborgar og ríkisins eiga miklar
eignir. Af þeirri ástæðu er áhuga-
vert fyrir almannasjóði að einka-
væða þau. Vegna einkaréttar og
sérstöðu er hins vegar fræðilega og
tæknilega flókið að selja einkaaðil-
um rekstur þeirra. Slíkt mundi í
öllum tilvikum krefjast rækilegs
undirbúnings. Það felur í sér
ákveðna hættu að byija á því að
beina sjónum sínum að þessum fyr-
irtækjum. Óhjákvæmilegir erfiðleik-
ar við að einkavæða þau mundu
spilla fyrir eða jafnvel stöðva áætl-
anir um einkavæðingu á öðrum svið-
um. Skynsamlegra er að taka fyrst
til hendinni, þar sem framkvæmd
einkavæðingar er einföld, á sviðum
þar sem hið opinbera stundar rekst-
ur í beinni eða óbeinni samkeppni
við einkaaðila. Einnig liggur beint
við að kanna möguleikana á því að
veitufyrirtækin bjóði út í ríkara
mæli en verið hefur ákveðna þætti
í rekstri sínum. Hér er um að ræða
þætti sem eru eðlislíkir þeirri starf-
semi sem einkaaðilar stunda, t.d.
vinnavið lagnir, viðhald og viðgerðir
á þeim.
Á borgarsjóður að
reka trésmiðju?
Hvaða möguleikar eru á einka-
væðingu hjá Reykjavíkurborg? Hér
verður að sjálfsögðu engin tæmandi
úttekt gerð á þessu, heldur aðeins
dregnar fram upplýsingar í eftir-
farandi töflu um fyrirtæki eða starf-
semi á vegum borgarinnar sem hlýt-
ur að koma mjög sterklega til
greina. Upplýsingarnar eru úr frum-
varpi að fjárhagsáætlun Reykjavík-
ur árið 1992 og gilda því fyrir það
ár.
Velta Fjöldi
(miiy. kr.) starfsm.
Trésmiðja 194 51
Vélamiðstöð 430 92
Malbikunarstöð 382 15
Grjótnám 143 8
Pipugerð Vinnuskóli, sumarverkefni 116 13
ogýmis garðyrkja, ca. Rafm.veita hitav. og 263 1
vatnsv.: lagnir, viðh. o.þ.h. Strætisvagnar: 137 70
verkstæði og þvottastöð 100 60
Samtals 1.765 309+
Til samanburðar má geta þess,
að rekstrarútgjöld borgarinnar á
þessu ári eru áætluð um 9.075 millj-
ónir króna. Samanlögð velta við
framangreinda starfsemi nemur því
um 19,5% af rekstrarútgjöldum
borgarinnar. Það safnast því þegar
saman kemur í hinum ýmsu „smáu“
liðum í opinberum rekstri, sem auð-
velt er að einkavæða. Það skal samt
ítrekað að í framangreindu yfirliti
felst alls engin tæmandi úttekt á
möguleikum til að einkavæðingar
hjá Reykjavíkurborg. Aðeins hafa
verið dregnir fram nokkrir þættir
sem eru augljósir, þegar litið er yfir
reikninga og fjárhagsáætlun borg-
arinnar. Þess ber einnig að geta,
að upplýsingar fyrir einstakar stofn-
anir eru misvel ítarlega sundurliðað-
ar. Þess vegna er ekki alltaf hægt
að draga fram einstaka þætti í
rekstri þeirra sem eru í beinni eða
óbeinni samkeppni við einkaaðila
eða eðlislíkir þeirri starfsemi sem
einkafyrirtæki stunda.
Sem dæmi um liði sem ekki hafa
Jago kaffi
Gæða kaffi
brennt eftir
gamalli hefö
500 gr.
í
i
i
í
>
i
i
>
>
1