Morgunblaðið - 03.03.1992, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1992
23
Skólagjöld og óréttlæti
eftir Pétur Henry
Petersen
í Morgunblaðinu 25. janúar síð-
astliðinn viðrar Óttar Guðjónsson
hagfræðinemi í HÍ skoðanir sínar á
því hvernig koma skuli í veg fyrir
óréttlæti í rukkun á skólagjöldum
við HÍ. Hans skoðun er sú að fólk
eigi að borga hlutfall af þeim kostn-
aði, sem nám þeirra kostar, í skóla-
gjöld. T.d. myndi þá nemandi í tann-
lækningum borga fjórðung af 1.070
þúsundum á ári en nemi í lögfræði
íjórðung af 108 þúsundum. Þetta
er að hans mati besta leiðin til að
koma í veg fyrir óréttlætið sem
fælist í því að rukka sama gjald af
öllum.
Fyrr í greininni ræðir hann
námslánakerfið og spyr hvort þetta
kerfi sé það sem almenningurinn í
landinu vill. Óttar segir m.a. að lán-
in séu það há að sumir þjóðfélags-
þegnar hafa meira í lán en þeir
hafa í laun að loknu námi og telur
hann því lánin væntanlega of há.
Nú eru full Ián til einstaklinga í
leiguhúsnæði eitthvð tæp 50 þúsund
og mætti því spyija hagfræðinem-
ann hve marga háskólamenntaða
starfskrafta hann þekki með laun
undir því marki? En þó svo að Óttar
þekkti marga slíka, sem ólíklegt er,
væri það ekki nein lausn á vanda
lánasjóðsins heldur einfaldlega
stjórnmálamönnum landsins til
skammar. Launafólk hlýtur að eiga
heimtingu á því að laun dugi til
framfærslu en námslánin eru ein-
mitt reiknuð út frá framfærslu.
Málið er einfaldlega það að alltaf
eru til einhver undantekingartilfelli
sem dregin eru fram þegar rætt er
um að lánin séu of há. Allur meiri-
hluti námsmanna þarfnast lánanna,
fær ekki of mikið af þeim og borgar
þau aftur. Staðreyndin er sú að
endurborgunarhlutfallið er eitthvað
um 90% og gæti það varla verið
hærra miðað við eðlileg „afföll“ lán-
þega.
Kostnaðurinn af námslánakerfinu
er reyndar hár en að_mínu mati er
augljóst að það er ekki vegna hárra
námslána heldur vegna margra
námsmanna. Menntun er og verður
fjárfesting í framtíðinni og að sjálf-
sögðu mætti spyija sem svo hvort
allir nemendur í háskólum séu góð
fjárfesting en þá væri miklu eðli-
legra að hefta nemendafjölda í há-
skólum frekar heidur en að lækka
Pétur Henry Petersen
„Réttlátasta leiðin, og að
mínu mati sú eina, út úr
vanda lánasjóðsins er að
fækka nemendum í Há-
skólanum og það á að
gera á þann hátt að auka
námskröfurnar og fylgja
betur eftir að lánþegar
-erlendis standi sig í
námi.“
námslánin niður fyrir fátæktar-
mörkin.
Hinsvegar gæti svarið við spurn-
ingunni verið að Ijárfestingin væri
í alla staði góð, enda skilar háskóla-
menntun, allavega ef stunduð af
alvöru, sér eflaust eftir einhveijum
leiðum til betra þjóðfélags. Svo
mætti aftur spyija á þessum sparn-
aðartímum atvinnuleysis hvort sé
betra að borga fólki atvinnuleysis-
bætur eða lána því fyrir námi?
Námslánin eru og verða tæki til
að tryggja jafnrétti til náms í þeim
skilningi að fólk sem hefur alla burði
til að vera góðir námsmenn þurfi
ekki að hrökkiast úr námi vegna
fjárskorts. Þetta leiðir umræðuna
að skólagjöldunum.
í draumaheimi hagfræðinemans
Óttars er það væntanlega þannig
að bráðgáfaði munaðarleysinginn
sem kemur frá litlu gjaldþrota sjáv-
arþorpi út á landi, og verður því að
leigja í Reykjavík eða á Akureyri,
fær ekki námslán sem hann getur
lifað af og ef svo vel færi að arfur-
inn eftir foreldra hans nægði fyrir
lámarksútgjöldum í 3 til 5 ár yrði
hann að velja sér námsbraut eftir
efnahag. Tannlæknissonurinn eða
heildsaladóttirin gætu hinsvegar
valið sér nám að vild og þannig við-
haldið auði ættarinnar. Ég get nú
svosem skilið að einstaka hagfræði-
nemi sé þessarar skoðunnar en ef
það er það sem almenningurinn í
landinu vill fer maður nú bara að
koma sér til Svíþjóðar.
Að öllu gamni slepptu er hið rök-
rétta svar við vangaveltum Óttars
um skólagjöld að sjálfsögðu að við
HÍ eiga ekki að vera skólagjöld.
Háskólinn er sameign þjóðarinnar
og vinnur að bættu mann- og efna-
hagslífi á ýmsan hátt og því enginn
ástæða til að hegna mönnum fyrir
að vilja mennta sig.
Vandi lánasjóðsins er vandi úr
fortíðinni eins og svo margt annað
hérlendis. Islenskir stjórnmálamenn
virðast stundum bara sjá fjögur ár
eða tæplega það fram í tímann og
það skemmtilega við það er að þeir
virðast komast upp með það. Fyrir
einhveijum árum voru t.d. tollar
felldir niður af bílum og sko hvað
gerðist? Jú, allt fylltist af bílum og
enginn skildi neitt.
A líkan hátt voru ki'öfur inn í
framhaldsskóla að engu gerðar
þannig að þangað komust og kom:
ast hveijir þeir sem þangað vilja. I
framhaldi af því vill fólk svo náttúr-
lega í háskóla enda stúdentsprófið
álíka mikils virði og gamli hundrað-
kallinn rifinn. Réttlátasta leiðin, og
að mínu mati sú eina, út úr vanda
lánasjóðsins er að fækka nemendum
í Háskólanum og það á að gera á
þann hátt að auka námskröfurnar
og fylgja betur eftir að lánþegar
erlendis standi sig í námi. Háskólinn
á Akureyri var og er að mínu mati
mistök og enn eitt dæmið um það
hvernig Ieysa á vanda á einum stað
með því að búa til vanda á öðrum.
Lítil þjóð eins og íslendingar hefur
einfaldlega ekki efni á að reka fleiri
en einn alvöru háskóla.
Að lokum vil ég árétta það að
jafnrétti til náms eru mannréttindi
og að góður háskóli og menntuð
þjóð eru og verða grundvallarskii-
yrði fyrir siðmenntuðu velferðar-
þjóðfélagi og að því er ég veit best
er það það sem fólkið í landinu vill.
Höfundur er háskólanemi.
- NICAM HIFI/STEREO
- SKARTTENGI
- RCA INNGANGUR/ÚTGANGUR
- DIGITAL AUTO TRACKING
- FLJÓTÞRÆÐING (MYND KEMUR Á SKJÁ INNAN 1 SEK.)
- EINS ÁRS UPPTÖKUMINNI Á 6 RÁSIR
- HLEÐSLURAFHLAÐA FYRIR TÍMA 0G MINNI EF RAFMAGNISLÆR ÚT
- LEITAR AÐ EYÐU Á SPÓLU
- HÆGT AÐ MARKA INN UPPTÖKUR (INDEX SEARCH OG GO-TO)
- O.FL. O.FL.
<ö>
Heimilistæki hf
KRINGLUNNI - SÆTÚNI 8
HLBOÐ
VIKUNNAR
HAGKAUP
- allt t einniferó