Morgunblaðið - 03.03.1992, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ.IUDAGUR 3. MARZ 1992
Mísskílínn menningarsjóður
eftir Lárus Ými
*
Oskarsson
Það er greinilegt á skrifum
ýmissa aðila, fjölmiðlarýnis Morg-
unblaðsins til dæmis, að þeir eru
að fjalla um Menningarsjóð út-
varpsstöðva án þess að hafa skilið
eða nennt að hugsa út í hvaða til-
gangi hann á að þjóna, eða hvers
vegna hann varð til.
Ólafi M. Jóhannessyni finnst súrt
í broti fyrir útvarps- og sjónvarps-
stöðvar að þær fái ekki framlag úr
sjóðnum í hlutfalli við hvað mikla
peninga þær þurfa að láta af hendi
til sjóðsins.
Hugmyndin með þessu sjóði var
við stofnun hans, að stuðla að 'aukn-
um metnaði og gæðum í dagskrár-
gerð. Einnig auknu magni af vönd-
uðu efni. Hugmyndin var að íslensk-
ir fjölmiðlanotendur fengju fyrir til-
stilii sjóðsins að sjá og heyra hluti
í fjölmiðlunum, sem þeir annars
fengju síður eða ekki að sjá ella og
að kvikmyndagerðarmenn og út-
varpsfólk fengju möguleika á að
vinna sína hluti við betri skilyrði,
peningalega og timaíega en daglega
rútína fjölmiðlanna býður uppá.
Þetta átti s.s. að vera til þroska-
og yndisauka bæði fyrir áhorfendur
og fagfólkið. ' ■':*
Fjölmiðlar borga ekki
Til þess að þetta mæti verða var
lagt sérstakt gjaid ofaná auglýs-
ingakostnað þeirra sem auglýsa í
Ijósvakamiðlum. Fjölmiðlunum var
gert að innheimta þetta gjald og
koma því til Menningarsjóðs út-
varpsstöðva, sem síðan veitti pen-
inga til sérlega áhugaverðra verk-
efna.
Það er því í rauninni rangt að
einstakir fjölmiðlar séu að greiða
fé til sjóðsins - þeir eru aðeins inn-
heimtuaðilar fyrir sjóðinn.
Auðvitað kemur það einstökum
fjölmiðlum til góða aS fá peninga
úr sjóðnum til að geta gert vandað
efní, vegna þess að allt það efni sem
sjóðurinn styrkir gerð á kemur þar
fram á endanum. En mikill mis-
brestur var á að þetta gengi svona
fyrir sig á meðan eldri reglugerð
var í gildi. Peningar sem úthlutað
var úr sjóðnum (þá eingöngu til fjöl-
.miðlanna sjálfra) fóru meira og
minna í almennan rekstur. Þetta
er skiljanlegt. Það er ekki auðvelt
að fá enda til að ná saman í rekstri
fjölmíðils á þessum litla markaði
hér. Flestir hafa nóg með að fylla
þann mínútufjölda sem útsendinga-
tíminn er með þeim peningum sem
til staðar eru. Oftast ræður því
magnið frekar en gæðin hvað kem-
ur fyrir augu og eyru fjölmiðlanot-
enda. En það var einmitt þess vegna
sem Menningarsjóður útvarps-
stöðva var stofnaður á sínum tíma.
Þar átti að velja til styrkveitinga
áhugaverðustu verkefnin án þess
að stóra málið væri: hvað kostar
mínútan. Gæði efnisins eiga að
ráða.
Til dæmis sjónvarp
Mér er kunnugast um kvik-
myndagerð og þess vegna ætla ég
að taka dæmi af henni og Sjónvarp-
inu. Til er grein kvikmynda sem
flestir kanast við nafnið á: heimild-
armyndir. Margir kunna að verða
hissa á þeirri fullyrðingu minni að
þessi grein kvikmyndagerðar sé
nánast ekki til á íslandi. Það sem
hefur stundum verið kallað heimild-
armyndir hér eru myndskreytt við-
töl, fræðandi þættir í sjónvarpi (um
dauða menn eða málefni), og svo
kallað „reportage“ sem er fljótgerð
og snöggsoðin úttekt með myndum
af einhveijum ,staðháttum, byggð-
arlagi, manni eða málefni. Rep-
ortage er gjarnarn tekið upp á ein-
um eða tveimur dögum og klippt
saman á innan við viku. 011 þessi
dagskrárgerð er ágæt og nauðsyn-
leg, en þetta eru ekki heimildar-
myndir (documentaries). Heimildra-
myndir athuga hluta lífsins eða
veruleikans og höfundurinn skoðar
og skilgreinir út frá eigin sjónar-
hóli. Raunhæft er að ætla að klukk-
utíma löng heimildamynd taki ekki-
minna en hálft ár í framleiðslu.
Dæmi um slíkar myndir eru „Maður
og verksmiðja" eftir Þorgeir Þor-
geirsson og „Rokk í Reykjavík"
eftir Friðrik Þór Friðriksson.
Ekkert er eðlilegra en að Sjón-
varpið eða Stöð 2 sjái sér ekki fært
að framleiða slíkar myndir vegna
þess hvað þær eru frekar á tíma,
peninga og mannafla. Þó er rétti
vettvangurinn fyrir sýningu heim-
ildarmynda núorðið sjónvarp.
Sama er að segja um styttri
leiknar myndir sem nýta kvik-
myndamiðilinn. Stöðvarnar þurfa
að borga margar krónur fyrir mín-
útuna í þeim tilfellum og velja því
frekar sófa-spjallþætti með glensi.
Þessum myndum getur Kvik-
myndasjóður ekki sinnt af neinu
viti, ef hann á að vinna að því sem
verður að vera hans meginmark-
mið: að sjá íslendingum fyrir ís-
lenskum kvikmyndum í bíó.
Ný reglugerð
í nýlegri reglugerð sem gefin var
út um starfsemi Menningarsjóðsins
var kveðið svo á um að einkaaðilar
sem ekki standa í fjöimiðlarekstri
gæti líka sótt um styrki í sjóðinn.
Og núverndi stjóm hefur þá yfir-
lýstu stefnu að hún fari ekki eftir
öðru en gæðum verkefnanna sjálfra
sem sótt er til þegar hún veitir
styrki.
Að einstakir umsækjendur og
jafnvel fleiri séu óánægðir með val
styrktra verkefna er óhjákvæmi-
legt, en sú óánægja verður þá að
vera á þeim grundvelli að annað
verkefni hefði verðskuldað brautar-
gengi frekar en það sem fékk pen-
inga - ekki að deila eigi út pening-
um í samræmi við þá upphæð sem
hver ijölmiðill innheimtir fyrir sjóð-
inn.
Sjáið Stöð 2
Engan þarf að undra að Stöð 2
framleiði ekki meira af innlendu
efni en raun ber vitni. Þar á bæ
er verið að reyna að halda fjárhag
í böndum og allir vita að innlend
dagskrárgerð er margfalt dýrari en
að kaupa erlent efni. Það er auð-
skiljanlegt að ef stjórnendur þar á
bæ fá inn á borð til sín þetta auglýs-
ingagjald þá nota þeir auðvitað
aurinn til að standa undir rekstrin-
um. Hér er Stöð 2 aðeins nefnd sem
dæmi - það sama gildir um allar
(t) >IÍU SINNUM
, FUÓTARI?
09 skemmfo þér víð þoð?
Mólaskólinn Mímir kynnir í fyrsfo sinn ó íslandi:
HRADNAMSTÆKNi í TUNGUMAIUM
Þeno línurir byggir ó ronnsóknum Lflvð. orö SjOOO-
Dr. Robcsok í Dudapesr 1979 og 5.N. Smimovo 1 Moskvu 1973. 2j000'
Seinni ronnsóknlr bendo fil oö hraönómsraeknln ouki nómshroóo ollf oó 2 rii lOslnnum. 1-000-
Engln ronnsókn bendlr rll mlnni órongurs en rvóföldunor fró heföbundou mólonómi.
Fjöldi alþjóðafyrirtækja og stofnana, eins og 1BM,
Shell, Unesco, Delta og Hilton hótelin, hafa tekið upp
hraðnámstækniaðferðir við tungumálakennslu.
Enska, þýska, Franska, Ítalska,
SPÆNSKA OG tSLENSKA FYRIR ÚTLENDMGA
bjóðast með hraðnámstækninni - aðeins hjá Mími.
Skráning er hafin - takmarkaAur þáWakentíafjöWi.
SíAasti möguieiki til aö skrá sig í Cambridge-próf in er 18. mars.
SflVUNN ER
10004
Máloskólinn Mímir er í eigu Stjómunarfélags íslonds
Lárus Ýmir Óskarsson
„Reyndin hefur orðið
sú að samkeppnin hefur
aukið framboð á létt-
meti, sem þörf var á,
en annað gott hefur
ekki hlotist af.“
hina fjölmiðlana, í mismiklum mæli
þó.
Ef við viljum sjá vandaðar íslen-
skar myndir sem eitthvað er lagt í
verðum við annað hvort að bíða
þangað til að þeim tekst að rétta
fjárhaginn af - sem sjónvarpsstjór-
inn segir að gerist vonandi á næstu
árum - eða að nota stofnun eins
og Menningarsjóðinn til að úthluta
Stöð 2, eða kvikmyndagerðarmönn-
um sem vinna í samráði við hana,
peninga til að vinna efni sem síðan
er sýnt á Stöðinni. Og vel að merkja
peninga sem eru ekki ög hafa aldr-
ei verið þeirra, þó svo að þeir hafi
innheimt þá fyrir sjóðinn. Síðan
höfum við auðvitað enga tryggingu
fyrir því að Stöð 2 fari að framleiða
innlent gæðaefni að einhveiju
marki, rekstur stöðvarinnar er þrátt
fyrir allt eins og hver önnur við-
skipti, sem ætlað er að skila arði
og þar á bæ verða kannski fundnar
aðrar og ódýrari leiðir til að bæta
dagskrána.
Sinfonían vandamál
Þegar verið var að afgreiða til-
löguna um þennan sjóð uphaflega
á Alþingi, þá datt einhveijum það
glapræði í hug að láta greiða hluta
af kostnaði við Sinfóníuhljómsveit
íslands úr honum. Hljómsveitin hef-
ur gleypt meirihluta sjóðsins. Þetta
hefur með öðru orðið til þess að
sjóðurinn hefur aldrei getað ræktað
upphaflegt hlutverk sitt.
Meirihlutinn af því fé sem hugsað
var til að styrkja metnaðarfullla
dagskrárgerð, hefur sem sagt í raun
farið til að borga fyrir að útvarpa
sinfóníutónleikum úr Háskólabíói.
Þetta er auðvitað bara subbuskap-
ur. Það þarf að fínna aðrar og rök-
réttari leiðir til að fjármagna sinfón-
íuhljómsveit á íslandi en að gera
það með þessum sjóði sem er til
annarra hluta.
Markaður og menning
Fyrir nokkrum árum var fijáls-
ræði komið á í rekstri ljósvaka-
miðla. Það var auðvitað rás tímans
sem gerði þetta óhjákvæmilegt.
Ýmsir sem mæltu fyrir þessu ftjáls-
ræði töluðu um að öll blómin ættu
að fá að blómstra og framtíðarsýn-
in var að neytandinn fengi úr miklu
að velja. Reyndin hefur orðið sú að
samkeppnin hefur aukið framboð á
léttmeti, sem þörf var á, en annað
gott hefur ekki hlotist af. Það sem
hefur gerst, ekki síður hér en er-
lendis, er að við getum á öllum
útvarpsstöðvunum fengið að hlusta
á sömu þættina í mismunandi út-
færslum. Þar sem sjónvarpsstöðvar
eru reknar á viðskiptagrundvelli
einvörðungu eins og víða erlendis
getur áhorfandinn nánast einvörð-
ungu valið á milli mismunandi
spurningaþátta (game-show) og
mismunandi „sápa“ sem eiga allt
sameiginlegt nema andlitin á leikur-
unum, auk bíómynda. Því miður
geta markaðslögmálin ekki gefið
okkur neytendum öll hin blómstr-
andi blóm í svona dýrum miðlum.
Það sem farið var eftir við vai á
efni og gerð efnis er tvennt: vin-
sældir og kostnaður. Ráðið er að
gera sem vinsælasta þætti, sem líka
eru ódýrir.
Þeir sem reka fjölmiðil hugsa
með sér: Af hveiju skyldi ég vera
að gera dýran þátt sem fær jafn
mikla áhorfun og skilar jafn miklum
auglýsingatekjum og annar sem er
fimmfalt ódýrari? Þetta eru eðlileg
viðskiptasjónarmið, en þau valda
því að við fáum lélegra og einhæf-
ara fjölmiðlaefni. Menningarsjóður
útvarpsstöðva er hugsaður sem
mótvægi við þennan hugsunarhátt.
Ef Menningarsjóður útvarps-
stöðva fær að gegna því hlutverki
sem honum var upphaflega ætlað,
getur hann orðið til mikils fram-
dráttar fyrir menningu og almenn-
ing þessa lands.
Höfundur er
kvikmyndagerðarmaður.
Morgunblaðið/Sverrir
Framleiðslumenn Grillsins í endurnýjuðum salnum.
Grillið opnar á ný
GRILLIÐ á Hótel Sögu hefur verið opnað á ný en það hefur verið
lokað vegna breytinga á staðnum og var það m.a. gert vegna 30
ára afmælis Hótels Sögu en hótelið tók fyrst til starfa árið 1962.
Helstu breytingamar felast í nýj- Au^ Þess hefur barinn verið end
um innréttingum í salnum en þar
hefur miðju gólfsins verið lyft um
17 sentimetra svo að allir matar-
gestir geti notið útsýnisins, að sögn
Jónasar Hvannbergs hótelstjóra.
umýjaður og í eldhúsi hafa öll tæki
jafnframt verið endumýjuð.
Matseðill Grillsins hefur enn
fremur verið endurskoðaður og
fleiri réttum bætt við hann.